Þjóðviljinn - 31.07.1980, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 31.07.1980, Blaðsíða 9
1 i I ÖBEN Kvennalist í KÖBEN Kv Betye Saar I Vetrargaröinum I Glyptotekinu, Kaupmannahöfn. Gömui mynd, sem Betye Saar kallar „Gluggi svartrar stúlku”, er hluti af mynd frá árinu 1977. Fimmtudagur 31. júlf 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 dagskrá Verkalýdshreyfingin er jjöldahreyfing, en ekki stofnun. í öllu starfi hennar þarf að taka tillit til þess. Barátta verkalýðsstéttarinnar mótar þróun þjóðfélagsins. Tryggvi Þór Aðalsteinsson húsgagnasmiður Aö fylgja þróuninni Þaö hefur varla fariö fram hjá neinum hversu örar breytingar hafa átt sér staö i hvers konar miölun upplýsinga og skoöana á siöustu timum. 1 raun á fólk i vök aö verjast, þvi á hverjum degi berst aö þvi býsn af ýmsu efni, jafnt I máli sem myndum. Út- varp, sjónvarp, blöö og timarit, fundir og samkomur, allt kallar þetta á okkur i einni eöa annarri mynd. Þrátt fyrir aö þessi þróun hafi átt sér staö á jafn mörgum sviö- um og raun ber vitni, þá er eins og þetta hafi fariö framhjá starfinu i verkalýöshreyfingunni aö miklu leyti, en þessi þróun á sér aö sjálfsögöu sinar jákvæöu hliöar. Sem dæmi um aöra tima nú en áöur, þá eiga samskipti ýmsra forystumanna heildarsamtak- anna sér staö e.t.v. meira nú I gegnum fréttaviötöl I blööum, út- varpi og sjónvarpi en á fundum og samkomum. Eigin blaöaút- gáfa hreyfingarinnar, sem er all nokkur, er ekki samstilltur fjöl- miöill og oft æöi tilviljanakennt, hvaö þar birtist. Þaö er of litiö um aö forsvarsmenn samtakanna skrifi greinar i eigin blöö og önnur og komi þannig á framfæri skoö- unum.sem félagsmönnunum gæti veriö dýrmætt aö heyra. Þó hér sé um margslungiö mál aö ræöa, þá ætla ég aöeins aö fjalla um tvo þætti þess, þ.e. kvikmyndina og vinnustaöafundi andspænis félagsfundinum. Sannleikurinn er sá, aö félags- fundurinn, sem er einn hornsteinn skipulags verkalýösfélaganna.er þvi miöur aö nokkru leyti úr sér genginn, sem vettvangur umræöu og frjórra skoöanaskipta. Þetta er ekki sist alvarlegt, þar sem fé- lagsfundurinn er sá vettvangur, sem allir félagsmenn hafa rétt til aö koma á, láta skoöun slna I ljós, leggja fram tillögur, greiöa at- kvæöi og bjóöa sig fram til starfa. Þaö þekkja allir, sem i verkalýös- hreyfingunni starfa, aö I reynd koma aöeins fáir félagsmanna á flesta félagsfundi, oftast þeir sömu og þar viö bætist aö fund- irnir eru yfirleitt fáir hverju fé- lagi. 1 raun og veru er félagsfundur- inn i verkalýösfélaginu I dag al- veg hinn sami aö forminu til og var i árdaga verkalýöshreyfing- arinnar fyrir sex til sjö áratug- um, á þeim tima, sem Báran viö Tjörnina var helsti fundarstaöur- inn. En einmitt á þeim tima, sem liöinn er slöan verkalýöshreyf- ingin hóf göngu sina, hafa stór- kostlegustu stökkin I hvers konar fjölmiölun átt sér staö, án þess aö verkalýössamtökin hafi nýtt sér þá tækni i eigin þágu. Þaö er til aö mynda umhugsunarvert hvers vegna Alþýöusamband Islands, liklega eina sambandiö sinnar tegundar i Evrópu, og ef til vill viöar hefur ekki tekiö kvikmynd ina I sina þjónustu. Ekki aöeins til aö geyma sögulega atburöi, held- ur lika til aö koma á framfæri upplýsingu og skoöunum. Stéttar- samtökin þurfa aö gera sig gild- andi I þeirri fölmiölun, sem I reynd á sér staö og hefur mest áhrif á skoöanir fólks og vilja. Gamli félagsfundurinn einn gegn- ir ekki þvi hlutverki i hreyfingu, sem i eru tugir þúsunda félags- manna. Kvikmyndin væri i senn heppi- legur og sterkur miöill til aö nota viö kynningu meöal