Þjóðviljinn - 02.02.1980, Síða 1
MOÐVIUINN
Laugardagur 2. febrúar 1980 27. tbl. 45. árg.
Topparnir byrjaðir að fjúka hjá Flugleiðum
Skrifstofu-
stjórinn rekinn
Gunnar berst áfram
Nýtt tílbod frá krötum — Tómas
forsætisráðherra Stefaniustjórnar
t gærkvöldi var enn allt i dvissu
um það hvort þingftokki Sjálf-
stæðisflokksins hefði endanlega
tekist að bregöa fæti fyrir dr.
Gunnar Thoroddsen og fyrir-
ætlanir hans um að mynda rikis-
stjórn með Framsóknarflokki og
Alþýðubandalagi. Að þvi er Þjóð-
viljinn kemst næst mun Gunnar
vera staðráöinn I að reyna tl
þrautar og telur sig vera viö
þriðja mann og geta treyst á hlut-
leysi eins eöa fleiri annarra þing-
mannaSjálfstæðisflokksins þegar
á reyni. Aðrir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins töldu hinsvegar
aðbiíið væri að jarða Thoroddsen
stjórnina I buröarliönum og m.a.
hefði Hellujarlinn Ingólfur kippt i
spottann til Eggerts Haukdai.
Framsóknarflokkurinn sam-
þykktí í gær að blða átekta þar til
ljóst væriendanlega hvað Gunnar
Thoroddsen gæti fært i búiö með
sér og svipaða afstöðu hafði Al-
þýöubandalagiö. Af hálfu flokk-
anna var talin nægileg forsenda
fyrir alvarlegum viðræðum um
Thorroddsen stjórn að Gunnar
heföi með sér Eggert Haukdal og
Friðjón Þórðarson og Thoroddsen
stjórn hefði þá að baki sér 31
þingmann að viðbættum velvilja
frá Albert Guðmundssyni og
hugsanlega Pálma Jónssyni. En
allir þessir þingmenn eru nú und-
ir mikilli pressu og I erfiðri stöðu.
Fleira er þó að gerast i
stjórnarviðræðum þvi „Stefania”
er ekki af baki dottinn, nema sið-
ur sé. Haldið er áfram aö reyna
að leysa forsætisráðherrahnútinn
i hugsanlegri samstjórn Sjál-
fstæðisftokks, Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks. í gær sendi
Alþýðuflokkurinn Framsóknar-
flokki formlegt tilboðum að hann
væri reiðubúinn í „Stefaníu” meö
Tómasi Árnasýni sem forsætis-
ráöherra, en I fyrradag hafnaði
Framsóknarflokkur öðru tilboöi
frá krötum um „Stefaniu” með
utanborðsmótor, það er Jóni
Sigurðssyni forstjóra Þjóðhags-
stofnunar sem forsætisráðherra
og aðeins tveimur krataráöherr-
um til viðbótar.
Aðeins Olafur Jóhannesson og
Tómas Arnason greiddu „utan-
borðslausninni” atkvæði i þing-
flokki Framsóknar. Þingflokkur-
inn hefur ekki tekið afstöðu til til-
boðsins um Tómas sem forsætis-
ráðherraefni i Stefaniustjórn.
Flokksstjórnarfundur Alþýðu-
flokksins hefst i dag og mun þar
m.a. vera gerð grein fyrir stöð-
unni i viðræðum Magnúsar H.
Magmíssonar og Karls Steinars
Guðnasonar viö Alþýöubanda-
lagsmenn um hugsanlega mál-
efnasamstöðu gagnvart Sjálf-
stæðisflokknum I viðræðum um
„nýsköpunarstjórn” þessara
floicka, ef til kæmi.
Framsóknarflokkurinn hefur
miöstjórnarfund á morgun,
sunnudag, og Alþýðubandalagið
heldur miðstjórnarfund á mánu-
daginn, en þá rennur Ut fresturinn
sem forseti veitti formönnum
flokkanna til myndunar meiri-
hlutastjórnar. Þess skal getið i
lokin að í viöræöum sem átt hafa
sér stað milli Framsóknarflokks
og Alþýðubandalags að undan-
förnu virðist hafa náðst samstaða
um að skipa ekki launakjörum
með lögum og ráðast gegn verð-
bólgu án kjaraskerðingar.
— ekh
Eitthvað virðist Albert Guðmundsson hafa að segja fyrst ekki dugði
minna hjá ólafi Ragnari en að nóta það niöur, en þcir Albert, Ólafur
ogGunnar Thoroddsen komu saman niöur af efrihæöum þinghússins,
um það bil sem þingflokksfundur Sjálfstæðisflokksins hófst i gær
(Ljósm.: — eik.)
Finnbirni Þorvaldssyni skrif-
stofus tjóra Flugleiða hefur verið
sagt upp störfum og fékk hann
upps agnarbréfið afhent á
fimmtudag. Finnbjörn hefur
starfað hjá fyrirtækinu I 25 og
hálft ár og hefur verið skrif-
stofustjóri frá 1960. Aður var
hann aöalbókari og fjármála-
stjóri Loftleiða.
Finnbjörn sagöi í samtali við
Þjóöviljann I gær, að i uppsagn-
arbréfinu hefði verið tekiö fram
að breyttist eitthvaö á uppsagn-
artimabilinu, sem er 3 mánuöir
myndi uppsögnin dregin til baka.
