Þjóðviljinn - 16.07.1980, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 16. júli 1980
Minning
Kristín G. Björnsdóttír
F. 7. F. 19. 7.1904 ■ D. 9. 7.1980
Nú er hUn Stina okkar Björns
látin og engum, sem til þekkir,
kom lát hennar á óvart. En þvert
á móti mætti segja, að við vinir
hennar heföum bUist við þvi fyrir
löngu siöan.
NU er löngu og erfiðu sjúk-
dómsstrlöi lokið. Og ber frekar að
þakka endalokin en harma. Hver
var svo Stlna Bjöms?
Fullt nafn hennar var Kristln
GuörUn Bjömsdóttir, fædd á Isa-
firði 19. jUlí 1904 og var þvl tæp-
lega 76 ára, þegar hún lést að Há-
túni lOb hér I borg.
Foreldrar hennar voru Sigur-
fljóð Sigurðardóttir og Björn
Jónsson og rek ég ekki frekar
ættir hennar. HUn ólst upp á lsa-
firði og að einhverju leiti I Reyk-
hólasveit. HUn giftist 27. des. 1925
Magnúsi Jensen, sem var fær-
eyskrar ættar. Þau eignuðust átta
böm og náðu fjögur þeirra full-
orðnisaldri, en fjögur dóu I frum-
bernsku. MagnUs lést 1937 og frá
þeim tlma bjó hún ein með börn-
um slnum, þar til þau flugu hvert
af öðru úr hreiðrinu. Hún fluttist
til Reykjavlkur 1947 og bjó þar og
I Kópavogi uppfrá þvl, utan tvö
ár, er hún dvaldi á Akureyri.
Þetta er I stuttu máli llfshlaup
hennar, en segir auövitaö ekkert
um alla þá baráttu fyrir eigin Ilfi
og barnanna og slðustu árin við
erfiöan sjúkdóm. Atvikin höguöu
þvi þannig , að haustiö 1937 sett-
umst við hjónin, þá nýgift, að á
Oldunni á ísafirði. I húsi þessu
bjuggum viðá neðstu hæðinni, en
Stina (en svo var hún alltaf nefnd
af vinum og kunningjum og svo
mun ég einnig gera nú, er ég kveð
hana hinstu kveðju) og maður
hennar Magnús bjuggu á efstu
hæðinni ásamt börnum slnum.
Stuttu slðar I árslok 1937 dynur
ógæfan yfir. Magnús maður
Stlnu deyr, og Stlna situr eftir
ekkja með fjögur börn á aldrinum
fjögurra til ellefu ára. A þessum
ámm var slður en svo bjart yfir
efnahags- og atvinnumálum Is-
firðinga og afkoma almennings
þvi mjög bágborin. Ekkja meö
fjögur börn á framfæri gat siður
en svo litiö björtum augum til
framtlðarinnar. En Stlna lét ekki
hugfallast, þvert á móti tókst hún
á viö öröugleikana með djörfung
og þrótti, eins og ekkert hefði I
skorist. HUn stundaði alla þá
vinnu, sem mögulegt var að fá,og
hllfði sér hvergi. 1 vinahópi var
hún manna glöðust rétt eins og
ekkert hefði breyst. Viss er ég um
það, að hennar létta lund hefur
áreiðanlega þá og sfðar veriö sá
eiginleiki, sem best dugöi henni á
llfsleiöinni. Erfiðleikunum mætti
hún með brosi á vör.
Þrátt fyrir alla erfiðleikana
kom hún öllum börnum sinum til
manns og siöar á ævinni sá hún
þau verða hiö nýtasta fólk. Og átti
hún eftir að uppskera ávöxt
þrautseigju sinnar og þolgæöis, er
hún hin síðustu ár, er hún háöi sitt
langvinna dauðastrlð, varð aö-
njótandi umhyggju þeirra og
ástúöar. En þau ræktu þá skyldu
slna við móöur slna af einstakri
prýði og ber þeim fagurt vitni,
sem margir mættu taka sér til
fyrirmyndar.
