Þjóðviljinn - 21.05.1980, Page 7
Miðvikudagur 21. mai 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Það er alkunna, að þegar
sól hækkar á lofti og þey-
vindar taka að blása líf i og
nýjum vonum um land og
lýð, þá taka menn gjarnan
til höndum og snyrta í
kringum sig. Sumir kalla
það vorhreingerningu og
fer vel á. Nú er sá tími
runninn upp og það óvenju
snemma, ef miðað er við
hin síðari ár. En væri ekki
þörf á vorhreingerningu á
fleiri sviðum en á lóðum,
loftum, torgum og teigum.
Væri ekki ráð að hef ja
hreingerningu á sálarkirn-
unni almennt, áður en
sálartötrið geispar golunni
í ólofti auðshyggju og
heimtufrekju. Væri ekki
ráð, að þeir sem kjörnir
hafa verið til þeirra em-
bætta og gef ið sig til þeirra
starfa af frjálsum og
fúsum vilja, að veita for-
stöðu þessu þjóðfélagi, að
þeir hæfu vorhreingern-
ingu á öllu bákninu, þessu
margfræga bákni, sem
V orhreingerning
margir tala um, en engum
tekst að hrófla við, þegar
til kastanna kemur. Þetta
bákn virðist því vera eins
konar vígi heimilisdraugs
og.öfugt við aðra drauga,
magnast hann með
árunum, þrátt fyrir
örtölvubyltinguna.
Vinstri stjórn GT
Nú hefur um þriggja mánaöa
skeiö setiö stjórn, sem enginn veit
hvaö kalla skal, en ég nefni
Vinstri stjórn GT (sbr.
Samvinnutryggingar GT ). Hve
langlif hún veröur, eru skiptar
skoöanir um og ekki siöur hver
árangur hennar veröur i glimunni
viö heimilisdrauginn.
Ekki er þvi aö neita, aö þetta er
fremur undarleg samsetning
stjórnar, svo ekki sé meira sagt.
Að mínu viti er nánast ekki fræöi-
legur möguleiki á lifseigju henn-
ar, svo ólikir eru a.m.k. tveir
þættir hennar — eöa svo veröur
maöur aö álita. A þaö ber að lita,
aö hún var sett á laggirnar viö
óvenjulega erfiöar aöstæöur og
hefur þvi þessi samsuöa sér þaö
enn til afsökunar. En þaö veröur
ekki óendanlega hægt.og kannski
má segja, aö þessi stjórn hafi
hvorki veí né illa af stað fariö.
Hún hefur og fengiö nokkurn
starfsfriö, sem ekki er ósann-
gjarnt. En nú hlýtur aö fara aö
koma aö þvi, aö kjósendur eigi
skýlausan rétt á aö sjá, hvaöa
raunverulega stefnu þessi stjórn
ætlar aö taka. Ætlar hún aö siga
til hægri, rýmka um einstaklings-
framtakiö með tilheyrandi af-
skiptaleysi rikisvaldsins, ætlar
hún að sveigja til vinstri meö úr-
bætur og úrvinnslu verkefna á
félagslegum grunni eöa ætlar hún
aö fara i eins konar svig, kannski
stórsvig, ýmist til hægri eöa
vinstri, slá meö þvi ryki i augu
almennings, svo allir aöilar þess-
arar stjórnar geti kraflað sig til
lands án skakkafalla, þegar
hennar dagar eru allir, hvenær
svo sem þaö verður. Þá er hætt
viö, aö viö sitjum um sinn i sama
feninu, sigum hægt og bitandi
dýpra i þaö og horfum jafnframt i
sjónir heimilisdraugsins á bakk-
anum.
Vasabilljarð og
verkalýðsmál
Ekki er þvi aö neita, aö ein
aögerð stjórnarinnar bendir til
áöurritaörar sklöamennsku, en
þar á ég viö hækkun söluskatts.
