Þjóðviljinn - 09.07.1980, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 09.07.1980, Blaðsíða 11
Miövikudagur 9. júli 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 iþrottirW iþrottirrg íþróttir Olympíumót fatlaðra Afreksmaöur leikanna i Hollandi, Arnie Boldt, stekkur yfir 1.96 i hástökki. Hann á best 2.08, Afrekin eru hreint óírúleg Olympiumót fatlaöra sem fram fór i Hollandi ekki alls fyrir löngu hefur vakiö talsveröa athygli fjöl- miöla, ekki sist fyrir þaö aö islensk stúlka vann þar olympiu- gull og setti nýtt olympíumet. Úrslita I allmörgum greinum hefur þegar veriö getiö i fjöl- miölum og engu á bætandi hér. Þaö er á hinn bóginn ansi at- hyglisvert starf sem fram fer hjá iþróttafélagi fatlaöra hér á landi og til aö komast eitthvaö inn i þau mál fór Þjóöviljinn á stúfana og spjallaöi viö formann félagsins, Arnór Pétursson. Hann hefur veriö formaöur allt frá stofnun þess auk þess sem hann hefur einnig veriö virkur þátttakandi i mörgum þeim greinum sem fatl- aöir fást viö. Er þaö mál manna aö Arnór hafi unniö ómetanlegt starf i þágu fatlaöra hér í landi og sé sá maöur sem drifiö hefur iþróttastarf fatlaöra áfram meö þeim árangri aö tslendingar standa hinum Noröurlanda- þjóöunum fyllilega á sporöi i þeim efnum og jafnvel spjari sig betur ef á heildina er litiö. Aö sögn Arnórs voru allar aöstæöur á keppnisstaönum frá- bærar og skipulagningin slik aö meö miklum sóma hafi veriö. T.a.m. hafi öll skátahreyfing Hol- lands veriö virkjuö til starfa og heföu skátarnir innt margvisleg störf af hendi. Arnór sagöi aö hreint ótrúlegt væri hvaö menn næöu langt i hinum ýmsu greinum. Þannig heföu bestu kraftlyftingamennirnir á mótinu staöiö mun framar en okkar menn hér heima. Afreksmaöur mótsins var þó tvimælalaust hástökkvarinn Arnie Boldt frá Kanada en hann stökk 1,96 á leikunum, einfættur, en á best 2,08 metra en þaö er aöeins tveimur sentimetrum undir gild- andi Islandsmeti. Þegar keppnin i hástökki fór fram var Boldt litils- háttar meiddur og kom þaö greinilega niöur á árangrinum. Ýmsir aörir afreksmenn létu ljós sitt skina en sá keppandi sem fór meö flest gull heima var banda- risk stúlka, Thirsley Jorn. Hún er blind en lét sig ekki muna um aö vinna 7 gullverölaun! A leikunum unnu Bandarikja- menn flest verölaun eöa 76 gull, 67 silfur og 55 brons. Pólverjar, sem eru ákaflega framarlega i Iþróttum fatlaöra, komu næstir, en I 3. sæti voru V-Þjóöverjar. Austurblokkin var ekki meö á leikunum ef undan eru skildir Pólverjar og Tékkar. —hól Siglfirðingar í 8-Iiða úrslit Siglfiröingar unnu Fylkis- kvöldi 1:0 I 16 liöa úrslitum og menn á Laugardaisvelli I gær- komast þvi I 8 liöa úrslit. Guðni frá keppni Einn af okkar sterkustu kúluvörpurum, Guöni Hall- dórsson KR, fer i meiri háttar læknisaögerö á næstunni. Guöni hefur átt viö leiöinda meiösl aö striöa sem háö hafa honum verulega I keppni. Hann freistar þess nú aö fá bót meina sinna og veröur fyrir vikiö frá allri keppni i sumar. —hól NM-bikar kvenna Um næstu helgi hefst I Svi- þjóö Noröurlandabikarkeppni kvenna. Nokkrar konur halda utan á þessa keppni og eru þaö eftirtaldar: Helga Halldórsd. KR: 100 m grind, 200 m og boöhl. Þórdls Gislad. 1R: Hástökk, langstökk og boöhl. Lilja Guömundsd. 