Þjóðviljinn - 20.06.1980, Síða 1
Launahœkkun alþingismanna,
MOOVIUINN
Föstudagur 20. júní 1980 —138. tbl. —45. árg.
Ríkisstjórnin skipar ráðherranefnd í frystihúsamálin
Aldrei meiri
birgðasöfmm
Tillögur lagðar fyrir stjórnina nœstkomandi þriðjudag
„Fyrir utan hin al-
mennu áhrif á efnahags-
lífið þá er ljóst að
ástandið í frystiiðnað-
inum stofnar i hættu at-
vinnu hundruða ef ekki
þúsunda verkafólks um
allt land”, sagði Svavar
Gestsson félagsmála-
ráðherra i gær. „Skóla-
fólk og lausráðið fólk
hefur sumstaðar þegar
fengið reisupassann í
bráð að minnsta kosti og
við svo búið má ekki
standa.”
Rfkisstjórnin ræddi vanda
frystiiöna&arins i gær og skipaði
þriggja manna ráðherranefnd til
þess að skila tillögum fyrir næsta
rfkisstjórnarfund sem haldinn
veröur á þriöjudaginn kemur. 1
nefndinni eru Gunnar Thoroddsen
Steingrfmur Hermannsson og
Svavar Gestsson.
Samstilling veida,
vinnslu og markaða
Svavar sagöi aö á fundi ráö-
herranefndarinnar i gær heföi
einkum veriö rætt um tillögugerö
á fimm sviöum. I fyrsta lagi t
sambandi viö viöbótarmarkaö
fyrir freöfisk, i ööru lagi um sam-
stillingu á geymslurými um land
allt, i þriöja lagi tillögur um ráö-
stafanir i lánamálum vegna
íþyngjandi birgðahalds, f fjóröa
lagi hugmyndir um bætta fram-
leiöni til þess aö frystihúsin spjari
sig betur i áföllum af þessu tagi
og i fimmta lagi tillögur um aö
stilla betur saman veiöar, vinnslu
og markaö en gert hefur veriö.
Svavar Gestsson sagöi aö hinn
nýi vandi frystiiðnaöarins væri
tviþættur: Annarsvegar sölu-
tregöa á Bandarikjamarkaöi á
einstökum vörutegundum, og
hinsvegar veruleg framleiöslu-
aukning. Sem dæmi mætti taka að
á fyrstu mánuöum þessa árs heföi
oröiö 20% samdráttur i sölu fimm
punda þorskflaka hjá Sölumiö-
stöö hraöfrystihúsanna i Banda-
rikjunum og birgöir hlæöust upp.
A sama tima heföi orðiö 25%
Höfðabakkabrúin:
V erður hún
minnkuð?
Hönnunaraðilar benda á
að fyrri forsendur hafi breyst
Fyrirtækið Hönnun h.f.
er annaðist hönnun Höfða-
bakkabrúar telur nú at-
hugandi að taka hönnun
brúarinnar til endurskoð-
unar þar eð fyrri for-
sendur hafi nokkuð breyst.
Hefur fyrirtækið lagt fram
tillögur er taka mið af því
að Höfðabakkabrú verði
ekki hraðbraut og brúin
samsvari þannig veginum
er liggur norður af brúnni,
Samninga-
fundir um
helgina
Samningafundur var haldinn
milli BSRB og samninganefndar
rikisins i gær, en fátt gerðist þar
markvert. Viðræður halda áfram
um helgina og að sögn Björns
Arnþórssonar hagfræöings BSRB
er unnið af fullum krafti við
samningana.
en vegna mótmæla íbúa
Árbæjarhverf is hefur
verið ákveðið að breyta
veginum fyrir norðan
væntanlega brú á þann veg
að hann verði ekki hrað-
braut.
Hönnunaraðilar telja aö meö
þvi aö minnka brúna og láta hana
samsvara veginum er liggur
noröur af henni megi spara veru-
legt fjármagn auk þess sem
breytt hönnun hafi ýmsa kosti
meö tilliti til náttúruverndar.
Þessar upplýsingar komu fram
á fundi borgarstjórnar I gær er
Adda Bára Sigfúsdóttir vakti at-
hygli á bréfi fyrirtækisins til
borgarinnar þar sem breytinga-
tillögurnar eru kynntar. Adda
Bára hvatti til þess aö byggingar-
nefnd og borgarstjórn tækju
máliö til gaumgæfilegrar athug-
unar. 1 máli Guðrúnar Helga-
dóttur er einnig tók til máls kom
fram aö ef brúnni yröi breytt i
samræmi viö tillögur Hönnunar
h.f. þá mætti minnka kostnaöinn
um 500miljónir. Elin Pálmadóttir
talsmaöur Sjálfstæöisflokksins
taldi ekki ástæöu til neinna breyt-
inga.
Mál þetta er nú til umfjöllunar i
byggingarnefnd borgarinnar.
— þm
framleiösluaukning hjá SH hér
heima af fimm punda pakkn-
ingum.
70% framleiðslu-
aukning
Um siöustu mánaöamót námu
birgöir i landinu 40.500 tonnum af
freöfiski og hafa aldrei veriö
meiriá sama tima I tonnum taliö.
Birgöaaukning frá þvi á sama
tima I fyrra er 18% og fram-
leiðsluaukning á timabilinu jan-
úar til mai 15%. Ariö 1978 og 1979
voru freöfiskbirgðir i landinu I lok
mal 29.300 tonn og 38.600 tonn
( ’79 i lok farmannaverkfalls) og
var þetta 24 til 26% af ársfram-
leiðslu. Framleiðsluhlutfalliö er
nú 24-23% og hefur semsagt oft
veriö hærra áöur.