Eftir að Stina fluttist hingaö
suöur, stundaði hún ýms störf
fyrstu árin, meðal annars annað-
ist hún um eins árs skeið heimili
bróður slns Jóns I forföllum hús-
móöurinnar og um tveggja ára
skeiö vann hún á Akureyri.
1952 hóf hún störf á Kópavogs-
hæli og bjö þar I starfsmannahús-
inu. Þá hygg ég að hafi hafist
ánægjulegasti kaflinn I lifi hennar
og undi hún sér þar vel og naut
þess aöhlynna eftir mætti að vist-
mönnunum, og veit ég aö henni
var einkar hlýtt til húsbænda
sinna þar, þeirra hjóna Björns
Gestssonar og Ragnhildar Ingi-
bergsdóttur. Einnig mat hún mik-
ils þáverandi hjúkrunarkonu
hælisins, Hrefnu Ólafsd. sem nú
er látin, sem annaðist Stlnu af
sérstakri alúð þann tlma, sem
hún lá SjUk á heimili slnu á Kópa-
vogshæli,og sleit aldrei sambandi
við hana meðan báðar lifðu.
Arið 1977 lætu hún af störfum
sinum á hælinu og nokkru siðar
sama ár leggst hún inn á sjúkra-
hús og átti ekki afturkvæmt af
sjúkrahúsi slðan. Nú hefst erfiö-
ast kaflinn af ævi Stinu, sem nú er
lokið eftir þriggja ára stríð.
HUn leggst inn á Landsspital-
ann vegna dreps, sem hafði
hlaupið I annan fótinn. HUn er
dæmd til að missa fótinn. Þrjár
aðgerðir fara fram áður en kom-
ist erfy rir meiniö. En ekki var allt
búiö enn, að ári liönu missir hún
hinn fótinn.og nú var þessi létt-
fætta, glaöværa kona bundin við
rúmið og hjólastólinn, það sem
eftir lifði ævinnar. En þrátt fyrir
allt þetta, sem löngum fylgdu
sárar þrautir, þá lifði ennþá I
gömlum glæðum, hún tók vinum
slnum og vandamönnum með
sömu glaðværðinni og áður,
eins og ekkert hefði i skorist.
Andlegu jafnvægi slnu hélt hún til
hinstu stundar.
Eftir að Stlna lagðist inn á
sjúkrahús kom ég nokkrum sinn-
um I heimsókn til hennar. Hún tók
mér ávallt meö sömu glaðværð-
inni, jafnvel gáska, eins og I
gamla daga og við skeggræddum
llfiö og tilveruna I gamni og al-
vöru. Þessar heimsóknir færðu
mér heim sanninn um það,
hversu vinsæl Stlna var. Ég held
að ég hafi aldrei komið svo i
heimsókn til Stlnu að ekki væri
einn eöa fleiri vinir hennar eöa
venslamenn hjá henni ásamt
mér. Og sýnir þaö best.hve traust
vinaböndin voru og hefur það
áreiðanlega stytt henni stund-
imar. Sem dæmi um þaö vil ég
nefna þetta. Ég held að ég hafi
aldrei komiö svo I heimsókn til
Stinu að ekki væri þar annaö
hvort þeirra hjóna, Bjöm, sonur
hennar.eöa Svanhvlt, eða þá eitt-
hvert barna þeirra. Þetta fannst
mér vera einstaklega fagurt
dæmi um ræktarsemi og þá um-
hyggju sem hún var aðnjótandi
af hendi skyldmenna og vina.
Börn þeirra Stlnu og MagnUsar,
sem upp komustu,eru þessi: Mar-
geir Jón, sem lést fyrir
nokkrum árum á besta aldri,
kvæntur var hann Sesselju Har-
aldsdóttur, synir þeirra voru Sig-
uröur og Magnús. Ellsa, hjúkr-
unarkona, sem giftist Utii Eng-
landi pólskættuðum manni, Valek
Kwaszenko að nafni, sem nú er
látinn fyrir nokkrum árum, og
börn þeirra eru MagnUs og Soffla.
