Þjóðviljinn - 22.08.1980, Qupperneq 1
1
■
I
UOBVIUINN
Föstudagur 22. ágúst 1980 —190. tbl.45. árg.
Kortsnoj vann!
i gær lauk einvigi Viktors Kortsnojs og Lev Polugajevskys i Bue-
nos Aires meö sigri hins fyrrnefnda. A bls.12 eru frásaenir af
áskorendaeinvigjunum. Jón L.Arnason mátti bita I þaösúra epli
aö tapa skák sinni viö Sovétmanninn Garry Kasparov i gær-
kveldi, þrátt fyrir aö hann ætti jafntefliö vist meö réttri tafl-
mennsku, þegar þeir tóku til viö biöskákina. Nánar greinir frá
heimsmeistaramóti unglinga á bls.3. —eik.
Krafa hersins um nýja olíutanka í Keflavík:
Meira en þreföldun rýmis
Þjóðviljinn hefur fengið
í hendur frá Bandarikja-
her skrá hersins sjálfs frá
30.9. 1979 yfir fasteignir
hans tengdar herstöðinni í
Keflavík. Þar kemur fram
að núverandi birgðarými
hersins fyrir olíuvörur er
tæplega 117.000 rúmmetr-
ar. Þjóðviljinn hefur fyrir
því mjög traustar innlend-
ar heimildir að þar af séu í
mesta lagi um 60.000 rúm-
metrar á Keflavikurflug-
velli en hitt í geymslum
NATOi Hvalfirði. Áformin
um byggingu nýrra olíu-
geyma við Keflavík gera
ráð fyrir 212.000 rúmmetr-
um. Geymslurýmið á Suð-
urnesjum á því að þrefald-
asteða jafnvel fjórfaldast.
I skrá Bandaríkjahers
segir um núverandi
geymslurými:
Alls 117 þús. rúmmetrar
nú
1) — Liöur 124 „Operating fuel
storage” þ.e. geymslurými fyr-
ir eldsneyti sem ætlaö er til
notkunar I nálægri framtlö:
16.952.452 gallon + 193.000 gall-
on. Þetta gerir nær 65.000 rúm-
metra.
2) — Liöur 411 „Liquid fuel stor-
age bulk”, þ.e. birgöarými fyr-
ir varabirgöir fljótandi elds-
neytis: 329.790 barrel. Þetta
gerir 52.000 rúmmetra.
Samtals eru þetta tæplega
117.000 rúmmetrar, sem herinn
hefur nú yfir aö ráöa hér á landi
til geymslu á olluvörum.
Þar af rúm 60.000
við Keflavík
Samkvæmt innlendum heimild-
um, sem Þjóöviljinn telur full-
komlega traustar skiptist þetta
rými þannig aö á Keflavikurflug-
velli er birgöarými aö stærö um
60 þúsund rúmmetrar en i Hval-
firöi álika magn á vegum NATO.
(Hér eru aö sjálfsögöu ekki taldar
meö birgöir islenskra ollufélaga i
Hvalfiröi).
Nær fjórföldun ráðgerð
I þeirri skýrslu samstarfs-
nefndar Bandaríkjahers og is-
lenska utanrikisráöuneytisins,
sem afhent var ólafi Jóhannes-
Ríkisstjórninni ber aö hafna tafar-
laust þessum stœkkunaráformum
syni, utanrikisráöherra, fyrir
skömmu, kemur fram aö þar er
gert ráö fyrir byggingu nýrra
geyma aö stærö 212.000 rúmmetr-
ar, sem sundurliöast i 12 nýja
geyma. — 15 þúsund rúmmetra
hver I Helguvik viö Keflavlk og 8
nýja geyma. — 4 þúsund rúm-
metra hver inniá Keflavikurflug-
velli.
Af þessu er ljóst, aö þau áform
sem Bandarikjaher og islenskir
samningamenn utanrlkisráöu-
neytisins hafa lagt á borö Ólafs
Jóhannessonar, utanrikisráö-
herra, miöa viö aö þre- til fjór-
falda umsvif Bandarikjahers á
Suöurnesjum hvaö oliubirgöir
varöar.
212.000 rúmmetrar eiga aö
koma I staö um 60.000 rúmmetra
þar suöur frá. Jafnvel þótt núver-
andi geymslurými NATO i Hval-
firöi reyndist ekki taliö meö i
skýrslu Bandarikjahers og tank-
arnir á Keflavikurflugvelli einum
væru 117.000 rúmmetrar þá fælu
hin nýju áform samt I sér nær
tvöföldun. — En eins og áöur
sagöi hefur Þjóöviljinn fyrir þvi
mjög traustar innlendar heimild-
ir aö núverandi tankar á Kefla-
vikurflugvelli séu aöeins um
60.000 rúmmetrar og miöa áform-
in þvi viö um 250% stækkun á Suö-
urnesjum.
Utanríkisráðuneytið
verður að svara
Það skal tekið fram aö Ólafur
Jóhannesson, utanrlkisráöherra.
og Helgi Agústsson, deildarstjóri
„varnarmáladeildar” utanrikis-
ráöuneytisins, hafa ekki viljaö
gefa neinar tölulegar upplýsingar
um stærö þess geymslurýmis,
sem herinn hefur nú fyrir oliuvör-
ur.
Þaö hlýtur þó að teljast ótviræö
skylda islenska utanrikisráöu-
neytisins aö láta i té af sinni hálfu
upplýsingar um þessi efni.
Þjóöviljinn hefur sinar upplýs-
ingar beint frá Bandarikjaher, —
en nú spyrjum viö, vill utanrikis-
ráöuneytiö staöfesta þær eöa
máske vefengja?
Þaö kemur auövitað ekki til
mála aö Bandarikjamenn fái aö
byggja hér upp eina ailsherjar
oliubirgöastöö^þrefalt eöa f jórfalt
stærri en áöur.
Rikisstjórn Islands þarf þegar I
staö aö taka af skariö 1 þessum
efnum. Þjóöviljinn mun siöar
fræöa lesendur sina um sitthvaö
annaö úr þessari eignaskrá
Bandarikjahers. —k.