Þjóðviljinn - 01.06.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.06.1980, Blaðsíða 3
Sunnudagur 1. júni 1980. ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 3 Njörður i simanum. Ön?úlfur i shnanuni. LISTAHÁTÍÐ HEFST f DAG, SUNNUDAG: „Stöðugt stærri og breiðari hópur sem kaupir miða” „ Jú, ætli við verðum ekki að segja að það sé nóg að gera. Við erum að fara yf ir kynningar á dagskrár- atriðum og Sólveig er að skrá komutíma allra er- lendu listamannanna" sagði Njörður P. Njarðvík, E*1 Dagskrá Listahátíðar Sunnudag Klukkan 4 sunnudag verð- ur hátiðin sett á Lækjartorgi. Þaö er Ingvar Gislason, menntamálaráðherra sem setur hátiðina, kór Mennta- skólans við Harmahliö syng- ur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur og spánski leikhópurinn Els Comediants leikur á torginu. Sýning Antonio Saura er opnuð kl. 2 i Listasafni Islands og kl. 3 flytur Leik- brúðuland „Sálina hans Jóns mins” á Frikirkjuvegi 11. Kl. 7 veröur opnuð á Kjarvals- stöðum yfirlitssýning á verk- um Kristinar Jónsdóttur og Gerðar Helgadóttur. Kl. 8.30 á sunnudagskvöld verða tónleikar i Háskólablói með Sinfóniuhljómsveit Islands, einleikari Göran Söllscher, stjórnandi Rafael de Burgos. Mánudag A mánudag verður sýníng á „Sálinni hans Jóns mins” hjá Leikbrúðulandi kl. 5. Þriðjudag A þriöjudaginn kl. 5 verður sýning hjá Leikbrúðulandi á „Sálinni hans Jóns mins” og kl. 9 um kvöldið veröa pianó- tónleikar Alicia de Larrocha I Háskólabiói. formaður framkvæmda- stjórnar Listahátíðar þeg- ar við litum inn með Ijós- myndara á skrifstofuna í Gimli fyrir helgina. Þar sátu þau Njörður, örnólfur Árnason, framkvæmda- stjóri Listahátíðar og Sól- veig Eggertsdóttir mót- tökustjóri á kafi í pappír- um. Þau buðu upp á kaffi og hjónabandssælu á með- an við spjölluðum saman og síminn glumdi. „Ég hef aldrei verið hér heima á Listahátið fyrr og þetta er þvi nýtt og spennandi fyrir mig. — Nei, ég kviöi ekkert sérstaklega fyrir. Það er helst að maöur kviði þvi aö verða skammaður fyrir veðrið ef það verður slæmt. Rokið er það eina sem maður hefur áhyggjur af þegar maöur þarf að fara til Keflavikur og taka á moti útlendingunum.” „Og þarftu að berjast með blómvendi á móti vindinum?” „Nei, við förum ekki með blóm- vendi út á flugvöll, — það er ómögulegt fyrir fólkiö að burðast með blómvendi til viðbótar viö allan farangurinn. Hins vegar biður blómvöndur á hveriu her- bergi á Hótel Sögu.” „Komast erlendu gestirnir til með aö ferðast eitthvað um land- ið?” „Fæstir hafa tima til þess. Japaninn Tanaka kemur hingað meö kvikmyndatökumenn og ætl- ar aö taka mynd hér. Spænski leikhópurinn Els Comediants verður hér alla hátiðina og þau verða með sérstakan leiðsögu- mann. Það sem komið er af þessu fólki er ákaflega elskulegt og ég kviði engu. Það væru þá helst duttlung- arnir I þessum tveimur sem mað- ur gæti haft áhyggjur af”. segir Sólveig brosandi og bendir á þá örnólf og Njörð, sem þessa stund- ina eru sinn I hvorum simanum i mjög dularfullum samtölum. Þegar örnólfur hefur sleppt simanum segir hann okkur að allt gangi samkvæmt áætlun, — undirbúningi er að mestu lokið og miöasala