Þjóðviljinn - 23.08.1980, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 23.08.1980, Blaðsíða 5
Helgin 23.-24. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 í næstu viku byrja fundir í Reykjavík „Heimilið 80” Á föstudag, var opnuö i Laugar- dalshöllinni sýningin „HeimiliQ 80”. Þaö er Kaupstefnan, sem fyrir sýningunni stendur en sýn- ingaraöilar eru um 100. Þarna sýna þeir gestum og gangandi margháttaöa framleiöslu sina og verslunarvörur i 80-90 sýningar- deildum á 4 þús. ferm. svæöi. Undirbúningur sýningarinnar hefur tekiö á annaö ár og a.m.k. 2000 manns hafa komiö þar viö sögu. Starfsmenn eru um 70 tals- ins. Sýningarsvæöiö skiptist i fimm hluta. Eru fjórir þeirra innan húss en einn utan dyra. Hér skal ekki reynt aö sinni aö telja upp allt þaö, sem þarna er til sýnis en benda má á, aö i einum salnum eru margskonar matvörur, gos- drykkir, og eldunaráhöld. I öör- um sportvörur, grilltæki, viölegu- útbúnaöur o.fl. 1 þeim þriöja húsgögn, leiktæki o.fl. Sá fjóröi hýsir heimilistæki, innréttingar, húsgögn, skrautvörur, dagblöö, hljómflutningstæki, fatnað, bæk- ur o.s.frv. Loks er þaö svo úti- svæðiö en þar gefur aö lita báta, sumarbústaði aö ógleymdu tivóliinu en þar kennir nú ýmissa grasa svo sem bilabrautar, tvist- ara, ballerinu, Ringo Star (flug- vélar), hestahringekju, skot- bakka, lukkuhjóla, bangsa- tombólu, aflraunatækja og meira aö segja spákonu. Skildu ekki ýmsir minnast þeirra tima þegar gamla tivóliiö og stelkurinn áttu sér ennþá griöastað i Vatnsmýr- inni? En frá öllu þessu verður nánar greint I næstu viku. Svo veröa náttúrlega allskonar veitingar þarna til reiöu og sér Askur um þær. Er þar úr engu smáræöi aö moða. Þarna verður kinverskt horn og annað italskt, heitir réttir og kaldir af öörum þjóöernum og svo náttúrlega Askborgarinn meö hamborgara. Nóg um þaö i bili. Á það skal bent, aö Flugleiöir veita 25% afslátt á innanlands- fjargjaldi séu miöar á sýninguna keyptir um leiö. Sýningin er opin frá kl. 15.00 til 23.00 alla virka daga og frá kl. 13.00 til 23.00 um helgar. Aö- gangseyrir er kr. 3000 fyrir full- orðna og kr. 1000 fyrir börn. —mhg Utankjörfundaratkvœðagreiðsla BSRB hefst mánudaginn 25. ágúst Mikil fundarhöld eru fyrirhug- uö á næstunni vegna allsherjarat- kvæöagreiöslu meöal rikisstarfs- manna innan BSRB um nýlegan kjarasamning. Að sögn Haraldar Steinþórssonar framkvæmda- stjóra BSRB þá veröa 11 fundir á vegum bandalagsins 1.-3. sept. n.k. viös vegar um landiö. Þá munu aöildarfélög BSRB standa fyrirfundum i Reykjavík og verö- ur fyrsti fundurinn n.k. mánudag, 25. ágúst á vegum Hjúkrunarfé- lagsins. Af öörum fundum i Reykja- vik sem búiö er aö ákveöa má nefna aö kennarar verða meö fund á Hótel Sögu um kvöldiö 1. sept., simamenn veröa meö fund 2. sept. og Starfsmannafélag rikisstofnana veröur meö vinnu- staöafundi á fjölmörgum stöðum. Haraldur Steinþórsson sagöi aö samtals yröi hægt aö kjósa á 56 stööum, en kjördagar hafa verið ákveönir 4. og 5. sept. n.k. Báöa dagana veröur 21 kjörstaöur op- innog þá frá 14-22 þann 4. sept. og frá 13-19 þann 5. sept. Þá veröa opnar kjördeildir á 35 stööum I hinum fámennari byggðarlögum fimmtudaginn 4. sept. kl. 