Þjóðviljinn - 31.07.1980, Side 7
Fimmtudagur 31. júli 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
l Il—P— ■ IW l - ivÁð’
Kristjana Bergsdóttir kennari og SigurOur 0. Páisson skólastjóri huga aö tjaldstæði I Hallormsstaða-
skógi.
Herstöðvaandstœðingar á Austurlandi
Bindindishreyfingin
Fjölskyldumótið í
Galtalækjarskógi
Að venju halda ungtemplarar
og bindindishreyfingin fjöl-
skyldumót i Galtalækjarskógi um
verslunarmannahelgina.
Hátiðin hefst á föstudagskvöld
með dansleik og á laugardag og
sunnudag verða haldnir stórir
dansleikir. Hljómsveitin TIvoli
spilar i skóginum um helgina. Þá
verður sérstakur barnadans og
helgistund á sunnudeginum.
A laugardegfnum veröur haldin
keppni I ökuleikni í umsjá
Bindindisfélags ökumanna.
Samkomur og dansleikir
Borgarfjarðargleði
Ungmennasamband Borgar-
fjarðar stendur fyrir dansleikjum
og skemmtidagskrám i Lyng-
brekku og að Logalandi um helg-
ina.
Borgarfjarðargleðin hefst með
dansleik i samkomuhúsinu Lyng-
brekku á föstudagskvöld verður
dansað i Logalandi.
Það er hljómsveitin Upplyfting
sem spilar á öllum dansleikjun-
um, auk þess sem flutt verður
skemmtidagskrá öll kvöldin.
Jöklagleði
Snæfellingar halda svokallaða
Jöklagleði á Arnarstapa um helg-
ina. Þar verður dansað þrjú kvöld
i röö, en það eru hljómsveitirnar
Mandala frá Grundarfirði og Aria
frá Reykjavik sem sjá um tónlist-
ina.
Næg og góö tjaldstæði eru á
Arnarstapa.
Laugar i Reykjadal
'U'tihátið og dansleikir verða
haldnir að Laugum i ReykjadaJ
um helgina eins og fyrri ár.
Vallarnes
UIA stendur um helgina fyrir
útiskemmtun á Vallarnesi (Iðu-
völlum). Þar verður ýmislegt til
skemmtunar alla helgina og á
kvöldin verður leikiö fyrir dans-
leik i stóru tjaldi.
Skátamót við Úlfljótsvatn
Um verslunarmanna-
helgina standa skátar
fyrir fjölskyldumóti að
Ulfljótsvatni. Þetta er
annað árið i röð sem efnt
er til sliks móts um
þessa miklu umferðar-
helgi.
Aðstaða til tjaldbúða-
og útilifs að Olfljóts-
vatni er hin ágætasta;
má m.a. benda á að
rennandi vatn og vatns-
salemi eru á tjaldbúða-
svæðinu. Umhverfið
býður upp á margar
gönguleiðir og vatnið
heillar unga sem aldna
til bátsferða
Mótið hefst við varöeld kl.
22.00 föstudaginn 1. ágúst.
Dagskráin er við hæfi allra
jafntungrabarna sem öldunga og
er þannig uppbyggð að sem flestir
taki þátt í atriðum mótsins, en
séu ekki þögulir áhorfendur.
Mótið er ekki bundiö við skáta,
heldur er allt áhugafólk um
skátastarf og heilbrigt útilif vel-
komið til lengri eða skemmri
dvalar.
Afhjúpaður minnisvarði um Þorstein Valdimarsson skáld
Að vanda verður haldin Þjóð-
hátið i Vestmannaeyjum um
Verslunarmannahelgina. Það eru
félagar úr iþróttafélaginu Þór
sem halda hátfðina aðþessu sinni
og hafa þeir lagt dag við nótt slð-
ustu vikur svo allt verði komið á
sinn stað þegar hátiðin veröur
sett i Herjólfsdal á föstudags-
kvöldið kemur.
Eins og ávallt á Þjóðhátlð
veröur margt um manninn I Eyj-
■ um og mikið um að vera. Dansaö
verður öll kvöld meðan hátiöin
varir en það er hljómsveit Giss-
urar Geirssonar og Brimkló sem
leika af fingrum fram.
Bálkösturinn mikli verður
tendraður á föstudagskvöldið og
Eyjapeyjar síga i björg og leika
alls kyns kúnstir.
Ferðir verða frá BSl alla helg-
ina til Þorlákshafnar og þaðan er
stutt og skemmtileg sigling með
Herjólfi til Eyja Aðrir geta farið
með flugi, haldist veöur stillt.
Hestamannamót
Hestamannafélagið Blakkur
heldur hestamannamót og kapp-
reiðar laugardaginn 2. ágúst.
Mótið verður haldið á Skelju-
vikurgrundum viö Hólmavík.
Eftir hestakappið verður haldið
ball fyrir þá tvifættu i Sævangi.
