Þjóðviljinn - 09.07.1980, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 9. Júli 1980.
Yfirlit um ástand í atvinnumálum frá
vinnumáladeild félagsmálaráðuneytisins
Atvinnuárferði
betra en 1979
Slœmar hotfur í fiskiðnaðinum, en í öðrum
greinum er búist við góðu ástandi
I. Atvinnu-
leysisskráning
30. júní 1980
Samkvæmt þeim tölum, sem nú
liggja fyrir um skráningu at-
vinnulausra um land allt hinn 30.
júní s.l., var fjöldi atvinnulausra
þann dag samtals 287, 127 karlar
og 160 konur.
Um næstu mánaöamót á undan
voru 481 skráöur atvinnulaus, 252
karlar og 229 konur.
Samkvæmt þessu hefur at-
vinnulausum á skrá fækkaö um
195 frá siöustu skráningu þar af
hefur atvinnulausum körlum
fækkaö um 125 en konum um 69.
Enda þótt atvinnuleysiö hafi
minnkaö á landinu þegar á heild-
ina er litiö, hefur skráöum at-
vinnulausum fjölgaö á nokkrum
stööum frá siöustu skráningu.
Þetta gildir um Akranes, Siglu-
fjörö, Ólafefjörð, Keflavik og
Hafnarfjörö. A þessum stööum
eru nú 81 skráöur atvinnulausir á
móti 22 viö næstu skráningu á
undan. Orsakir þessarar aukn-
ingar er aö rekja til þeirra erfiö-
leika, sem steöja aö hraöfrysti-
iönaöinum og leitt hafa til upp-
sagna á skólafólki og ööru laus-
ráönu fólki i frystihúsum á um-
ræddum stöðum. Þessar upp-
sagnireru aö byrja aö koma fram
I tölu atvinnulausra. Veröur
nánar vikiö aö þessu vandamáli
siöar I þessu yfirliti.
Eftir landshlutum skiptist
skráð atvinnuieysi þannig 30./6.
1980: (svigatölur eru frá 31/5.
1980)
Höfuöborgarsvæðiö 160 (348)
Vesturland 8 ( 13)
Vestfiröir 3 ( 1)
Noröurland vestra 44 ( 29)
Noröurlandeystra 45 ( 48)
Austurland 4 ( 8)
Suöurland 13 ( 25)
Reykjanes 10 ( 9)
Samtals (287) (481)
Skráöir atvinnuleysisdagar
voru 3.6101 jllni á móti 3.549 i mai.
Til samanburöar má geta þess,
aö I júnimánuöi árið 1979 voru
skráöir atvinnuleysisdagar alls
6.803 á landinu öllu.
II. Atvinnuleysi
á fyrri hluta
árs miðað
við sama
tímabil 1979
Þegar nú liggja fyrir tölur um
skráö atvinnuleysi á fyrri
helmingi ársins 1980 þykir rétt aö
gera samanburö við skráð at-
vinnuleysi á sama tima áriö 1979.
A töflu 1 kemur fram hvernig
skráö atvinnuleysi hefur verið i
lok hvers mánaöar á 1. og 2. árs-
fjóröungi hvors árs um sig. Þar
kemur fram, aö hvort sem iitið e:
á einstaka mánuði, hvorn árs-
fjórðung fyrir sig eöa tímabiliö I
heild, er skráö atvinnuleysi veru-
lega minna I ár en þaö var á árinu
1979 á sama timabili.
Sé litiö á báöa ársfjóröungana
saman hefur skráöum atvinnu-
lausum fækkaö um 1214 manns
frá þvi sem var á sama tima 1979
eöa um 31%. Sem hlutfall af
mannafla er skráö atvinnuleysi
nú 0,4%, en var 0,7% á sama
timabili 1979.
Tafla 2 sýnir fjölda skráðra at-
vinnuleysisdaga i hverjum mán-
uöi um sig á 1. og 2. ársf jóröungi
áranna 1980 og 1979. Þar kemur
fram aö atvinnuleysisdögum hef-
ur fækkaö i hverjum mánuöi á yf-
irstandandi ári frá sama tima ár-
iö á undan og I heild eru skráöir
atvinnuleysisdagar á fyrri helm-
ingiársins 1980 um 25000 færri en
þeir voru áriö 1979 og nemur
fækkunin um 37%.
