Þjóðviljinn - 19.06.1980, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 19.06.1980, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. júni 1980 Að lifa eða deyja? I tilefni Listahátiöar flutti íslenski dansflokkurinn nýjan ■ ballet, sem Roberto Dimitrievich hefur gert um Galdra-Loft og tónlist eftir Jón Nordal, og heitir ,,Cr dimm- unni”. Þessi ballet, sem er skyldari leikriti Jóhanns Sigurjóns- sonar en þjóösögunni mögnuöu, er um margt skynsamlega geröur. Dans- höfundi hefur um margt tekist furöuvel aö nýta tónlist, sem til er oröin i ööru tilefni, til aö segja þessa Fástsögu okkar Islendinga. Ekki mun hann þó sleppa viö ýmsar athuga- semdir eins og þær, aö full- mikiö hafi veriö um „natóral- iskt” látbragö — eins og þeg- ar harmsöguleg ólétta Stein- unnar er sýnd meö þvi aö likt er eftir velgju og uppköstum aö morgni dags. Eöa þá aö lokaatriöiö, þegar Loftur vill ná Rauöskinnu meö særingum, hafi veriö ansi snubbótt. En aöferöin var skynsamleg meö þeim hætti, aö hún tók vel miö af möguleikum dansflokksins, nýtti þá — án áhættu. Hitt er svo annaö mál, aö þaö er dapurlegt aö þurfa aö minna á aö þaö er eins og Islenski dansfokkurinn geti hvorki lifaö né dáiö. Þetta er ekki sagt til lasts þeim sem hafa lagt á sig mikiö starf til aö halda upp listdansi: þaö hefur blátt áfram ekki veriö gert þaö átak sem þarf til aö islenskur dansflokkur sé fastur púnktur i tilveru þeirra sem hafa lært til þeirrar listar hérlendis. Frammistaöa einstakra dansara skal ekki rædd hér— hún var fremur jöfn i þessari tiltölulega fjölmennu sýningu og um margt áferöarfalleg, en án meiriháttar tilþrifa. A undan og eftir dönsuöu þau Maria Gisladóttir og Roberto Dimitrievich. Fyrst tvidans viö tónlist eftir Mahler eftir Roberto: ekki sérlega kröfuharöan dans, sem dró vel fram kunnáttu dansaranna og þá einkum mýkt og þokka Mariu. Enn betur kom þaö fram i tvidansi úr Þyrnirósu, aö hún á sér margra kosta völ I listdansi. En hinu er heldur ekki aö neita, aö þaö þarf mjög mikiö til aö áhorfandi á miöjum aldri hrökkvi viö, þegar svo háklassisk tækni- þraut er á dagskrá. Arni Bergmann. I Kvikmyndin Óöal feöranna veröur frumsýnd laugardaginn 21. júni i Háskóla og Laugarásbió. Veröur myndin sýnd i báöum bióunum tvær fyrstu vikurnar, en sýningum veröur siöan haldið áfram i Laugarásbió á meöan aðsókn endist. Aö þvi loknu fer myndin út á land. Oðal feðranna er eftir Hrafn Gunnlaugsson og er hann jafn- framt leikstjóri, en kvikmynda- töku stjórnaði Snorri Þórisson. Aöalleikarar I myndinni eru Jakob Þór Einarsson, Hómfriður Þórhallsdóttir, Jóhann Sigurðs- son og Guörún Þoröardóttir. Ekkert þeirra hefur áður leikið I. kvikmynd. Auk þeirra eru veiga- mikil hlutverk i höndum Ingi- mundar Jónssonar, Sveins M. Eiössonar, Asthildar Bernharðs- dóttur, Helgu Hjörvar og Magnúsar Olafssonar. Oöal feðranna verður frumsýnt i Stokkhólmi I haust, en sænska kvikmyndafyrirtækið Viking Film hefur keypt Sviþjóðarréttinn