Þjóðviljinn - 18.07.1980, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. júll 1980
Svart á hvítu komið út
Nýlega kom út sjötta tölu-
blaö tímaritsins SVART A
HVITU, sem Gallerl Suöur-
gata 7 gefur út. Meöal efnis er
grein eftir austurriska fræöi-
manninn André Gorz, sem
hann kallar Gullöld atvinnu-
leysisins. Þar fjallar hann um
þær miklu breytingar sem ör-
tölvubyltingin hefur óneitan-
lega I för meö sér. Þá er grein
eftir Völund óskarsson um
Rokk I andstööu, sem er
hreyfing rokk*hljómsveita
sem blómstrar nú I Evrópu.
Hljómsveitir þessar byggja
m.a. á þjóölegum tónlistar-
heföum landa sinna, llkt og
Þursaflokkurinn hér á landi.
Þá er viötal viö páfa ny-
listarinnar, Dick Higgins, en
hann syndi 1 Suöurgötunni I
fyrra. Higgins er hress aö
vanda og segir skemmtilega
frá, auk þess aö vera fróö-
leiksbrunnur um sögu ný-
listarinnar. Annaö viötal er i
blaöinu viö Peter Brötzmann,
en hann hélt tvenna tónleika
hér í fyrrasumar. Brötzmann
er einn virtasti spunamaöur
sem nú er uppi og hefur frá
mörgu aö segja.
Glima Lofts viö Gússa nefn-
ist grein eftir Halldór Guö-
mundsson, en þar er fjallaö
um nútímann i tveimur sögum
Ólafs Jóhanns Sigurössonar.
Höfundur beitir þar nýjum aö-
feröum viö úttekt á Hreiörinu
og Bréfi séra Böövars.
Einnig er aö finna ljóö eftir
björtustu vonir yngstu ljóö■-
skáldakynslóöarinnar. Má
þar nefna Einar Má Guö-
mundsson, Anton Helga
Jónsson, Einar Kárason, ólaf
Ormsson og Sigfús
Bjartmarsson.
Timaritiö fæst i öllum helstu
bókabúöum borgarinnar og i
Gallerl Suöurgötu 7 á meöan á
sýningum stendur.
Heima er best
JUnl-hefti tlmaritsins
Heima er bezt er komiö út og
flytur þaö fjölbreytt efni aö
venju.
Forslöuviötaliö er viö Jón
Nikódemusson þúsundþjala-
smiö á Sauöárkróki, en þaö er
almannarómur aö Jón sé fjöl-
hæfasti iönaöarmaöur sem
starfaö hefur á Sauöárkróki.
Þá er birtur kafli úr bókinni
Darwin og Beagle, sem byggö
er á dagbókum Darwins,
náttúrufræöingsins heims-
kunna, þegar hann var viö
rannsóknir á seglskútunni
Beagle, en fyrir skömmu var
sýndur sjónvarpsmyndaflokk-
ur um sama efni I sjónvarp-
inu.
Úrslit I ritgeröasamkeppni
Heima er bezt um dulræn fyr-
irbæri eru kunngjörö i heftinu
og varö Petra Rögnvaldsdóttir
hlutskörpust meö frásögn sina
Reimleikar á Kviabekk. 1
heftinu er ný smásaga eftir
Pétur Steingrimsson, járn-
smiö I Laxárnesi I Aöaldal og
er hér á feröinni frumleg og
klmin saga. Margt fleira efni
mætti nefna, en allir ættu aö
geta fundiö eitthvaö viö sitt
hæfi i ritinu.
Útgefandi Heima er bezt er
Bókaforlag Odds Björnssonar,
ritstjóri Steindór Steindórsson
frá Hlööum og blaöamaöur
Guöbrandur Magnússon.
Ný hársnyrtistofa í
Hafnarfirði
Ný hársnyrtistofa hefur störfum eftir áratuga þjónustu
opnaö aö Strandgötu 37 i viö bæjarbúa.
Hafnarfiröi þar sem Guö- N^a stofaa heitir „Hár og
mundur Guögeirsson snyrti er ei8anöi hennar Hallberg
hár Hafnfiröinga áöur, en Guömundsson, hárskera-
Guömundur er nú hættur meistari, annar eiganda Bart-
skerans I Reykjavik, en þar
starfaöi Hallberg frá árinu
1968 aö undanskildu hálfu ööru
ári, en þá starfaöi hann viö
hársnyrtingu á Hotel Contin-
ental I Osló.
Meö Hallberg á „Hár”
starfar Jónlna Jónsdóttir hár-
greiöslumeistari, en hún hefur
m.a. rekiö sína eigin hár-
greiöslustofu aö Suöurgötu i
Hafnarfiröi.
„Hár” I Hafnarfiröi veitir
alla almenna hársnyrtiþjón-
ustu fyrir karla og konur. Simi
stofunnar er 53955.
Myndin sýnir þau Hallberg
og Jóninu viö stólana i nýju
stofunni. (Fréttatilkynning).