Nú er svo, aö söluskattur er einn
meginbölvaldur verðbólgunnar
og hækkun hans sem olia á þann
eld, svo ég noti margþvælt kosn-
ingapip. Meö öflun fjár á þennan
máta til niöurgreiðslu á oliu er að
vissu marki verið aö færa til f jár-
muni milli vasa og virkar þvi sem
vindhögg — en er liklega vei
meint. Þessi aðgerð var ekki nógu
afgerandi, dæmigerö samsuöuúr-
lausn.
Þá kem ég aö þeirri stóru
spurningu: Hvar hafa launþegar
þessa stjórn? Nú er einn meiður
þessa þriækis yfirlýstur verka-
lýösflokkur og hinir tveir standa
a.m.k. með láglaunafólki, ef
marka má oröalag stjórnarsátt-
málans. Verkafólki ætti þvi aö
vera tryggöur þeirra skerfur af
kökunni góöu. Eitthvaö viröist þó
ekki i lagi, allir samningar lausir
og fariö aö brydda á verkföllum á
fjöröum vestur.
Hvaö er til ráöa fyrir verkafólk
t mörg misseri hafa stjórn-
málamenn talaö meö miklum
fjálgleik um ,,aö vernda kjör
þeirra lægst launuöu”. Hafa
þessir góöu menn gert sér grein
fyrir um hvað þeir eru aö tala?
Láglaunafólk! Er virkilega til
láglaunafólk á tslandi? Ég fer aö
halda að svo sé, amk. mælti einn
oddviti verkalýösflokksins i
vinstri stjórn GT i sjónvarpi á
dögunum, að vernda þyrfti kjör
láglaunafólks, og deplaöi ekki
auga. Já, hann talaði um að bæta
kjör láglaunafólks, en ekki aö
jafna kaup landsmanna, svo lág-
launafólk yröi ekki lengur milli
tannanna á pólitikusum, en
kannski yröi þá litiö til aö tala
um, sérstaklega fyrir kosningar.
Sem betur fer er ekki lág-
Guðjón
Sveinsson,
Breiðdalsvík
til lands og sjávar? Á það að
halda að sér höndum og stuöla
meö þvi aö áframhaldandi setu
vinstri stjórnar GT, gefa henni
enn betra tækifæri til aö sýna,
hvað i henni býr? Eða á það aö
láta sverfa til stáls? Þaö gæti ef
til vill oröiö til þess, aö stjórnin
tapaði áttum og legöi upp laupana
og önnur tæki viö, sem væri ef til
vill verri (þótt þaö sé á þessum
siöustu og verstu timum teygj-
anlegt hugtak).
Hvaö sem þvi liöur, hlýtur
öllum hugsandi mönnum að vera
þaö ljóst, aö launamunurinn i
landinu er oröinn þaö óeölilega
mikill aö varla veröur við unaö.
Þaö er staöreynd, aö þaö fólk sem
aflar og vinnur úr beim auö-
ævum, sem þetta þjóöfélag
byggist á, ber smánarlega litiö úr
býtum miöaö viö aöra þjóöfélags-
hópa. Og kerfiö er nú oröiö
þannig, aö.ef verkafólk nær ein-
hverjum kjarabótum i krónutölu,
þá hækkar bara allt heila bákniö
á eftir þegjandi og hljóöalaust,
fær umbun baráttulaust fyrir til-
verknað verkalýösins. Siöan
tekur viö hækkun verðlags og
þjónustu vegna þessa vitlausa
skrúfugangs sem er á öllu drasl-
inu og veröbólgan dansar áfram
sinn fáránlega fingrapolka og
heimilisdraugurinn fitnar.
launafólk á tslandi og á ég þar viö
fátækt i alþjóölegum skilningi
þess orðs. En ef launamismunur
landsmanna er settur undir
mæliker þá má tala um lág-
launafólk og það með réttu.
Sumir landsmenn vaöa i
peningum, aörir komast af og fer
vissulega eftir þvi hver á heidur.