Vindheim am elar
Skagfirskir hestamann láta sig
ekki vanta á melana um helgina.
Þar hefst heilmikið hestamanna-
mót og kappreiöar með þátttöku
bestu fáka landsins.
Fjörugt og skemmtilegt hesta-
mannamót ef aö vanda lætur.
Norðlenskir herstöðvaandstæðingar ætla að fjölmenna I nýju Hriseyjarferjuna um helgina.
Mynd — Guðjón.
Herstöðvaandstœðingar á Norðurlandi
Sumarmót í Hrísey
fá nóg að starfa.
I Hrisey verður dvalið i tjöíd-
um, en ef veðurguðirnir verða
óstýrilátir er I gott hús að venda,
nefnilega samkomuhúsið I eynni.
Þeirfélagarsem ekkihafa látið
skrá sig til ferðarinnar geta haft
samband i sima (96) — 21788 eða
—25745 og það sem fyrst.
Herstöðvaandstæðingar á
Norðurlandi ætla að eyöa versl-
unarmannahelginni saman við
störf og leiki I Hrisey I Eyjafirði.
I eynni er margt forvitnilegt
að skoöa, og ætla herstöðvaand-
stæðingar að ganga bæði um f jör-
ur og móa, og fá sér siðan sund-
sprett i sjónum ef veður leyfir
Sumarmótið i Hrisey verður
nokkurs konar sambland af úti-
legu, samveru og umræðum.
Hugmyndin er að ræða aðallega
um starfsemi herstöðvaandstæð-
inga nyrðra og syðra og almennt
um ástandið i heimsmálunum.
Fyrir börnin verður skipulögð
dagskrá yfir alla helgina svo allir
Herstöðvaandstæðingar á
Austurlandi efna til samkomu i
Hallormsstaðaskógi um verslun-
armannahelgina. Hún hefst kl. 2 á
laugardag og lýkur formlega á
sunnudagskvöld. Ef veöur leyfir
verður væntanlega dvalið I skóg-
inum fram á mánudag. Til móts-
ins verður hóað saman fólki af
fjöröunum og frést hefur að hópur
frá Reykjavik ætli að leggja land
undir fót og halda austur til að
leggja baráttunni lið og njóta feg-
urðarinnar þar eystra.
1 samtali við Kristjönu Bergs-
dótturkennara, sem unnið hefur
að undirbúningi ásamt fleirum,
kom fram aö allt er að verða til-
búið fyrir helgina. Mótið er þann-
ig skipulagt að safnast verður
saman við minnisvarðann um
Þorstein Valdimarsson skáld, en
hann verður afhjúpaður viö þetta
tækifæri. Þar flytur Armann
Halldórsson frá Egilsstöðum
ræöu um skáldið og verk hans, en
Þorsteinn var einlægur her-
stöðvaandstæöingur og samdi
bæði ljóö og lag sem hann tileink-
aöi baráttunni gegn her I landi.
Aö lokinni athöfninni verður
haldið til tjaldstæðisins og þar
hefst dagskrá. Sigurður ó. Páls-
son skólastjóri flytur ræðu um
sögu og baráttu herstöðvaand-
stæðinga eystra en siðan hefjast
hópumræður um væntanlegt starf
og skipulag.
Þegar kvöldar verður matar-
hlé, en siðan hefst kvöldvaka. Þar
slá Austfirðingar saman i gaman-
mál, söng og fróðleik af ýmsu
tagi.
A sunnudag verður dagurinn
tekinn snemma og byrjar með
morguntrimmi og skógarferð.
Siðan hefjast fundir á nýjan leik,
fyrst i hópum en siðan veröur
lagst á eitt og settar saman álykt-
anir og hvatningar sem væntan-
lega munu hvetja alla herstöðva-
andstæðinga um land allt til dáða.
Mótinu verður slitið um kvöld-
matarleytið en væntanlega verð-
ur dvaliö i skóginum áfram ef
veður leyfir, enda engin vinna
næstu dag.
Að sögn Kristjönu Bergsdóttur
þar eystra er markmiðið að ná
fólki saman og undirbúa starfið
næstu ár og huga að frekari að-
gerðum, m.a. auknum tengslum
við miðnefnd herstöðvaandstæð-
inga, en hún sendir einn ræðu-
mann til mótsins, Astriði Karls-
dóttur.
Fyrir þá sem ætla i Hallorms-
staðaskóg er gott að vita að þeir
verða að taka með sér tjald og
nesti, hljóðfæri ef það er til og
auðvitað baráttuanda og gott
skap.
Börnin eiga auðvitað að koma
meö; þeim verður sinnt og þau
munu leggja sinn skerf til kvöld-
vökunnar. Þá er bara eftir að
minna á kröfuna: Island úr Nato
— herinn burt.
—Ká
Þjóðhátíð í Eyjum
I Hallormsstaðaskóg!