Þjóðviljinn - 18.03.1980, Síða 9

Þjóðviljinn - 18.03.1980, Síða 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 18. mars 1980 Þriðjudagur 18. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Kröfluvirkjun er hér fremst til vinstri en framleiösla hennar datt úr 7 mw 13 mw við gosiö. En þess f stað fóru 3 holur að gjósa sem áður hafa verið óvirkar. Sjást tvær þeirra uppi á brekkubrúninni. Ofarlega til vinstri sér i endann á Leirhnjúk en frá honum gufustróka frá nýja hrauninu áfram norður úr. Horft norður eldsprunguna. Syðstu eldstöðvarnar næst en ofar til vinstri sést meginhluti hinnar nýju hraunbreiðu. Myndina tók ljósmyndari Þjóðviljans úr lofti snemma i gærmorgun. Kröfluaskjan: Við gliönun iandsins siitnaöi sfmakapall miðja vegu milli Reykjahlfðar og Kröflu. Hér eru þeir Grétar Ragnarsson sfmamaður og Jón Kjartansson verkstjóri að undirbúa sig fyrir viðgerð með þvi að bæta bút inn I kapalinn. Lögregian á Húsavfk stöðvaði alla óþarfa umferð viö Kfsiiverksmiðjuna f Bjarnar- flagi. Verksmiöjan er inni f gufumekkinum f baksýn en talið var að hiti hefði aukist I Bjarnarflagi við gosiö. Eidvirknin var nú norðar en áður. Hér sést nyrsti hluti hins nýja hrauns en fremst á myndinni eru nýir gufuhverir. Bryndfs Brandsdóttir jarðfræöingur var á skjáiftavaktinni gosdaginn. Hér er hún meö ritíö frá þvi þegar jaröskjálftar hófust kl. 15.13 á sunnudag. Fjórda eldgosið á tjórum árum Aðalgosstöövamar fœrast stöðugt norður á bóginn Þetta gos lfkist mjög eldgosinu i september 1977 nema þaö stóö lengur, sprungan varö lengri og meira hraun kom upp, sagöi Siguröur Þórarinsson jaröfræö- ingur i samtali viö blaöamann Þjóöviljans norður I Reynihlfð I Mývatnssveit snemma f gær- morgun. Mökkurinn Aö sögn Axels Björnssonar jarðeðlisfræðings varö óróa fyrst vart á skjálftamælum kl. 15.13 á sunnudag og um leið byrjaði land að sfga. Um kl. 16.15 sáust svo skýjabólstrará lofti og varð mökk- urinn brátt um 3 km á hæð og mjög tilkomumikill að sjá. Eldur sást fyrst um kl. 16.30 og gaus á- kaflega um hrið en um kl. 22 var gosinu lokið. Blaðamaður Þjóð- viljans flaug yfir eldstöðvarnar kl. 22.30 og var þá mikil glóð i hrauninu sem varpaði birtu upp I mökkinn svo að tilsýndar virtist eldgosið enn standa. Þetta er fjórða eldgosið á Kröflusvæöinu siðan I desember 1975 og sagði Sigurður Þórarins- son að eldstöðvarnar væru alltaf aö færast norðar og norðar og væri þaö góð þróun. Ef stórt gos kæmi væri nóg pláss fyrir hraun þar nyröra sem stofnaði byggð ekki i hættu. En þó að aöalgos- stöðvarnar væru að færast til norðurs væri þó ekki hægt að þvertaka fyrir að slettur kæmi upp t.d. I Bjarnarflagi þar sem kisilgúrverksmiðjan er. Sprungur til norðurs en kvikuhlaup til suðurs Gosið á sunnudag kom fyrst upp skammt fyrir norðan Leir- hnjúk en sföan opnuðust sprungur áfram til norðurs og siðast á móts við Sandmúla. Þar varð mesta gosið og rann þunnt hraun meö miklum hraðatil vesturs. Samtals er þetta sprungusvæði 4 1/2 km á lengd og þriskipt. Þekur hraun- ið sennilega tæpan ferkilómetra. Á sama tima og gosið færðist til norðurs sýndu skjálftamælar að kvika hljóp til suöurs. Landsigið var mjög hratt meðan á þessu stóð og sagði Axel Björnsson að sjgið væri miklu meira en sem svaraði hraunrennslinu og meginhlutinn af hraunmassanum hefði greinilega farið til súðurs til Bjarnarflags. Skjálftar og slitinn simakapall Stöðugir skjálftar voru I Reyni- hlfð á sunnudag og I gær og urðu blaðamenn Þjóðviljans greini- lega varir við þá. Áttu sumir þeirra upptök beint undir staðn- um. Hins vegar sagöi Þórarinn Björnsson bóndi i Austurhliö I Kelduhverfi I samtali viö Þjóð- viljann að þar hefðu engir jarð- skjálftar fundist. Engar sýnilegar sprungumynd- anir voru i Bjarnarflagi i gær og sagði Axel að það benti til að kvikuhlaupið þar undir stæöi mjög djúpt. Hins vegar töldu starfsmenn i Kisiliöjunni og Létt- steypunni sig verða vara við auk- inn hita I Bjarnarflagi. Simakapall sem liggur frá Bjarnarflagi og upp I Kröflu slitnaöi á miðri leiö og sagði Jón Kjartansson simaverkstjóri að það stafaði af gliönun landsins þar. I fyrrinótt eftir að gosinu lauk jókst mjög gufumyndun I gjá- stykki fyrir norðan gosstaöinn og taldi Sigurður Þórarinsson þaö benda til að kvikan hefði hlaupiö bæði til suðurs og norðurs. Mikið og snöggt sig Jarðfræðingar sögðu að þetta gos 'og kvikuhlaup hefði komið fyrr heldur en búist var við og einnig kom á óvart hversu land- sigið var nú hratt, miðað viö þann hægagang sem hefur verið undanfarin tvö sig. Talið var i gærmorgun að landsigið meðan á gosinu stóö hafi verið nálægt 60 cm i miðju svæðinu. Hallamunur I stöövarhúsi Kröflu varð um 2.2 cm. Um kl. 3 um nóttina byrjaöi svo land aftur að risa svo aö eng- Framhald á bls. 13 Sluppu naumlega undan hrauninu Myndir: eik Texti: GFr. ómar Rangarsson brást skjótt við er fréttist um gosið og náöi'góðum sjónvarpsmyndum af þvi. Hér er hann að hreinsa hrfm af flugvél sinni á flugveliinum við Reynihlið i gærmorgun áður en hann fór I loftið. Nýt- ur hann aðstoðar Gunnars Andréssonar ljósmyndara. Tveir starfsmenn Norrænu eld- fjallamiöstöðvarinnar þeir Ey- steinn Tryggvason jarðfræðingur og Halldór Ólafsson rennismiður voru staddir I Mývatnssveit þeg- ar umbrotin hófust á sunnudag. Fóru þeir strax upp eftir á snjó- sleðum og sáu m.a. þegar nyrstu eldstöðvarnar opnuðust. Sagði Eysteinn i samtali við Þjóðvilj- ann að fyrst hefði komið upp svartur reykur um kilómetra frá þeim en örfáum sekúndum seinna fóru að koma upp siettur sem breyttust siðan i ákaft gos. Hraunrennslið var svo hratt að þeir félagar urðu aö forða sér á sleðunum á fullum hraða til að sleppa undan þvi. Munaði þar mjóu þvi að þeir giskuðu á að hraði hraunsins hefði veriö um 40 km á klukkustund og hefði þvi gangandi maður ekki haft undan. —GFr

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.