Þjóðviljinn - 01.06.1980, Page 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur I. júni 1980.
uobviuinn
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóófrelsis
i tgefandi: útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Hitstjórar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson. Kjartan Olafsson
Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir.
Auglýsingastióri: Þorgeir Ölafsson.
Hekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson
Afgreibslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: AlfheiÖur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón FriÖriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson.
þingfréttir: Þorsteinn Magnússon.
tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
I.jósmvndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson
Útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjömsson, Sævar Guöbjörnsson,
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Safnvöröur:Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa -.Guörún Guövaröardóttir.
Afgreiösla: Kristin Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára SigurÖardóttir
Simavarsla: ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halia Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Hitstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Slöumúla 6, Reykjavfk, sími 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Haf og land
• Þótt íslenskir sjómenn, sem fiskveiðar stunda séu
aðeins um f imm þúsund manns, þá er dagurinn í dag sjó-
mannadagurinn, hátíðisdagur okkar allra. Eða þannig
ætti það a.m.k. að vera, vegna þess að gildi þeirra
starfa, sem á sjónum eru unnin, er svo margfalt meira í
þessu landi heldur en svarar höfðatölu sjómannanna.
• Okkar gullkista er sjórinn, fremur nú en nokkru
sinni fyrr, fremur nú vegna þess, að nú eigum við einir
viðurkenndan fullan rétt yfir hafsvæðinu öllu út að 200
mílna mörkum og vegna þess, að við eigum nú f lota, sem
er betur búinn en áður hefur þekkst.
• Þann mikla rétt yfir auðæfum hafsins, sem land-
helgisbaráttan færði okkur, og þá miklu þekkingu og
tækni, sem sjómenn okkar hafa á valdi sinu nú, þarf að
nýta með góðri forsjálni en aðeins hóflegu kappi. Þá
mun okkur takast að koma þorskstof ninum í það horf að
hér megi án rányrkju veiða 500.000 tonn á ári, einnig að
byggja upp og nýta betur aðra fiskistofna, og stórauka
þannig afrakstur íslenska þjóðarbúsins af sjávarafla.
• Ollum veiðiskap fylgir viss kappsemi, og svo hlýtur
enn að verða, en smátt og smátt verðum við að útrýma
allri rányrkju við fiskveiðar, og þess í stað að rækta upp
f iskistof nana til hámarksaf raksturs eins og góður bóndi
ræktar búfé sitt. Þá mun vel fara.
• Á þeim áratug, sem nú er að Ijúka hafa störf
íslenskra sjómanna og f iskvinnslufólks átt stærstan þátt
í að tryggja hér meiri hagvöxt, örari aukningu þjóðar-
framleiðslu, heldur en í nokkru nálægu landi. Á Islandi
þar sem nær allt byggist á sjávarafla og fiskvinnslu
iókst þjóðarframleiðslan um 56,5% á árunum 1970—1979
á sama tíma og aukning þjóðarframleiðslu þ.e. hagvöxt-
ur, varð innan við 30% í grónum samfélögum svo sem
Bandaríkjunum, Efnahagsbandalagi Evrópu og EFTA-
löndunum, þar sem ýmsir telja atvinnulíf langtum
háþróaðra en hér.
• Á þetta er ekki bent í því skyni að gera litið úr öðrum
möguleikum okkar Islendinga til atvinnuuppbyggingar
heldur en þeim, sem sjónum tengjast. Vissulega eru
þeir möguleikar gífurlega miklir bæði hvað varðar al-
menn iðnað, orkufrekan iðnað og einnig landbúnað.
En sjórinn er og verður okkar grundvöllur a.m.k. um
langa framtíð enn.
<?
• Á hitt er svo að líta, að sjómennirnir njóta oft ekki
sjálfir afraksturs erfiðis síns f þeim mæli sem verðugt
væri. Kjör þeirra eru misjöfn. Sumir ná háum tekjum
þegar vel veiðist, en bak við þær tekjur er nær alltaf
gífurleg vinna og f jarvera frá heimilum svo lítt er sam-
bærilegt viðstörf í landi. En þeir sjómenn eru Ifka marg-
ir, sem oft fá litið i hlut umf ram kauptrygginguna og eru
því lágtekjumenn, þráttfyrir mikla vinnu. Sjómenn eld-
ast eins og annað fólk, en sjó sækir enginn til lengdar,
sem verulega er farinn að tapa þreki. Það er sanngirnis-
krafa að sérhver sjómaður, sem orðinn er 55 ára eða
eldri og stundað hefur sjó í 25 ár eða lengur öðlist rétt til
að fara i land og njóta þess hæsta lifeyris sem kostur er í
okkar þjóðfélagi.
