Þjóðviljinn - 05.01.1980, Blaðsíða 11
Laugardagur 5. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
iþróttir [/m iþróttir l/J iþrottir
A: WL. • . Jk
W ‘r>$ — 'v ‘•afi
»£gf WBm- t £
Hluti þeirra Iþróttamanna sem viöurkenningu hlutu i hófinu i gær, en
fjarverandi voru Pétur Pétursson, Gunnar Steingrimsson og Jón Sig-
urósson, en eiginkonan hljóp I skaró hans.
Margir kalladir
en fáir útvaldir
Iþróttamaður árslns 1979 útnefndur I gær:
Hrelmt langefstur
„tþróttamaóur ársins 1979 er Hreinn Halldórsson, frjálsiþróttamaó-
ur í KR. Hann hlaut 64 stig af 70 mögulegum i þessu kjöri. Hreinn er nú
kjörinn Iþróttamaóur ársins I þriója sinn og sem fyrr er hann vel aö
þessu sæmdarheiti kominn,” sagöi formaöur samtaka iþróttafrétta-
manna, Bjarni Felixson, I gær þegar úrslit I kjöri um iþróttamann
ársins 1979 voru tilkynnt.
Bjarni sagöi ennfremur:
„Hreinn er nú 30 ára gamall og
hefur um langt árabil veriö
fremsti kúluvarpari landsins og i
mörg undanfarin ár i hópi bestu
kúluvarpara heims. A s.l. sumri
náöi hann 6. besta árangri i kúlu-
varpi i heiminum áriö 1979. Hann
varpaöi kúlunni 20.69 metra á
móti á Húsavik, en hafði áöur
varpaö henni 20.59 metra á móti i
Bandarikjunum. Þessum árangri
náöi Hreinn þrátt fyrir meiðsli,
sem hrjáöu hann lengi keppnis-
timabilsins. Hreinn hefur jafnan
staöiö sig mjög vel á alþjóölegum
mótum, en meiðsli hans á s.l. ári
komu i veg fyrir það, aö hann
gæti tekiö þátt i mörgun slikum,
utan Evrópubikarkeppninnar og
Kalott-keppninnar, en þar sigraöi
hann i kúluvarpi meö yfirburö-
um. Ég hef ekki tölu á þvi, hve oft
Hreinn varpaöi kúlunni yfir 20
metra markið á siöasta ári og það
liggur viö, að viö teljum það ekki
lengur til tiöinda, þegár slik-
ur afreksmaöur á i hlut,
en Hreinn varð fyrstur Is-
lendinga til þess áriö 1976,
og ári siöar varö hann
Evröpumeistari i kúluvarpi
innanhúss. Hreinn er án efa
frægastur frjálsiþróttamaður
islenskur og mestur afreksmaöur
og árangur hans og afrek hafa
oröið til þess aö beina augum al-
mennings aö gildi iþrótta fyrir
land og þjóö, en þau hafa lika
orðiö til þess að vekja athygli
okkar á aöstööumun islenskra og
erlendra iþróttamanna.
Hreinn Halldórsson hefur tvi-
vegis áður veriö kjörinn iþrótta-
maður ársins, þ.e. árin 1976 og
1977, og hann hefur borið þetta
sæmdarheiti meö sóma og svo
veröur einnig nú. Hreinn er
sannur iþróttamaöur, sem hefur
lagt mikla rækt viö Iþrótt sina og
hefur unniö hylli áhorfenda
innanlands sem utan fyrir afrek
sin og prúömannlega framkomu
innan vallar sem utan.”
Frjálsiþróttagarpurinn Vilhjálmur Einarsson, ÍR.hefur oftast allra
orðið tþróttamaöur ársins hér á landi eöa alls 5 sinnum. Hreinn er nú
farinn aö »auma aö honum.þvi nú er hann.með 3 titla aö baki og ef að
likum lætur verður hann meö I slagnum enn um sinn. Þá hafa Valbjörn
Þorláksson og Guömundur Gislason hreppt hnossiö i tvigang hvor.
Annars ber þess aö geta aö iþróttafréttamenn dagblaöanna og sjón-
varps og útvarps sjá um kosninguna. Þeir tilnefna hver 10 menn i tölu-
röð og hlýtur sá sem er efstur 10 stig, sá næsti 9 stig o.s.frv. Þannig er
mest hægt aö fá 70 stig i kosningunni.
Listinn fyrir árið 1979 litur þannig út:
1. Hreinn Halldórsson, KR 64 stig
2. Oddur Sigurðsson, IR 51 stig
3. Pétur Pétursson, Feyenoord 49 stig
4. Jón Sigurðsson, KR 38 stig
5. Valbjörn Þorláksson, KR 24 stig
.-7. Brynjar Kvaran, Val 23 stig
.-7. Skúli Óskarsson, UIA 23 stig
8. Hannes Eyvindsson, GR 19 stig
9. SigurðurT. Sigurðsson, KR 18 stig
10. Gunnar Steingrimsson, ÍBV 17 stig
Alls hlutu 23 iþróttamenn i 12 iþróttagreinum stig i kjörinu aö þessu
sinni og er þaö svipaöur fjöldi og fyrr.
Eins og sjá má hér aö ofan eru yfirburðir Hreins talsveröir og fer
ekki á milli mála aö hann teljist öruggur sigurvegari.
