Þjóðviljinn - 21.08.1980, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 21.08.1980, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21 ágúst 1980 UOOVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýds- hreyfingar og þjóðfrelsis (Jtgefandi: Utgófufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Ðergmann RiUtjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Kjartan Olafsson Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir. • Augiýsingastjóri: Þorgeir Olafsson. Umsjónarmaóur Sunnudagsblaós: Þórunn SigurÖardóttir Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón FriÖriks- son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnils H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon. tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elísson Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Safn vöröur: Ey jólfur Arnason, Auglýsingar: Sigríöur Hanna Sigurbjörnsdóttir. Skrifstofa :Guörún Guövaröardóttir. Afgreiösla:Kristin Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára Siguröardóttir. Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir. Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. “ útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuÖmundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6, Reykjavfk, simi 8 13 33. Prentun: Blaöaþrent hf. Dagskipun um stríð • Ljóst er að Geirsliðið í Sjálfstæðisflokknum hefur kastað stríðshanskanum. Það boðar nú nauðsyn á upp- gjöri við Gunnar Thoroddsen og félaga. Sáttatalið sem kom í kjölfar Bolungarvíkurræðunnar hefur reynst blekking ein — logn á undan storminum. Forystuklíkan í Sjálfstæðisflokknum hefur valiðá milli átaka og friðar. Dagskipunin er um stríð. • Dag eftir dag flytja aðalmálgagn Geirsarmsins, AAorgunblaðið, og aukamálgagnið Vísir, stríðsyfirlýs- ingar frá Geir Hallgrímssyni og nánustu liðsforingjum hans. Á laugardag og sunnudag birtu húsbóndinn og yf ir- þjónn hans, Björn Bjarnason, afdráttarlausa dagskipun um stríð í Sjálfstæðisf lokknum. Björn Bjarnason hefur í s.l. 6 ár haft það hlutverk að vera opinber njósnari um stundarsakir við ríkisstjórnarborð Ölafs Jóhannessonar. • í Vísi tilkynnti Geir Hallgrímsson að meðan ríkis- stjórnin sé við völd séu sættir útilokaðar, enda sé hyldýpi milli málefnasamnings ríkisstjórnarinnar og stefnu Sjálfstæðisf lokksins. „Ég geri mér engar vonir um það (þ.e. sættir) nema þeir Sjálfstæðismenn, sem nú styðja ríkisstjórnina dragi sig úr henni", sagði formaðurinn. l Vísisviðtalinu lýsti Geir Hallgrímsson því ennf remur af- dráttarlaust yfir að hann ætli sér að vera áfram for- maður Sjálfstæðisflokksins og vísar á bug öllum hug- myndum um aðrar lausnir. Átökin í Sjálfstæðisflokknum eigi ekki að snúast um menn, þ.e. ekki um hann sjálfan, heldur um málefni, þ.e. um stefnu ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens. Þrátt fyrir þessa afneitun á umræðu um menn snýst meginhluti viðtalsins við Geir um persónu Gunnars og verk hans, fyrr og síðar. • Þegar húsbóndinn hafði tekið af skarið og tilkynnt að hiklaust væri stefnt að stríði innan Sjálfstæðisf lokksins stóðekki á þjóninum. Daginn eftir birti Björn Bjarnason í AAorgunblaðinu heilsíðuárás á Gunnar Thoroddsen og rikisstjórn hans. Björn hafnar þeirri kenningu að vandi Sjálfstæðisflokksins felist í því að skipta þurfi um for- mann. „Vandi Sjálfstæðisf lokksins felst í því, að það er hyldýpi milli stefnu ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens og stefnu flokksins. Eða ætla stjórnarsinnar úr þing- flokki Sjálfstæðismanna að hætta stuðningi sínum við rikisstjórnina um leið og því markmiði er náð, að Geir Hallgrímsson er ekki lengur formaður Sjálfstæðis- f lokksins". #Þessari kenningu Björns Bjarnasonar er ætlað að vernda