Þjóðviljinn - 18.07.1980, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. júll 1980
Sumarferdin í Þjórsárdal:
Látið skrá ykkur strax!
Sérferðir úr Keflavík og Kópavogi
Allt útlit er nú fyrir aö veöriö
veröi a.m.k. þokkalegt á sunnu-
daginn, samkvæmt upplýsingum
frá Veöurstofunni, og því ekki
eftir neinu aö biöa meö aö skrá
sig I sumarferö Alþýöubanda-
lagsins. Margir hafa þegar látiö
skrá sig i Þjórsárdalsferöina.
Skrifstofan aö Grettisgötu 3
veröur opin til kl. 19 i kvöld og kl.
10—12 og 1—5 á morgun laugar-
dag.
Suöumesjafólki er bent á að hafa
samband viö Einar Ingimundar-
son i Keflavik (s. 1407) og panta
far meö rútunni sem fer frá Aöal-
stööinni i Keflavik kl. 7 á sunnu-
dagsmorguninn. Hafnfiröingar og
Garöbæingar njóta lika góös af
þeirri rútu, þvi hún stoppar viö
Bolluna I Hafnarfiröi kl. 7.30 og
viö sjoppuna I Garðabæ kl. 7.40,
og ekur siöan sem leiö liggur
niöur á Umferöarmiöstöö, þar
sem safnast veröur saman.
Þaöan veröur svo lagt af staö
austur kl. 8.
Kópavogsbúar fá sérrútu, sem
leggur af staö frá Hamraborg 1
kl. 7.30. Hafnfiröingum, Garöbæ-
ingum og Kópavogsbúum er bent
á aö láta skrá sig á skrifstofunni
aö Grettisgötu 3, og sama gegnir
um Seltirninga.
Væntanlegum feröalöngum er
bent á aö búa sig vel I feröina og
hafa meö sér nesti, og athuga aö
engin gosdrykkjasala veröur I
feröinni aö þessu sinni. Þeir sem
ætla i gönguferöina upp aö Háa
fossi eru sérstaklega hvattir til aö
vera f vaöstigvélum eöa háum
leöurskóm.
Á aöalstöövum feröarinnar i
kvos undir Stangarfjalli verður
aöstaöa til aö grilla pylsur, kóti-
lettur eöa annan slikan mat. Þar
veröur boröaö áöur en lagt er af
staö I feröirnar, sem skipulagöar
eru og sagt var frá hér I blaöinu I
gær, og þar veröur siöan safnast
saman og slegiö á létta strengi
þegar mannskapurinn kemur
aftur úr feröunum. Baldur
óskarsson veröur einn af
leiösögumönnum feröarinnar, og
hann hefur lofaö aö taka
harmonikkuna meö.
Listinn yfir leiösögumenn
lengist stööugt, og þegar siöast
fréttist leit listinn þannig út:
Tryggvi Sigurbjamarson (aöal-
fararstjóri), Hjalti Kristgeirsson,
Þorleifur Einarsson, Björn
Þorsteinsson, Gunnlaugur
Astgeirsson, Baldur Óskarsson,
Þorbjörn Broddason, Jón
Hannesson, Haukur Hafstaö,
Pétur Sumarliöason, Ragna
Freyja Karlsdóttir, Gisli Péturs-
son, Sverrir Hólmarsson og
Stefán Bergmann. Ræöumaöur
feröarinnar veröur Siguröur
Blöndal.
Yfir 80 vinningar veröa i
happdrætti feröarinnar. Þar ber
hæst ferðavinning frá Samvinnu-
feröum-Landsýn, en auk þess eru
margir eigulegir munir i boði:
bækur, hljómplötur, leikföng ofl.
Happdrættismiðinn kostar 750
krónur.
Og þá er ekki annaö eftir en aö
hvetja Alþýöubandalagsfólk og
annaö gott fólk til aö koma sér
upp flnu feröaskapi, kaupa sér
nesti i dag (flestar verslanir
veröa lokaöar á morgun) og láta
skrá sig i hvelli.
— ih
Þeir verða leiðsögumenn
Gunnlaugur Ástgeirsson
Haukur Hafstaö
Pétur Sumarliðason
Jón Hannesson.
1 Sadornum erum viö ekki kyntákn...
LEIÐRETTING
Missagt var I forystugrein Þjóöviljans i gær aö i skoö-
anakönnun Visis I siöasta mánuöi hafi 3,21% aöspuröra
taliö Geir Hallgrlmsson mestan leiötoga i hópi Islenskra
stjórnmálamanna. Hiö rétta er aö 2,71% skipuöu Geir
Hallgrimssyni formanni Sjálfstæöisflokksins I þetta sæti I
skoöanakönnun Visis.
Þjóöviljinn biöur hlutaöeigandi afsökunar á þessari
missögn.
Blæjan er tákn
Bylnngarinnar
sögðu írönsku konurnar á kvennaþingi S.Þ.
Frá Sólrúnu Glstadóttur
i Kaupmannahöfn: 17.7.
