Þjóðviljinn - 19.06.1980, Qupperneq 5
Fimmtudagur 19. júnl 1980 WÓÐVILJINN — SIÐA 5
Borga- og sveitarstjómarkosniiigar á Ítalíu: j HllHglirSIICyðÍll S3&k"
Hinum lífsþreyttu f jölgar jir enn fram í Afríku
** I Matvælaráft Sameinuftn hiáft- stevna Trfi Amin i TTpí
Fyrir skemmstu fóru fram
borgar- og héraftsstjórnarkosn-
ingar á Italiu. Helstu niður-
stöður voru þær, að kommún-
istafiokkurinn, PCI, tapaði
nokkru fyigi, stjórnarflokkurinn
Kristilegir demókratar, DC,
unnu nokkuð á. Þó kann það að
skipta enn meira máli, að þeir
sem snúa baki við öllum fiokk-
um eru orftinn þriðji stærsti
fiokkur landsins ef svo mætti
segja. Um 12% kjósenda sátu
heima og 6% skiluðu
auðu. — Hvorutveggja er met á
Italiu.
Það var hluti vinstrisamtaka
ýmiskonar, sem rak áróður
fyrir þvi að menn skiluðu auðu,
einkum Róttæki flokkurinn, sem
hefur I þess stað kosið að beita
sér fyrir undirskriftaherferð
undir kröfur um þjóöarat-
kvæðagreiðslur um ýmis mál,
ekki slst mannréttindamál.
Kommúnistaflokkurinn ótt-
aðist að hinn litli áhugi á kosn-
ingunum kæmi einkum niður á
sinu fylgi og reyndist það rétt
vera. PCI fékk 31.5% atkvæða,
en fékk 33,4% við kosningar i
héruðum 1975. Hinsvegar
munar litlu frá þvi I þingkosn-
ingunum I fyrra þegar flokkur-
inn fékk 31,8% atkvæða.
KommUnistar halda slnum
sterkustu vigjum, eins og t.d.
Emilia-Romagna. En þeir töp-
| uðu fylgi I Róm og þá Lazio-hér-
“ aði, einnig I Napoli, þar sem ný-
k fasistar unnu nokkuð á. 1 Róm
i og Napoli eru hinir „rauðu”
“ borgarstjórar I hættu.
« Óskýrar linur
i KommUnistar lögðu á það
Á kosningafundi hjá kommúnistum f Róm
Fréttaskýring
mikla áherslu I áróðrinum fyrir
kosningar, að þeir stjórnuðu
borgum og héruðum miklu
betur en Kristilegir, hendur
þeirra væru hreinar af spillingu.
Um leið vildu þeir nota kosn-
ingarnar til að koma höggi á
stjórn Cossigas, sem hafði
skömmu áður verið bendlaður
við vafasamar yfirhylmingar
með hermdarverkamönnum.
það er ætlun sumra fréttaskýr-
enda að með þvi að blanda
tveim hlutum óþarflega mikið
saman hafi kommúnistar spillt
fyrir árangri slnum. Hefðu þeir
náð lengra ef þeir hefðu fyrst og
fremst rekið kosningarnar sem
uppgjör um vandamál á hverj-
um stað og frammistöðu I
stjórnsýslu.
Svo er nefnilega mál með
vexti, að I borgum og héruðum
stjórna kommUnistar með. .
sósialistum, sem fyrir sitt leyti
sitja svo I samsteypustjórn með
kristilegum I Róm. Kommúnist-
ar hafa ekki viljað stefna mark-
visst að samskonar vinstri-
stjórnarsamstarfi yfir allri
Italiu og þeir reka i héruðum —
á þeim vettvangi hafa þeir
krafist stjórnaraðildar með
Kristilegum. Það var þvi ekki
von, að kjósendur teldu það
lausn á nokkru máli ef að þeir
nU notuðu tækifærið i hérað-
stjórnakosningum til að sýna
vantraust á stjórn Cossiga, sem
studd er sósialistum og
Lýðveldisflokknum, þeir hafa
séð of margar stjórnir falla til
að fá áhuga á þvi.