1R: 3000 m hlaup. Guörún Ingólfsd. Arm.: Kúluvarp og kringlukast. Dýrfinna Torfad. KA: ■ Spjótkast. Hrönn Guömundsd. UBK: 400 m og boöhlaup Rut Ólafsd. FH: 800 m og boöhlaup. Ragnheiöur ólafsd. FH: 1500 m hlaup. Fararstjóri veröur Magnús Jakobsson. Steinunn hætt ir á skíðum Þaö hefur vakiö mikla athygli aö Steinunn Sæmunds- dóttir, skiöakonan góökunna, hefur uppá siökastiö unniö hvert afrekiö ööru betra á golfsviöinu. Hefur hún hvaö eftir annaö skotiö okkar snjöllustu kylfingum i hópi hins veikara kyns ref fyrir rass, og er sú staöa komin upp aö engin kona getur meö réttu talist betri en hún hér á landi. Þetta er býsna athyglisvert þvi Steinunn er svo til nýbyrj- uö golfleik. Hún hefur nú gefiö út þá yfirlýsingu aö hún ætli aö leggja skiöin uppi hillu og altént ekki taka þau fram til þess aö keppa. 1 staöinn ætlar hún aö einbeita sér aö golfleik. Má fastlega búast viö aö hún nái jafngóöum árangri þar og hún náöi á skiöabrautunum. —hól. 9. umferð íslandsmótsins hefst í kvöld V íkinpur (»> Valur leika 9. umferö tslandsmótsins I knattspyrnu hefst I kvöld með tveimur leikjum, en annað kvöld fara fram þrir leikir I deildinni. 9. umferð Islandsmótsins er fyrir margara hluta sakir ansi at- hyglisverð, þvi að henni iokinni er mótið hálfnað og menn sem hafa gaman af að velta fyrir sér töium og öðru sllku geta farið að spá I hlutina. Aöalleikur kvöldsins er aö sjálfsögöu leikur Vals og Vikings á Laugardalsvellinum og þarf ekki aö fara mörgum oröum um aö hann er geysiþýöingarmikill fyrir bæöi liöin. Víkingar veröa hreinlega aö vinna ef þeir ætla sér aö eiga einhverja möguleika i ís- landsmeistaratitilinn, en tapi þeir má segja aö möguleikar þeirra séu úti. Valsmenn halda, hvort sem þeir tapa eöa vinna, allgóö- um möguleikum i deildinni, en auðvitað skiptir hvert stig tals- vertmiklu máli. I siöustu leikjum hefur liöinu ekki vegnaö sem best og eitthvert slen hangiö yfir liös- mönnum. Ekki er viö aö búast aö Vikingar taki á móti þeim meö vettlingatökum eins og reyndar fæst liö I Islenskri knattspyrnu gera þegar Valur er andstæö- ingurinn. A Kaplakrikavelli fá FH-ingar heimsókn Þróttara. Leikur þess- ara liöa hefur mikiö aö segja og má vera nokkuö ljóst að Þrótt- arar veröa aö vinna til aö bæta stööu slna eitthvaö á botni 1. deildar. FH-ingar eiga tæpast neina möguleika á sigri i deildinni en verða á hinn bóginn aö huga vel aö hvaö er aö gerast á botni deildarinnar. Raunar er það synd ef annaöhvort þessara liöa, svo maöur tali ekki um bæöi, mæta þeim örlögum aö falla ofan I 2. deild því að ekki er aö sjá að liöin þar séu betri. Á fimmtudagskvöldið fara svo fram þrír leikir, allir sérlega spennandi. KR-ingar leika viö Is- landsmeistara IBV og veröur þar án nokkurs vafa um hörkuleik aö ræöa. KR-ingar sýndu snilldar- takta gegn Fram á mánudags- kvöldiö, og nái þeir einhverju svipuöu mega Eyjamenn svo sannarlega vara sig. Bæöi liöin eiga möguleika i titilinn, svo aö leikurinn hefur mikla þýöingu. I Keflavlk leika heimamenn viö Akurnesinga. Þar er engu hægt aö spá um úrslit. Þaö sama gildir þegar Framar leika viö Breiöa- blik á Kópavogsvellinum. Þar geturallt gerst og þyrfti engan aö undra ef Blikar næöu aö velgja bikarmeisturunum undir uggum. Allir leikir 9. umferöar hefjast stundvlslega kl. 20. — hól Markakóngur 1. deildar, Matthlas Hailgrlmsson, veltur yfir núverandi félaga sína I Val. Tekst honum aö bæta viö mörkum Ikvöid þegar Valsmenn mæta Vlkingiá Laugardalsvellinum?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.