Þjóðviljinn - 15.04.1980, Síða 15

Þjóðviljinn - 15.04.1980, Síða 15
ÞriO]udagur 15. april 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Dýrðardagar kvikmyndanna Sjónvarpsmönnum hefur stundum verið legið á hálsi fyrir að nota ekki miðil sinn betur en þeir gera til a ð kynna landsmönnum sögu kvik- myndalistarinnar. Erlendis er viða lögð á það talsverð á- hersia að sýna sigildar kvik- myndir og setja þær i sögulegt samhengi með stuttum, fræði- legum inngangi eða eftirmála, eða með umræðum kvik- myndafræðinga. Aðeins i örfá skipti hefur Is- lenska sjónvarpið haft uppi tilburði I þessa átt. I þessa til- burði hefur vantað allt sam- hengiog þeim hefur ekki veriö fylgt eftir. NU hafa þeir hins vegar krækt sér i myndaflokk 1 13 þáttum um sögu kvik- myndanna, og ef hér er um gott efni að ræða og vel unnið má gera þvi skóna að margur verði oröinn stórum fróðari eftir 13 vikur um þennan mikilvægasta fjölmiðil fyrir daga sjónvarpsins. Saga kvikmyndanna hófst á siðasta áratug 19. aldar og má þvi eiginlega segja aö kvik- Sjónvarp kl.21.05 myndalistin sé jafngömul tutt- ugustu öldinni. Myndaflokkur- inn „Dýrðardagar kvikmynd- anna” segir frá upphafsárun- um, fram að fyrri heimsstyrj- öldinni. I fyrsta þættinum, sem sýndur verður i kvöld, er sagt frá „epískum” kvik- myndum, eða stórmyndum fyrstu áranna. —íh Efnið i stórmyndir aldamótaáranna var oft sótt til grárrar forn- eskju, og umfjöllunin yfirleitt fremur barnaleg, a.m.k. að okkar mati. Max Frisch á hljóð- bergi Björn Th. Björnsson list- fræðingur sér að venju um þáttinn ,,A hljdðbergi” i kvöld. Aö þessu sinni les svissneski rithöfundurinn Max Frisch valda kafla dr skáldsögu sinni „Mein Name sei Gantenbein”. Max Frisch fæddist I Ziirich árið 1911. A námsárum sinum i kringum 1930 lagði hann Útvarp ki. 23.00 stund á þýskt mál og bók- menntir, og gerðist siðan blaðamaður og ferðabókahöf- undur. Eitthvað lærði hann lika i arkitektUr. En eftir strið fór hann aö lifa af listinni, varð atvinnurithöfundur og er löngu orðinn heimsfrægur sem slikur. Hér á landi er Max Frisch liklega þekktastur fyrir leik- ritin Andorra og Biedermann og brennuvargarnir.sem bæöi hafa verið fiutt hér. Af þekkt- ustu skáldsögum hans má nefna Homo faber og Ég er ekki Stiller. __jh Kíkt á alþingi Ingvi Hrafn Jónsson frétta- maður hefur umsjón meö Þingsjá sjónvarpsins i kvöld. Fjailað verður um starfshætti á Alþingi. Ingvi Hrafn ræðir við for- menn þingflokkanna og meðal þeirra spurninga sem þeir ætla að velta fýrir sér er þessi: er unnt aö auka fram- leiönina á Alþingi? Væntan- lega leikur mörgum kjósend- um hugur á að fá svar viö þessari spurningu, ekki kannski sist vegna þess að flestir kjósendur eru skatt- greiðendur. Þótt Alþingi og alþingis- menn hafi lengi verið fyrir- ferð.armiklir I póliti'skri um- ræöu hér á landi hefur áreið- anlega skort mikiö á að menn Sjónvarp . kl. 20.40 þekktu til i leikhdsinu mikla við Austurvöll, vissu hvernig Alþingi er sem vinnustaður. Þingsjá sjónvarpsins hefur það sem af er veriö eins konar gluggi fyrir okkur litla fólkið að kikja á. Það er allra góðra gjalda vert. —ih |\/| Hríngiöí síma 8 13 33 kl. 9-5 alla virka l^l>J daga eða skrífiö Þjóðviljanum tfrá Gull- lesendum Fiskurinn er ekki bara eign sjómanna og útgerðarmanna, segir Jðhanna. Hugsum um heildina korn úr helgar- blöðunum Lesandi kom til okkar með nokkrar úrklippur úr helgar- blöðunum. ,,Ég lá yfir blöð- unum um helgina, aldrei þessu vant,” sagði hann, „og fann þar ýmis gullkorn, sem mér fannst að aörir hlytu að geta haft gaman af lika.” Vorið er komið ISjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness segir á einum stað um konu Bjarts, einyrkjans i Sumarhúsum: „HUn var með eina tönn i munninum og svo kom voriö.”