• Búa verður sjómönnum almennt þannig kjör, að
starfið haldi áf ram að freista ungra og dugandi manna.
Það er ekki aðeins réttur sjómannastéttarinnar, heldur
einnig nauðsyn okkar hinna, sem i landi sitjum. Fari svo
að ungir menn hætti að fást á sjóinn, þá hrynur okkar
þjóðfélag eins og spilaborg, hvað sem háreistum
verslunarhöllum og allri okkar skriffinnsku líður.
• Það er ánægjulegt á þessum sjómannadegi, að geta
fagnað nýjum lögum frá Alþingi um verulega aukinn
rétt sjómanna í veikinda- og slysatilfellum, lögum sem
færa sjómönnum álíka rétt i þeim efnum og fólki í landi
og tryggja undirmönnum jafnt sem yfirmönnum fyllstu
kaupgreiðslur ef veikindi eða slys ber að höndum i
a.m.k. tvo og stundum allt upp í sjö mánuði. Á því þingi
sem nú var að Ijúka voru einnig sett lög í því skyni að
hindra fyrirvaralausar en óréttmætar afskráningar úr
skiprúmi. — Víst eru þetta áfangar í réttindabaráttu sjó-
manna, en hér þarf að gera enn betur. Starfs síns vegna
eiga sjómenn erf itt með að byggja upp öf lug stéttarsam-
tök. Þess vegna m.a. þurfum við hin að veita þeim lið-
sinni okkar til að knýja f ram sanngjarnar réttindakröf-
ur.
* úr aimanakínu
Ætlaröu aö fara aö byggja?
Ertu endanlega genginn af
göflunum? Getur þaö verið aö
þetta séu hin endanlegu og ötvi-
ræöu merki um alvarlega
skerta geöheilsu — aö ætla aö
fara aö byggja? — Þaö hefur
satt aö segja hvarflaö aö mér i
fyllstu alvöru, eftir aö hafa
meötekið viöbrögö vina og
vandamanna viö hinum válegu
tilðindum. Sem eru aö viö sem
biíum á mörkum hins byggilega
heims f Breiöholti erum búin aö
fá ldö undir raöhUs vestur á
Eiösgranda.
Sögur i gamni og alvöru af Is-
lendingum sem eru aö byggja
eru margar. Ein segir að á til-
teknu geösjUkrahUsi hér í borg
séu þrjár deildir eftir því á
hversu alvarlegu stigi geösýkin
er. Deildirnar heita: „Fok-
helt” — „tilbúiö undir tréverk”
og sU sföasta (þaöan sem fæstir
eiga afturkvæmt) er „vixla-
deildin.” Þangaö fara þeir sem
eiga hUs — fullbyggt og fullt af
vixlum. Jökull heitinn Jakobs-
son lagöi aöra merkingu I oröin
Viltu byggja,
breyta, bæta?
„tilbúinn undir tréverk” en ég
og þú. Hann skildi þaö ástand
svo aö þá væri maöur loksins
tilbúinn undir þaö endanlega
tréverk, sem veröur okkar siö-
asta Ivera, þ.e. likkistuna.
En ungt og hraust fólk lætur
ekki svona sögur telja Ur sér
kjarkinn og hugsar meö til-
hlökkun til amstursins. Og nú
þegar maöurhefur gefiö sér þaö
aö veröa ellidauöur I vestur-
bænum en ekki I rokinu I Breið-
holti sækja á mann ýmsir
bankar. Skyldi maöur geta
vaknaö á morgnana án þess aö
sjá Esjuna? — Ég sem hef
aldrei getaö lifaö án fjalla.
Þegar ég dvaldist stuttan tíma
hjá Jóni bróöur minum I Lundi
fyrir 100 árum siöan, vorum viö
samtaka i þvi aö hálftapa geö-
heilsunni af fjallaleysi, enda
bæöi alin upp undir Esjurótum
(og Jón reyndar fæddur þar).
Viö komumst aö þvi aö fjalla-
laust landslag framkallar eina
allsherjar ládeyöu á Ifkama og
sál. Tungumáliö, mannllfiö, til-
finningarnar — allt veröur lint
og þvoglulegt eins og þaö voöa-
lega mál sem þarna flýtur út úr
fólki. Landslagiö og veöriö er
flatt og tilbreytingalaust og allir
sem I þvi hrærast. Þetta er auö-
vitaö hreinasti fjallafasismi aö
halda svonalöguöu fram, en
ótrúlegar rætur getur landslag
átt I manni. Ég held þvl fram I
fúlustu alvöru aö Esjan hafi
haldiö f mér llfinu I Breiö-
holtinu. Slöan ég man eftir mér
hafa allir mlnir draumar gerst á
túninu I Kollafiröi undir Esj-
unni, þar sem ég ólst aö veru-
legu leyti upp, og þegar ég hef
veriö erlendis I lengri eöa
skemmri tlma hef ég aldrei
saknaö neins eins og Esjunnar.
