Þjóðviljinn - 05.01.1980, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 05.01.1980, Blaðsíða 7
Laugardagur 5. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Byltingin í Nikaragúa Douglas Rivera Pineda héitir ungur Nikaragúa- búi, sem nú leggur stund á rafeindafræði i Uppsöl- um i Sviþjóð. Rivera á sæti i sænsku N'ikaragúa-nefndinni, sem bæði niiðlar upplýsingum um landið og safnar pen- ingum til stuðnings bvltingunni i Xikaragúa. Þjóðviljinn átti viðtal við Rivera, þegar hann var i stuttri heimsókn hér á iandi nýlega. Jón Ásgeir Sigurðsson rædir við Níkaragúa- búann Douglas Rivera Pineda Sandinista-hreyfingin i Nika- ragúa á upptök sin i baráttu manns sem hét Agúst Sesar San- dinó. Hann stofnaöi her sem nefndist Her hinna frjálsu manna.til að berjast gegn innrás Bandarikjanna i Nikaragúa árið 1926. Þegar Sandinó hóf baráttu sina, var við völd i landinu Juan Sa- casa forseti, sem Bandarikja- stjórn þótti eiginlega of frjáls- lyndur. Bandarikin stóðu þvi fyrir stjórnarbyltingu og komu 1936 til valda Antonio Somoza Garcia hershöfðingja þjóðvarðliðsins, en það var einmitt sonur hans, Ana- stasio Somoza Debayle, sem var hrakinn frá völdum i júli s.l.. A valdatima Sacasa, áttu að fara fram viðræður milli hans og Sandinós i höfuðborginni, en So- moza notaði tækifærið til að láta myrða Sandinó i fyrirsáti árið 1934. Að frumkvæði Bandarikjanna efldi Somoza einkaher sinn, Þjóð- varðliðið, til að tryggja valdaað- stöðu sina. Somoza-ættin sölsaði undir sig mikinn hluta jarðnæðis og átti einnig mikil itök i verslun og iðnaði i Nikaragúa. M.a. átti ættin helstu bankana, flugfélagið, helstu skipafélög, fjöímiðla, hafn- ir og fleira. í öllum helstu em- bættum i Nikaragúa voru menn af Somoza-ættinni. Jafnvel svo- kallað þing i landinu laut Somoza- ættinni. — Nú tókst ekki byltingin gegn Somoza-drottnuninni i fyrstu at- rennu? I september 1978 létu Sandinist- ar til skarar skriða gegn Somoza i norðurhluta Nikaragúa, en þeir biðu hernaðarlegan ósigur, vegna þess aö þeir nutu ekki nægilegs stuðnings meðal alþýðu i landinu. Við það var komið á herlögum i Nikaragúa og útgöngubann var i gildi. Þeir, sem voguðu sér út á götur að kvöldi til, voru umsvifa- laust skotnir. Eftir þetta var kúgunin hert um allan helming, og þótt þjóðvarð- liðar hefðu áður haft frjálsar hendur um að rupla og ræna og misþyrma fólki þá tók fyrst stein- inn úr eftir hina misheppnuðu byltingartilraun iseptember 1978. En þessi misheppnaða tilraun illa vopnaðra og tiltölulega fylgis- fárra Sandinista hafði einnig, ef svo má segja, jákvæðar afleiðing- ar. Grimulaust ofbeldi Þjóðvarð- liðsins varð til þess að upp risu fjöldasamtök eða breiðfylking (FAO), sem Sandinistar aðstoð- uðu við að skipuleggja. Þessi breiðfylking klofnaði i fyrravor og fylgdi mikill meiri- hluti Sandinistum að málum, en minnihlutinn vildi fallast á mála- miðlunartillögu þá sem komin var frá Bandarikjastjórn, um að Somoza færi frá en að öðru leyti yrðu ekki róttækar breytingar gerðar i landinu. Úr þessum meirihluta FAO- breiöfylkingarinnar varð svo Movimento Pueblo Unido, sem nú má segja að sé stór hluti af Sandinista-hreyfingunni. — Verkföll voru undanfari þcirrar byltingartilraunar sem heppnaðist i fyrra? Já, eftir morð Somoza-útsend- ara á ihaldsblaðamanninum Pedro Joaquin Chamorro 10. janúar 1978 var reynt að ná sam- stööu um allsherjarverkfall, en það tókst ekki nema að hluta til. Siðan var reynt aftur i mai og júni 1979, og þau verkföll voru undan- fari þess að Somoza var hrakinn frá völdum. — Var fólk betur undirbúið fyrir vopnuð átök í fyrrasumar? Erindrekar Sandinista höfðu ferðast um allt land og kennt fólki að búa til vopn, t.d. Mólotof-kok- teila og ýmsar tegundir af sprengjum. Ég þekki einn sem ferðaðist um með kassettusegul- band og inn á spólur var búið að Anastasio Somoza Debayle, sonur þess sem komsttil valda 1936, var hrakinn frá völdum i júli s.l.. Hann býr nú I Bandarikjunum, — hvar annars staðar? lesa nákvæmar leiðbeiningar um vopnagerð. Sandínistar voru miklu betur skipulagðir, og ráku