Þetta veröuraö laga og sú krafa á
aö vera númer eitt, tvö og þrjú
hjá hinum vinnandi stéttum.
Jöfnun launa
Hver er hin pólitiska staöa
vinnustéttanna i landinu i dag?
Aö minni hyggju er hún mjög
óljós. Mér sýnist Alþýöubanda-
lagiö vera aö fjarlægjast þetta
fólk og vekur þaö vissulega nokk-
urn ugg i brjósti.
Fyrir fáum árum, liklega 1976
eöa ’77, fluttu nokkrir þingmenn
Alþýöubandalagsins þingsálykt-
unartillögu þess efnis aö launa-
munur I landinu yröi aldrei meiri
en 100% á þeim hæstu og lægstu.
Þarna er raunar kjarni málsins.
Aö þessu ber aö stefna og fram-
kvæma hiö fyrsta. En Alþýöu-
bandalagiö hefur verið býsna
hljótt um þetta mál nú nokkurn
tima, þó það hafi setiö siöan i
tveim rikisstjórnum. Hvaö dvelur
orminn langa? Hafa einhverjar
forsendur i þjóöfélaginu valdiö
þeirri dvöl? Nei, siöur en svo.
Þörfin og réttmætiö verða brýnni
og brýnni og er raunar einn
þáttur, og það ekki svo smár, i
„baráttunni við veröbólguna”, ef
menn hafa heyrt það áöur.
Litum nánar á þetta. Liklega
eru mjög margir launþegar
landsins meö um 350 þús. kr.
mánaöarlaun miðaö viö 10 stunda
vinnudag, en þó eru margir lægri.
Samkvæmt tillögu Alþýöubanda-
lagsmanna ætti þvi hæsta
mánaöarkaup i landinu aö vera
700 þús. kr. Ég segi og skrifa sjö-
hundruðþúsund. En ætli þaö séu
ekki nokkuð margir sem hafa
snöggtum hærri laun og þaö
kannski fyrir styttri vinnutima.
Ef þetta launamisrétti yröi nú
jafnaö út á þann veg , að þeir
sem væru fyrir meöan 350 þús.
flyttust upp en þeir sem væru
fyrir ofan 700 þús. færöust niöur,
þá væri stórum áfanga náö i verö-
bólguglimunni.
Nú er þaö gefiö, aö enginn getur
eytt meiru en aflaö er. En þaö er
einmitt þaö, sem viö höfum verið
að gera og gerum enn og þess
vegna ríöur heimilisdraugurinn
húsum. Ef áöurrituð launa-
jöfnun yröi framkvæmd.er ekki
vafi á þvi, að staöa þjóðféíagsins i
heild myndi breytast til batnaöar.
Þaö yröi kannski til þess, aö rikis-
valdið færi varlegar i að velta
öllum kaupkröfum út i verölagiö
eins og það hefur gert og með þvi
magnað vitleysuna og óréttlætiö.
Ef rikisstofnanir búa viö halla-
rekstur, er þá ekki kominn timi til
aö athuga, hvort þar er allt sem
skyldi, kannski þrir í þvi sæti,
sem nægöi einum. Dæmin sýna aö
svo gæti veriö og eru Flugleiöir
nærtækt dæmi.
Kaup landsmanna veröur aö
taka miö af þjóðartekjum og
skipting þjóöartekna veröur aö
vera i fullu jafnvægi, annars
höldum viö áfram aö klifa á
þessum gömlu glamuryröum um
„veröbólgubál, vernda kaupmátt
láglaunafólks, gróöa verðbólgu-
braskara” og ég veit ekki hvaö.
