Þjóðviljinn - 21.05.1980, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 21. mai 1980
Menningar og friðarsamtök
islenskra kvenna
Hin árlega bókmenntakynning okkar
verður i Félagsstofnun stúdenta fimmtu-
daginn 22. mai kl. 20.30. Kynnt verða rit-
verk þessarra höfunda:
BÓKMENNTA -
KYNNING
Guðrúnar Guðjónsdóttur
Magneu Matthiasdóttur
Olgu Guðrúnar Árnadóttur
Steingerðar Guðmundsdóttur
Svövu Jakobsdóttur og
Ingibjargar Haraldsdóttur
Einnig lesa:
Nína Björg Árnadóttir og
Kristin Bjarnadóttir ljóðaþýðingar.
Auk höfunda eru flytjendur:
Guðrún Ásmundsdóttir, Sigurbjörg Árna-
dóttir, Ása Ragnarsdóttir, Hjördis Bergs-
dóttir og Fanney M. Karlsdóttir.
Allir velkomnir —
Undirbúningsnefnd M.F.I.K.
LÖGTÖK
Eftir kröfu tollstjórans i Reykjavik og að
undangengnum úrskurði verða lögtök lát-
in fram fara án frekari fyrirvara, á kostn-
að gjaldenda en ábyrgð rikissjóðs, að átta
dögum liðnum frá birtingu þessarar aug-
lýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Aföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti
og miðgjaldi, svo og söluskatti af skemmt-
unum, vörugjaldi af innlendri framleiðslu.
vörugjaldi, skipulagsgjaldi af nýbygging-
um, söluskatti fyrir jan., febr., og mars.
1980, svo og nýálögðum viðbótum við sölu-
skatt, lesta-, vita- og skoðunargjöldum af
skipum fyrir árið 1980. skoðunargjaldi og
vátryggingaiðgjaldi ökumanna fyrir árið
1980, gjaldföllnum þungaskatti af disilbif-
reiðum samkvæmt ökumælum, almenn-
um og sérstökum útflutningsgjöldum,
aflatryggingasjóðsgjöldum, svo og trygg-
ingaiðgjöldum af skipshöfnum ásamt
skráningargjöldum.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
16. maí 1980.
Laus staða
Skólastjórastaða við Gagnfræðaskóla
Olafsfjarðar er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. mai n.k.
Upplýsingar veitir formaður skólanefndar
i sima 96-62224.
Heyrt og séð í Sovétríkjunum
Dr. Hannes Jónsson sendiherra flytur
spjall sem hann nefnir „Heyrt og séð i
Sovétrikjunum” I MlR-salnum, Lindar- |
götu 48, fimmtudaginn 22. mai kl. 20.30.
Einnig verður kvikmyndasýning. — Að-
gangur öjfflun heimill meðan húsrúm
leyfir.
—MtR
Félagar I Samtökum sykursjúkra vinna aö undirbúningi bréfasendinga meö prufustrimlum — Ljósm.
G.K.
Samtök sykursjúkra á Akureyri 10 ára
Gangast fyrir víðtækri
þvagsykurathugun
Samtök sykursjúkra á Akur-
eyri og nágrenni, sem voru hin
fvrstu sinnar tegundar sem
stofnuð voru hér á landi, og
áttu 10 ára afmæli snemma á
þessu ári, hafa nú ákveöið aö
gangast fyrir einskonar sykur-
sýkisleit og gefa öllum Akur-
eyringum á aldrinum 25-65 ára
kost á aö athuga sjál'ir heima
hjá sér hvort þeir kunni aö vera
meö sykur I þvagi.
Sykur i þvagi gæti verið vis-
bending um sykursýki, þótt slikt
geti einnig stafað af öðrum or-
sökum, en sykursýki stafar af
röskun á starfsemi briskirtils-
ins, sem þá framieiðir ekki nóg
ínsúlin. Afleiöingin er truflun á
efnaskiptum kolvetna, fitu og
eggjahvitu og skemmdir á
æðum, stórum og smáum (t.d.
æðastiflur). Sykursýki er oftast
ólæknadi, en i sumum tilfellum
er hægt að uppræta mælanlega
skerðingu á sykurefnaskipt-
unum finnist sjúkdómurinn
nógu snemma. Sykursýki er
meðhöndluð með sérstöku
mataræði, töflum eða insúlini,
allt eftir eðli sjúkdónsins hjá
hverjum sjúklingi.
Nákvæm athugun á fjölda
sykursjúkra hér á landi hefur
ekki farið fram, en ætlað er, að
hlutfallslegur f jöldi sé svipaður
og i nágrannalöndunum eða
uþb. þrir aí hverjum þúsund
ibúum. Hinsvegar er staðreynd,
segja forráðmenn samtakanna,
að sykursjúkir eru hlutfallslega
fleiri á Akureyri og á Eyja-
fjarðarsvæðinu en annars-
staðar á landinu.
I samtökunum á Akureyri eru
nú um 100 manns, þaraf rúm-
lega 70 með sykursýki á mis-
munandi stigi. Er sú spurning
áleitin hvort margir Akur-
eyringar kunni aö ganga með
sjúkdóminn eða visi aö honum
án þess að gera sér það sjóst. Til
þessara einstaklinga þarf að ná
til að koma i veg fyrir alvar-
legar likamsskemmdir hjá
þeim af völdum ómeðhöndlaðar
sykursýki og er það ma. til-
gangurinn með þvagsykur-
athuguninni sem samtökin efna
nú til; er vonast eftir góðri þátt-
töku bæjarbúa, sem fá bréf sin
þessa dagana.