Frá Norræna félaginu
Fjórir tslendingar sátu árs-
fund Sambands norrænu
félaganna, sem haldinn var I
Vadstena i Sviþjóö dagana 24.
og 25. júnl. Næsti ársfundur
veröur haldinn I Færeyjum.
í frétt frá Norræna félaginu
kemur fram aö helstu mál
fundarins voru málaáriö
1980—81 og kom I ljós aö öll
félögun leggja sig fram viö aö
efla skilning fólks á grann-
tungunum. Félögin höföu alls
staöar fengiö góöar undirtekt-
ir hjá skólayfirvöldum, fjöl-
miölum, félagasamtökum og
einstaklingum viö aö vinna aö
þessu málefni.
Meöal annarra mála sem
ræddvoru má nefna æskulýös-
mál, Utgáfustarfsemi, árs-
skýrslur félaganna I hverju
landi og framtlöarstarfsemi
sambandsins. Nefnd sem
starfaö hefur aö endurskoöun
á starfsemi sambandsins lagöi
álit sitt fyrir fundinn.
Sambandiö hefur rekiö
skrifstofu i tilraunaskyni I
f jögur ár og var nú ákveöiö aö
skrifstofan skyldi starfa
áfram sem fastur þáttur I
starfi sambandsins. Hún hefur
veriö I Stokkhólmi en flyst til
Helsingfors. Nýr
fra mkvæmdastjóri var ráöinn
til sambandsins s.l. haust,
Gustaf af Hflllström, frá
Finnlandi. Formaöur
sambandsins var kjörinn
Tuure Salo, borgarstjóri I
Rovaniemi i Finnlandi.
Af hálfu Norræna félagsins
á Islandi sátu fundinn:
Hjálmar ólafsson, formaöur
og Grétar Unnsteinsson,
formaöur deildarinnar i
Hverageröi, sem atkvæöis-
bærir fulltrúar, en auk þeirra
sátu fundinn Karl Jeppesen
fulltrúi æskulýössamtaka
félagsins og Jónas Eysteins-
son, framkvæmdastjóri þess.
(Fréttatilkynning).
Juno Borensjö sænski matreiöslumaöurinn sem kennir á matreiöslunámskeiöi Náttútulækningafélags
tslands Inæstu viku er tii vinstri á myndinni,en Jóhannes Glslason forseti Náttúrulækningafél. til hægri.
Mynd — gel.
Heilsuhælid í Hveragerdi 25 ára
Matreiðslunámskeið
Er jurtafœða allra meina bót?
Viltu komast aö þvi hvernig þú
getur haldið þér ungri/ungum og
hressum alla ævi og sagt á stund-
inni skiliö bæöi viö lækna og lyf?
Og viltu kannski lika fá aö vita
hvernig þú getur lækkaö matar-
reikninginn um helming?
Ef svo er skaltu kynna þér
starfsemi Náttúrulækningafélags
tslands næstu þrjár vikur en þá
kynnir félagiö almenningi starf-
semisina. Þessi kynnig er hald-
in i tilefni þess aö 24. júli á
Heilsuhæliö I Hverageröi 25 ára
afmæli. Einnig er félagiö aö
yngja upp timarit sitt Heilsu-
vernd en 1,—2. hefti 35. árgangs
er nýkomiö út. Er þaö vandaö og
fallegt rit.
Kynning félagsins er fjölbreytt
en hún hófst I gær 17. júli meö
erindi sem flutt var á Heilsuhæl-
inu I Hveragerbi kl.20.45. 18. júli
verbur svo vörukynning I mat-
vörubúö SS Austurveri og m.a.
kynntir réttir úr islensku græn-
meti. Sunnudaginn 20. júli kl.
16—18 veröur hlaöborö og erindi
um heilsu og mataræöi á mat-
stofu NLFl Laugavegi 20B. Dag-
ana 21. júll.—24. júll og 29,—30.
júli veröur matreiöslunámskeiö
fyrir almenning á sama staö og
veröur kennari þar Juno
Borensjö, sænskur matreiöslu-
maöur og mataræöissérfræöing-
ur. Hann er lýsandi sönnun fyrir
ágæti jurtafæöis. Hann er 67 ára
og litur út eins og fimmtugur og
hefur ekki oröiö misdægurt i 45 ár
eöa eins og hann oröaöi þab sjálf-
ur á blaöamannafundi I gær: „Ég
hef ekki veikst eöa notaö lyf siðan
ég breytti um lifsstll.”
Juno sagöi ennfremur aö vis-
indamenn bæöi I Ameriku og á
Noröurlöndum væru nú farnir aö
ræöa alvarlega svipaöar kenning-
ar og náttúrlækningamenn hafa
haldiö fram um árabil. Þrátt fyrir
bættan hag I rikjum þessum fær-
ast sjúkdómar og vanlíöan I auk-
ana og þvi sé eölilegt aö leita aö
orsökinni I lifnaöarháttum
manna. Nefndi Juno dæmi þess
aö heilsufar manna hafi gjör-
breyst til hins betra meö breyttu
mataræöi.
