Þjóðviljinn - 01.06.1980, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 01.06.1980, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. júni 1980. * flk ... STARF OG KJÖR AUÐUR KRISTINSDÓTTIR SÉRKENNARI Bormn eru msmmm LAUN; Byrjunarlaun 13. fl. 1. þrep kr. 367.711 Hámarkslaun 15. fl. 3. þ°rep kr. 439.644 Flestir sem viö kennslu fást munu vera sammála um að tilkorjna sérkennara haf i haft mikil og góð áhrif í grunnskólunum. Skoðanir eru hins vegar mjög skipt- ar á því hvernig sér- og stuðningskennslu skuli háttað, hvort taka eigi börnin úr sínum heima- skóla og láta í sérskóla, hvort nægilegt sé að taka þau útúr tímum af og til, hvort hafðir skulu sérstak- ir bekkir fyrir þessi börn í almennum skólum, hvort sérkennarinn eigi aðkenna með bekkjarkennara o.fl. Ég ræddi þessi mál viö Auöi Kristínsdóttur sérkennara viö grunnskólastigiö I Neskaupstaö en þar hefur hún kennt á f jóröa ár en áöur kenndi hún i Fellaskóla og sföan i Melaskóla. — I fyrsta lagi er sérkennsla mikiö spursmál um viöhorf, segir Auöur. Hvaö er þaö stór hópur sem á aö setja i sérkennslu? Min skoöun er sú aö hinn almenni grunnskóli eigi aö vera þannig i 10 ára aldur eru nokkur börn farin að dragast afturúr og þaðan í frá Halda þau því áfram og mun urinn eykst eftir því sem lengra líður” stakk búinn aö hann geti sinnt sem flestum nemendum meö sér- þarfir, og aö sem fæstir nemend- ur þurfi aö fara á sérstofnanir. Hvert byggöarlag á þvi aö reyna aö leysa málin i heimahéraöi. Ég tel þaö flestum börnum skaölegt aö flytja þau aö heiman á sér- stofnun i ööru byggöarlagi. Til aö þeim liöi vel og árangur náist veröa þau aö vera i sinu eölilega umhverfi. Aðstoð á staðnum — Hvers konar vandamál eru þaö sem þú ert aöailega aö fást viö? — Viö hér I Neskaupstaö höfum öll sömu vandamál og eru annars staöar, þetta er bara allt smærra i sniöum. Hérna eru taugaveikluö börn og seinfær börn, börn meö talgalla og börn meö hegöunar- vandkvæöi. Þessi börn eiga aö hafa sama rétt og börn á þétt- býlissvæöunum og hjálpin eöa sérkennslan sem stendur til boöa veröur aö vera hér. Þessi staöur veröur aö vera sjálfum sér nógur aö þessu leyti. Fámenniö veldur þvi hins vegar aö dýrt yröi aö koma viö öllum þeim úrræöum sem viöa eru fyrir hendi á stærri stööum. Mér hefur komiö til hugar aö i Neskaupstaö mætti reka saman og i samvinnu viö aöra aöila skóladagheimili og at- hvarf. Sálfræöiþjónustu væri aft- ur á móti sjálfsagt aö fá frá Reyöarfiröi, en þar er fræöslu- skrifstofa Austurlands. Ósveigjanlegt skólakerfi — Hvernig hagar þú starfi þfnu i grunnskólanum? — Ég hef lesver sem kallaö er. Þar fer fram stuöningskennsla, aöallega i lestri. Venjulega er ég meö tvö börn i einu. í fyrra byrjaöi ég á þvi aö vinna meö yngri börnunum i bekkjunum meö kennurunum, og hefur þaö gefiö mjög góöa raun. Samvinna min og kennaranna er ákafleea góö. Þeir segja mér hvar skórinn kreppir og viö ræöum saman eftir timana og ákveöum svo I sam- einingu hvaö gera skuli, oft frá degi til dags. Arangurinn finnst mér alveg þokkalegur I yngri bekkjunum; lestrarkennsla hér er i mjög góöu lagi. Þaö eru tveir kennarar sem kenna eingöngu 7 ára bekkjunum og nýir kennarar eru fremur sett- ir I eldri bekkina. Hópurinn sem þarfnast sér- kennslu er hins vegar mjög breiöur eins og gefur aö skilja. 