Slik orö og þær staöreyndir er aö
baki liggja, sem vissulega eru
ekki út i hött, eru þessu þjóöfélagi
til skammar, þaö eiga allir aö
gera sér ljóst. En jöfnun launa
veröur ekki ráöin eingöngu af aöil-
um vinnumarkaöarins, heldur er
þetta ákvöröun þeirra er með
völdin fara. Ef Alþýöubandalagið
er aö heykjast á þvi máli, getur
þaö ekki talist sósialiskur flokk-
ur. Þá vantar slikan flokk i
landinu
Þáttur
menntunarinnar
Margir tala um þaö, aö þeir
sem hafi menntaö sig eigi skiliö
miklu hærri laun en hinir ómennt-
uðu. Menntamaðurinn á aö vera
búinn að fórna svo miklu meö
sinu námi. Þetta er aö minni
hyggju rangt. Menntun er nauð-
syn, um þaö þarf ekki að deila. en
aö menntun sé einhver fórn sem
verölauna eigi meö óréttmætum
kaupkröfum er jafnframt út I
hött. Þeir, sem gengið hafa
menntaveginn, hafa gert það af
frjálsum vilja. Þeir eru meö þvl
að skapa sér tryggari og þægi-
legri afkomu i fastlaunuöum
störfum jafnvel upp á lifstiö.
Vinnustaöur þessa fólks er mjög
ólikur vinnustað sjómanna, svo
tekiö sé eitt dæmi. Mér viröast
þessi forréttindi næg, þó ekki
komi óhóflegar kaupkröfur fram
yfir það fólk, sem leggur grunn-
inn aö kaupmættinum. Þetta
hljóta menntamenn aö skilja
manna best meö þeirri viösýni er
menntunin skapar. Þaö væri þvi
kaldranaleg staöreynd, ef mennt-
un þjóöarinnar er aö koma henni
á kaldan klaka. Menntun á aö
vera til aö leysa vanda, en ekki til
að skapa öngþveiti.
Að öllu ofansögðu er þvi ljóst,
aö grunnurinn veröur að vera
traustur. Ef grunnur húss er ekki
traustur, þá er yfirbyggingin völt
og á ekki langa lifdaga, þótt reynt
sé aö tjasla upp á hana meö
stoöum, sem engin heilbrigö
skynsemi reiknar meö aö geti
oröiö til frambúöar. Nei, fyrst og
fremst þarf aö treysta grunninn
áöur en turnar eru reistir, ef þá
þarf nokkra turna aö reisa.
Ég vil aöeins vikja nokkrum
oröum enn aö menntuninni eöa
kannski menntun máttarstólp-
anna, þvi allir eru þeir i þeim
hópi. Þeir básúna mikiö um þá
ábyrgö sem þeir bera og eftir þvi
eru þeir ábyrgari sem launin eru
hærri. Það er ekki svo litil trygg-
ing fyrir litla þjóö. En hvaöa
ábyrgö bera svo þessir „fjögra-
mannamakar”? Mér hefur virst,
aö hún sé harla litil. Ef illa tekst
til, varpa máttarstólparnir
ábyrgðinni frá sér á einhverja
aöra aöila og aö lokum er bakari
hengdur fyrir smiö, ef þá nokkur
er hengdur, þaö er nú öll
ábyrgöin. Nei, slik slagorö rétt-
læta ekki kaupkröfur mattadór-
anna. Þeir eiga ekki aö bera
meira úr býtum en i mesta lagi
tvöföld laun þeirra er afla þjóöar-
teknanna.
í villu
pappírsdrífunnar
A íslandi búa um 230 þús.
manns. Það er ekki stór eining á
heimsmælikvaröa. Eitt er ég þó
viss um, að á heimsmælikvarða
erum viö ofarlega i pappirsvinnu.
Vist er, aö óeölilegur fjöldi
manna vafrar um i öllu okkar
pappirsflóöi og margir hverjir til
ári litils gagns, biða bara eftir aö
klukkan tifi og rölta siöan heim
leiðir á lifinu. Væri ekki skyn-
samlegra að nýta betur vinnu-
Framhald á bls. 13
• Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garöabæ
Onnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI53468