16-19. Kjörstaöur fyrir Reykjavik, Kópavog og Seltjarnarnes veröur iMiöbæjarskólanum I Reykjavik. Einnig verður hægt að kjósa utan kjörfundar á næstu dögum og byrjar utankjörfundaratkvæöa- greiöslan þann 25. ágúst n.k. og ferhún fram á skrifstofu BSRB á venjulegum skrifstofutima. Aö sögn Haraldar er kjörskrá miöuö viö heimilisföng manna en ekki vinnustaði eins og veriö hef- ur. Liklegt er aö ýmsa muni vanta á kjörskrá m.a. vegna þess Framhald á bls. 27 Strandaði A föstudagsmorgun strandaöi erlent leiguskip viö Kópasker er þaö var á leiö þangaö meö 130 tonn af salti. Kom þaö til Kópa- skers einhverntima um nóttina og átti uppskipun aö hefjast um eöa upp úr kl. 8. Skipverjum virtist hinsvegar liggja þaö mikiö á aö þeir biöu ekki lóðsins en stimuöu beint á skerjagarðinn og varö feröin ekki lengri aö sinni. Bátar reyndu aö draga skipiö af skerinu en tókst ekki. Aö þvi er Ólafur Friðriksson, kaupfélagsstjóri á Kópaskeri sagöi okkur er komiö gat á neysluvatnstank skipsins og grunur leikur á um meiri skemmdir. Siöustu fréttir herma aö varö- skipi hafi tekist aö koma skipinu á flot, á flóöinu á föstudags- kvöld. -mhg Flugleiðir Nýír menn á toppinn Visitölumálið: samkvæmt ákvörðun undirnefndar stjórnar BSRB ræddi við ráðherra Á fundi sem forsætisráöherra og fjármálaráöherra áttu í gær meö fulltrúum stjórnar BSRB var itrekuð sú yfirlýsing rikisstjórn- arinnar aö ekki væri til umræöu i rikisstjórninni aö framkvæma gengisbreytingu sem ekki heföi áhrif á visitölu. Fulltrúar BSRB lögöu áherslu á þaö á fundinum aö umsamdar veröbætur á laun veröi undir eng- um kringumstæöum skertar. Minntu þeir á aö stefna banda- lagsins i vfsitölumálum væri óbreytt frá þvi sem áöur heföi veriö og margiterkaö er i ályktunum samtakanna. —þm Þriggja manna undirnefnd stjórnar ásamt Siguröi Helgasyni forstjóra Flugleiöa tók ákvöröun um endurskipulagninguna sem gerð var á toppnum um siöustu mánaöamót þegar þeir Jón Júliusson framkvæmdastjóri stjórnunarsviös og Martin Peter- sen framkvæmdastjóri markaös- sviðs voru látnir fjúka og rekstrarsviöum var fækkaö úr 6 i 4. 1 gær tók Björn Theódórsson viö forstööu markaössviös en viö stjórnunarsviði tók fyrir skemmstu Erling Aspeiund. A blaöamannafundi, sem for- ráöamenn Flugleiöa héldu I gær bar mál Jóns Júliussonar aöeins á góma, en Siguröur Helgason taldi ekki ástæöu til aö ræöa þaö. Hann sagöi aöeins aö róttækar breyt- ingar heföu veriö geröar á toppi fyrirtækisins og verkefni veriö flutt til milli þeirra fjögurra deilda sem eftir eru. örn O. John- son stjórnarformaöur sagöi eftir fundinn i samtali viö blaöamann Þjóöviljans að venjan væri sú aö forstjóri tæki einn ákvaröanir um uppsagnir og ráöningu starfsfólks annars en framkvæmdastjóra. Þaö væri verkefni stjórnar. Hins vegar heföi þetta kerfi reynst „þungt i vöfum” og þvi heföi s.l. vetur veriö samþykkt i stjórninni aö skipa þrjá menn til aö taka slikar ákvaröanir i samráöi viö forstjóra. Þeir eru örn O. John- son, Alfreö Eliasson og Sigurgeir Jónsson. Björn Theódórsson sem i gær tók við framkvæmdastjórn markaössviös hefur aö undan- förnu veriö framkvæmdastjóri fjármálasviös, en viö af honum þar tók i gær Sigurður Helgason' yngri. Hann