ungs fólks á starfi og stefnu verklýöshreyfing- arinnar. Viö megum ekki gleyma þvi hversu nauösynlegt þaö er aö ungt fólk sé vel upplýst um verka- lýössamtökin. A hverjum degi ræöur ungt fólk sig til starfa og gengur i verkalýösfélag, án þess aö vita hvaö verkalýösfélag i raun er, og hvaöa réttindi og skyldur fylgja þvi aö vera félags- maöur I verkalýösfélagi. Skólar landsins eru fullir af væntanleg- um félagsmönnum verkalýösfé- laganna. Hvaöa kynning fer þar fram á starfi og stefnumiöum verkalýössamtakanna? I flestum tilfellum engin. Viö, sem skipum raöir verkalýöshreyfingarinnar og viljum hlut hennar þann, sem henni ber, þurfum aö sinna þessum kynningar og útbreiöslu- þætti, sem einum mikilvægasta þætti starfsins. Þetta er ekkert aukaverkefni. Þessuskyld er sú ábyrgö, sem hvilir á þeim, sem hverju sinni er i forystu verkalýöshreyfingarinn- ar, aö sinna uppeldishlutverkinu. Nýir félagsmenn og ungir þurfa aö fá fræöslu, leiösögn, uppörvun og tækifæri til starfa. Þaö hefur viöa veriö vanrækt, þannig aö menn vita varla hvaö viö tekur I náinni framtiö, hvaö varöar for- ystuhlutverkiö á ýmsum vig- stöövum samtakanna. En viö þurfum aö nýta fleiri leiöir til aö skapa umræöu og upp- lýsa fólk. Auövitaö hafa fundir, formlegir og óformlegir, veriö haldnir á vinnustööum allt frá upphafi, en e.t.v. ekki alltaf meö þeim skipulega hætti, sem nauö- synleg er, ef verulegur árangur á aö nást. Fundi á vinnustööum þarf aö undirbúa og skipuleggja ekki siöur en aöra fundi. Þar er mannskapurinn, og þar er hægt aö ná eyrum manna, ef viö raun- verulega viljum. Þaö sýndi sig m.a. I vetur, þegar svokölluö vinnuverndarvika byggingar- manna stóö yfir (sem reyndar var I margar vikur), hvaö hægt er aö gera. Vinnuverndarvikan byggöist á vinnustaöafundum viöa um land, enda náöist til mjög stórs hóps. Sem dæmi um þaö skal ég nefna, aö I minu félagi, Sveinafélagi húsgagnasmiöa, eru um 230 félagar. A árinu 1979 voru haldnir 3 félagsfundir, þar sem komu yfirleitt um 20 menn, oftast þeir sömu. A þremur vinnustaöa fundum náöum viö hins vegar til 182 félaga. Þó eru vinnustaöir húsgagnasmiöa margir fámenn- ir, en viö söfnuöum mönnum saman á einn vinnustaö frá ná- lægum vinnustööum. Þetta eru tvimælalaus dæmi um árangur en þaö kostar vinnu og þaö kostar vilja. Verkalýöshreyfingin er fjölda- hreyfing, en ekki stofnun. I öllu starfi hennar þarf aö taka tillit til þess. Barátta verkalýösstéttar- innar mótar þróun þjóöfélagsins. 1 innra starfi hreyfingarinnar og vinnubrögöum á aö nýta þaö besta, sem þróunin hefur i för meö sér. Þaö léttir róöurinn fyrir þvi þjóöfélagi, sem færir vinnandi fólki þau lifskjör, sem viö stefn- um aö. Viö lifum á timum tækni og margbrotinnar fjölmiölunar. Timi Bárunnar viö Tjörnina er liöinn. Vinnuferd tíl Kúbu t desember n.k. gefst tiu tslendingum kostur á aö taka þátt i samnorrænni vinnuferö til Kúbu, BRIGADA NORDICA 1980. Feröin er skipuiögö af vináttu- félögunum viö Kúbu á Noröuriöndum. Tilgangur feröarinnar er tvi- þættur: annarsvegar aö sýna samstööu meö kúbönsku bylting- unni og leggja fram nokkurn skerf til framgangs hennar meö vinnu aö byggingarstörfum og landbúnaöi, hinsvegar aö kynnast landi og þjóö. Skilyröi fyrir þátt- töku er aö viökomandi sé (eöa gerist) félagi i Vináttufélagi Is- lands og Kúbu. Stjórn félagsins áskilur sér rétt til aö velja úr umsóknum sem berast. Umsóknir um þátttöku sendist Vináttufélagi Islands og Kúbu, pósthóf 318, Reykjavik, fyrir 1. september 1980. (Fréttatilkynning).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.