Framleiðsla freöfiskafuröa
hefur aukist um 70% frá 1975 til
Framhald á bls. 13
Dregin til baka
Ákvörðunarvaldið falið öðrum aðila
l haUSt? aðila ákvörðunarvald i
Þingfararkaupsnefnd
féllst i gær á þau tilmæli
forseta Alþingis að
draga til baka ákvörðun
um 20% launahækkun
alþingismanna. Þá sam-
þykktu forsetarnir að
fela skrifstofustjóra Al-
þingis að undirbúa ýtar-
lega endurskoðun á lög-
um og reglum um kaup
og kjör alþingismanna
og athuga sérstaklega
með hverjum hætti Al-
þingi getur falið öðrum
þeim efnum.
1 gær komu saman aöalforsetar
þingsins, þeir Jón Helgason,
Sverrir Hermannsson og Helgi
Seljan ásamt formönnum þing-
flokka og skrifstofustjóra Al-
þingis til þess aö ræöa þessi mál.
Auk framangreinds samþykktu
forsetarnir eftirfarandi:
„Aöaiforsetar Alþingis állta aö
þingfararkaupsnefnd hafi farið
aö lögum I sambandi viö bókun
hennar um laun þingmanna á
fundi nefndarinnar 20. mai s.l.
Forsetar mæla hinsvegar meö
þvi viö þingfararkaupsnefnd aö
bókunin komi ekki til fram-
kvæmda svo aö næsta reglulegu
Alþingi gefist færi á aö fjalla um
máliö”.
A fundi þingforseta og þingflokksformanna I gær. F.v. Friöjón Sigurös-
son skrifstofustjóri, Sverrir Hermannsson forseti neöri deildar, Helgi
Seljan forseti efri deildar, Páll Pétursson formaöur þingflokks Fram-
sóknarflokksins, Jón Helgason forseti sameinaös þings, Jóhanna
Siguröardóttir fulltrúi þingflokks Alþýöuflokksins og ólafur Ragnar
Grlmsson formaöur þingflokks Alþýöubandalagsins. (Ljósm.: gel).
— Ég söng fyrir 250 þúsund manns I Hyde Park fyrir skömmu. Þaö var stórkostlegt.
y Myndí gel.
„Áheyrendur eru allt”
„Vik frá mér Satan”
sagði Luciano Pavarotti
þegar hann gekk í salinn
og sá ostabakkann sem
boðið var upp á.
„Söngvarar verða að
halda sér i formi”.
Luciano Pavarotti
tenórinn heimsfrægi
kom til landsins í gær og
syngur í Laugardals-
höllinni i kvöld. Hann er
þéttur á velli, dökkur á
brún og brá, snöggur i
hreyfingum með bjarta
og hreina rödd.
Hvenær ákvaöst þú aö veröa
söngvari?
— Þegar ég var 19 ára þurfti ég
aö velja milli þess að gerast
kennari eða tenórsöngvari. Ég
leitaöi ráða hjá pabba og
mömmu, pabbi sagöi: ekki söng-
vari enda gafst hann upp á þeirri
braut, en mamma sagöi já,
syngdu og þaö varö.
Og hvernig er svo lif þitt?
— Ég er meira á lofti en á jörðu.
Ég er sifellt á ferö og flugi. Ég get
ekki hugsaö mér aö vinna lengi á
sama staö. Eitt sinn var ég i tvo
mánuöi I San Franncisco og ég
var hreint að drepast. Ég syng viö
alls konar aöstæöur, ég söng i
Hyde Park fyrir nokkrum dögum
fyrir 250.000 manns og þaö var al-
veg stórkostlegt.
Hvers konar tónlist er á efnis-
skrá þinni?
— Aöallega aríur, ítalskar og
franskar. Min uppáhaldstónskáld
eru Mozart og Verdi. Við Verdi
erum náskyldir. Viö erum i sama
stjörnumerkinu báöir fæddir I
október.
Er einhver munur á röddum
eftir þvi hvort söngvarar koma úr
norður- eöa suöurálfu?
— Nei, rödd min er ósköp svip-
uö og rödd Jussi Björling, sem
var italskastur allra tenóra, þótt
hann væri ættaöur aö noröan.
Þegar mér er likt viö Caruso segi
ég: það er ekki hægt aö lika nein-
um viö Caruso hann var mesti
söngvari sem uppi hefur veriö.
En vel getur þaö veriöaö viö séum
likir sem persónur. Hann elskaöi
áheyrendur sina og þeir hann! og
ég vona aðég hafi fariö sömu leiö.
Aheyrendur eru allt! Þú gefur
þeim jafn mikiö og þeir gefa þér.
Hver stuölaöi aö heimsókn
þinni hingaö?
— Vladimir Askhenazy sagöi
mér aö ég ætti aö fara til Islands.
Meira en svo: hann skipaöi svo
fyrir. Þaö var fyrir fimm árum,
og ég er núna fyrst aö hlýöa hon-
um — eins og vera ber.
Hvaö er svo framundan
— Nú er ég 44 ára og næstu
fimm árin veröa min bestu. Þeg-
ar dætur minar veröa giftar og ég
verö orðinn afi, þá fer ég aö taka
lifinu meö ró og kannski kenni ég
söng.
—ká