að myndinni og mun jafnframt sjá um dreifingu i Evrópu. Þá verður myndin kynnt i þrem stórborgum Amerlku, (New York, Chicago, Los Angeles) á vegum The Museum of Modern Art ásamt myndum frá Norðurlöndum en kynning þessi nefnist Scandinavia: Recent • Films. Óðal feöranna er kvikmynd um islenska fjölskyldu i gleði og sorg. Mynd sem gerist i dag bæði úti á landsbyggðinni og I Reykjavik. Söguþráðurinn snýst öðru fremur um yngsta son fjölskyldunnar, Stefán; baráttu hans fyrir aö ráöa sinu eigin lifi og láta þá drauma rætast sem hann á sér. Inn I þenn- an söguþráö fléttast síðan lýsing á harðsnúnum veruleika og mannlegum ástriöum. Vinnan við myndina hófst i febrúar á siðasta ári og lauk I vor, svo I allt hefur myndin veriö meir en ár i vinnslu. Tónlit viö myndina gerðu þeir félagar Magnús Eiriksson og Gunnar Þóröarson, en reynt hef- ur verið að vanda mjög til alls tæknilegs frágangs, og nemur kostnaur viö myndina um 65 miljónum króna. Framleiðendur myndarinnar eru þeir Hrafn Gunnlaugsson, Jón Þór Hannesson og Snorri Þóris- son. Gunnar Baldursson sá um leikmynd, Guðrún Sigriður Haraldsdóttir um búninga, Guðlaugur Jónasson um leik- muni. Ragnheiður Harwey var skrifta og sá um föröun. Aðstoðarleikstjóri var Valgaröur Guðjónsson, en aðstoð við val leikara veittí Helga Hjörvar. 1 Vinsælar sumarkeppnir Skilið inn bronsstigum! Látiö vita um úrslit Úrslit i 2. sumarspilakvöldi bridgefélaganna I Reykjavik I Domus: A-riðiil: stig 1. Sigriður Ingibergsd. — Jóhann Guðlaugss. 245 2. Guðrún Bergsd. — SigriðurPálsd. 239 3. Alda Hansen — N ann a Agústsd. 234 4. Baldur Asgeirsson — Zophanias Benediktss. 233 B-riðill: 1. Valur Sigurðss. — Gissur Ingólfss. 277 2. —3. Jón Þorvarðars. — ÞórirSigursteinss. 224 2.-3. Guðm. Eirikss. — AuðunnGuömundss. 224 4. Matthias Kjeld — SigurðurB.Þorst. 222 C-riðill: 1. Björn Eysteinss. — Þorgeir P. Eyjólfss. 262 2. Sævar Þorbjörnss. — Þorbergur Leifss. 260 3. Aðalst. Jörgensen — Stefán Pálss. 248 4. Steinberg Rih. — Tryggvi Bjarnason 232 D-riðill: 1. Sigfús 0. Arnason — Sverrir Kristinss. 137 2. Magnús — Guöjón 129 3. Ragnar Björnss. — Tryggvi Gislason 128 Meðalskor I A-B-C riðlum er 210 stig en 108 stig I D-riðli. Keppnisstj. var Ólafur Lárusson. Geysileg þátttaka var eða 58 pör. Keppendur eru minntir á að mæta vel timanlegá til skráningar, sökum fjölda, svo hægt sé að hefja keppni i fyrstu riðlum sem allra fyrst. I heildarstigakeppni sumars- ins, hefur Valur Sigurösson þegar tekið forystu (að sjálf- sögðu..). Staöan er þessi eftir 2 kvöld: stig 1. ValurSigurðsson 6 2. -3. Sigfús örn Arnason 5 2.-3. Sverrir Kristinss. 5 4.-5. JóhannGuölaugsson 4,5 4.-5. Sigriöur Ingibergsd. 4,5 6. Þorgeir P. Eyjólfss. 