Niöurstaöa þessa samanburöar
I heild er þvl sú aö atvinnuárferöi
hafi veriö verulega betra á fyrra
hluta yfirstandandi árs en þaö
reyndist á sama tlmabili áriö
1979.
III. Atvinnu-
horfur á 3ja
ársfjórðungi
Þrátt fyrir þá jákvæöu þróun
atvinnustarfseminnar i landinu
á fyrri hluta yfirstandandi árs,
sem ótvirætt kemur fram I þeim
tölum, sem birtar eru hér aö
framan, hefur rikt nú nokkur
óvissa um atvinnuhorfur i næstu
framtiö. Veldur þar mestu þeir
erfiöleikar, sem nú steöja aö
hraöfrystiiönaöinum I landinu og
raktar eru til veröbólguþróunar
innanlands, söluerfiðleika á
helstu mörkuöum erlendis og þar
af leiöandi birgöasöfnunar svo og
til þeirra veiöitakmarkana, sem i
gildi hafa veriö.
Þessir aösteðjandi erfiöleikar
hafa, sem kunnugt er, leitt til þess
aö forsvarsmenn ýmissa frysti-
húsa, viösvegar um landiö, hafa
gripiö til þess aö tilkynna lokun
húsanna um lengri eöa skemmri
tima, ýmist I formi uppsagna á
starfsfólki eöa meö þvi aö láta allt
starfsfólk taka sumarleyfi sam-
timis. Þaö hefur aö visu tiökast
áöur hjá nokkrum frystihúsum á
landinu, aö loka húsunum vegna
sumarleyfa starfsfólks, en greini-
lega er nú um vlötækari lokanir
aö ræöa en áöur hefur átt sér staö,
auk þess sem viöa hefur veriö um
beinar uppsagnir aö ræöa bæöi á
lausráönu og fastráönu starfs-
fólki frystihúsanna.
Til þess aö sýna fram á hve hér
væri alvarlega vegið að atvinnu-
öryggi I landinu, ef öll frystihús
gripu til slikra aögeröa má benda
á, aö i fiskiönaöi munu vera starf-
andi um 10% af mannaflanum eöa
9-10 þúsund manns skv. opinber-
um mannaflatölum. Viö þetta
bætist aö á ýmsum stööum myndi
' stöövun fiskvinnslunnar valda
viötæku atvinnuleysi á skömmum
timá.
Félagsmálaráöherra fól vinnu-
málaskrifstofunni strax og vandi
frystiiðnaðarins kom i ljós, aö
fylgjast náiö meö þróun þessara
mála um land allt, þannig aö sem
best yfirlit íengist um umfang
vandamálsins. Þaö hefur þó
óneitanlega gert vinnumálaskrif-
stofunni erfiöara um vik aö for-
svarsmenn hraöfrystihúsanna
hafa vikist undan þeirri laga-
skyldu, aö gera aövart meö til-
skildum fyrirvara, ef meirihátt-
ar breytíngar I rekstri eöa upp-
sagnir starfsfólks eru fyrirhugaö-
ar. Er sú afstaöa meö öllu óskilj-
anleg, þar sem þessum aöilum
hefur veriö ljósara en flestum
öörum aö sá vandi, sem nú steöj-
ar aö, veröur vart leystur án
opinberrar ihlutunar og þvi nauö-
synlegt aö stjórnvöld fái I tæka tiö
vitneskju um vandann.
Þær upplýsingar, sem skrif-
stofan hefur aflaö, hafa jafnharö-
an veriö sendar félagsmálaráö-
herra og jafnframt veriö lögð
áhersla á, aö skjótra úrbóta væri
þörf til aö efla atvinnuöryggi
starfsfólks I fiskiönaöi.
Rikisstjórnin hefur nú, sem
kunnugt er, ákveöiö margháttað-
ar aögerðir til stuönings frysti-
iönaöinum I núverandi vanda,
sem allar stefna aö þvi aö gera
iönaöinum kleift aö halda áfram
eölilegri framleiöslustarfsemi.
Enda þótt skammt sé um liöiö
frá því aö þessar ráöstafanir voru
kunngeröar, hefur vinnumála-
skrifstofan meö viötölum viö
forsvarsmenn samtaka frystihús-
anna, reynt aö meta áhrif aögerö-
anna á atvinnuhorfur i næstu
framtiö.