Sendinefnd Irans á kvennaþingi
Sameinuöu Þjóöanna hefur vakiö
mikla athygli og þvl var þröng á
þingi þegar þær héidu blaða-
mannafund sl. þriöjudag. Þaö
höföu margir beöiö eftir lang-
þráöu tækifæri til aö rekja úr
þeim garnirnar um stööu kvenna
I íran eftir byltinguna. Fyrir
þingiö höföu margir búist viö þvi
aö irönsku konurnar myndu mæta
til þingsins klæddar
shador — blæjunum — sem er
lögskipaöur klæönaöur kvenna i
Iran. Uröu þaö þvl mörgum von-
brigöi þegar þær mættu klæddar
aö vestrænum hætti aö ööru leyti
en þvl aö þær höföu slæöur bundn-
ar um höfuöiö svo ekki sást I hár-
iö.
Á blaðamannafundinum kom
fram mikil „vestræn gagnrýni” á
blæjurnar en irönsku konurnar
höföu svör á reiöum höndum:
„Shadorinn er hluti af byltingunni
hann er tákn hennar og þú kastar
ekki sliku tákni frá þér svo auð-
veldlega.
Hann er til þess aö vernda kon-
ur frá þvi aö litiö sé á þær sem
kyntákn og viö viljum bera hann”
sagöi sú sem var i fyrirsvari fyrir
irönsku sendinefndina.
Þegar þær voru aö þvi spuröar
hvort allar konur i lran bæru bún-
inginn af fúsum og frálsum vilja
eöa hvort þaö væri skipun frá
Ajatolla Komeini báru þær lengi
saman bækur slnar, en sögöu aö
lokum: „Þaö eina sem Komeini
hefur skipaö okkur er aö standa
saman. Hann heföi aldrei skipaö
okkur aö vera I shadornum nema
af þvi aö fólkiö vill aö viö klæö-
umst honum. Hann vill sjá áhang-
endur byltingarinnar. Þetta er
okkar menning. Meiri hluti
kvenna vill klæðast þessum bún-
ing og viö skiljum ekki af hverju
þiö eruö svona mikiö á móti hon-
um. Þetta er okkar mál, látiö
okkur um aö klæöast honum.”
Þegar taliö barst aö þeim á-
vinningum sem byltingin hefur
fært konum, sögöu þær m.a. aö
stofnaöir heföu veriö sjálfboöa-
liöahópar til að útrýma ólæsi, en
þaö kemur haröast niöur á konum
I íran, eins og annars staöar.
Vændishúsum heföi svo gott sem
veriö útrýmt en þau heföu veriö
mörg fyrir byltingu og síöast en
ekki sist væru konur farnar aö
draga orö og athafnir karlmanna
I efa, sem ekki væri körlunum
beint aö skapi. Þær bentu á aö i
hinni nýju stjórnarskrá Irans
væru einmitt sérstök ákvæöi til aö
vernda og tryggja hagsmuni
kvenna. Irönsku konurnar sögöu
aö i Islam væri enginn greinar-
munur geröur á körlum og kon-
um, konur heföu sama rétt til
menntunar, starfa og ákvaröana-
töku og karlmenn.
Þrátt fyrir þaö fór ekki hjá þvi
aö ýmsar efasemdir vöknuöu
meöal vestrænna kvenna þegar i
ljós kom aö samkvæmt hinum
nýja erföalögum i íran hafa kon-
ur ekki jafnan erföarétt á viö
karlmenn. Rökstuddu Irönsku
konurnar réttmæti þessa meö þvi
aö þaö væri dýrara fyrir eigin-
konum og kvenkynsættingjum aö
sjá. Sögöu þær aö konum I Iran
væri haldiö uppi af fööur, bróöur
eöa eiginmanni og þessum karl-
mönnum væri skylt aö greiöa
þeim lifeyri. Karlmaöurinn verö-
ur aö greiöa þeim fæöi og klæöi
sem greiöslu fyrir heimilisstörf,
en þær halda sinum tekjum
óskertum ef þær vinna utan heim-
ilis.
Bandariskar konur höföu sig
mikiö I frammi á blaöamanna-
fundinum og vöktu athygli á mál-
efnum bandarisku glslanna i
Teheran. Ein þeirra var Bella
Abzug en hún vann sér þaö til
frægöar aö vera I framboöi til
borgarstjórnarkosninga I New
York 1977. Var hún þá m.a. ásök-
uö um aö eiga hlutabréf i verk-
smiöju sem framleiddi eiturefni
sem notuð voru I Viet Nam-strfö-
inu. Spuröi hún Irönsku konurnar
hvort bandariskar og Iranskar
konur gætu ekki sameinast sem
mæöur og reynt aö leysa vanda-
mál Irans og Bandarikjanna.
Irönsku konurnar svöruöu:
„Þaö þýöir ekkertaö tala viö okk-
ur. Þú veröur aö tala viö Carter.
Carter hefur ekkert leyfi til aö
halda verndarhendi yfir keisar-
anum, sem er glæpamaöur gegn
irönsku þjóöinni. Fariö út á göt-
urnar og mótmæliö þvi, mótmæl-
iö keisaranum og krefjist þess aö
glslarnir veröi látnir lausir og þá
skulum viö fara út á göturnar I
Teheran og styöja ykkur.” Bella
varö aö lofa mótmælum I Banda-
rikjunum og þá er eftir aö sjá
hverjar efndirnar veröa.