Jensina, hjúkrunarkona, búsett I
Englandi, gift Jim Hutton, börn
þeirra Stephen og Martin. Björn
Magnússon, sem er yngstur
þeirra systkina.búsettur I Garða-
bæ, kvæntur Svanhvlti Gunnars-
dóttur, börn þeirra Gunnar,
Kristln, Auður og Axel.
Allt þetta fólk er hið mesta
efnisfólk, sem sýnt hefur Stínu
sérstaka ástúð og umhyggju, og
áreiðanlega mat hún umhyggju
þess að veröleikum.
Stlna tók þátt 1 félagsmálum,
meðal annars I verkalýöshreyf-
ingunni. HUn var um margra ára
skeið virkur þátttakandi I starfs-
stúlkna félaginu Sókn, og sat um
nokkurt skeið I trúnaðarráöi
félagsins. Hún aðhylltist snemma
róttækar stjórnmálaskoöanir og
vann að framgangi þeirra mála
allt sem hún mátti.
Segja má að ekki verði héraðs
brestur, þótt gömul kona, sárþjáð
falli I valinn, en öll eigum við
okkar sögu. Llfsganga okkar er
jafn mismunandi og ein
staklingarnir eru margir. Llfs-
ganga Stínu var þyrnum stráð, en
þrátt fyrir alla þá erfiðleika, sem
hún varö aö takast á viö og sigr-
ast á, þá laöaöi hún fólk að sér
með glaöværö sinni og léttu lund,
enda mörg vináttubönd, sem ent-
ust ævilangt. Og nú að leiðarlok-
um munu ótrúlega margir minn-
ast Stlnu með vinsemd og virð-
ingu.
Við hjónin viljum nú, er leiðir
skiljast, þakka vinkonu okkar
áralanga vináttu, sem aldrei bar
skugga á. Viö þökkum órofa
tryggö hennar og hjálpsemi
hennar I okkar garð. Þökkum
allar þær gleöistundir er við átt-
um með henni. Bömum hennar,
tengdabörnum og öðru vensla-
fólki flytjum við innilegar
samúðarkveðjur, um leið og viö
þökkum þessu fólki, allt það er
það var vinkonu okkar, þegar hún
þurfti mest á að halda.
Blessuð sé minning Kristlnar
GuðrUnar Bjömsdóttur.
Guðmundur Bjarnason.
Kveðja
Far þú I friði,
friöur Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guöi,
Guöþér núfylgi,
hans dýröar-hnoss þú
hljóta skalt.
HUn er að kveöja hún Stlna
frænka, þetta er hinzta kveðja.
Við söknum hennar sárt, ættingj-
ar og vinir, en þó getum við unnt
henni þess, eftir þá höröu lffs-
baráttu og veikindi sem hún er
búin að eiga I. Það hlýtur aö hafa
verið oröin langþráö stund eftir
þriggja ára sjúkdómslegu, að
ganga til fagnaðarfunda viö herra
sinn og meistara handan
landamæra llfs og dauöa.
Mln fyrstu kynni af Stlnu eru
orðin nokkuð gömul, en ég man
eftir henni frá þeim árum er ég
varlltil telpa og pabbi og mamma
voru að koma I heimsókn til Isa
fjaröar. Þar sem amma og Stfna
bjuggu. En faðir minn átti móöur
á tsafirði, sem einnig var móðir
hennar, þau voru nefnilega
alsystkin. Stlna frænka á einnig
tvær systur eftirlifandi sem voru
dætur afa mlns frá slöara hjóna-
bandi og.veit ég að þar er söknuö
lfka aö.finna.
A heimili frænku minnar fannst
manni vera öryggi aö finna, og
hljóp þar út og inn fullur gleði og
llfsfjörs. Þá skildi maður ekki
hvað áhyggjur og erfiðleikar llfs-
ins voru, hjá fólki sem stóð eitt
uppi I llfinu með fjögur börn sem
þurftu mat og fatnað.
