Þjóðviljinn - 10.05.1980, Side 6
6 StÐA — ÞJÓÐVXLJINN Laugardagur 10. mal 1980
Heilræði þessi eru ætluð þeim
ágætu konum sem ákveðið hafa
að bursta af sér rykið og arka nú
vígreifar út á vinnumarkaðinn.
Og hvert liggur nú leiöin i leit að
gulli og grænum skógum?
AUÐVITAÐ 1 BÓNUSVINNU 1
FRYSTIHUSINU. Þegar þið
ágætu konur eruð nú komnar
niður i frystihúsið, hafið skrýðst
einkennisbúningrum ykkar —
sem ná að visu mismunandi vel
utan um ykkur, þrýst kaskeit-
unum ofan á höfuðleðrið — þá
eruð þið tiibúnar i slaginn.
Þegar klukkan hringir kl. 8
skuluð þið spretta á fætur hver
um aðra þvera og reyna að
komast á sem skemmstum tima
inn i vinnusalinn. Reynið samt
að passa að það troðist ekki
mjög margar undir. Það er
dálitið leiðinlegt til afspurnar.
Ef þiö hafið nú komist klakk-
laust inn i salinn, snarist þá að
hnifaborðinu og veljið ykkur
hnif og ef þið eruð dálitið lagnar
að veifa honum ógnandi i kring-
um ykkur þá verður leiðin greið
að svuntuhenginu. Passið ykkur
á því að klæða ykkur, i svunturn-
ar á leiðinni að borðunum. Það
má ekki sjást til ykkar aö
þið standið eins og viðundur á
miðju gólfi og klæöið ykkur I
svunturnar i rólegheitum. Þið
gætuð tapað allt að 5 kr. á tim-
ann i bónus á svoleiðis vitleysu.
Jæja — nú eruð þiö væntan-
lega komnar að borðunum ykk-
ar og nú kemur mjög mikilvægt
atriði. Semsé að velja sér réttan
bakka. Ef þið sjáið engan góðan
bakka nálægt ykkur — þá neyð-
ist þið til að skríða eftir færi-
bandinu þangað til þið rekist á
einn góðan. Ég vil nú samt vara
ykkur við þvi að á þessum ferð-
um ykkar eftir færibandinu þá
verða ykkur send mörg óhýr.allt
aö þvi hatursfull augnatillit. En
þau drepa engan — samanber
það að ég er I fullu fjöri enn.
Skera, skera
Jæja — þegar þið eruð nú
komnar með bakka að borðinu
ykkar þá farið þiö að skera. Og
þið skerið eins og þið eigið lífið
að leysa. Talið eins litið saman
og mögulegt er og bara um það
sem viðkemur vinnunni — svo-
sem hvað þið getið skorið
marga beinagarða á ári; hvort
það sé séns að breyta þessum
fö!u og vesældarlegu ormapisl-
Talið eins Htið saman og möguiegt er og bara um það sem viðkemur vinnunni.
Bónusheilræði
um Ifiskinum ifjögurra tommu,
skoska drjóla sem við gætum
hugsanlega selt ástkærum eig-
inmönnum okkar þegar þeir
fara i laxinn næsta sumar;
helvítis frekjuna i þeim hinu
megin við bandið sem hrifsuðu
bakkann sem þið ætluðuð að
taka o.s.frv..
Og nú eruð þið væntanlega
búnar að skera svo mikið að það
flóir alls staðar út af borðinu.
Verið samt ekkert að tefja ykk-
ur á þvi að tina eitt og eitt flak
upp úr gðlfinu. Takið þau öll i
einu og helst ekki fyrr en
haugurinn er kominn upp undir
borðplötuna. Þá er ágætt að
taka eins og eitt fang um leið og
maður fer aö pakka.
Ef þú ágæta kona verður nú
fyrir því að skera þig — þá
skaltu ekkert láta það tefja þig
ef það er ekki mjög mikið.