En vlkjum vestur I bæ aö al-
vöru lffsins. A Eiösgrandanum
á sem sagt aö byggja upp hverfi
einbýlishúsa og raöhúsa. Þarna
er bUiö aö úthíuta nær 100 fjöl-
skyldum lóöum. Til þess aö fá
lóö I landi borgarinnar, þarftu
aö útfylla ýmis plögg sem síöan
gefa þér stig. Þessi stigafjöldi
ræöur svo úrslitum um þaö
hvort þU veröur meöal hinna út-
völdu hUsbyggjenda. Stigin eru
fyrst og fremst ákvöröuö af bú-
setu/atvinnu I borginni en
einnig af þvl hversu oft þú hefur
sótt um lóö og hvort þú býrö I
þröngbýli eöa heilsuspillandi
hUsnæöi. Þar sem langflestir
þeirra sem þarna fengu lóöir
hafa fleiri stig en búsetu/at-
vinnu stigin og tæplega hafa
allir sótt um lóöir áöur, má gera
ráö fyrir aö I þessum 100 fjöl-
skyldna hópi sé talsveröur fjöldi
fólkssem býr viö þröngbýlieöa I
heilsuspillandi húsnæöi. Má svo
draga af þvl llkur aö viökom-
andi bUi ekki viö allt of öruggan
fjárhag. Svo sem fram hefur
komiö i fréttum var samkeppni
um teikningar af húsunum á
þessu svæöi og voru 3 teikning-
ar verölaunaöar. Fá lóöarhaf-
endur siöan aö velja úr þessum
teikningum. Þetta fyrirkomulag
er áreiöanlega til fyrirmyndar
og llklegt til aö vera íslenskum
arkitektúr til framdráttar. Þaö
sem hins vegar skiptir ekki
slöur máli, er þaö fólk sem
þarna ætlar aö bUa og þeir
möguleikar sem þaö hefur á aö
byggja sér þak yfir höfuöiö. Sé
þaö metiö fólki til stiga viö
lóöarUthlutun aö búa viö erfiðar
Þórunn
Sigurdardóttir
skrifar
aöstæður, veröur llka aö meta
þessar aöstæöur þegar fjallaö er
um tillögur aö híbýlum fyrir
þetta fólk. I þrettán forsendum
dómnefndar fyrir vali slnu á
verðlaunatillögum er hvergi
minnst á nauðsyn þess aö finna
leiöir til aö lækka byggingar-
kostnaö á þessu landi, þar sem
annar hver maöur er aö drepa
sig á húsbyggingum, né heldur
er fjallaö um nauösyn þess aö
finna hagkvæmar og fljótlegar
aöferöir til aö byggja. I um-
sögnum dómnefndar um verö-
launatillögurnar er heldur
ekkert fjallaö um hugsanlegan
kostnaö eöa fyrirhöfn viö hinar
mismunandi húsgerðir. Þetta
kann aö viröast óþarft eöa
óframkvæmanlegt, en þó hefur
stjórn og samkeppnisnefnd
Arkitektafélags íslands þaö nú
til athugunar „hvernig tryggja
megi hlutlaust kostnaöarmat á
tillögum, þannig aö enn frekar
sé stuölaö aö kostnaöarmeövit-
aöri hönnun og þannig aukiö
raunhæft gildi samkeppna i
þágu verkkaupa” eins og segir
orörétt. Og áreiöanlega heföu
margir sem nú ætla aö byggja á
Eiösgranda kosiö aö nánar heföi
veriö vikiö aö þeim þætti I um-
sögnum um teikningar aö hús-
unum. Þessar aöfinnslur um
þessa annars ágætu samkeppni
eru settar fram eftir aö hafa
spjallaö viö ýmsa sem nú sitja
meö sveittan skallann viö aö
reikna Ut fjárhaginn og reyna aö
átta sig á hvaöa teikning hæfi
sér best. Þaö eru nefnilega ekki
endilega allir sem vilja fórna
llfinu fyrir hús og vilja heldur
hafa þaö öfugt ef nauösynlegt er
aö velja. Og þaö er kannski ekki
tilviljun eftir allt aö fólk skuli
umgangast mann eins og maöur
sé meö ólæknandi sjúkdóm bara
af þvl aö maður fékk lóö.