formannsvöld Geirs Hallgrímssonar. Vandi Sjálfstæðisflokksins felist ekki í störfum formannsins og þess vegna sé rangt að deila um Geir Hallgrímsson. Rikisstjórnin sé orsök átakanna og á meðan hún sé við völd sé tilgangslaust að tala um sættir. AAeð þessari kenningu ætlar Geirsklíkan að beina kastljósinu f rá ára- langri óánægju með Geir Hallgrímsson og hasla upp- gjörsstriðinu i flokknum annan völl. • Tilrauninni er svo haldið áf ram í leiðara AAorgunblaðs- ins i gær. Striðsboðskapur helgarinnar f rá f ormanninum og þjóni hans verður að hversdagstali AAorgunblaðsins. í leiðaranum er endurtekinn Visisboðskapur Geirs Hall- grímssonar um að aðgerðir ríkisstjórnar Gunnars Thor- oddsens gangi þvert á stefnumið Sjálfstæðisf lokksins. Rikisstjórnin beri „um flest svipmót fyrri vinstri stjórnar. Alþýðubandalag og Framsóknarflokkur, sem mestu réðu um stjórn Ölafs Jóhannessonar, eigi 7 af 11 ráðherrum núverandi ríkisstjórnar — og fara auk þess með ýmsa veigamestu málaflokka þjóðarbúsins. Það segir sig sjálft að uppskeran fer eftir útsæðinu". #Leiðari AAorgunblaðsins í gær og helgarboðskapur Geirs Hallgrímssonar og yf irþjóns hans sýna að forystu- klíkan í Sjálfstæðisf lokknum hefur afdráttarlaust hafnað sáttaleiðinni og boðar nú stríð. Þau þáttaskil munu marka djúp spor i sögu íslenskrar borgarastéttar. Það verður fróðlegt að líta yf ir vígvöllinn þegar vetrar. HlíppS Hœkkun vegna hœrri rauntekna Alagningu tekjuskatts ein- staklinga er nú lokiö um allt land. Samtals nemur álagöur tekjuskattur aö frádregnum barnabötum og persönuafslætti til greiöslu sjúkratrygginga- gjalds og útsvars,45 miljöröum króna, sem er um 54% hækkun milli ára. Miöaö viö sama innheimtu- hlutfall og undanfarin ár ættu þá tekjur rikissjóös af tekju- skatti einstaklinga aö nema 39 miljöröum króna á þessu ári, sem er einum miljaröi hærri upphæö en gert var ráö fyrir I fjárlögum.Þetta þýöir aö tekjur rikissjóös af tekjuskatti ein- staklinga veröa 2-3% hærri en gert var ráö fyrir i fjárlögum. Þessi mismunur stafar þó ekki af þvi aö nýja skattakerfiö,meö þeim skattstiga sem ákveöinn var á siöasta Alþingi færi rikinu meiri fjármuni en oröiö heföi samkvæmt gamla skattkerfinu. Astæöanfyrir þessari smávægi- legu hækkun tekjuskatts er önnur. Húner fyrst og fremst sú aö á siöasta ári hækkuöu raun- tekjur manna einfaldlega meira heldur en reiknaö var meö viö ákvöröun skattstigans. Tekjur hækkuöu um 50% — Gjöld um 45,5% Þjóöhagsstofnun telur aö heildartekjur einstaklinga hafi á siöasta ári hækkaö um full 50%, i krónutölu eins og fram kemur á biaösiöu 11 I skýrslu stofnunarinnar frá 8. júli s.l. A siöasta ári hækkaöi fram- | færslukostnaöur hins vegar um J 45.5% frá árinu á undan sam- kvæmt mælingum Hagstofunn- ar. Raungildi heildarteknanna varö þvi nokkru hærra á árinu 1979 heldur en 1978 og þar sem menn borga sem kunnugt er hærra hlutfall i skatta ef tekjurnar fara hækkandi, þá hækkar tekjuskatturinn af auö- skiljanlegum ástæöum um örlit- iö hærra hlutfall en svarar hækkun teknanna. — Maöur sem t.d. eykur tekjur sinar um 20% aö raungildi hann þarf aö sjálfsögöu aö borga hærra hlut- fall 1 skatt en áöur. — Sem betur fer segja menn, nema þeir sem vilja aö maöur meö miljón i Matthias A. Mathiesen, fyrr- verandi fjármálaráöherra Sjálfstæöisflokksins. Leggur hann blessun sina yfir aöferöir Morgunblaösins viö aö gera einn miljarö aö sjö? Sérhver hæna varö aö sjö hæn- um 4% aö raungildi og fyrst og fremst af þeim ástæöum leiöir 2- 3% hækkun þess sem menn greiða i tekjuskatt af hverri krónu. Þetta eru nú öll ósköpin sem Morgunblaöið og fylgitungl þess hafa verið'að ærast yfir undan- farna daga. Ein hæna sem varð að sjö Einna kostulegast er þó aö sjá meöferö Morgunblaösins i gær á einfaldri frétt