Þjóðviljinn - 15.02.1980, Blaðsíða 5
Fftstudagur 15. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Enn um
doktors-
próf
Af gefnu tilefni skal tekið fram
aö grein mfn I Þjóðviljanum 7
febrúar 1980 „Doktor er ekki
sama og doktor” er ekki samin að
undirlagi né I samráði við Björn
Þorsteinsson prófessor, hún er
ekki stefnumið Alþvöubandalags-
ins i menntamálum og ekki
námsmat ritstjóra Þjóðviljans
heldur einungis tilraun minnar
aumu persónu tii að varpa Ijósi á
það að doktorspróf eru mismun-
andi að eðli eftir skólum og lönd-
um.
Er ég gekk frá grein þessari rit-
aðiég stafi mina undir, en eins og
stundum vill verða f þeirri merku
stofnun Blaðaprenti duttu þeir
stafir milli stafs og hurðar og skv.
þvi, eins og Anders Hansen bend-
ir réttilega á i ákæruskjali sinu á
hendur heimspekideild i
Morgunblaöinu i gær, má greinin
skoðast á ábyrgð ritstjóra Þjóö-
viljans. Með þessu greinarkorni
vil ég hins vegar gangast við
króganum og tek alla ábyrgð á
minar veikburða axlir.
Hins vegar vil ég hér meö
skora á Anders Hansen aö finna
þeim orðum sinum stað aö látiö sé
að þvi liggja i grein minni aö
bresk doktorspróf séu ekki full-
gild próf.
Auk þess að rekja ummæli
Björns Þorsteinssonar, Þórs
Whitehead, Vilmundar Gylfason-
ar og leiðarahöfundar Morgun-
blaösins um breska doktorsgráðu
bendi ég á að doktorspróf I ensku-
mælandi löndum sé öðru visi upp-
byggt en t.d. á Norðurlöndum.
Annars vegar er um námspróf að
ræða og doktorsritgerðin unnin
undir handleiðslu kennara og að
sjálfsögðu fullgild sem slik en
hins vegar er um sjálfstæða vinnu
doktorsefnis aö ræða sem siöan er
lögð fram til doktorsvarnar.
Þetta held ég aö öllum sæmi-
lega greindum mönnum ætti að
vera ljóst og Anders Hansen llka.
Guðjón Friðriksson
Félag ráðgjafarverk-
fræðinga um nýja
flugstöð á
Keflavfkurflugvelli:
íslenskt
mannvirki
1 ályktun frá fundi Félags
ráðgjafarverkfræðinga sem hald-
. inn var nýlega segir m.a. að fund-
urinn áliti nýja flugstöð á Kefla-
vikurflugvelli islenskt mannvirki
sem hanna beri af isiendingum og
átelur stjórnvöld fyrir að hafa
sniðgengið islenska ráðgjafa við
undirbúning verksins.
Ályktanirnar eru orðréttar
þannig:
„Fundurinn átelur islensk
stjórnvöld fyrir aö hafa sniðgeng-
ið islenska ráðgjafa við undirbún-
ing þessa verks.
Fundurinn skorar á islensk
stjórnvöld að láta endurskoöa
hönnunarforsendur flugstöðvar
og ráða til þess Islenska ráögjafa,
■ sem telja verður að þekki betur
islenskar aðstæður i þessu máli
en hinir erlendu.
Fundurinn litur á flugstöðina
sem islenskt mannvirki, sem
hanna beri af Islendingum og
vinna af islenskum verktökum og
skorar þvi á stjórnvöld aö sjá til
aö svo verði. Fullyröa má, að með
þessum hætti veröi islenskir
hagsmunir betur tryggðir en ef
erlendir ráðgjafar hanna verkið
fyrir alþjóölegan verktakamark-
aö.
Fundurinn hafnar alfarið að til-
kallaðir verði erlendir ráögjafar
tií að stjórna hönnun flugstöðvar-
innar.”
— GFr
Ein þeirra húsgerða sem Húseiningar hf. framleiða.
Húseiningar hf. á Siglufirði:
Hafa selt 200 hús
I lok ársins 1979 höfðu Húsein-
ingar hf. á Siglufirði selt um 200
hús viðsvegar um landið frá þvi
að fyrirtækið hóf starfsemi sina.
Framleiðsla verksmiöjunnar er
fjölbreytt, enda hafa húsin verið
reist við mismunandi aðstæður
um allt land. Kostir einingarhúsa
eru augljósir á þeim stöðum, sem
eiga i erfiðleikum með bygg-
ingarefni, þar sem skortur er á
iðnaðarmönnum og byggingar-
timi er stuttur.