Aö sjálfsögöu veröur ekkert
fullyrt aö svo komnu um hver
þróunin veröi á einstökum stöö-
um, vegna mismunandi aöstæöna
á hinum ýmsu stöðum. En þegar
litiö er á frystiiönaöinn i heild er
þaö mat félagsmálaráöuneytisins
aö nú þegar riki aukin bjartsýni
um áframhaldandi rekstur frysti-
húsanna. Gera má ráö fyrir aö
þau frystihús, sem hingaö til hafa
þraukaö, án þess aö boöa stöövun,
þrátt fyrir erfiöleika, sjá nú fram
á bjartari tiö, og aö ekki komi til
stöðvunar hjá þeim.
Þá er ástæöa til aö ætla að
ýmiss þeirra húsa, sem boöaö
hafa stöövun muni stytta þann
tima, sem fyrirhugaö var aö loka,
enda sé ekki um hráefnisskort aö
ræöa á þeim stööum. 1 þessu sam-
bandi má benda á aö frystihúsin
innanSH og Sambandsins hafa nú
fengiö heimild til aö hefja vinnslu
upp I þá viöbótarsamninga, sem
gerðir voru við Ráðstjórnarrikin
á dögunum.
Þrátt fyrir þá bjartsýni, sem
kemur fram I þessu mati, er þó
ljóst aö á nokkrum stöðum, svo
sem i Vestmannaeyjum, eru
vandamálin þess eðlis aö vafa-
laust þarf aö grlpa til sérstakra
aögeröa, ef unnt á aö vera aö
tryggja framhaldandi fram-
leiöslustarfsemi. A öörum stööum
kann nauðsynleg klössun veiöi-
skipa aö seinka þvl aö unnt veröi
aö starfrækja fiskvinnsluna meö
fullum afköstum.
En á heildina litið veröur aö
vænta þess aö aögeröir rikis-
stjórnarinnar komi I veg fyrir þaö
fjöldaatvinnuleysi.sem yfir hefur
vofaö siöustu vikur.
Um atvinnuhorfur I öörum
starfsgreinum er þaö aö segja aö
ekki er ástæöa til þess aö ætla
annaö en aö sú þróun sem átt hef-
ur sér staö á fyrrihluta ársins
haldi áfram á 3ja ársfjóröungi.
Kannanir, sem framkvæmdar
hafa veriö i iönaöi, byggingar-
starfsemi og hjá verktökum,
benda til meiri starfsemi á 3ja
ársf jóröungi en á sama tima á síð*
asta ári og aukningar frá 1. og 2.
ársf jóröungi. Þetta er þó aö sjálf-
sögöu aö nokkru háö því aö fisk-
iönaöurinn veröi starfræktur meö
eölilegum hætti.
TAFLA I.
Fjöldi atvinnulausra á skrá í lok mánaðar á 1 . oq 2.
ársfjóðungi 1980 borið saman vió sömu tímabil 1979:
1. ársfjóróungúr: 1900 1979 m ism.
Janúar 651 882 - 231
Febrúar 473 704 - 231
Mars 345 544 - 199
Alls: 1 .469 2.130 - 661
2. ársfjórðungur:
Aprí 1 437 522 - 85
Maí 481 864 - 385
Júní 287 372 - 85
Alls: 1.194 1 .758 - 553
1. og 2. ársfjórðungur: 1980 1979 mism.
Samtals: 2.663 3.888 - 1.214
TAFLA II.
Skráóir atvinnuleysisdagar á öllu landinu á 1. og 2 .
ársfjórðungi 1980 borió saman við sama tímabil 1979:
1. ársfjórðungur: 1980 1979 mism.
Janúar 14.170 20.809 6.639
Febrúar 8.712 13.371 4.659
Mars 6.276 10.331 4.055
Alls: 29.158 44.511 15.353
2. ársfjórðungur: 1980 1979 mism.
Aprí 1 6.291 8.190 1 .099
Maí 3.549 7.970 4.421
Júní 3.610 6.803 3.647
Alls : 13.450 22.963 9.513
1- og 2. ársfjórðungur: 1980 1979 mism.
Samtals: 42.608 67.474 - 24.866