Þjóðviljinn - 21.08.1980, Side 7
Fimmtudagur 21 ágiist 1980 WÓÐVIWINN — SIÐA 7
Siglaugur Brynleifsson:
Hagvöxtur
Noam Chomsky and Ed-
ward S. Herman: The
Political Economy of
Human Rights.
Volume I: The Washington Conn-
ection and Third World Fascism.
Volume II: After the Cataclysm:
Postwar Indochina and the Re-
construction of Imperial Ideo-
logy. Spokesman 1979.
Fyrsta útgáfa þessa rits átti aö
koma út 1973 hjá dótturfyrirtæki
Warner communications, Wamer
Modular Publications. Alls voru
prentuö 20 þúsund eintök og
starfsliö útgáfufyrirtækisins
Warner Modular virtist hafa full-
an hug á þvi aö koma bókinni á
markab meö tilheyrandi auglýs-
ingum. Þaö var gert ráð fyrir
mikilli sölu, þar sem Noam
Chomsky er heimsfrægur fyrir
rannsóknir sinar i málvisindum
og kenningar um þau efni. En áð-
ur en það yrði framkvæmt tók
einn forstjóra Warner communi-
cations að athuga innihald bókar-
innarsþaðvarðtil þessað útgáfan
var stöðvuð og allar auglýsingar
afturkallaðar. Hinu og öðru var
slegið fram sem ástæðu fyrir
stöðvun dreifingar. Eftir japl og
jaml og fuður var loks fariö aö
tala um að dreifa bókinni, en áður
en það yrði var útgáfufyrirtækið
lagt niður og birgöir útgáfunnar
seldar litt kunnu fyrirtæki sem
varsvoaumt að það hafði ekki yf-
ir að ráða eigin dreifingarkerfi
hvaðþá nokkm fjármagni til aug-
lýsinga. Fáein eintök dreifðust I
Bandarikjunum. 011 þau blöð sem
geta um nýjar útgáfur og bækur,
steinþögöu. Bókin var þöguð i hel
-i Bandarikjunum. Aftur á móti
var bókin þýdd á frönsku og fleiri
Evrópumál og vakti þar verð-
skuldaða athygli.
Svipt burt hulu hræsni
og lyga
Sú gerö bókarinnar sem hér um
ræðir er gefin Ut af lítt kunnu fyr-
irtæki i Bandarikjunum, South
End Press I Boston og i Englandi
af Spokesman Books.
Þessi þögn um rit Chomskys og
Hermans stafar af þvi að höfund-
arnir svipta burt þeirri hulu
hræsni og lyga, sem bandarlskir
hagsmunaaðilar og bandarisk
stjórnvöld reyna að hylja með
starfsaöferðir sinar I þriðja heim-
inum. 011 stórblöð og útgáfufyrir-
tæki sem einhvers mega sin þar i
landi eru nátengd þessum sömu
aðilum á einn eðá annan hátt og
þvi er þar litinn áhuga að finna á
raunsönnum lýsingum, tengsla
borðalagðra glæpamanna, sem
kalla sig hermenn t.d. i Suöur-
Ameriku, kaupsýslubófa og póli-
tiskra gangstera og hins vegar
bandariskra banka, auðhringa og
annarra bandariskra aðila, sem
hafa hagsmuna að gæta i þessum
rikjum. Rit þetta lýsir þessum
tengslum og þvi samsæri þagnar
oglyga sem lykur þessi landsvæði
lyga- og þagnarmúr.
Innan á bókarkápu er skýring-
armynd á tengslum Bandarikj-
anna og vissra rikja S-Ameriku,
Evrópu. Asiu og Afriku. I flestöll-
um þeim rikjum er starfandi viss
fjöldi bandariskra hernaðarráö-
gjafa eða liðsforingja og tækni-
manna, auk þess er skráð fjár-
hagsaðstoð Bandarikjanna við
heri viðkomandi rikja. Einnig eru
þau riki auðkennd, þar sem pynd-
ingar viðgangast á pólitiskum
andstæöingum rikjandi valda-
kliku. Höfundar hafa einnig skráð
þau riki utan áhrifasvæðis
Bandarikjanna, þar sem sami
háttur er á hafður.
Striðssaga samin að
nýju
Höfundarnir lýsa hér striös-
rekstri Bandarikjanna i Viet-
Nam og nærliggjandi löndum sú
saga hefur oft verið sögð, en frá-
sögn þeirra er á ýmsan hátt enn
hryllilegri, þeir hafa aflaö sér
heimilda, sem eru óyggjandi um
ýmsa þætti þeirrar styrjaldar og
þá einkum hvernig bandariskir
hagsmunaaðilar nýttu sér eymd-
og mannréttindi
ína þar I löndum og notuöu úrslit
styrjaldarinnar til þess að herða
tökin annars staðar með aðstoö
bandarisku stjórnarinnar.
Annað bindið fjallar um afleið-
ingar ósigursins i Viet-Nam og
þæraðferðir sembeitt hefur veriö
siðan til þess að gera hlut þeirra
rikja sem sigruðust á Banda-
rikjamönnum, sem verstan.
Einnig hefur striðssagan veriö
samin að nýju til þess að fegra
hlut Bandarikjamanna. Banda-
risk stjórnvöld leituðust viö að
endurbæta imynd Bandarikj-
anna, sem hafði skekkst talsvert
og orðið iskyggilegri eftir þ vi sem
leið á styrjöldina og aðferöimar,
sem þeir beittu þar urðu lýöum
ljósari. Þetta var gert með þvi aö
herða á áróðrinum gegn fyrrum
fjandmönnum og gera RUssa-
grýluna sem skelfilegasta. Jafn-
framt var barátta Bandarikjanna
fyrir mannréttindum hert stór-
lega einkum á þeim svæðum jarö-
ar, sem þeir stjórnuðu ekki.