mikinn áróð- ur með þvi að ferðast um og út- skýra ástandið fyrir almenningi. Þeim tókst lika að starfrækja út- varpsstöð fyrir Nikaragúa. Og auðvitað fann fólk fyrir arð- Launmorö, ofbeldi og arðrán ein- kenndu feril ættföðurins Anas- tasios Somoza Garcia frá upp- hafi, en hann varð einvaldur I Nikaragúa árið 1936, með fulltingi USA. ráni og yfirgangi Somoza-ættar- innar og annarra af hennar sauðahúsi. Verðlag hækkaði si- fellt og vöruskortur tók að gera vart við sig. Eins og ég sagði áð- an, var útgöngubann i gildi og ferðafrelsi mjög takmarkað. Eftir september-uppreisnina jókst lika ofbeldi þjóðvarðliða Augusto César Sandíno var myrt- ur úr launsátri árið 1934, aö skip- un Anastasios Somoza Garcia og bandariska sendiherrans. Þjóövarölið Nfkaragúa samanstóö af fruntum oghrottanum.sem fengu útrás fyrir skefjalausa fólsku i borginni Esteli i scptember 1978. A myndinni sést skæruliði úr Sandinista-hreyfingunni I Esteli. 4.000 feitir þjónar bandariskrar heimsvaldastefnu voru sérþjálfaðir i bandariskum herbúðum til að tryggja völd Somoza-ættarinnar og Bandarikjanna i Níkaragúa. gegn alþýðu, ég veit þess dæmi að heilu fjölskyldurnar voru reknar út á götu og siöan skotnar niður. Fólk sem hafði engin samskipti haftviðSandinista.Mönnum varð fljótlega ljóst, að við svo búiö var i raun engu að tapa að ganga til liðs við Sandinista. — Þjóðvarðliðarnir höguðu sér eins og örugustu villidýr... Eftir september-uppreisnina var sýnd fréttamynd I sænska sjónvarpinu, þar sem fók sagði frá þvi að þjóðvarðliðar hefðu ráðist inn á heimilin, tekið hálf- stálpaða unglinga og skotið þá til bana. Þeir tóku einnig stúlkubörn og nauðguðu þeim og drápu siöan. Sjónarvottum virtust þeir vera óðir og undir áhrifum eiturlyfja. Það hefur liklega verið álika ástatt fyrir þeim og bandariskum hermönnum i Vietnam, sem voru pumpaðir fullir af dópi. 1 Þjóðvarðliði Somoza voru ná- lægt 7.000 manns og var talsverö- ur hluti þess málaliðar. Þarna voru fyrrverandi Bandarikjaher- menn frá Vietnam, Suður-Kóreu- menn og málaliðar frá ýmsum Suður-Amerikurlkjum. Siðan 1950 hafa 4000 foringjar i þjóðvarðlið- inu hlotið þjálfun i Bandarikjun- um og þar voru t.d. pyntingar á kennsluskrá. Frá þvi að ég man eftir mér. hefur Þjóðvarðliðið alltaf vakið ógnarlega hræðslu. Menn þorðu ekki að bera orðið „kommúnisti” sér I munn, og ef mynd af Sandinó fannst hjá einhverjum var það dauðasök. I skólunum var sagt frá Sandinó sem ótindum glæpa- manni og ekkert gefið til kynna um ástæður baráttu hans. Þjóðvarðliðar voru vel launaðir og þeim leyfðist að drýgja tekjurnar með þjófnaði og of- beldi. Þeir voru þvi að verja eigin forréttindi um leið og þeir vörðu Somoza. — Hefur menning i Nikaragúa ekki orðið fyrir miklum banda- riskum áhrifum? Jú svo sannarlega. A öllum sviðum var rekinn mikill áróður fyrir bandariska lifsstilnum, sem þótti til fyrirmyndar. Mennta- kerfið var byggt upp að banda- riskri fyrirmynd og forystuhlut- verk Bandarikjanna gert ótvi- rætt. Bandariskar vöruaug- lýsingar og áróður fyrir banda- riskum lifsvenjum gengu þvi til- tölulega vel i fólk. Auk þess sem mikið var flutt inn af bandariskum neysluvör- um, voru auðvitað keypt vopn þaðan til handa Somoza-stjórn- inni. Skuldir Nikaragúa við önnur lönd eru þvi gifurlegar, og reynir núverandi rikisstjórn að ná samningum við Bandarikin og önnur lönd um tilhögun endur- greiðslna, þótt i raun séu þessar skuldir á ábyrgð kúgunarstjórnar Somoza-ættarinnar. — Hvernig er efnahagsástandið núna? Það er vægast sagt mjög bág- borið. Rikisstjórnin hefur leitað til margra rikja um efnahagsað- stoð, vegna þess að stefnt er að þvi að Nikaragúa verði ekki háð neinu einu riki eða fáum rikjum. Vestræn riki hafa gefið loforð, en minna verið um efndir. Með þvi móti er verið að reka Nikaragúa i fangið á t.d. Sovétrikjunum, sem þegar hafa látið aðstoð af hendi rakna. Helstu útflutningsvörar hafa verið kaffi, baðmull og bananar, en núna er ekkert flutt út af mat- vörum. I átökunum I fyrrasumar Framhald á bls. 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.