Þjóðviljinn - 19.06.1980, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 19.06.1980, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 19. júni 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Hringið í síma 8-13-33 kl. 9-5 alla virka daga eða skrifið Þjóðviljanum Hvers vegna Albert? Senn liður að þvi að þjóðin kýs sér nýjan forseta. Fólk er að ákveða sig þessa dagana og allt fram að 29. júni. Fyrir mig var enginn vandi að velja. Ég styð Albert Guðmundsson. Hvers vegna hann? spyrja sumir. Vegna mannkosta hans og góðra eiginleika. Vegna þekk- ingar hans á islensku þjóðlifi. Vegna starfs hans sem stjórn- málamanns og þátttöku hans og reynslu i stjórnsýslu, sem alþingismaður, borgarfulltrúi og borgarráðsmaður. Vegna árangursriks starfs hans fyrir ýmis félagasamtök og uppbyggingar hans á iþrótta og æskulýðsstarfi heima og erlendis. Vegna áhuga hans fyrir einstaklingum, smáum og stórum, og viðleitni hans til að hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi. Vegna dugnaðar hans og ósérhlifni i hverju þvi starfi sem hann tekur að sér. Vegna þess að hann er harður samninga- maður, ákveðinn en dreng- lyndur. Vegna þess að hann getur sagt nei þegar honum finnst það við eiga. Vegna þess að Albert er eini frambjóö- andinn i þessum forseta- kosningum sem einn og sjálfur ákvað að gefa kost á sér til embættis forseta Islands, til að vinna þjóð sinni enn betur en oröiö er, óragur að takast á við nýtt verkefni. Vegna þess að hann er giftur Brynhildi Jóhannsdóttur, mikilli mann- kostakonu, sem er svo mild og hlý I reisn sinni. Vegna þess að Albert spyr aldrei hvað fæ ég fyrir að hjálpa, heldur hvernig get ég hjálpaö. Albert Guömundsson hefur sýnt með lifshlaupi sinu, að þar fer traustur maður, sem er verðugur þess að verða forseti tslands, og ég tel þjóðhöfðingja- heimilinu velborgiö með Albert Guðmundsson og Brynhildi Jóhannsdóttur sem húsbændur. bau eru glæsileg i framgöngu, samstillt, háttprúð og virðuleg, vel menntuð og gjörþekkja is- lenska þjóðarsál. Vegna þessa og margs annars mun ég kjósa Albert til forseta, og heiti á allar góðar vættir að veita þeim hjónum brautargengi 29. júni. ALBERT OG BRYNHILDUR TIL BESSASTAÐA. Reykjavik, 13/6 1980, Loftur Magnússon, nnr. 6158-9120 Meira um mataræði Sigrún hringdi: Eitt er það sem mér hefur löngum þótt vanta i annars ágætt blað Þjóöviljans,en það er sérstakur þáttur um mataræði, uppskriftir og annað það sem viö látum ofani okkur. Jafnvel mætti vera létt spjall um vin- tegundir, þvi það er mesti unaöur, fagurkera að borða góðan mat og skola honum niður með léttu vini. Ekki má þvi gleyma að matuur er mannsins megin og mikill hluti hins dag- lega brauðstrits gengur jú út á að hafa eitthvað til matar. Beðið. — Ljósm. gel frá lesendum I komandi kosningum til for- setaembættis Islands er um fjóra kandidata að ræða. Mjög óljóst er um úrslit og eflaust verður kosninganóttin spenn- andi, þar eð helmingur kjósenda hefur ekki gert upp hug sinn. Þvi munu næstu tvær vikur vera afdrifarikar fyrir þá frambjóð- endur sem telja sig ofaná og virðast hafa mest hrópfylgi. Greinilegt er þó að sá fram- bjóðandi, er minnst hefur borið á.eykur stööugt fylgi sitt. I fyrstu leit út fyrir að hinar hvimleiðu skoðanakannanir yrðu mótandi og þá Pétri Thor- steinssyni i óhag, vegna litillar auglýsingastarfsemi á sinum starfsferli. Er þaö vel að Islendingar láta ekki slika kosningaherferð hafa áhrif á sig. Ég hef ákveðið að setja kross- inn minn fyrir framan nafn Péturs á kjördag. Slfk ákvörðun byggist á þvi, að Pétur er sá maður sem við þörfnumst á þeim viðsjárverðu timum sem við lifum. Þar á ég viðiinnan-og utanrikismál Islendinga. Þar er ,,....Pétur er sá maður sem við þörfnumst á þeim viösjárverðu timum sem við lifum....” segir bréfritari. Pétur öllum hnútum kunnugur, og hefur iðulega sýnt i verki að hann er farsæll fulltrúi hinnar islensku þjóðar. Má þar nefna hinn mikla viðskiptasamning við Sovétrikin 1953, þegar Bretar settu löndunarbann á Islendinga. Þeirri staðreynd skýtur óhjákvæmilega upp i kollinum þegar hugsað er út i þann vanda sem við Islendingar stöndum frammi