Þjóðviljinn - 20.06.1980, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. júnl 1980
Af frambjódendum
j Guölaugur í Kópavogi
A fundi stuöningsmanna
Guðlaugs Þorvaldssonar i
Kópavogi 15. júni fluttu þessir
ávörp: Arni Tómasson, Egg-
ert Steinsson, Hákon Sigur-
grimsson, Jón H. Guðmunds-
son, Sigurlaug Zophanias-
dóttir og Þórunn Guömunds-
dóttir.
Stuöningsmenn Guölaugs
hafa opnaö kosningaskrifstofu
i Kópavogi og er hún aö
Skemmuvegi 36simar 77600 og
77700. Forstöðumaður er Egg-
ert Steinsen.
Skrifstofur Vigdísar
Vestmannaeyjar
1 Vestmannaeyjum hafa
stuöningsmenn Vigdisar opn-
aö skrifstofu aö Miöstræti 11.
Siminn þar er 98-1139. Opiö
veröurvirka daga klukkan 17-
21 og um helgar kl. 14-18.
Forsvarsmenn skrifstofunnar
eru Eirikur Guönason, Hrafn-
hildur Astþórsdóttir, Jóhanna
Andersen, Vilborg Gisladóttir,
Sigriður Angantýsdóttir og
Ólöf Bárðadóttir.
Framkvæmdanefnd I Vest-
mannaeyjum skipa: ómar
Garðarsson, lögregluþjónn,
Jóhanna Andersen, verka-
kona, Eirikur Guönason,
skólastjóri, Erla Jóhannsdótt-
ir, verslunarmaður, Sigmund-
ur Andrésson, bakarameist-
ari, Sigriöur Angantýsdóttir,
húsmóöir.
björnsson, Hrisum, Hjalti
Jósefsson, Uröarbaki, Unnur
Björnsdóttir, Hvammstanga
og Ragnheiöur Karlsdóttir
Hva mmstanga.
Patreksfjörður
A Patreksfiröi er skrifstofa
aö Aöalstræti 15. Siminn er 94-
1455. Opið verður virka daga
klukkan 20-22 og um helgar
klukkan 12-22. Undirbúnings-
nefnd skipa Bragi Thorodd-
sen, rekstrarstjóri, Erla
Hafliöadóttir, hótelstjóri,
Sigriöur Viggósdóttir, skrif-
stofumaöur, Rögnvaldur
Halldórsson, sjómaður, Sverr-
ir ólafsson, matsveinn, Bjarni
Þorsteinsson verkstjóri,
Lindal Bjarnason, bifreiöa-
stjóri og Birna Jónsd., hús-
freyja.
Hvammstangi
Stuöningsmenn Vigdisar
Finnbogadóttur i Vestur-
Húnavatnssýslu hafa opnað
skrifstofu að Melavegi 15,
Hvammstanga. Siminn þar er
95-1486. Opið veröur mánud,—
föstud. 20-22 og laugardaga 13-
17. Forstööumaöur er Eyjólfur
Magnússon.
Samstarfsnefnd stuönings-
manna Vigdisar Finnboga-
dóttur skipa: Gunnar
Haraldsson, Bálkastööum,
Friörik Böövarsson, Syösta
Ósi, Guörún Jónsdóttir, Laug-
arbakka, Guðmundur
Þorbergsson, Neöra Núpi,
Halldóra Kristinsdóttir, Syöri
Anastöðum, Magnús Svein-
Egilsstaðir
A Egilsstöðum er skrifstof-
an að Laugavöllum 10. Þar er
simi (97)-1585. Opiö veröur
mánudaga og fimmtudaga
20:30— 22 oglaugardaga 13-15
fyrst um sinn en alla daga siö-
ustu viku fyrir kosningar.
Forstööumaður er Einar Rafn
Haraldsson.
Seltjarnarnes
Skrifstofa hefir veriö opnuö
af stuöningsmönnum Vigdisar
á Seltjarnarnesi. Skrifstofan
er aö Vallarbraut 16. Simi
13206. Forstöðumaður skrif-
stofunnar er Sveinbjörn Jóns-
son. Opiö öll kvöld.
Vinnustaöaheimsóknir
I tilefni af forsetakosningum
hefur Guölaugur Þorvaldsson
undanfarna daga heimsótt
nokkra vinnustaði I Reykja-
vik. Hann heimsótti Bæjarút-
gerö Reykjavikur, Rafmagns-
veitur rikisins og Mjólkur-
samsöluna. Auk þess heim-
sótti hann elliheimiliö Grund.
Meöfylgjandi mynd er frá
heimsókninni i Mjólkusam-
söluna.
Hafnarfjarðarfundur
Guölaugs
Stubningsmenn Guölaugs
Þorvaldssonar héldu fund i
Bæjarbiói I Hafnarfirbi 12.
júni. Bæöi Guðlaugur og kona
hans Kristin Kristinsdóttir
ávörpuðu fundinn en aörir
ræðumenn voru Guöjó/i
Tómasson, Guöriöur Elias-
dóttir, Gunnar Hólmsteinsson,
Hallgrimur Pétursson, Lilja
Guöjónsdóttir, Siguröur Blön-
dal, Þórdis Mósesdóttir og
Þóröur Sverrisson. Einnig var
flutt tónlist.
