Þjóðviljinn - 31.07.1980, Page 1
MOWIUINN
Fimmtudagur 31. júli 1980, 172. tbl. 45. árg.
Urslitatilraun nú gerð í Luxembourg
Afdrif Ameríku-
flugs rádast þar
„Toppa”’Uppsagnirnar vekja mikið umtal
Jón Júliusson fékk viku til þess að
rýma skrifstofu sina.
í fyrradag héldu
Sigurður Helgason for-
stjóri og örn Ó. Johnson
stjórnarformaður Flug-
leiða til Luxemborgar
þar sem framtið
Atlantshafsflugs félags-
ins verður væntanlega
ráðin. Að þvi er blaðið
hefur fregnað er erindi
þeirra að gera úrslitatil-
raun til þess að fá
Luxemborgarmenn i
samstarf um nýja
félagsstofnun er hefði
það að markmiði að
taka við Atlantshafs-
fiugi Flugleiða að mestu
eða öllu leyti.
Luxemborgarmenn munu vera
tregir til sliks samstarfs, sérstak-
lega I ljósi frétta um að verð-
striðið á flugleiðinni yfir Atlants-
hafið fari nú enn harðnandi. Flest
félög á flugleiðinni fljúga hana
með bullandi tapi, en þrátt fyrir
það hafa félög eins og British Air-
ways enn á ný tilkynnt stór-
lækkun. SAS tapaði 100 milljónum
sænskra á flugleiðinni sl. ár og
telur sig þurfa 25% hækkun til
þess aö sá leggur standi undir sér.
Ýmsir samkeppnisaðilar stand-
ast samkeppnina um minnkandi
ferðamannastraum við skip og
leiguflugfélög, og sé nauðugur
einn kostur að lækka til þess að
fjölga farþegum og auka þannig
hagkvæmni.
Hætt 1. október
Af þessum ástæðum munu
Luxemborgarmenn tregir til þes
að koma inn i rekstur Flugleiða
meö nýtt fjármagn. Verði ekkert
af samningum i Luxemborg er
taliö liklegt að tilkynnt veröi ein-
hvern næstu daga að Atlantshafs-
flug Flugleiða muni lagt niður frá
og með 1. október.
Frétt Þjóðviljans i gær um upp-
sagnir Martin Pedersen og Jóns
Júliussonar hefur vakiö mikla at-
hygli. Hjá starfsmönnum fyrir-
tækisins er engar upplýsingar að
hafa og ekki einu sinni stjórn þess
virðist vera kunnugt um þessar
uppsagnir né heldur um ákvarð-
anir varöandi umfangsmiklar
breytingar á stjórnun félagsins.
Toppunum tveim sem nú hafa
fengið pokann sinn hjá Siguröi
Helgasyni mun hafa verið gert að
vera á brott úr skrifstofum sinum
innan viku frá dagsetningu upp-
sagnarbréfs.
Ekki tókst að hafa samband við
þá i gær, en þeir eiga báðir langan
starfsdag að baki.
Engir smákallar
Martin Pedersen hóf störf hjá
Loftleiðum 1. september 1947. Við
sameiningu félaganna var hann
gerður að framkvæmdastjóra
markaðssviðs, sem tekur m.a. til
viðskiptaþjónustu, söluskrifstofa
i Reykjavik, fragtþjónustu, far-
gjalda- og áætlanadeildar og
þjónustu á Keflavikurflugvelli.
Jón Júliussonhóf störf hjá Loft-
leiðum 15. október 1955, en hann
kenndi þá einnig við Menntaskól-
ann i Reykjavik. Hann var starfs-
mannastjóri Loftleiða i mörg ár
og við sameininguna var hann
gerður að framkvæmdastjóra
stjórnunarsviðs, en það tekur til
ráðninga starfsfólks, kynningar-
mála, kjaramála, skrifstofu-
stjórnar og lögfræðilegra mál-
efna félagsins.
Flugleiðum er nú skipulagslega
Framhald á bls. 13
24 stiga hiti í Reykjavík i gær
Olympiuhiti frá Sovét.
„Það sem veldur þessum mikla
hitaeróvenjulega vel staðsett hlý
hæð yfir suðvesturströnd Noregs,
sem beinir hlýju lofti frá Evrópu
eða öllu heldur frá RUsslandi
hingaö norðureftir til Islands.
Eiginlega má segja að þetta sé
olympiuhiti,” sagöi Trausti
Eiriksson veðurfræðingur i sam-
tali við Þjóðviljann i gær.
Trausti sagði að veöurhorfur
væru svipaðar fyrir daginn i dag,
en þó mætti búast við að eitthvað
drægi úr hitanum.
1 gær mældist allt að 24 stiga
hita i Reykjavik og á Hveravöll-
um og austur i sveitum mældist
meiri hiti þegar hlýjast var.
A Austurlandi var aðeins um 10
stiga hiti og þoka og eins var svalt
vestantil við Húnaflóa.
Trausti sagði að enn væri óvist
með veðriö um verslunarmanna-
helgina. „Það eru ýmsar blikur á
lofti, og ljóst að ekki veröur jafn-
hlýtt og var i dag, en gott veður
samt þótt viða verði ótryggur
þurrkur.” ig.