Stlna frænka fékk snemma aö
reyna hvað var alvara lifsins og
harða baráttu þess. Hún missti
manninn frá öllum börnunum
ungum. Atta börn átti hún alls,
fimm börn missti hún, þar af
fjögur á unga aldri. Kjarkurinn
og þrekiðvoru óbifanleg , svo hún
stóð alltaf upprétt. Stlna var glað-
lynd, kát kona og hefur það
áreiðanlega hjálpað henni mikið I
erfiðleikunum. Þrátt fyrir það að
hún berðist áfram ein slns
liös, til að sjá börnum sfnum
farboröa, átti hún samt þrek og
vilja til aö hjálpa öðrum og var
oftast manna fyrst til að bjóða
aöstoð slna ef hún vissi að einhver
þurfti einhvers með. Hún flutti
hingað til Reykjavikur áriö 1947,
þá fyrst til að hjálpa bróður sln-
um á heimili hans, en Ilengdist
hér fyrir sunnan. Hún var góöur
heimilisvinur móður minnar og
ævinlega boðin og búin til að
greiöa fyrir henni og hjálpa ef á
þurfti að halda. Það var svo fyrir
þremur árum sem sjúkdómurinn
fór að gera vart við sig á ósköp
sakleysislegan hátt I byrjun, sem
smá jókst og lagði hana alveg I
rúmið. Þannig aö hún fór að þurfa
mikillar hjúkrunar og umönn
unar viö. Þaö er erfitt fyrir konu
sem hefur barist sjálfstæð gegn
um llfiö með miklum dugnaði að
þurfa svo allt I einu að vera háð
hjálp annarra að öllu leyti, þó
kærleiksrlkar hendur séu að
verki. Held ég þvl að frænka mln
hafi verið farin að þrá það að
ganga inn til fagnaðar við herra
sinn.
Viö kveðjum þið kært,
Vigdis, Björn, Hanna Kolbrún og
fjölskylda.
HUmiö þótt hylji sitt,
heiörað er nafnið þitt,
hjá þeim, sem manngildiö meta.
Raunir þú stóðst með snild,
sterk, en þó gæf og mild.
Fari þeir framar, sem geta.
(Þyrnar — Þ.Erl.)
Þessi orð uppáhaldsljóöskálds
tengdamóður minnar, Kristínar
G. Björnsdóttur, vildi ég gjarnan
gera að mlnum. Okkar samleiö
hefur varaö nær þrjátlu ár.
Fyrstu árin má segja, að ég og
min fjölskylda höfum átt hana
ein, þvi báöar dæturnar, Ellsa og
Jenslna, giftust og settust að I
Englandi. Lisa er alkomin heim,
en Jensina er enn búsett ytra.
Hlotnaðist mér þvl öll sú ást og
umhyggja, sem fjarlægöin mein-
aði Ommu Stinu að gefa dætrum
slnum. Tón tók mig, kornunga,
undir sinn verndarvæng og hlúði
að mér og mlnum öll sln bestu
æviár.
Amma Stlna var mér mikið
meira en tengdamóðir. Hún var
trúnaðarvinur minn og félagi i
gleöi og sorg og hjálparhellan
mln, ef eitthvaö bjátaði á, sem
var ekki ósjaldan á þeim árum.
Til að lýsa Ommu Stínu, vil ég
láta skáldið hennar hafa orðið:
Og þó það sé best hann sé
þrekinn og stór,
sem þjóöleiöum urðir vill brjóta,
þá hræðstu þaö ei, að þinn
armur er mjór,
þvi oft verður lltiö til bóta.
Við þjóðbrautir alda um
aljarðar skeið
að iðju þótt margir sé knáir,
þá velta þó fleiri þar völum
Urleiö,
sem veikburða eru og smáir
(Þyrnar — Þ.Erl.)
Amma Stína hræddis ei, aö
armurinn var mjór, sem urðir
þurfti aö brjóta, og hún velti
mörgum völum úr leið, þó
veikburða væri og smá.
Aö ytra atgervi var hún mjög
smávaxin og fíngerð, en hiö innra
var hún „þrekin og stór”. Það
sýndi sig best I þvl nöturlega
veikindastrlöi, sem hún háði s.l.