fyrir i frysti- iðnaðinum. Forsetaembættið á ekki aö felast i veilsuhaldi og orðu- veitingum eingöngu. Heldur þarf forsetinn að vera vel heima I þeim málum sem varða okkur tslendinga mest,sem skipta til- veru landsins i náinni framtið miklu máli eins og utnarikismál þar sem sigla verður milli skers og báru I hildarleik stórveld- anna sem stjórna heiminum i dag. 1 stuttu máli sagt, tslendingar þurfa islenskan Kekkonen eins og forseti Finn- lands hefur sýnt og sannað. Þvi verða tslendingar að grandskoða hug sinn, er þeir ganga að kjörborðinu, hvort þeir vilja þann hæfasta, Pétur Thorsteinsson, i þýðingarmesta embætti Islands i framtiðinni. Með þökk fyrir birtinguna. 5504-0206 Karl V. Matthiasson, kennari, Grundarfirði. Islenskan Kekkonen A fætur, á fætur! •Útvarp kl. 7.20 Þó nú sé sumar og sól og sundlaugarnar opnar til gleði og ánægju fellur morgunleik- fimin hans Valdimars aldrei úr gildi. Hve hressilegt er það ekki aö vakna kl. 7.20,kveikja á útvarpinu, spretta fram og taka nokkrar armbeygjur og lyftur eftir tilsögn Valdimars? Komist menn ekki i sund og séu i ofanálag billausir er hægt að framlengja trimmið meö þvi að taka snögga spretti aö biðskýli SVR, hoppa létti- lega uppi vagninn og setjast innanum syfjulega farþega, sem misst hafa af morgun- leikfiminni. Valdimar Ornólfsson hefur séð um leik- fimi Útvarpsins um áratuga- skeið viö gifurlegar vinsældir morgunglaðra hlustenda. Leikstjóri fimmtudagsleikritsins, Gunnar Eyjólfsson. Galdra-Loftur •Útvarp kl. 20.30 Hiö klassiska verk Jóhanns Sigur jónssonar „Galdra Loftur” verður fimmtudags- leikrit útvarpsins að þessu sinni. Hér er um aö ræöa glæ- nýja uppfærslu og fara meö helstu hlutverk Hjalti Rögn- valdsson, Steinunn Jóhannes- dóttir, Valgerður Dan, Þór- hallur Sigurðsson, Jón Sigur- bjömsson og Valur Gislason. Efni leikritsins er öllum kunnugt og væri þaö nánast að æra óstöðugan að rifja það upp þó það sé gert að einhverju leyti að þessu sinni. Loftur er i meira lagi ódæll skólapiltur á Hólum sem með öðru vondu hefur það- fyrir Stafniaðreyna aðhremmabók máttarins úr höndum Gottskálks biskups grimma I þvi augnamiði að beisla myrkrið.Hannsvifsteinskis til að ná sinu fram, skellir skolia eyrum viö hollum ráðum góöra manna og gerist i hæsta máta ótérlegur við biskups- dótturina á staðnum sem fellir hug til piltsins. Ast hennar og annarrar konu notarhann einungis sem tæki i baráttunni um aö ná bókinni. Veröur leikurinn brátt æsilegurogharöurog endirinn eftir þvi damatiskur og magnaður. Jóhann Sigurjónsson fæddist á Laxamýri i Suður- Þingeyjarsýslu 19. júni 1880 og er þvi leikritiö flutt þegar i nákvæmlega 100 ár eru frá | fæöingu hans. Þekktastur er Jóhann fyrir leikrit sin*,Galdra-Loftur” og Fjalla Eyvindur” auk annarra þekktra verka sem margoft hafa veriö flutt hér á landi við ýmis tækifæri. Ljóöskáld var Jóhann einnig afbragðsgott en ljóð hans hafa flest veriö sótt i heldur dapurlegt form svo sem vartiðarandinn i þá daga. Leikstjóri fimmtudags- leikritsins er Gunnar Eyjólfs- son en tæknimenn eru Hreinn Valdirmarsson og Hörður Jónsson. Tónlist með leikritinu er eftir Askel Más- son og stjórnar Páll P. Páls- son flutningi hennar. Rokkað *Útvarp kl. 23 Hinn sivinsæli þáttur þeirra Asmundar Jónssonar og Guðna Rúnars Agnarssonar verður á dagskrá Útvarpsins kl. 23 i kvöld. Þátturinn hefur flust yfir á fimmtudaga aftur þeim félögum og unnendum þáttarins til óblandinnar ánægju. Aö sögn Guöna Rúnars veröur uppistaðan i þættinum umf jöllun um breska rokktón- list og teknar fyrir nokkrar hljómsveitir sem vakiö hafa mikla athygli að undanförnu. Þungamiðjan beinist að hljómsveit sem nefnist „Cure” en hún rokkár með nokkrum öðrum hætti en menn eiga að venjast. Þannig er gargandinn sem þykir hafa einkennt rokktónlist i lág- marki. Þá má nefna tvær aðrar hljómsveitir, „The Elvis Presley, konungur rokksins. Heldur verður mildilegar rokkað I áföngum i kvöld. Passions” sem skipuð er konum að hálfu leyti og má það kallast heldur óvenjulegt og svo „Seventy seconds”. Þáttur þeirra félaga tekur þrjá stundarfjóröunga.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.