1 Reykjavik væru sumir nemendur kannski i öskjuhllöaskóla eöa á ýmsum sérstofnunum. — Annars er þaö sorglegt hvaö litiö er I rauninni hægt aö hjálpa, skólakerfiö er svo ósveigjanlegt aö nánast er útilokaö aö koma viö nokkru vali. Allir veröa aö til- einka sér þaö sama og á sama aldri og meö sama hraöa. Afleiöingin er sú aö um 10 ára aldur eru nokkur börn farin aö dragast afturúr og þaöan I frá halda þau þvi áfram og munurinn eykst eftir þvi sem lengra liöur. Seinfærni barnanna getur átt sér margvislegar orsakir og alls ekkert frekar greindarfarslegar. Þaö er nú einu sinni svo aö þroskaferli barna er sveiflukennt „Fámennið veld ur því að dýrt yrði að koma við öllum þeim úr ræðum sem við víða eru fyrir hendi á stœrri stöðum” en skólinn keyrir áfram á jöfnum hraöa. Þaö þarf fyrst og fremst aö kenna börnunum þaö sem þau ráöa viö, en fresta ööru þar til siöár hvaö sem námsskrá segir. En viö kennarar erum ákaflega bundnir vananum, finnst ævin- lega aö engu megi sleppa sem venjan hefur veriö aö kenna á vissum aldri, en lögum sam- kvæmt er námsskráin aöeins til viömiöunar. Þú sérö nú t.d. hvaöa vit þaö er eöa hitt þó heldur aö vera aö kenna ensku og dönsku börnum sem varla eru læs. Gefast upp í 7. eða 8. bekk — 1 efstu bekkjum grunnskól- ans er þetta oröiö verulega dapurlegt, sumir unglingar á þessum aldri sem mestalla skóla- tiö sina hafa veriö minni máttar, gefast hreinlega upp og hætta i 7. eöa 8. bekk. Vitaskuld er þaö eng- in lausn, þessir unglingar halda oftast áfram aö vera undir þegar úti atvinnulifiö er komiö og þar, eins og I skólanum, eru þau hrædd um aö standa sig ekki og óttast sifellt aö veröa aö athlægi. — Ég held aö töluvert af unglingavandamálunum svoköll- uöu megi rekja beint eöa óbeint til skólauppeldisins. Ég finn þaö i samtölum minum viö unglingana aö undir niöri eru þeir niöur- brotnir þó aö þeir sýnist kannski ákaflega „töff”. Mér finnst rang- látt aö leggja þaö á börn aö liöa illa langtimum saman. Fullorön- ir, sem liöur illa á vinnustaö skipta gjarnan um vinnu. Börnin geta ekki gert slikt hiö sama. Þau eru ofurseld skólakerfinu. — Getur þetta ekki haft alvar- iegar afieiöingar fyrir persónu- leikaþroskann? — Jú, svo sannarlega, sérstak- lega á ungingsárunum. Þá er svo margt aö gerast bæöi i llkaman- um og sálarlifinu og aldrei er viö- kvæmnin meiri en einmitt þá og afar erfitt aö þola aö vera ekki eins og aörir i hópnum. Ef börn- um og unglingum gengur stööugt illa I skóla er hætt viö aö hug- myndirnar sem þau fá um sjálf- sig — sjálfsimyndin — veröi brengluö og þá er mikil hætta á feröum. Þaö er öllum lifsnauösyn aö hafa heilbrigt sjálfsálit. Sorglega fá úrræði — Hvaö getiö þiö gert fyrir börn meö alvarleg sálræn vandamál? — Skólinn hefur sorglega fá úr- ræöi fyrir krakka sem eiga viö sálræna erfiöleika aö striöa og heldur ekki þegar um alvarleg hegöunarvandkvæöi er aö ræöa. Aöstæöurnar i skólanum eru þannig aö litiö svigrúm er til aö gera eitthvaö fyrir þessa nem- endur. — Eru sérkennarar betur laun- aöir en aörir grunnskólakennar- ar? — Nei, allir kennarar I grunn- skóla eru i launafl. á bilinu 13.-15. fl. BSRB. Ég er 114. flokki 2. þrepi og mánaöarlaunin eru kr. 410.829. Oft er talaö um sumarfri- iö sem kjarabót og vissulega er mikill kostur aö þaö er svona langt. Ég er hins vegar þeirrar skoöunar aö kennarar ættu aö vinna hálfan mánuö i júni og hálfan ágúst viö undirbúning starfsins næsta vetur. Reyndar eru þaö margir kennarar sem alls ekki eru i frii þennan tima. í fyrra fóru t.d. langflestir kennararnir hérna á námskeiö, og ætli þeir veröi ekki álika áhugasamir á komandi sumri. — hs „....Sumir ung lingar gefast hreinlega upp og hætta í 7. eða 8. bekk. Vitaskuld er það engin lausn, þessir ung lingarhalda oftast áfram að verða undir þegar út t atvinnulífið kemur”.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.