■
L
Söngur og harmoniku-
leikur á Selfossi
Sl. miðvikudagskvöld héldu
stuðningsmenn Guölaugs Þor-
valdssonar fund meö þeim
Guölaugi og eiginkonu hans
Kristinu Kristinsdóttur i
iþróttahöllinni á Selfossi. A
fundinum fluttu ávörp Krist-
inn Kristmundsson, Heimir
Steinsson, Þórunn Þórhalls-
dóttir, Jón R. Hjálmarsson og
Lisa Thomsen. Fundarstjórar
voru þau Hafsteinn Þorvalds-
son og Erla Guömundsdóttir.
Karlakór Selfoss söng og
harmonikuleikarafélag
Reykjavikur lék. Áöur en
fundurinn hófst lék lúðrasveit
Selfoss nokkur lög.
Erlendur Sveinsson og Sigurður Sverrir Pálsson
Firra sig allri ábyrgð
á myndinni um Snorra Sturluson
Þeir Erlendur Sveinsson og
Siguröur Sverrir Pálsson áttu á
sinum tima frumkvæöi aö gerö
myndarinnar um Snorra Sturlu-
son og byggist taka hennar á
handriti þeirra. Er Þráni Beltels-
syni var falin stjórn verksins i
júni 1979 ákváöu þeir aö draga sig
i hlé og geröu samning viö rikis-
útvarpiöum meöferö handritsins.
Nú hafa þeir félagar gefiö út yfir-
lýsingu þar sem þeir firra sig allri
ábyrgö á Snorramyndinni vegna
þess aö grundvallarbreytingar
hafi veriö geröar á handritinu án
þeirra vitundar.
Jafnframt óska þeir eftir þvi aö
nöfn þeirra sem höfunda veröi
ekki tengd þeirri útgáfu verksins
sem sjónvarpiö vinnur nú eftir. 1
greinargerö sem fylgir yfirlýs-
ingunni segir aö þeir hafi gert
samkomulag viö RUV 11. júli 1979
um meðferö handrits þar sem
m.a. var tekiö fram aö eigi skyldi
„skertur höfundaheiöur viö-
komandi” (þ.e. ES/SSP). Auk
þess var tekiö fram aö „áöur en
kvikmyndataka hefst skal Lifandi
myndum h/f gerö grein fyrir
þeim breytingum sem um væri aö
ræöa”, Þess skal getiö aö Lifandi
myndir h/f er fyrirtæki Erlendar
og Siguröar Sverris.
Þá segir i yfirlýsingunni aö
upptökur á Snorramynd hafi
byrjaö 28. mai s.l. án þess aö fyrr-
nefndum skilyröum samningsins
væri fullnægt. Viku eftir aö upp-
tökur hófust hafi þeim veriö af-
hent samtalshandrit myndarinn-
ar eftir aö þeir heföu gert kröfu
um aö sjónvarpiö stæöi viö geröa
samninga og afhenti greinagerö
um breytingar. Af þvi samtals-
handriti mætti ráöa aö svo miklar
breytingar heföu veriö geröar á
formi og megininntaki verksins,
ánsamráös, aö þeir væru neyddir
til aö firra sig ábyrgö á þeirri
Snorramynd sem nú er I upptöku.
—GFr
'lSAFJOROUH
STÓRU-TJARNIR
•FLÓKALUNDUR
AKUREVRI
OJARKAmUNDUf
HÚNAVELUR
REYKIR
MALLORMSSTADUR
REVKHOLT
LAUCARVATN
KIRKJUBÆJARKLAUSTUH
Kjartan Lárusson og Diljá Gunnarsdóttir á fundi meö blaöamönnum I gær. _ Ljósm. — gel
Ferðaskrifstofa ríkisins
Hringferðir fyrir íslendinga
Feröamannatiminn er genginn
i garö, fólk er fariö aö taka fram
tjöld og bakpoka og erlendir
feröamenn teknir aö streyma til
landsins. Þessa dagana eru
sumarhótelin aö opna um allt
land, rútubilarnir streyma út á
þjóövegina, sumariö er komiö.
Feröaskrifstofa rikisins er sá
aöili sem mest hefur meö feröa-
lög innanlands aö gera. Þab er
margt á döfinni hjá fyrirtækinu,
sem stærir sig af þvi aö vera eitt
fárra rfkisfyrirtækja sem rekiö er
með hagnaöi. Sl. ár var ágóöinn
134 miljónir sem svarar til 5—6
miljónir á hvern starfsmann
skrifstofunnar.
1 sumar býður Feröaskrifstofan
upp á nýmæli: sérstakar hring-
feröir fyrir Islendinga, meö gist-
ingu á Edduhótelunum, fullu fæöi
og leiösögn. Ellilifeyrisþegar fá
5% afslátt. Þá veröa opnuö þrjú
ný Edduhótel I sumar, á Blöndu-
ósi, Nesjaskjóli i Hornafiröi og
Staöarborg i Breiðdal. Alls eru
Edduhótelin þá orðin 17 um land
ailt.