Hann sagði að sér hefði ekki unn-
ist tlmi til að leita skýringa á
uppsögninni I gær en trúlega
hefði framkvæmdastjóra stjórn-
unarsviös verið uppálagt aö
fækka hjá sér starfsfólki og hann
hefði oröið fyrir valinu. Finn-
björn sagöi að I júllmánuöi heföi
sér verið tilkynnt munnlega að
vegna skipulagsbreytinga hefði
veriö ákveöið að leggja skrif-
stofustjórastarfiö niöur og
myndi það taka gildi i októ-
ber. Siðan hefði ekkert skeö og
þvi heföi hann haldið að sú á-
kvörðun hefði verið endurskoð-
uð.
Finnbjörn sagöist ekki hafa
oröið þess var aö fleiri starfs-
menn Flugleiöa hefðu fengið upp-
sagnarbréf um þessi mánaða-
mót. Þess skal getið aö blaðafull-
trúi Flugleiða sagðist ekki kann-
ast við máliö. ..
— Al.
Frá þingflokksfundi Sjálfstæöisflokksins:
GUNNARIHAFNAÐ
Þingflokkurinn neitaöi aö veita honum stuön-
ing til stjórnarmyndunar — aöeins Friöjón
Þóröarson studdi Gunnar Thoroddsen
A sögulegum þingflokksfundi
Sjálfstæðisflokksins I gær var
hafnað tillögu frá Gunnari Thor-
oddsen um að þingflokkurinn
veitti honum stuðning til stjórn-
armyndunar með Framsóknar-
flokki og Alþýöubandalagi. Kom i
ljós á fundinum að aðeins einn
þingmaður studdi Gunnar I
þessu máli, Friðjón Þóröarson.
Loft var hlaðið spennu i and-
dyri Alþingishússins meðan á
fundi þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins stóð, öll pressan
varmætt á staðinn og beið frétta.
Og ekki minnkaði spennan þegar
Gunnar Thoroddsen kom storm-
andi útaf fundinum fyrstur
manna. kl. 17.00 en fundurinn
hófst kl. 15.00. Gunnar var
greinilega mjög reiöur og er þá
ekki sterkt tekið til orða. Hann
gékk hratt fram hjá blaöamönn-
um, sem varla vissu hvaöan á
sig stóð veðrið. Gunnar var eltur
fram i fatageymslu þinghússins,
þar sem hann snaraði sér i
frakkann og neitaöi aö ræöa við
blaðamenn. Það eina sem hann
fékkst til að segja var:
— Spyrjiö formanninn.
Atti hann þar við ólaf G. Ein-
arsson formann þingflokksins.
Hann kom að vörmu spori og
ræddi við fréttamenn. Sagði
ólafur að komið hefði fram til-
laga frá Gunnari um aö þing-
flokkur inn veitti honum umboð til
stjórnarmyndunar. Sú tillaga
var ekkirædd.þvlójafur sagðist
þegar hafa boriö fram breyting-
artillögu sem erefnislega á þessa
ieið.
Þingflokkurinn Itrekar umboö
til formanns Sjálfstæðisflokks-
ins um að hann haldi áfram til-
raunum til stjórnarmyndunar I
samræmi viö það umboö sem
Forseti tslands hefur veitt hon-
um.
Þessi tillaga var samþykkt
með 18 samhljóða atkvæöum,
tveir sátu hjá, þeir Gunnar
Thoroddsen og Friöjón Þóröar-
son, Pétur Sigurösson var ekki á
fundinum, hann er erlendis.
Ólafur G. Einarsson var
spurður um hvort Gunnar Thor-
oddsen hefði verið vittur á fund-
inum?
— Nei, það var enginn vittur,
fundurinn fór mjög friðsamlega
fram, svaraöi ólafur og brosti
tviræðu brosi. —S.dór.
I Áríöandi miö- i
I stjórnarfundurx
j Alþýöubanda j
j lagsins veröur j
j haldinn á j
: mánudaginn, j
fjóröa febrúar,\
aö Grettis- j
| göiu 3 og ;
! hefstkl. 20.301
I
Það eru allir mögu-
leikar opnir ennþá
Friðjón Þórðarson var sá eini
af þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins, sem studdi Gunnar
Thoroddsen á hinum söguiega
fundi þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins i gær. Gunnar var
reiður þeg ar hann kom af fundi
og ræddi ekki við fréttamenn, en
Friðjón hinsvegar lét sig hverfa
úr anddýri þinghússins og fór
upp á toft I húsinu.
Þar náöi blaðamaöur Þjóövilj-
ans tali af honum og spurði fyrst
hvort þar með væru úr sögunni
— sagöi Friöjón
Þóröarson eftir
hinn sögulega
fund Sjálfstæöis-
þingmanna i gœr
tilraunir Gunnars Thoroddsen
til stjórnarmyndunar?
— Mér sýnast allir möguleik-
ar á stjórnarmyndun opnir enn,
en hvaö Gunnar varöar veit ég
ekki hvað verður.
— Muntustyðja Gunnar áfram
ef hann heldur áfram stjórnar-
myndunartilraun sinni?
— Eins og ég sagði veit ég ekki
á þessari stundu hvaö verður i
þessum málum...
En ef Gunnar heldur áfram,
muntu þá styöja hann?
— Þaö er alveg möguleiki á
þvi, já.
Varðst þú fyrir vonbrigöum
"'T
Eins og sjá má af svip þessara þingmanna Sjálfstæöisflokksins rfkt:
spenna mikil þegar þingflokksfundurinn hófst I gær. (Ijósm. eik)
með niöurstöðuna á þingflokks-
fundinum?
— Ég er nú ýmsu vanur, maö-
m- er orðinn svo gamall I hett-
unni i stjórnmálum að maöur er
oröinn vel sjóaður, sagði Friðjón
að lokum.
— S.dór.