Strákarnir lenda í klónum á þeim
pólsku í tvígang um helgina
í dag kl. 15 munu ungu lands-
liðsstrákarnir i handbolta heyja
aöra rimmu viö hiö fræga landsliö
Pólverja en viöureign liöanna i
fyrrakvöld gaf vissulega fyrirheit
um góða frammistööu okkar
manna i dag.
A morgun, sunnudag.mun liöiö
leika sinn þriöja og siðasta leik i
keppnisferð Pólverjanna hingaö
og hefst sá slagur i Höllinni kl. 14.
Að sögn ku pólskir vera mjög
óánægir meö frammistööu sinna
manna i leiknum i fyrrakvöld og
hyggja á hefndir. Þeir hreinlega
ætla sér aö sýna islensku
stráklingunum hvar Davið keypti
öliö. Við þvi eiga óbreyttir áhorf-
endur aöeins eitt svar: Allir i
Höllina!!
Góðkunningi islenskra handboltamanna, Januz Czerwinski, er nú æösti
maöur hjá pólska handboltalandsliöinu og er meö i förinni hingaö til
lands.
I Hreinn er hér meö hinn stórglæsilega farandgrip, sem sæmdarheit-
■ inu íþróttamaöur ársins fylgir. Iiann fékk einnig bikar til eignar frá
IVelti h.f. og þaö sama fyrirtæki bauö honum einnig til þess aö vera
viðstaddur kjör iþróttamanns Noröurlanda fyrir tslands hönd. Trú-
lega á þó Hreinn erfitt meö aö þiggja þaö boö þar sem hann mun
• dveljast viö æfingar og keppni I Bandarikjunum fram á vor.
Mynd: — gel
„Held nú tll Banda
ríkjanna og verð
þar í 5 mánuði”
— sagði íþróttamaður ársins 1979, Hreinn Halldórsson, en
hann undirbýr sig nú af kostgæfni fyrir olympíuleikana í
Moskvu næsta sumar
Hreinn Halldórsson kúluvarparinn kunni, var kjör-
inn Iþróttamaöur ársins 1979 i hófi í gær með umtais-
verðum yfirburðum, fékk 64 stig af 70 mögulegum.
Hreinn er mjög vel að þessu sæmdarheiti kominn og
náði á s.l. ári m.a. 6. besta árangri i heiminum í kúlu-
varpi þegar hann kastaði 20.69 m. á móti á Húsavík.
— Þetta kom mér nokkuð á
óvart þvi þaö eru svo margir
sem unnu góö afrek á árinu sem
var að liöa. Ég var hreinlega
ekki viöbúinn þvi að verða kjör-
inn Iþróttamaöur ársins nú, en
þaö þýddi ekki annaö en að taka
þessu meö ró þegar til kom j
sagöi Hreinn aö aflokinni verö-
launaafhendingunni i gær.
Hvaö er framundan hjá þér
næstu mánuöina?
— A mánudaginn mun ég
halda til Toucllossa i Alabama i
Bandarikjunum og dveljast þar
ásamt vini minum Guðna Hall-
dórssyni næstu 5 mánuöina við
æfingar og keppni. Þar dvelst ég
og keppi fyrir háskóla nokkurn.
Þessi ferð er sérstakur liöur i
undirbúningi minum fyrir
Ólympiuleikana, en þó munum
viö ekki njóta leiösagnar sér-
staks þjálfara, heldur æfum við
Guöni saman eins og hingaö til.
Hvaö meiöslin,sem ég hef átt viö
aö striöa undanfarin ár, varðar,
má segja að ég sé nú skárri en
oft áöur, en sennilega verð ég
aldrei fullgóður.
Eru einhver sérstök markmiö
sem þú stefnir aö á árinu, sem
er nýbyrjaö?
— Það er auövitað takmarkiö
aö vera á toppnum á Ólympiu-
leikunum. Þaö hefur stundum
tekist og stundum ekki hjá mér
aö ráða við þetta og verður þvi
að koma i ljós i sumar hvernig
tekst til. Annars hef ég ekkert
sérstakt takmark á árinu, en ég
minnist ekki aö hafa tapað á
móti á s.l. ári og þaö væri gam-
an aö halda þeim árangri.
Nú hefur verið mikiö rætt um
þaö undanfarið aö iþróttamenn
frá Vesturlöndum fari ekki á
Ólympiuleikana af pólitiskum
ástæöum. Hvernig horfa þessi
mál við frá þinum bæjardyrum?
— Þaö á ekki aö blanda sam-
an iþróttum og pólitik. Það er
min skoöun og flestra annarra
iþróttamanna. Hins vegar eru
þaö nokkrir stjórnmálamenn
sem þannig hugsa. Ef að hindra
ætti mig i ab komast á Ólym%.!u-
leikana þyrfti þaö aö vera skip-
un frá ólympiunefndinni is-
lensku og henni skipar engin
fyrir verkum nema ef vera
skyldi rikisstjórnin. Ég tel nú
ákaflega litlar likur á þvi aö
slikt geti gerst hér á landi, nema
aðrir segöu okkur aö vera
heima. Þaö eru ýmsir sem þaö
geta gert, jafnvel utanaðkom-
andi aöilar hér á landi.
Aö lokum Hreinn, hvaö end-
istu lengi i þessum slag meöal
afreksiþróttamannanna?
— Eins og ég lit á þetta i dag
getur árið 1980 orðið það siöasta
sem maöur reynir viö topp-
árangur. Ég ætlaöi aö hætta eft-
ir Ólympiuleikana 1976, en sá
fram á aö ég gæti enn betur.
Maöur veit þannig aldrei hvað