Bygging einingahúsa sparar
ekkert I efniskostnaði. Húsein-
ingar hf. á Siglufirði leggja
áherslu á vandað efni, samsetn-
ingarhluta og frágang. Forráða-
menn fyrirtækisins segja aö
framleiðslutæknin lækki hinsveg-
ar byggingarkostnaðinn á öllum
stigum byggingarinnar. Með for-
framleiðslu á stöðluðum húsein-
ingum má einnig stytta bygg-
ingatimann verulega og er það
óneitanlega kostur á verðbólgu-
timum.
Einingar Húseininga hf. eru
klæddar að utan með fúavörðum
panel og má bera á þær hvers
konar viðarlit eða málningu.
Allar einingar eru afgreiddar
fullfrágengnar innanhúss sem
utan og allir gluggar eru meö
verksmiðjugleri.
Húseiningar hf. hafa gefið út
kynningarbók með sýnishornum
af stöðluöum teikningum, sem
fyrirtækið býður upp á. Þar segir
ma., að fyrirtækið hafi einnig til
búnar sérstakar upplýsingar um
hönnun og frágang eininga-
byggðra sérbygginga, svo sem
sumarbústaöa, heilsugæslu-
stöðva, barnaheimila og bústaða
fyrir aldraða. Þá eru og fyrir
hendi upplýsingar um skóla,
kennarabústaöi og skrifstofuhús
fyrir opinbera aðila.
— eös
Akureyri;
Heyrn-
arþjón-
usta
Frá og með 1. febrúar sl. hefur
Heilsuverndarstöð Akureyrar
tekið að sér eftirtalda þjónustu
fyrir Heyrnar- og talmeinastöð
Islands:
1) Heyrnarmælingar. 2)
Heyrnartækjameöferð t.d. prófun
tækja og leiðbeiningar um meö-
ferö. 3) Mótatöku af eyrum vegna
heyrnartækja. 4) Sölu rafhlaöna,
snúra o.fl.
Þjónustan er veitt hjá Heyrnar-
deild Heilsuverndarstöðvar
Akureyrar alla þriðjudaga milli
kl. 14—16.
Fjölskyldu-
bingó
fóstrunema
A sunnudaginn kemur 17.
febrúar, ætla þriðjubekkingar i
Fósturskóla Islands að efna til
Fjölskyldubingós i Laugalækja-
skóla viö Sundlaugaveg.
Skemmtunin hefst kl. 2 eh. og lof-
að er mörgum góðum munum i
vinninga.
Sérstök kjör til marsloka:
SKÍÐAFERÐIR
NORÐUR
Eins og undanfarin ár gangast
nú Flugleiðir fyrir skiðaferðum
til Akureyrar og Húsavikur á sér-
stökum kjörum varðandi flug og
gistingu, sem gilda á timabilinu 1.
febrúar til 28. mars. Er
lágmarksdvö! 4 dagar og 3 nætur,
en hægt að kaupa til viðbótar
fleiri daga með samkomulagi við
viðkomandi gististað.
Mikil þátttaka hefur verið
undanfarna vetur i þessum skiða-
ferðum norður og gert ráð fyrir
að svo verði enn. A Akureyri er
gist á Hótel KEA og Hótel Varð-
borg, ennfremur sér ferðaskrif-
stofan Úrval um skiðaferðir
þeirra sem dvelja i skiðahótelinu
i Hliðarfjalli. Gert er ráð fyrir
þriggja nátta dvöl i hverri ferð.
Dvelji gestir á Hótel KEA kostar
flug og dvöl i eins manns herbergi
47.000.- kr. en 38.000.- sé dvalið i
tveggja manna herbergi. Gisting
hverja nótt umfram þær þrjár
sem seldar eru i ferðina kostar
kr. 8.000.- Dvelji skiöafólkiö á
Hótel Varðborg kostar flug og
þriggja nátta dvöl i eins manns
herbergi 41.000,- kr. en 35.000.-
séu tveir i herbergi. Hver nótt
umfram kostar þar kr. 6.000,-
I skiöaferðum til Húsavikur er
gist á Hótel Húsavik. Flug til og
frá Húsavik ásamt þriggja nátta
dvöl á hótelinu kostar kr. 47.000,-
sé dvaliö i eins manns herbergi en
kr. 38.000, sé dvalið i tveggja
manna herbergi. Hver umfram
nótt kostar þar kr. 8.000.-
Frá skiðalandi Akureyringa I
Hliðarfjalli.
NÝ AFGREIÐSIA
AUKIN ÞJONUSTA
Landsbanki íslands, Bíldudal, opnar í dag
afgreiðslu á Tálknafirði. Afgreiðslan verður
opin fyrst um sinn á mánudögum og
föstudögum kl. 12.00 til 15.00. Sími 94-2579.
Afgreiðslan á Tálknafirði annast öll innlend
og erlend bankaviðskipti.
LANDSBANKINN
Banki atíra laiulsmanna