Þjóðviljinn - 19.06.1980, Page 1
MOWIUINN
Fimmtudagur 19. júni 1980 —137. tbl. —45. árg.
Vélin var komin út fyrir brautina þegar hún lagðist mjúklega á vinstri
hliðina. Sjá froðuna á brautinni. (Ljósm.: gel)
Meistaraleg nauðlending
Er vélin lenti hélt hún lengi
jafnvægi, en seig siðan hægt út á
vinstri hlið og lagðist að lokum
hægt út af og var þá komin út af
brautinni.
„Hnykkurinn var eins og þegar
bill fer ofan i holu og tekur aðeins
niðri”, sagði Elisabet Hákonar-
dóttir flugfreyja en við hittum
hana brosmilda og sallarólega fá-
einum minútum eftir lend-
inguna. Hún sagði, að farþegar
hefðu brugðist mjög rólega viö þó
að vart hefði orðið eðlilegs ótta
eins og við var að búast. ,,Ég
vona að það verði bara engin
eftirköst og best væri náttúrlega
að farþegarnir drifu sig strax i
loftið á ný til Vestmannaeyja”,
bætti hún við.
Úti við flugvélina hittum við að
máli flugstjórana Guðjón ölafs-
son og Baldur Ingólfsson. Guðjón
sagði að i svona tilfellum væri
lent eftir ákveðnu plani og i þetta
sinn hefði verið nægur timi til að
útfæra það út i æsar þar sem
sveimað hefði verið yfir i klukku-
tima áður en lent var. „Við svona
lendingu verður samt að hafa
vissa heppni með”, bætti hann
við.
Ekki var að sjá stórvægilegar
skemmdir á vélinni. Vinstri
skrúfan var svolitið bogin og
vængurinn rispaður. Guðjón flug-
stjóri sagði að ekki væri þó hægt
að fullyrða um skemmdir ennþá
þar sem hugsanleg væri einhver
skekking á vélinni. Þó að hún sé
ekki nema 1—2 cm getur hún
verið mjög alvarleg.
I gærkvöldi fékk Þjóðviljinn
þær upplýsingar að loftdæla hefði
brotnaö og þess vegna heföi ekki
verið hægt að ná hjólinu niður.
Fokkervélin hefur einkennis-
stafina TF-LLO og var keypt frá
S.-Kóreu I vetur. — GFr
Pirrko Lindberg frá Finnlandi:
Ég fann að ég varð smám saman
hræddari og hræddari.
Elfsabet Hákonardóttir flug-
freyja var sallaróleg eftir lend-
inguna. „Ég vona bara að það
verði engin eftirköst hjá farþeg-
unum”, sagði hún.
„Ég var alveg búin að sætta
mig við að deyja”, sagði finnska
stúlkan Pirrko Lindberg f samtaii
við Þjóðviljann rétt eftir
nauðlendingu Fokker Friendship-
vélarinnar á Keflavikurflugvelli i
gærkvöldi. Hún var meðal
farþega i vélinni en það var
samdóma álit allra þeirra sem
horfðu á lendingu Guöjóns ólafs-
sonar flugstjóra að hún hefði tek-
ist meistaralega vel.
Klukkan 16.58 lagði Fokker
Friendship vél Flugleiða af stað i
loftið áleiðis til Vestmannaeyja
og voru i vélinni 16 farþegar auk 3
manna áhafnar. Þegar átti að
setja hjólin niöur yfir Vest-
mannaeyjum tókst það ekki og
var flugvélinni þá snúið aftur til
baka til Reykjavíkur.
„Eitthvað var tilkynnt i hátal-
arann sem ég skildi ekki en
skömmu siðar byrjaði telpa að
gráta og þá skildist mér að
eitthvað alvarlegt væri á seyði”,
sagði Pirrko Lindberg.
Reynt var að ná hjólunum niður
og tókst loks að ná hægra
vænghjólinu og nefhjólinu niður
enekkiþvi vinstra. Var þá ákveð-
ið að magalenda á Keflavikur-
flugvelli en flugvélin látin sveima
yfir til að eyða eldsneytinu.
Mikill viðbúnaður var á Kefla-
vikurflugvelli. Almannavarnar-
kerfið sett I gang og froðu dælt á
aðalflugbrautina. Er vélin lenti
var allt i viðbragðsstöðu.
„Vélin varekki nema hálffull af
farþegum og vorum við beðin um
að færa okkur öil fremst i vélina
og beygja okkur i neyöarstöðu. Þó
aðallirhéldu rósemi sinni fann ég
að hræðslan greip mig meira og
meira”, sagði Pirrko Lindberg i
samtali við Þjóðviljann.