Þá gat hann þess einnig aö
jurtafæöi væri miklu ódýrara en
„venjulegt” fæöi, t.d. kosta soja-
baunir, sem koma I staö kjöts,
ekki nema brotabrot af því sem
kjöt kostar.
Fyrsti læknir hælisins I Hvera-
geröi og aöalhvatamaöur aö
byggingu þess var Jónas
Kristjánsson.
Hæliö tekur nú um 150 gesti og
eru þaö aöallega gigtarsjúkling-
ar. I tengslum viö stofnunina er
rekin garðyrkjustöð sem sér hæl-
inu aö mestu leyti fyrir lifrænt
ræktuöu grænmeti. Fram-
kvæmdastjóri hælisins er Friö-
geir Ingimundarson og yfirlæknir
er Isak Hallgrimsson. Forseti
Náttúrulækningafélags íslands er
Jóhannes Gislason og hefur hann
jafnframt annast allt efni I tima-
ritinu Heilsuvernd og áöur var
getiö. — hs
Rauði kross íslands
Mannaskipti í Thailandi
Einn islenskur
hjúkrunarfræðingur,
Sigriður Guðmundsdótt-
Matthea ólafsdóttir, hjúkrunar-
fræöingurog ljósmóöir, sem held-
ur til Thailands 9. ágiist n.k.
ir, starfar nú á vegum
Alþjóða rauða krossins i
Thailandi og hefur Sig-
ríður dvalist þar siðan i
maí. í næsta mánuði
mun Matthea ólafsdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur
og ljósmóðir, leysa hana
af um þriggja mánaða
skeið fram i nóvember.
1 frétt frá Rauöa krossi Islands
kemur fram aö ástand á
landamærum Thailands og
Kampútseu er mjög óöruggt og
vinnuálag svo mikiö aö nauösyn-
legt er taliö að skipta um fólk á
þriggja mánaöa fresti. Frá þvi I
malmánuöi hafa 13 manns frá
Norðurlöndunum unnið aö
hjálparstarfi I Khao-i-dang i
Thailandi á vegum Alþjóöaráðs
Rauöa krossins.
Þá vinnur Magnús
Hallgrimsson verkfræöingur fyr-
ir Rauða kross lslands viö
hjálparstörf I Indónesiu. Hefur
Magnús yfirumsjón meö starf-
semi Alþjóöa rauða krossins á
Riau-eyjum og tveimur miklum
eyjaklösum noröur af þeim.
Flóttamannabúöir eru á eyjunni
Galang og eru þar nú um 10.000
flóttamenn og veriö er aö byggja
búöir fyrir aöra 10.000. Magnús
veröur viö þessi störf I þrjá mán-
uöi eöa til 25. september.
— AI.
„Hamar
og
sigd”
rís úr vetrardvala
Nú llöur aö þeim árlega
viöburöi aö knattspyrnu-
félagiö Hamar og sigö taki til
starfa. Þaö ágæta félag
skrlöur jafnan úr vetrarhlöi
þegar námsmenn taka aö
streyma heim eftir vetrar-
dvöl á fjarlægum slóðum. A
knattspyrnuvellinum hittast
gamlir vinir og kunningjar
sem löngum böröust saman
á vinstri vængnum, en nú er
þaö baráttan viö sleniö og
likamsletina sem hefst meö
endurnýjuðum krafti.
Æfingar veröa á laugardög-
um kl. 2 og þriðjudagskvöld-
um kl. 8 og þaö þarf auövitaö
ekki aö taka fram aö bæöi
kynin eiga aö mæta til leiks á
Háskólavellinum.
— ká.
Landnemamót í Viðey
Um næstu helgi, 18.—20. júll,
veröur haldiö hiö árlega skáta-
mót Skátafélagsins Landnema I
Viöey. Fariö veröur frá Sunda-
höfn á föstudagskvöid og komiö
heim á sama staö siödegis á
sunnudag. Hafsteinn Sveinsson
sér um bátsferöir á Skúlaskeiöi
aö venju.
Sérstaklega hefur veriö vandaö
til dagskrár þessa móts, og hafa
Landnemar fengiö til liös viö sig
úrval skáta sem sérhæft hafá sig I
hinum einstöku skátagreinum.
Rammi mótsins er „Eldurinn” og
miöast uppbygging dagskrár viö
þá staöreynd.
AöaDdagskrárliöur mótsins,
sem standa mun allan laugardag-
inn,heitir „Eldmóöur”. A laugar-
dagskvöld veröur næturleikur
þar sem „brennuvargar” og
„babú-liöiö” kljást um þaö hvor
ræöur upptökum eöa niöurlögum
varöeldsins, sem hefst strax og
þessum dagskrárliö er lokiö. A
sunnudagsmorgun veröur Viö-
eyjar-rallý.
Allir skátar, hvaöanæva af
landinu, eru velkomnir. Sérstak-
ar búöir veröa fyrir dróttskáta,
svo og eldri skáta og fjölskyldur
þeirra. Gamlir Landnemar. fjöl-
menniö. (Fréttatilkynning).