Kjartan Lárusson forstjóri
feröaskrifstofunnar og Dilja
Gunnarsdóttir sölustjóri ræddu
viö blaðamenn um starfsemina
og ferðamálin almennt. Þau
sögöu útlitiö I sumar vera nokkuö
gott, pantanir væru sist minni en i
fyrra. Alls skipuleggur skrifstof-
an 150 brottfarir i lengri feröir, en
auk þess er svo aragrúi hálfs dags
og eins dags feröa.
Kjartan sagöi aö betur mætti
hyggja aö skipulagi ferðamála og
þaö væri veriö aö reyna aö lengja
feröamannatimann, fá fólk til aö
koma hingað I september sem oft
er staöviörasamur og góöur til
feröalaga. Kjartan sagöi þaö sina
trú aö erfitt væri aö skipuleggja
gistingu innan lands meö ööru
móti en aö nýta skólana, meðan
feröamannatiminn er jafn stuttur
og raun ber vitni.
Þaö er stefna Feröaskrifstofu
rikisins aö reyna aö fá Islendinga
til aö feröast meira innanlands og
sögöu þau Kjartan og Diljá aö
Island væri hreint ekkert dýrara
land en nágrannalönd okkar.
—ká
Jón Axel Pétursson
Fáein
kveðjuorð
Meö Jóni Axel Péturssyni er
fallinn i valinn stórbrotinn og
eftirminnilegur persónuleiki. I
nær hálfa öld var hann áberandi
maöur I borgarlifi höfuöstaöarins
vegna afskipta af félagsmálum,
þátttöku i stjóm bæjarmálefna,
umfangsmiklum framkvæmda-
stjórastörfum i Bæjarútgerö
Reykjavikur og loks sem banka-
stjdri Þjdöbankans slðustu starfs-
árin. Alls staöar sópaöi aö Jóni
Axel, enda var hann harösækinn
baráttumaöur fyrir þau málefni
er hann lét sig varba. Hann gat
stundum virst hrjúfur á ytra
boröi, skapiö var stórt og heitt,en
hjartaö var gott er undir sló. Eng-
inn sem þekkti Jdn Axel gat efast
um hreinskilni hans og dreng-
skap.
Jdn náöi háum aldri, lést á 82.
aldursári, og uröu siöustu árin
þessum mikla kjark- og
dugnaöarmanni öröúg vegna
vaxandi vanheilsu. Hann kom á
langri ævi viöa viö sögu. Ungur
maöur reyndist hann móöur sinni
og systkinum slikur drengur er
faöir hans féll frá aö lengi var á
oröi haft. Hann geröist sjómaöur,
aflaöi sér skipstjórnarmenntunar
og varö siöar hafnsögumaöur I
Reykjavik. Hann var bæjarfull-
trúi i Reykjavik frá 1934—1954
fyrir Alþýöuflokkinn og var þar
atkvæöamikill talsmaöur stefnu
sinnar og flokks. Beitti hann sér
m.a. af miklum dugnaöi fyrir
stofnun Bæjarútgeröar Reykja-
vikur, enda voru atvinnumálin
jafnan efst á óskalista Jóns i
bæjarmálum. Þegar BCR, tók til
starfa varð Jón Axel þar fram-
kvæmdastjóri og er enginn vafi á
aö hann naut sin afburöavel i þvi
starfi.
Siöar var svo Jón Axel kvaddur
til bankastjórastarfa I Lands-
banka íslands og reyndist þar
sem annar staöar ötull og
traustur stjórnandi. Er ég ekki
grunlausum aö Jón Axel hafi I þvi
starfi reynst óskabarni sinu,
Bæjarútgerö Reykjavlkur,
haukur I horni, þegar erfiöleika
báru aö höndum, og tæpast stóö
meö aö halda útgeröinni á floti.
Viö Jón Axel bárum ekki gæfu
til samþykkis I stjórnmálum, þótt
báöir teldum viö okkur verka-
lýössinna og heföum um skeiö
starfaö hjá heildarsamtökum is-
lenskrar alþýöu, Alþýöusam-
bandi íslands. En þrátt fyrir
ágreining og deilur sem upp hlaut
aö koma I bæjarstjórn og gátu
stundum oröiö nokkuö haröar,
áttum viö Jón góöa samvinnu um
margt,ekki sist aö þvi er varöaöi
Bæjarútgerö Reykjavikur er
hann var þar framkvæmdastjóri
en ég i útgeröarráöi.
Ég mat Jón Axel jafnan mikils
vegna hreinskiptni hans og marg-
háttaöra mannkosta og mér er
söknuöur I huga viö fráfall hans,
en einnig þakklæti fyrir langa og
minnisstæöa viökynningu. Ég
sendi eiginkonu hans, Astriöi
Einarsdóttur, og öðrum ástvinum
einlæga samúöarkveöju um leib
og ég biö minningu Jóns Axels
blessunar.
Guömundur Vigfússon.