Atburðarásin I Cambodiu og
Viet-Nam eftir lok styrjaldarinn-
ar var gjörnýtt með nauðsynleg-
um tilfæringum, viöbótum og til-
hliðrunum. Með þvi að útmála
blóðbaöið i Cambodiu og með
stööugum áróöri um afleitt á-
stand I Viet-Nam og hávaðatali
um brotin mannréttindi og fanga-
búöir var stefnt að þvi að kæfa
neyöarópin úr pyndingaklefum
Chile, írans, Brasillu, Tyrklands,
Uruguay og fleiri og fleiri hálfný-
lendna Bandarikjanna.
Lykilrit um bandaríska
utanrikisstefnu
Höfundamir verja miklu rúmi
siðara bindis til umfjöllunar um
ástandið i Cambodiu. Þeir nota
‘þær fáu heimildir, sem um það er
að hafa og þar sem þeim heimild-
um ber engan veginn saman, leit-
ast þeir við að komast að þvf sem
geröist meö rannsóknum á for-
sendunum fyrir hinum gagnstæöu
skoðunum og andstæðu frásögn-
um.
Heimildaskrár, athugagreinar
ogregistur eru tæpar 100 blaðsið-
ur, mikill hluti heimilda eru
skýrslur bandariskra þingnefnda,
en iþeim má finna bæði beinar og
ekki sist óbeinar heimildir fyrir
stefnu bandarisku stjórnarinnar i
þriöja heiminum. Þetta er mjög
ýtarlegt rit um bandarisku utan-
rikisstefnuog er lykilrit um þessi
efni. Þegar þetta rit er lesið
minnirþað um margt á annað rit,
sem opnaði vilpu svika, lyga og
morða og sem varð til þess að
glansmynd sem margir höfðu af
öðru stórveldi samtimans hrundi,
en þaö rit var aldrei gefið út i þvi
riki, sem það fjallaöi um. Þetta
ritChomskys og Hermans er þag-
að I hel i heimalandinu, en hvort
áhrif þessá Imyndanir manna um
hitt heimsveldiö verði jafn gjör-
tækar verður timinn að leiða i
ljós.
Til þess að tryggja
öryggi
fjárfestingar
1 fyrra bindi ritsins er fjaUað
um þær aöferðir sem Bandarikin
stunda til þess aö tryggja öryggi
fjárfestingar bandariskra auö-
hringa i rikjum þriðja heimsins.
Bandarikin hafa komið sér upp
fjölda hálfnýlendna sem stjórnað
eraf aðilum, sem haldast við völd
með aðstoð hers og lögreglu, sem
þjálfuö er að mestu leyti af
Bandarikjamönnum og sem beit-
ir pyndingum óspart til þess að
skapa andrúmsloft ótta meðal
þeirra sem kysu aðra úrkosti.
Pyndingar, morð og manna-
hvörf eru stunduö af valdhöfum
þessara rikja i baráttu þeirra við
andstæðinga stjórnkerfisins. Höf-
undarnir rekja þátt bandariskra
hernaöar- og lögregluráðgjafa i
skipulagningu pyndinga og telja
ótvirætt aö þeir reki skóla i pynd-
ingum, þar sem innfæddum eru
kenndar nýjustu aöferðirnar.
Morðsveitir valdaklikanna I Suð-
ur-Ameriku eru vel kunnar. Allt
þetta varnarlið valdaklikanna
fær vopn sin og annan útbúnað frá
Bandarikjunum og án þeirra og
riflegrar f járhagsa ðstoöar
myndu þessar klikur þegar I stað
missa völd og áhrif og þar með
yrðufjárfestingar Bandarikjanna
i viökomandi rikjum i hættu. Arð-
ur bandariskra auðhringa af f jár-
festingu i rikjum Suður-Ameriku
er geysilegur og eykst stöðugt,
eftir þvi sem efnahagskerfi þess-
ara sömu rikja versnar. Laun eru
lág, tryggingar engar, meðferð á
innlendum starfskröftum er slik
að jafna má til þrælahalds.
Ýmsir atburðir haf a átt sér stað
i þessum hálfnýlendum, sem
reynt hefur verið að þegja i hel
eða gera sem minnst úr, t.d.
morðin á Austur-Timor 1975, þar
sem talið er að 1/6 ibúanna hafi
verið myrtir af indónesiskum
herjum, en Indónesia er eitt
þeirra rikja, sem njóta stuönings
Bandarikjamanna. Litið var gert
að þvi að útmála þessa atburöi i
blöðum hins frjálsa heims. Þetta
er eitt af þeim „blóðböðum” sem
fulltrúar og umboðsmenn banda-
riskra hagsmuna hafa staðið að
og geta menn kynnt sér fjölmörg
önnur dæmi um slikt i þessu riti.
Amazon-indiánar eru litnir
svipuðum augum og Bandarikja-
menn litu Indiána Norður-Amer-
iku einkum á 19. öld, þegar
Bandarikin byggðust sem örast,
einkum fólki, sem borist hafði
allslaust frá Evrópu og mótaðist
fljótlega af þeim anda græögi og
peningahyggju sem löngum hefur
einkennt hvita ibúa Norður-
Ameriku.
Páfavaldið gerist
frumkvöðull verka-
lýðsbaráttu
Þegar þetta fólk komst i þá að-
stöðu aö geta gert sig gildandi
meðal hópa, sem bjuggu við allt
annað samfélagsform en þeir og
höföu annað lifsmat, þá var ekki
verið að taka tillit til sérstöðu
þeirra né lifsmáta. Þessir frum-
byggjar Noröur-Ameriku voru
rændirlöndum sinum, hraktir frá
Framhald á bls. 13