4 Keppt er I Domus Medica. Keppni hefst kl. 19.30. Allir vel- komnir. Gjald kr. 1.800 pr. keppanda. Skilið inn bronsstigum Nú er sá tlmi kominn, er keppendur eiga aö hafa skilað inn til B.I. öllum stigum sinum, ef menn vilja fá þau skráö (brons-silfur-gull). Tfminn er miöaður viö 15. júni. Skila veröur miöunum öllum saman, og skráöum af keppendum sjálfum á þar til gerö eyöublöö ■■ ^ Umsjón: Ólafur Lárusson er liggja frammi i félögunum. Undirritaður mun aöstoöa þá er vilja á morgun og næstu fimmtudaga meö þessi blöö og leiðbeina um útfærslu. Síðan verða menn að sjá um að skrif- stofu B.I. berist gögnin. Þar verður fariö yfir þetta og niöur- stööur birtar hið fyrsta. Látið vita um úrslit Eindregið er skoraö á for- ráöamenn svæöasambanda aö hafa samband viö bridgeþætti blaöanna, til aö kynna úrslit móta er haldin eru á vegum svæöanna. Sýnið áhuga á þvl sem þiö eruö aö framkvæma og birtiö úrslit. Gjarnan mættu fylgja myndir meö, til aö lifga upp á greinar. Ingjaldssandur Sumar ferð um sólstöður Alþýðubandalagið á Vestfjörðum efnir til sumarferðar helgina 21. og 22. júni n.k. Farið verður um önundarfjörð og Dýrafjörð. Gist verður á Ingjaldssandi. — Þar munu Vestur-ísfirðingar sjá um kvöldvöku á laugardagskvöldið og siðan verður harmónikan dregin upp og dansað fram á rauðanótt. Sérfróöir menn um sögu, sagnir og náttúrufar fjaröanna veröa með i för og gott tóm gefst til aö staldra viða viö og fræöast. Stuttar gönguferöir verða farnar. Farið veröur I rútubilum frá Isafiröi og Patreks- firöi á laugardagsmorgun þann 21. júni, en frá Hólmavik kvöldiö áöur. Nánari brottfarartlmi auglýstur siðar. Þátttakendur hafi með sér viðlegubúnaö og nesti til feröarinnar. Þátttökugjald kr. 14.000,- fyrir fullorðna og kr. 7.000.- fyrir börn innan 12 ára aldurs. Þátttaka tilkynnist hiö allra fyrsta til einhvers þessara manna: Gils Guðmunds- son rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður. Sagnaþulur ferðarinnar og fyrsti leiösögumaður veröur Gils Guðmundsson rithöfundur og fyrrv. alþingismaöur. Fræöslu um jarövisindi annast Jón Reynir Sigurvinsson jaröfræöingurfrá Sæbóli á Ingjaldssandi. Fararstjórn: Aage Steinsson, Guövaröur Kjartansson og Kjartan ólafsson. tsafjöröur: Aage Steinsson slmi 3680 eöa Margrét óskarsdóttir simi 3809. Bolungarvik: Kristinn H. Gunnarsson kennari, simi 7437. Súgandafjörður: Þóra Þóröardóttir, sími 6167. önundarfjörður: Guövaröur Kjartansson, Flateyri, simi 7653. Dýrafjöröur: Daviö H. Kristjánsson, Þingeyri, simi 8117. Arnarfjörður: Sverrir Garöarsson, Bildudal, simi 2150. Tálknafjörður:Höskuldur Daviösson, simi 2561. Patreksfjörður: Bolli Ólafsson, simi 1433 eöa 1477. Rauðasandshreppur: Gunnar össurarson, Asi örlygshöfn. Reykhólasveit og nágrenni: Jón Snæbjörnsson, Mýrartungu. Hrútafjörður: Guðbjörg Haraldsdóttir, Borð- eyri. Hólmavlk og nágrenni: Höröur Asgeirsson, skólastjóri, slmi 3123. Ka!drananeshreppur:Pálmi Sigurösson, Klúku. Arneshreppur: Jóhanna Thorarensen, Gjögri. Inn-Djúpið: Astþór Agústsson, Múla. Súðavlk: Ingibjörg Björnsdóttir, sími 6957. Reykjavik: Guðrún Guövaröardóttir, simar 81333 og 20679. Ingjaldssandur Ingjaldssandur

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.