hafin. „Þær segja mér sem hafa verið hér i miðasölu frá upphafi, að hún sé óvanalega jöfn og góö i þetta sinn. Þú ættir að tala við hana Guðriði —” um leið og örnólfur sleppir orðinu birtist Guðriöur Þórhallsdóttir miðasölustjóri og Ornólfur kemst aftur i simann. „Ég hef unniö viö miðasölu á Listahátið frá upphafi og mér finnst mjög ánægjulegt hvaö sal- an er jöfn i ár. Það er þegar fariö að selja miða á dagskráratriði sem eru eftir þrjár vikur.” „Hvaöa viðburðir á Listahátið virðast ætla að verða vinsælast- ir?” „Það er ekki gott að segja um þaö ennþá, þvi reynslan hefur sýnt að fólk fer ekki að kaupa miða I alvöru fyrr en um mán- aöamótin, þegar það hefur feng- ið útborgaö. Það er þó greinilegt að Pavarotti ætlar aö verða einna eftirsóttastur. En eins og ég sagði er miöasalan mjög jöfn á öll atriöin. Ég get nefnt sem dæmi um atriði á dagskránni sem mikið er spurt eftir: „Beðiö eftir God- ot” frá Leikfélagi Akureyrar og kemmertónleika, en hvort tveggja er i siðustu viku Lista- hátiðarinnar.” „Er munur á þvi fólki sem nú kaupir miða á Listahátiö og þvi sem kom fyrsta árið sem Lista- hátið var?” „Já þróunin er mjög ánægju- leg. Maður sér breytingu ár frá ári. Hópurinn sem kemur verður æ breiðari og ég held að hann hafi aldrei verið fjölbreyttari en ein- mitt núna. Miðaverðið er lika vel viðráöanlegt fyrir flesta og ég held að þeir séu fáir sem ekki geta leyft sér aö taka þátt I Lista- hátið vegna miðaverðsins. Svo má geta þess aö ýmis atriöi eru ókeypis, t.d. opnunin á Lækjar- torgi.” „Er mikið um að ungt fólk kaupi miða?” „Já, það er greinilega að auk- ast. Mér finnst mjög gaman að selja þessu unga fólki miða, þvi það hefur góöan listasmekk,” sagði Guöriður að lokum. Þegar við höfðum lokið viö hjónabands- sæluna kvöddum viö þau þre- menningana og þökkuðum fyrir okkur, enda var skrifstofan þegar oröin full af fólki i ýmsum erinda- geröum. —þs Litið inn á skrif- stofu Listahátíðar Spænski ieikhópurinn Els Comediants frá Barcelona sýnir á Lækjar- torgi á opnun Listahátiöar I dag, sunnudag. „Gaman aö selja þessu unga fólki miöa”, sagöi Guöriöur miöasölustjóri. Ljósm. — gel — „Ælii maöur hafi ekki mestar áhyggjur af rokinu”, s-,göi Sólveig Eggertsdóttir móttökustjóri. UTBOÐ Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar óskar eftir tilboðum i lögn aðveitu 3ja áfanga. Tilboð verða opnuð á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. 12. júni 1900 kl. 11 f.h. Útboðsgögn fást afhent á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. Ármúla 4 Reykjavik, Berugötu 12 Borgarnesi og Verkfræði- og teiknistofunni sf. Heiðarbraut 40 Akranesi gegn 50 þús. kr. skilatryggingu. Verkfræðistofa Siguröar Thoroddsen hf. Armúla 4, Reykjavlk. Slmi 84499 Atvinna í boði er hlutastarf við skipulagningu á dreifingu og sölu timarits er kemur út árs- fjórðungslega. Ahugasamir leggi inn nöfn og heimilisfang með upplýsingum um nám og fyrri störf á afgreiðslu Þjóðvilj- ans, merkt SH 30. Notuð útidyrahurð með járnum og karmi til sölu á tækifæris- verði. Einnig 2—3 innihurðir. Upplýsingar i sima 82432.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.