Þjóðviljinn - 01.06.1980, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 01.06.1980, Blaðsíða 9
Sunnudagur X. júnl 1980. ÞJÓÐVILJINN— SIÐA 9 Ásgrímssafni þótti til- hlýðilegt að leggja sinn skerf til lis'tahátíðarinnar og opnar í dag hina árlegu sumarsýningu, sem er 47. sýning frá opnun safnsins árið 1960. Vandað er mjög til þessarar sýningar, úrval mynda af is- lensku landslagi eins og Asgrimi Jónssyni kom það fyrir sjónir i margskonar veðrabrigðum. Sú hefur verið venjan að sýna ætið I heimili Ásgrims vatnslita- myndir og nokkrar teikningar, en i vinnustofu hans aðallega oliu- málverk. Verkin á þessari sýn- Frá llafnarfirði nefnist þessi mynd Asgrims. Sumarsýning í Ásgrímssafni ingu er máluð viðsvegar á land- inu, meðal annars Skaftafells- sýslu, Mývatnssveit, Reykjavik, Hafnarfirði, Húsafelli, Þingvöll- um, að ógleymdri Heklumynd sem vakið hefur mikla athygli en Hekla var það viðfangsefni As- grims úti i náttúrunni, sem telja má upphaf og endir á listferli hans. Vegna þeirra fjölmörgu er- lendu gesta sem Asgrimssafn heimsækja á sumrin hefur safnið frá fyrstu tfó ’.átið þeim i té ókeypis litið upplýsingarit á ensku, dönsku og þ<'Sku um lista- manninn og gjöf hans til þjóðar- innar. Einnig fylgir hverri mynd sem sýnd er, islenskur og er- lendur texti. Til sölu eru i As- grimssafni kort i litum sem safnið hefur látið prenta undanfarin ár. Asgrimssafn, Bergstaðastræti 74, er opið alla daga, nema laugardaga, i júni, júli og ágúst frá kl. 1.30—4. Aðgangur ókeypis. Ijaldsalat Þegar farið er í útilegu, er gott að geta undirbúið nestið sem best heima. Þetta er næringarríkt pylsusalat, sem búa má tii; áður en lagt eraf stað,og geymist vel til næsta dags í kælitösku eða matar- kælibrúsa. 400—500 g. GOÐApylsa 5—6 soðnar kaldar kartöflur 5—6 sneiðar rauðrófur (sýrðar) 2 harðsoðin egg 1 dl. sneiddar púrrur eða Vi dl. saxaðurlaukur vínedik vatn matarolía örlítið salt og pipar steinselja (söxuð) Skerið pylsu, kartöflur og egg í sneiðar og rauðrófurnar i ræmur.Hristið sósuna saman í hristiglasi. Blandið öllu saman í plastboxi eða matarkælibrúsa, kælið vel, áður en lok er sett á. Ljúffengt með grófu brauði og smjöri. Berið kaffi, te eða heita súpu með. Goðapylsur á grillið. ^ KJötiðnaðarstöð Sambandsins Iúrkjusandi sími:86366 Tillaga að matreiðsiu. Sósa: 1 msk. 1 — Tværgóðarfrá GOÐA fl Frá =1= grunnskólum Kópavogs Fjölbrautarnám ! grunnskólum Kópavogs næsta vetur A skólaárinu 1980—81 mun verða starf- rækt fjölbrautarnám i grunnskólum Kópavogs, þ.e. Vighólaskóla og Þinghols- skóla. í Vighólaskóla munu verða: Viðskipta- svið, heilsugæslusvið, og uppeldissvið. í Þinghólsskóla mun verða: Sjávarút- vegssvið, hússtjórnarsvið, ásamt grunn- deild iðnnáms, (þ.e. bóknámshluta) og fornám. Umsóknir þurfa að berast ofangreindum skólum eða skólaskrifstofu Kópavogs, Digranesvegi 10, fyrir 10. júni n.k. Umsóknareyðublöð og upplýsingar um námið fást i skólunum eða á skólaskrif- stofunni. Þeir nemendur i grunnskólum Kópavogs næsta vetur, sem ekki hafa látið innrita sig, eru minntir á að gera það fyrir 10. júni i skólunum. Einkum eru nýfluttir nemendur eða þeir sem flytjast munu i Kópavog i sumar, minntir á þetta. Skrifstofur skólanna eru opnar fyrir hádegi alla virka daga nema laugardaga. Afrit eða ljósrit af siðasta prófskirteini þarf að fylgja nýjum umsóknum. Skólafulltrúinn i Kópavogi Umsóknarfrestur um skólavist í Söngskólanum i Reykjavik Umsóknareyðublöð liggja frammi i bóka- verslun Sigfúsar Eymundssonar og i skólanum að Hverfisgötu 45, þar sem nánari upplysingar eru veittar daglega frá kl. 3—5, simi 21942 og 27366. Inntökupróf fara fram um miðjan júni og verða nánar tilkynnt umsækjendum siðar. Eldri nemendum skólans er bent á að endurnýja umsóknir fyrir sama tima. Skólastjóri Umferðarfræðsla BROÐULEIKHtJS OG KVIKMYNDA- SÝNING fyrir 5—6 ára börn í Kópavogi Fræðslan fer fram sem hér segir: 3. júni Kársnesskóli Snælandsskóli Kópavogsskóli Digranesskóli Lögreglan i Kópavogi og Umferðarnefnd kl. 09.30 kl. 11.30 kl. 14.00 kl. 16.00 Til sölu sundurtekinn bílskúr. Lengd 7 m. breidd 4 m. f ræst klæðning. Stórar járnslegnar hurðir, góður gluggi og góð járnklæðning. Ennf remur er til sölu grind af 40 f m húsi með rúm- góðu risi. Bitar í grind eru 5x5, milli hæða eru bitar 7x3. OlI klæðning er fræst. Góður stigi. Get séð um ódýran flutning hvert á land sem er. Verð sam- komulag. Uppl. í síma 66519.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.