þrjú ár. En hún háði þaö ekki ein
og yfirgefin. Vinir og vandamenn
reyndu að létta henni byrðina og
ber þar hæst fórnarlund LIsu.
HUn umvafði móður slna ást og
umhyggju allan þennan tlma og
heimsótti hana daglega, þó llfs-
barátta hennar sjálfrar krefðist
slns tima. En hún átti ekki langt
að sækja ræktarsemina og þessa
sönnu góðvild, þvl þær voru eins
og steyptar I sama mót,
mæögumar.
Amma Stlna var mjög trúuð og
kom það best fram I æöruleysi
hennar gegn ósköpunum, sem
yfir dundu. Hún trúði þvl, að ekki
væri meira á hana lagt en hún
gæti boriö; þó haföi hún einu sinni
á orði, þá sárþjáö : „Lengi skal
manninn reyna.”. Stundum
efaðist maður um góðvild Guðs,
þegar hún lá svona kvalin og eng-
inn mannlegur máttur gat hjálp-
að. En skammaðist sín fyrir að
efast, þegar maður leit I augu
hennar og sá ekkert nema bliðu
og umhyggju speglast þar. Þvl
þar gekk kona á Guös vegum.
Og börn þln og frændur, sem
fjær eru og nær,
við fögnum þvl öll, aö þln
hvlldernú vær
frá kvöldrökkri komandi nætur.
Og hvíldu nú blessuö
Ibólinu þvl,
sem blóm koma að prýða
hvert sumar á ný
og segja, að þinn blundur
sé sætur.
(Þyrnar — Þ.Erl.)
Að leiðarlokum þakka ég elsku
ömmu Stlnu minni allt, sem hún
var okkur hér I Silfurtúninu.
Tengdadóttir.
Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468
Símmn er 81333
þJÚÐVIUINN Síðumúla 6 S. 81333. ,
Minning
Þórgunnar Lárusdóttar
F. 31. 7. 1947 - D. 19. 6.1980
Það er oft erfitt llf hjá lltilli
þjóð. Þaö tekur djúpt I þegar
ungt fólk fellúr frá I blóma
lifsins og harmur eftirlifandi
ættingja og vina er sár.
Djúp sár gróa seint og skilja
ör eftir, en engu aö slður má
ekki leggja árar I bát. Fráfall
ungrar konu leggur öllum
nánum auknar skyldur á herð-
ar.
Viö varðveitum minninguna
og skilum mynd hennar til
komandi kynslóðar, og þau
okkar sem það geta, ljúka
starfi þvl sem hún var byrjuð
á.
Þórgunnur Lárusdóttir var
verðugur fulltrúi sinnar
kynslóðar, hvar sem hún kom
og hvar sem hún dvaldi. Vonir
voru bundnar viö lff hennar og
störf, en nú er skarö fyrir
skildi.
Llfið heldur áfram. Kröfur
tilverunnar þrengja sér að
okkur og krefjast þess að
áfram sé haldiö.
A stundum sorgar og gleði
styrkjast þau bönd sem binda
okkur saman langt út fyrir
lifandi llf.
Ahyggjulausir æskudagar
rifjast upp. Atburðir, orð og
tilfinningar lita skýra og hlýja
mynd sem geymist.
Af kjarki hins þroskaöa
manns tók Þórgunnur þvl sem
að höndum bar, og okkur tek-
ur sárt aö lúta þeirri stað-
reynd sem oröin er.
Grát þú ei barn mitt!
Þú átt þessa framtlð
sem þeyrinn boðar hér.
Hin mykla bylting vorsins
vofir yfir
— hún bæntir liðs af mér,
og kannski verö ég fallinn,
þegar fólkifl
sitt fresli dáir hát.
En ég er sæll, ef sumargiaðar
óskir.
mlns sonar geta rætzt.
Jóhannes úr Kötlum.
Með einlægri kveðju til
móður, eiginmanns og barna.
Skólasystur á Laugalandi I
Eyjafirði veturinn 1964-1965.