Verulegur gjaldeyrir fer í bifreiðakaup:
Flutt inn fyrir 12 miljarða
fyrstu 6 mánuði þessa árs
Fyrstu 6 mánuði þessa
árs voru fluttar inn bif-
reiðar fyrir nálægt 12
miljarða króna og er þá
miðað við verð áður en
tollar eru lagðir á bif-
reiðarnar. Áður hefur
komið fram i Þjóðvilj-
anum að nær 50% fleiri
fólksbifreiðar voru flutt-
ar inn á fyrri hluta þessa
árs en á sama tima í
fyrra. Þessar tölur eru
athyglisverðar i ljósi
þess að Þjóðhagsstofnun
spáir 40 miljarða við-
skiptahalla i ár.
Innflutningurinn á bifreiöum
sundurliðast þannig að fólksbif-
reiðar voru fluttar inn fyrir 7077,2
miljónir króna og þar af voru not-
aöar fólksbifreiðar keyptar fyrir
108,6miljónir króna. Jeppar voru
fluttir inn fyrir 607 miljónir;
„station” bifreiðar fyrir 510
miljón og almenningsbifreiöar
fyrir 199,7 miljónir. Þá voru vöru-
bifreiöar keyptar fyrir 2335,3
miljónir króna og sendiferöabif-
reiðar fyrir 540 miljónir. Að lok-
um voru bifreiðar sem flokkaðar
eru sem „aörar bifreiðir” keypt-
ar fyrir 477,2 miljónir. Samtals
gerir þetta innflutning er kostar
þjóðarbúiö 11746,5 miljónir i
gjaldeyri.
Þvimábætaviðaðásiðasta ári
var heildarbifreiðaeign lands-
mánna 90,015 bifreiöar og þar af
82,142 fólksbifreiöar sem þýðir að
tæplega 2,8 einstaklingar eru á
hverja fólksbifreiö á landinu. Viö
liggur að tvær fólksbifreiöar séu
að jafnaði skráðar á hverja 5
manna fjölskyldu.
— þm
Póst- og símgjöld
9% hækkun
Frá og með 1. ágúst
hækka póst- og sima-
Mikil fundahöld
99
Töluverð hreyfing er
á samningamálunum
Fulltrúar ASÍ rœddu við 3 ráðherra í gœrmorgun
99
Mikil fundarhöld eru
fyrirhuguð i dag i
tengslum við viðræður
Alþýðusambandsins og
Vinnumálasambands
samvinnufélaga. Klukk-
an 10 f.h. koma viðræðu-
nefndir þessara aðila
saman til fundar, en eft-
irhádegi verður fundur i
43 manna að samninga-
nefnd ASí og jafnframt
kemur stjórn Vinnu-
málasambandsins sam-
til fundar siðdegis.
an
Fundur ASI og Vinnumálasam-
bandsins stóð i um 6 tima i gær og
eftir fundinn sagði Guðmundur
J. Guðmundsson formaður
VMSl að hann teldi töluverða
hreyfingu vera nú á málunum, þó
enn væri ekki séð fyrir lausn
málsins. Snorri Jónsson forseti
ASÍ sagöi einnig að talsvert hefði
miöað I rétta átt á fundinum i
gær.
Fulltrúar frá ASl áttu I gær-
morgun viðræöur við 3 ráðherra,
þá Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráöherra, Svavar Gestsson
félagsmálaráðherra og Tómas
Arnason viðskiptaráðherra og
voru ráðherrunum kynnt þau
atriði sem ASl hefur I sinni kröfu-
gerð og snerta ýmsa félagslega
þætti svo sem varðandi fæðingar-
orlof og atvinnuleysistryggingar.
Engin efnisleg afstaða var tekin á
fundinum. — þm
gjöld um sem næst 9% i
samræmi við niðurtaln-
ingarmörk rikis-
stjórnarinnar.
í frétt frá Pósti og
sima segir að helstu
breytingar á sima-
gjöldum verði sem hér
segir:
Stofngjald fyrir sima hækkar úr
kr. 71.400 i kr. 78.000 og sim-
notandi greiðir fyrir talfæri og
uppsetningu tækja. Gjald fyrir
umframskref hækkar úr kr. 26,60
I kr. 29,00, afnotagjald af
heimilissima á ársfjórðungi
hækkar úr kr. 12.100 i kr. 13.200,
venjulegt flutningsgjald milli
húsa á sama gjaldsvæöi hækkar
úr kr. 35.700 i kr. 39.000. Við gjöld
þessi bætist söluskattur.
Helstu breytingar á póst-
burðargjlildum eru þær, að'
burðargjald fyrir almennt bréf 20
gr. innanlands og til Norðurlanda
hækkar úr kr. 140 i kr. 150, til
Evrópu úr kr. 160 í kr. 180 og fyrir
bréf i flugpósti til landa utan Ev-
rópu úr kr. 290 i kr. 320; gjald fyrir
póstávisanir innanlands og til
Norðurlanda hækkar úr kr. 320 i
kr. 350.