Samtökin hafa notiö mikil-
vægs stuðnings nokkurra fyrir-
tækja og einstaklinga, sem
hefur gert þeim mögulegt að
framkvæma þessa athugun.
Félagsmenn hafa lagt fram
mikla vinnu i þessu sambandi,
einkum við undirbúning og út-
burð bréfanna, sem eru um
5.700 talsins.
Þvagsykurathugunina er
harla einfalt fyrir hvern mann
að framkvæma. Til þess eru
notaðir svonefndir Tes-Tape
strimlar, sem framleiðandinn,
Lilly Research Laboratories i
Bandarikjunum, var svo vin-
samlegur að gefa til þessarar
athugunar. Nákvæmt leiðbein-
ingabréf fylgir hverjum strimli,
svo og sérstakt bréf, sem
merkja skal inn á niðurstöðu at-
hugunarinnar og koma siðan i
merkta kassa i apótekum
bæjarins eöa Læknamiðstöð-
inni. Þaö er afar mikilvægt, að
ailir skiii þessum bréfumþvi að
á þeim byggjast heildar niður-
stöðurnar. En kassarnir verða
opnaðir og svörin athuguð af
Ölafi H. Oddsyni, héraðslækni.
Með niðurstöðu athugunar
hvers manns verður farið sem
trúnaðarmál. Samband mun
siöan haft við þá, sem ástæða
þykir til að athuga betur.
Samtök sykursjúkra eru opin
öllum sykursjúkum svo og
öllum, sem gerast vilja
styrktarfélagar. 1 stjórn Sam-
taka sykursjúkra á Akureyri og
nágrenni eru : Gunnlaugur P.
Kristinsson, formaður, Stefán
Ingólfsson, ritari, Jóhann
Bjarmi Simonarson, gjaldkeri,
Maria Pálsdóttir og Þóra
Franklin meðstjórnendur
Hver vill þjálfa blóðhund?
Landssamband hjálparsveita
skáta ráögerir aö koma á fót
hérlendis sveit manna sem
áhuga hafa á aö eiga og þjálfa
leitarhunda. Hugmyndin er sótt
til Noregs en þar er starfandi
sérstakur félagsskapur
„Faringen Norske Lavine-
hunder” og er i honum ca 400
hundaeigendur. Félagar úr
L.H.S. hafa sótt námskeiö sem
F.N.L. héldu i Noregi og kynnt
sér þessi mál bæði þar og vlðar i
Evrópu. Um langt skeiö hefur
Hjálparsveit skáta i Reykjavik
átt og rekiö sporhunda. Árangur
af þvi starfi hefur veriö mjög
góöur og eru sporhundarnir
algjörlega ómissandi hjáipar-
tæki við leit aö týndu fólki.
Hafnfirðingarnir hafa undan-
farin ár eingöngu notað hunda
af blóðhundakyni, en þeir hafa
þá eiginleika að geta rakið
slóðir, jafnvel þótt þær séu
orðnar meira en dagsgamlar.
Hins vegar hefur L.H.S. nú
áhuga á að útvikka þessa starf-
semi þannig aö virkja einstak-
linga sem áhuga hafa á útilifi og
hundaþjálfun. Flestar tegundir
hunda eru nothæfar sem leitar-
4^1
A myndinni sjást Sheffer tikin sem þekkt helur verið undir nafninu
„Hasshundurinn” og tveir Sheffer hvolpar sem LHS hefur þegar til
umráöa til þjálfunar sem leitarhunda.
hundar t.d. Scheffer, Labrador,
Doberman o.fl. Skilyrði er þó aö
hundarnir séu sterkbyggöir og
séu þétthærðir og þoli vel
kulda og vosbúð. Þessir hundar
hafa ekki sömu eiginleika og
blóðhundarnir og koma ekki að
sömu notum við sporrakningu.
Hins vegar geta þeir orðið mjög
góðir leitarhundar t.d. i snjó-
flóðum. Þjálfun hundanna
kostar mikið erfiði og tima.
Þannig þarf að þjálfa þá I að
minnsta kosti 2—3 tima daglega
til að ná árangri. Miklar kröfur
þarf einnig að gera til þjálf-
arans að öðru leyti t.d, hvað
fyrstu hjálp og kunnáttu I feröa-
mennsku snertir. Björgunar-
skóli L.H.S. mun standa fyrir
námskeiðum fyrir væntanlega
þjálfara og fá hingað til lands
norskan sérfræðing i þjálfun
leitarhunda til námskeiðahalds
ef áhugi verður á þessu máli.
Vitað er um nokkra menn á
landinu sem eiga hunda af
þessum tegundum og vonast
L.H.S. til að fá þá til samstarfs.
Einnig er hugsanlegt að L.H.S.
geti útvegað fáeina hvolpa til
þjálfunar.
Leitað hefur verið samvinnu
við bæði Hundavinafélagið og
Hundaræktarfélagið i þessu
máli og verður það kynnt sér-
staklega á vegum þessara
félaga.
Þeir sem áhuga hafa á að afla
sér nánari upplýsinga eru
beðnir að hafa samband við
skrifstofu L.H.S. Nóatúni 21,
Reykjavík, simi 91-26430. Skrif-
stofan er opin á milli klukkan
13—16 mánudaga til föstudaga. |