Þar með hefur Cossiga slopp-
ið fyrir horn I bili. Flokkur hans
fékk 36,8% atkvæða I kosningum
nU og er það 1.5% meira en I sið-
ustu héraðsstjórnarkosn-
ingum — en hinsvegar minna
en I þingkosningunum I fyrra,
þegar DC fékk 38,1% atkvæða.
PSI, Sósialistaflokkurinn,
sem oft lendir I erfiðri stöðu
milli hinna tveggja risa Italskra
stjórnmála, fór hinsvegar best
Ut Ur kosningunum af stærri
flokkum. Hann fékk 12,7% at-
kvæða, sem er verulegur ávinn-
ingur frá þingkosningunum I
fyrra, þegar PSI varð að láta
sér nægja 9,9% atkvæða. 1
héraöstjórnarkosningunum 1975
fékk flokkurinn 12% atkvæða.
áb
Matvælaráft Sameinuftu þjóft-
anna hélt fund i Arusha I Tansa-
niu: þar var varaft vift mikiu og
vaxandi hungri, einkum i Afrfku,
og þjóftir heims hvattar til aft
senda sem mest af matvæium og
þaft sem allra fyrst til hörmunga-
svæfta þurrka og styrjalda I Af-
riku.
Gert er ráð fyrir þvi, að safna
þurfi sem allra fyrst hálfri ann-
arri miljón lesta af matvælum til
að forða stórslysum næstu tólf
mánuði, mest liggur á að koma
matvælum til Kenia, Sómaliu,
Tansaniu og Uganda, þar sem
þurrkar og styrjaldir hafa sam-
einast um að gera ástandið mjög
alvarlegt.
Fulltrúar 34 landa samþykktu
semsagt ályktun þar I
Arusha — en að öðru leyti fór sem
oftar fyrr og slðar, að fulltrúar
snauðra landa þóttust illa sviknir
þar eð ekkert iðnrikjanna sem á
ráðstefnunni voru — nema Kana-
da — gaf nein bein loforð um að-
stoð i matvælum eða annarri
mynd.
Þeim vanda sem uppi er i Af-
riku má lýsa i stuttu máli á þessa
leið:
Tansania á i gifurlegum erfið-
leikum bæði vegna þurrka og svo
af striðinu sem háð var til að
steypa Idi Amin i Uganda. í
Uganda er enn allmikill her frá
Tansaniu og þetta land, sem er
eitt hið fátækasta i heiminum,
hefur orðið að veita ýmiskonar
aðstoð þessum granna sinum,
sem enn verr var farinn.
Kenya, á einnig i miklum
efnahagsörðugleikum. Dagens
Nyheter heldur þvi fram að það
land sé á leið inn i hóp þeirra rikja
sem allra fátækust eru.
I Eþiópiu geysar borgarastyrj-
öld, sem ekki aðeins veldur
hungursneyð i þvi hrjáða landi
heldur eykur og á vanda grann-
rikjanna. Til Súdan kemur mikið
af flóttafólki frá Eritreu og i
Sómaliu er ástandið þannig, að
fjórði hver ibúi landsins er nú
flóttamaður frá Ogadensýslunni i
Eþiópiu, sem lengi hefur verið
barist um.
Einnig Zimbabwe, sem nýlega
hefur fengið sjálfstæði og tekist
hefur á við ýmisleg vandamál
með miklu skaplegri hætti en
menn þorðu að vona að hægt væri,
á hungursneyð i vændum. Ef til
vill ekki vegna beins skorts á
matvælum, heldur vegna þess að
erfitt mun reynast að koma mat-
vælum til ýmissa staða þar sem
þeirra er mikil þörf.
DN
Hinn heimsfrægi tenórsöngvarí
Luciano PAVAROTTI
syngur með Sinfóníuhljómsveit íslands í Laugardalshöll
föstud. 20. júni kl. 20.30. Stjórnandi: Kurt Herbert Adler.
Pavarotti er einn af
þessum segulmögn-
uðu listamönnum,
sem — rétt eins og
Núríéf í listdansi
og Oliver í leikhúsinu
— ekki aðeins veita
listunnendum ánægju
heldur vekja líka upp
gífurlega hrifningu
með allri alþýðu
Time.
Miðasala í Gimli
v/Lækjargötu
kl. 14—19.30.
LISTAHÁTÍÐ