um þessi efni. Þar menn borgi ekki nema 87% af álögöum sköttum sinum.” Hér lýkur tilvitnun I frétt Morgunblaðsins. Skoöum þetta nú nánar. Morgunblaöiö fuUyrö- ir aö hækkun tekjuskattsins frá þvl sem gert var ráö fyrir á fjárlögum sé 7 miljaröar. Hiö rétta er aö sú hækkun er 1 miljaröur. Morgunblaöiö fær sina útkomu meö þvi aö gera aö einni, tvær ósambærilegar stæröir, annars vegar álagöan tekjuskatt og hins vegar inn- heimtan tekjuskatt. Allir sem til þekkja vita aö á undanföm- um árum hefur innheimtur tekjuskattur veriö 87-88% af álögöum tekjuskatti. Morgunblaöiö ber hins vegar saman álagöan tekjuskatt (aö frádregnum barnabótum og persónuafslætti upp I útsvar og sjúkratryggingagjald) annars vegar og svo áætlunartölu fjár- laga um innheimtan tekjuskatt hins vegar! — Lætur eins og þetta sé eitt og hiö samá, aö tekjuskattur hafi innheimst 100%. Þannig fá þeir út aö tekjuskatturinn hækki um 7 miljarðafrá fjárlögum.Hér er auðvitað um örgustu fölsun aö ræöa vitandi vits. í frétt ráöu- neytisins sem Morgunblaöiö er aö segja frá stendur skýrum stöfum aö innheimtuhlutfalliö hafi á undanfömum árum veriö 87-88%. Morgunblaöiö fellir þá staöreynd niöur úr fréttinni og fær þannig sina imynduöu 7 miljaröa hækkun. „Þaö sem I skiptir máli er aö heildarálögur 1 tekjuskatts hafa aukist um 7 miljaröa” segir Morgunblaðið ■ og bætir svo sakleysislega viö: I „nema stjórnvöld geri ráö fyrir þvi, aö menn borgi ekki nema I 87% af álögðum sköttum sin- ■ um”. Eitt„nema” sem skiptir máli En þetta „nema” Morgun- blaösins er bara dálitiö stórt, þvi gangi innheimta til meö svipuöum hætti og undanfarin ár, þá veröur hækkunin bara einn sjöundi hluti þess sem Morgunblaöiö fullyröir. Þetta dæmi er ekki rakið hér vegna þess aö þaö eitt sér sé sérstaklega merkilegt, heldur vegna þess aö þaö er dæmigert fyrir þá áráttu Morgunblaösins, aö falsa einföldustu staöreyndir á hinn grófasta hátt, ef þaö þyk- ir henta i pólitiskum málflutn- ingi. Morgunblaöiö þykist stundum vera óháö fréttablaö og vant aö viröingu sinni. Fréttin um einu hænuna sem varö aö sjö segir — —. 1 2 MOKGI NBl. \i!l( ,. M11)\ .i\l •, v!;l'K 2ti. \(/ Heildaraukning tekjuskatts: Skattbyrðin 7 milljörð- um hærri en í f járlögumf ÁLAGNING tekju- og eignar- örðum, en er frá hafa verið nemur álagður tekjuskattur um skatts á einstaklinga er nú lokið. dregnar barnabætur og persónu- 45 milljörðum sem er um 54% Fram kemur að álagður tekju- afsláttur til greiðslu sjúkra- hækkun á milli ára. 1 skattur nemur rúmum 64 millj- tryggingargjalds og útsvars_ J laun á mánuöi borgi sama hlut- fall i skatt og sá sem hefur 300 þús. kr. á mánuöi i kaup. En af þvi skattstiginn, bæði sá gamli og sá nýi, er við þaö mið- aöur aö hækkandi rauntekjur þýöi hærra hlutfall launanna i skatta, þá þarf svo sannarlega enginn aö vera hissa á þvi þótt 50% tekjuhækkun á síöasta ári á móti 45.5% hækkun framfærslu- kostnaöar leiöi til 54% hækkun- ar tekjuskatts. Tekjumar hækk- uöu sem sagt á slöasta ári um 3- segir orörétt: — „1 yfirlitinu er þessi niöurstaöa túlkuö þannig af fjármálaráöuneytinu aö heildarskattbyröi af völdum tekjuskatts haldist óbreytt frá fyrra ári. Þaö breytir engu um skattbyröina, hvert áætlaö inn- heimtu hlutfall verður. Þaö sem skiptir máli er aö heildarálögur tekjuskatts, hafa aukist um 7 miljaröa umfram fjárlög, nema stjórnvöld geri ráö fyrir þvi, aö -----------09 margt um hvaöa kröfur Morg- ! unblaöiö gerir til sjálfs sin um ■ heiöarlegan fréttaflutning og I meöferö á einföldum staöreynd- I um. Þegar málflutningur Sjálf- ■ stæöisflokksins ieinu máli hefur I ekki lengur neitt hald i veruleik- I anum, þá gripur Morgunblaöiö I til falsananna, þaö er gömul ■ saga — og ný. skorrið

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.