hefur gegnt stööu forstööumanns hagdeildar Flug- leiöa. Erling Aspelund gegndi áöur framkvæmdastjórn á sviöi hótelreksturs og bilaleigu fyrir- tækisins en tók sem fyrr segir viö framkvæmdastjórn stjórnunar- sviös af Jóni Júliussyni. —AI Í „Svona er að brjóta lögin” I r I klóm Selfosslögreglunnar — hálf flaska af léttu vini gerð upptœk „Einu sinni á ágústkvöidi, austur i Þingvallasveit”, var ort Ihér einu sinni og ævintýrin ger- ast enn. Stefán Haraldsson sagöi okkur frá eftirfarandi ■ ævintýri sem átti sér staö um Isíðustu versiunarmannahelgi þar eystra. Stefán dvaldist i sumarbústað ■ i Grafningnum þessa helgi og Ifékk heimsókn á sunnudags- kvöldinu. Þar voru mættar tvær vinkon- ■ ur hans sem voru meö tjald þar Iá völlunum. Þær buöu honum i mat, sem hann þáöi. Þau sátu i kvöldkyrröinni og grilluöu sér J dýrindis máltið og þegar fór að I rökkva dró önnur sig i hlé til aö I svæfa barniö sitt sem var með i I ferðinni. Þarna sem þau sátu utan viö I tjaldið var dregin upp hálf | flaska af léttu vini, eina viniö I sem meö var i feröinni, en þaö J þarf vartaö taka fram aö nokk- ■ ur gleðskapur og drykkja átti I sér staö þarna á tjaldstæöinu og ■ var margt um unglinga. Allt i einu vita þau ekki fyrr I en á þeim skellur ljósgeisli og I maður kallar: „þarna”. Mættir voru þrír lögregluþjónar, ásamt einum óeinkennisklæddum, sem reyndist vera eins konar fulltrúi þjóögarösvarðar. Skipti engum togum aö flaskan hálfa var gerö upptæk, þó að ekki væri neinar truflanir á almannafæri að ræöa og hæpiö aö kalla staö sem þennan „almanna færi”. Þegar íeröalangarnir kröfö- ust skýringa var þeim sagt að áfengisneysla væri bönnuð inn- an þjóðgarðsins og aö þau gætu vitjaö flöskunnar á þriöjudegin- um eftir verslunarmannahelgi. Stefán komst ekki fyrr en á föstudegi austur á Selfoss, en Þingvellir eru i lögsagnarum- dæmi lögreglunnar þar. Þegar hann baö um fiöskuna varhonum sagtaðhún yröi send Sakadómi sem sönnunargagn. Þegar Stefán baö um aö fá aö sjá skýrsluna um málið var honum tjáö aö ekki væri búiö aö skrifa hana. Þegar hann baö um skýringar var honum svarað: „Svona er aö vera að brjóta lög- in”. „Verkfærið til lögbrots”i (flaskan) eins og slíkt heitir á, lagamáli er sem sagt einhvers' staöar í vörslu yfirvalda, en þeim þremenningunum sem uröu fyrir þessum óvæntu aö- geröum lögreglunnar leikur for- viíni á aö vita hvað þaö kostar yfirvöld að fara i kærumál út af hálfri flösku af léttu vini. Og hvað geti talist saknæmt viö þaö að fulloröiö fólk sitji úti i guös- grænni náttúrunni aö fá sér i glas, þegar þaö truflar ekki nokkurn mann? Stefán sagöi að þegar ung- lingarnir sem i nálægö voru uröu vör viö eignaupptökuna heföi einn komiö og boöið þeim sinn síöasta dropa. Lögreglan haföi ekki nein afskipti af ööru fólki sem þarna var. Stefán sagöist aö lokum biöa spenntur eftir þvi aö veröa kallaöur fyrir Sakadóm þegar flaskan yrði dregin fram i þessu voöalega máli: ákæruvaldiö gegn Stefáni Haraldssyni (nöfn stúlknanna voru ekki einu sinni tekin niður hvað þá meir) vegna neyslu áfengis i þjóögaröinum á Þingvöllum. Sönnunargagn: hálf flaska af léttu vini. —ká

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.