Við hittum lika að mál
Sveinbjörgu Friðbjörnsdóttur
sem var með tvö litil börn sin i
vélinni. Hún sagði að ekki heföi
önnur hugsun komist að sér en að
börnin yrðu hólpin.
Guðjón óiafsson flugstjóri: Við
svona lendingu verður að hafa
vissa heppni með”, sagði hann og
var hinn lltiilátasti.
Sveinbjörg Friðbjörnsdóttir meö
börn sln tvö: Það komst ekki
önnur hugsun að en velferö barna
minna.
Kosningaréttur
kvenna í 65 ár
Hvað
hefur
áunnist?
Sjá viðtöl i opnu
j Áform Bandaríkjamanna um bækistöðvar á Norðurlöndum
iHenirki og vopn fvrir
■
I Aukin hervæding á noröausturjaöri NATO
IFrá Ingólfi Margeirssyni frétta-
ritara Þjóöv. I Osló:
Lögö hefur verið fram tillaga I
■ bandariska þinginu þess efnis að
Ibyggja hernaöarlegar birgða-
geymslur og vopnabúr I Noregi og
Danmörku. Bækistöðvar þessar
• yrðu ómannaöar en teknar i
(notkun af bandariskum land-
gönguliðum ef til styrjaldar
, kæmi. I skýrslunni sem lögð var
Ifyrir þingið er áætlaö að bygging
sllkra stöðva kosti milli 123—203
miljónir dollara. Þessar upplýs-
, ingar komu fram i forsiðufrétt
I norska Dagblaðsins i gær.
Bækistöðvar þessar eru liður I
áætlunum um framtlðarhlutverk
bandariskra landgönguhersveita.
Tvær tillögur eru efst á blaði hjá
Bandarlkjamönnum: Annars-
vegar að þjálfa landgönguliöa
með tilliti til átaka I þriðja heim-
inum, þá einkum Persaflóa, hins-
vegar að leggja áherslu á Norður-
löndin og þá sérstaklega Dan-
mörku og Noreg.
Nái siðari tillagan fram að
ganga þýðir það byggingu her-
virkja og vopnabirgöir fyrir að
minnsta kosti átta þúsund banda-
riska landgönguliða I Noregi.
Bandarikjaher hefur yfir
þremur sveitum landgönguliða aö
ráöa. Tillagan um aukna hervæö-
ingu á norð-austurjaöri NATÖ
þýðir að tvær sveitir yröu sér-
staklega þjálfaöar I Noregi og
Danmörku með tilliti til stríðs-
átaka við Sovétrlkin á þessum
slóðum. Það er fjármálaskrif-
stofa bandarfska þingsins sem
samið hefur umgetna skýrslu og
hún gefur þinginu fjóra kosti I
sambandi við framtiöarstaðsetn-
ingu landgönguliöa bandarlska
hersins. Eins og fyrr segir eru
Norðurlöndin og Persaflói, efst á
8000 í
blaði, en einnig er rætt um
hugsanlega staösetningu I Bret-
landi eða aö sveitirnar hafi hvergi
fast aðsetur.
Höfundar skýrslunnar hafa
bent á aö Noregur og Danmörk
hafi óskað eftir slikum bækistöðv-
um sem hægt væri að taka i
notkun á skömmum tima af
bandariskum landgönguliðum.
Talsmenn norska varnarmála-
ráöuneytisins sögðu hinsvegar I
viötali við norska útvarpið i gær
að þessar áætlanir væru alls
óþekktar 1 ráðuneytinu.
Þá kemur fram I skýrslunni að
ef tillagan yrði samþykkt myndu
Bandarikjamenn greiða allan
kostnað við gerö bækistöövanna
en Noregur og Danmörk sjá um
Noregij
viðhaldskostnað. Ennfremur !
lengist æfingartimi bandarlskra I
landgönguliða I viðkomandi lönd- I
um úr tveggja vikna æfingum á J
ári I mánaðarþjálfun eöa meira J
ár hvert.
Eins og stendur eru það ein- I
ungis kanadlskir hermenn sem J
eru þjálfaðir til hernaöarátaka i ■
Norður-Noregi. Þeim til aöstoðar I
eru þó léttvopnaðir sveitir I
breskra og hollenskra hermanna J
samkvæmt hernaðarskipulagi ■
NATÓ. Komi hinsvegar til þátt- I
töku bandariskra landgönguliöa I ■
Noregi og Danmörku verða *
þyngri vopn tekin i notkun, svo I
sem skriðdrekar, flugvélar og I
orrustuþotur.
— I.M. J