.Nú er vor i mál- efnum neytenda. (Reynir Armannsson I Dagblaðinu) Hvaða Héðinn? Þó aðkostnaðaráætlun, miðað við núverandi verölag, hljóði upp á 192milj. kr. þá hefur ívar Þórhallsson ekki mælst til þess að Grindavikurbær eða höfnin eigi þátt i þessari framkvæmd. „Héðinn stóð einn”. — Drög að undirbúningi dráttarbrautar- innar geröu þeir Helgi Jónsson ogDavið Gestsson verkfræðing- ar hjá Hafnarmálastofnun. —mhg (Þjóðviljinn) Engin samkeppni? Að lokum má geta þess að könnun leiddi i ljós að ekki er um beina sölusamkeppni að ræða milli blaöanna tveggja. A þeim fimm mánuðum sem at- hugaðir voru gerðist það aðeins fimm sinnum að annað blaðiö seldist óvenjuvel meðan hitt seldist undir meðallagi. 25 daga fylgdust þau að upp eða niður fyrir meöallag. Afganginn af timanum var salan annað hvort í meðallagi hjá báðum eða að annaö seldist i meðallagi meðan hitt seldist vel eöa illa. (ÞH I Helgarpóstinum) Pennavinur Enn hefur rekið á fjörur okkar pólskan pennavin. Nú er það 17 ára stúlka, sem vill skrifast á viö íslenska jafnaldra sina af báöum kynjum. Hún skrifar ensku, pólsku og rússnesku. Ahugamálin eru: iþróttir, tónlist, liffræöi og skáldskapur. Utanáskriftin: Danuta Jarosz ul. Ognieszki 37 47-400 Raciborz woj. Katowickie Poland Gunnar prófastur Pálsson heyrði frá sagt kellingu einni i sókn sinni að hún væri mjög blótsöm. Við hUsvitjun tók hann tali kellinguna og spurði að spurningum nokkrum, og leysti kelling þær sæmilega og með siðsömum orðum. Prófastur spyr hana hvað sá vondi heiti. Kelling skildi meininguna og nefnir rækalla og svo við itrekun spruningarinnar skolla og Satan. En er prófasti likuöu ekki nöfn þessi og innir til hvort hUn viti ekki önnur fleiri sem væru þó i ritningunni og öðrum guðs- orðabókum fór kellingu að leiðast og segir: „Hann heitir djöfull og andskoti og á heima I helviti, og taktu þar við honum.”. Jóhanna Pálsdóttir hringdi: — Ég hef verið að lesa i blöðum og hlusta á i útvarpi viðtöl við ýmsa menn f sam- bandi við sjómannaverkfallið frir vestan og get ekki stillt mig um að benda á svolitið, sem mér finnst ekki koma fram i mál- flutningi þessara manna. Sjómenn krefjast þess að fá aukin frl, og það skil ég mjög vel ogfinnstsjálfsögðkrafa. En svo vilja þeir hærri laun. Það vita vlst flestir að þessir menn hafa mjög góð laun, og mér fyndist miklu nær aööllþjóöin nyti góðs af þeim fjármunum sem þeir afla. Mér finnst timi til kominn að það fari að gæta meiri sam- hygðari málflutningi manna, að það sé ekki allt miðað við kjör einstaklinga. Að ýmsu leyti held ég aö það séréttsemfram kom i greininni frá Noregi, sem birtist I siðasta Sunnudagsblaði Þjóðviljans. Við erum nefnilega að sigla i strand á skemmtiferðaskipi. Viö lifum I gósenlandi, og gætum öll haft það gott, ef við hættum að hugsa með herða- blöðunum. Þvi ekki að nota þennan tima núna, verkfalls- tlmann, til að huga dálitið að þessum málum? Hvar laidum við ef viö höldum áfram að hugsa alltaf Utfrá okkar persónulegu lifsgæðakröfum, en aldrei um þjóðarheildina? Fiskurinn i sjónum er eign okkar allra, en ekki bara þeirra sjómanna og Utgerðarmanna sem eru þannig staösettir að þeir eiga auðvelt með að moka honum upp.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.