Amerikönunum þykir nefnilega
fiskur með tómatsósu alveg
gressilega góður. En — ef þú
skerð þig nú svo illa að fingur-
inn lafir á einni taug og þú hefur
svima yfir höfði og þér er alveg
að blæða út þá skaltu nú samt
Skerið einsog þið eigið Iifið að leysa.
fara frá borðinu þvi láttu þér
ekki detta þaö til hugar að
vinnufélagar þinir fari að tefja
sig frá bónusnum á þvi að tina
þig upp úr gólfinu i yfirliði
Enga pásu
Eftir þennan útúrdúr getið þið
nú farið að pakka og i öllum
bænum reyndu að svindla á
vigtinni. Það er nauðsynlegt
uppá nýtinguna. Vigtaðu eins
marga pakka út á boröið og þú
mögulega getur. Það gerir ekk-
ert til þó pakkarnir ruglist sam-
an. Hugsaðu þér hvað sá Kani
gerir hagstæð innkaup sem
verslar sér of þungan pakka. Ég
veit ekki um hinn sem fær þann
létta. Pakkaðu nú öllu sem þú
varst búin að skera — lika þvi
sem liggur á gólfinu. Blessuð
vertu samt ekkert að skola það!
Og nú er um að gera að halda
sama hraðanum allt til enda
vinnudagsins. Og alls ekki fara i
pásu. Reynið svo að forðast
eftirlitskonurnar eftir megni.
Hagiö pakkningunni þannig að
tækjamenn séu búnir að hirða
fiskinn áður en eftirlitið kemur
á staöinn. Ef það gengur ekki
má svo sem reyna að múta eftir.
litskonunum þó að það hafi
reyndar gefist misjafnlega þvi
að þær hafa svo dýran smekk að
til vandræða horfir. Lita helst
ekki við ööru en konfekti i sér-
pakkningum.
Vandlifað
Muniö að vera góðar við verk-
stjórana þvi að þeir eiga sko
ekki sjö dagana sæla þessir
vesalingar. Meðal' þess sem
góður verkstjóri á að sjá um er
að flytja konunum sinum nytja-
tónlist af segulbandi hússins og
einnig að sjá um að hiti i vinnu-
sal sé nægjanlegur. Semsagt að
sjá um að öllum konunum sé
passlega heitt. Og hugsið ykkur
aðstöðuna sem maðurinn er í.
Þegar hann ætlar kannski að
laumast til að spila uppáhalds-
lagið sitt þá heimtar ein konan
að hann spili lagið: „Slappaðu
af!” — og önnur stendur yfir
honum með brugðinn brandinn
og heimtar að hann spili: „Do
you think I’m sexy.”
Ekki tekur betra við þegar
velja á rétta hitastigið. Þá er
einni konunni svo kalt að niöur
úr nefinu á henni hanga tvö
grýlukerti plús ljósker en kon-
unni sem stendur við hliðina á
henni er svo heitt að hún ihugar
alvarlega þann möguleika að
gerast fatafella. Á þessu má sjá
að það er oft vandlifað hjá verk-
stjórunum.
En ef þið ágætu konur farið nú
eftir þessum ráðleggingum þá
skal ég hundur heita — ef þið
komist ekki I 2098 kr. i bónus á
klukkutima.
Skrifiö í
Forvitna
rauöa!
Sem kunnugt er kom 1. tölublað
Forvitinnar rauðrar á þessu ári
út i mars. Nú er I undir-
búningi annað hefti, enda er
stefnt að þvi að gefablaðið út
fjórum sinnum á ári.
Forvitin rauð er málgagn
Rauðsokkahreyfingarinnar, og
blaðinu er ætlað að vera vett-
vangur framsækinnar umræðu
um jafnréttisbaráttuna. Til þess
að svo megi verða er bráðnauð-
synlegt að sem flestir skrifi i
blaðið. Ritnefndin hefur beðið
jafnréttissiðuna að koma þeim
skilaboðum á framfæri, að tekið
verði fegins hendi við aðsendu
efni: greinum, ljóðum, smá-
sögum, lesendabréfum.teikn-
ingum.....Sama er að segja um
tillögur að efni i blaðið.
Hringið eða skrifið Rauðsokka-
hreyfingunni, Skólavörðustig 12.
Siminn er 28798 og svarað er i
sima kl. 17- 18.30 alla virka daga
og á laugardagsmorgnum.
— ih
FORVITIN
RAUD
l.tbl. mars 1980.
Ingibjör g
Haraldsdóttir.
Umsjón
af hálfu
Þjóðviljans:
Ingibjörg
Haralds-
dótfir
Bryndís
Þórhalls-
dóttir,
Stöðvarfirði
Eirikur
Guðjónsson
Hildur
Jónsdóttir
Elisabet
Bjarnadóttir
Katrin
Didriksen