Þjóðviljinn - 23.08.1980, Page 7

Þjóðviljinn - 23.08.1980, Page 7
Helgin 23.-24. ágúst 1980,ÞJOÐVILJINN ^ SIÐA 7 Tvœr af þremur Boeing-þotum seldar Engin hætta á flugvélaskorti segir stjórnarformaður Flugleiða Samgönguráöuneytið hefur ekki gert neinar athugasemdir viö þá ákvöröun stjórnar Flug- leiöa aö selja tvær af þremur Boeing þotum félagsins til Júgó- slaviu og sagöi örn O. Johnsen, stjórnarformaöur félagsins i gær aö ráðuneytið treysti féiaginu sjálfu til þess aö tryggja aö flug- vélakosturinn á hverjum tima annaöi þeim verkefnum sem sinna þyrfti. Samningar um sölu tveggja Boeing-272-100 flugvéla til Júgó- slaviu hafa þegar veriö undirrit- aöir en báöir aöilar hafa frest til mánaöamóta til þess aö endur- skoöa hug sinn. Ef af sölunni veröur fer önnur vélin utan i september en hin ekki fyrr en i mars á næsta ári. Þessar vélar eru sérstaklega útbúnar fyrir vöruflutninga auk farþegaflutn- inga og eru þvi verömeiri og eftir- sóttari en aörar sömu geröar. Aö- eins önnur þeirra var á söluskrá en Orn 0. Johnsen sagöi aö rétt heföi þótt aö ganga aö tilboöi Júgóslavanna i báöar vélarnar enda væri þá unnt aö selja vara- hlutalagerinn meö en slikt væri oft erfiöleikum bundiö. örn sagöi aö á næsta vori, þeg- ar siöari vélin veröur afhent, ætti fyrirtækiö i raun margra kosta völ. Hugsanlegt væri aö festa þá kaup á sams konar vél, jafnvel fyrir lægra verö og þá þéna á söl- unni, þvi verö á eldri flugvélum færi sifellt lækkandi. Eins væri mögulegt aö kaupa aöra 727-200 vél ef góö kjör byöust eöa þá leigja vél af annarri hvorri gerö- inni. Engin hætta væri á þvi aö sala beggja vélanna nú myndi þýöa ónógan flugvélakost i vetur eöa á næsta ári. Ekki eru frekari ráöageröir uppi um sölu flugvéla úr flota fyrirtækisins og veröur aö sögn Siguröar Helgasonar forstjóra reynt aö afla verkefna fyrir DC-8 vélarnar sem sinnt hafa Atlants- hafsfluginu. Eru slik verkefni I sjónmáli. Engu aö siöur þýöir samdráttur i N-Atlantshafsflug- inu uppsagnir áhafna eins og skýrt er frá annars staöar i blaö- inu i dag. DC-10 vélin er í leigu fram i mars 1982 hjá Air Florida. — AI Fifuh vammslandiö: Samningar undir- ritadir næstu daga Ekki þörf á frekari landakaupum í bráð, segir i bókun Alþýðubandalagsmanna í gær var gengið frá afsali fyrir Fifu- hvammslandið sem Kópavogskaupstaður hefur ákveðið að kaupa og verða samningar væntanlega undirritaðir næstu daga. Alþýðu- flokksmenn, sem á bæjarstjórnarfundi 15. ágúst höfðu á orði að slita meirihlutasam- starfi vegna þessa máls hafa ákveðið að láta kyrrt liggja. Eins og skýrt hefur veriö frá f Þjóöviljanum er kaupverö Fifu- hvammslandsins alls 790 miljónir krónaog er þaö um tveir þriöju af fasteignamati jaröarinnar. 1 samningnum er innifaliö aö dráttarvextír vegna vanskila á fasteignagjöldum veröa felldir niöur og bæjarsjóöur endur- greiöir heiming fasteignagjalda 1980. Bæjarfulltrúar Alþýöuflokks- ins, Guömundur Oddsson og Rannveig G uö m undsdóttir lögöust gegn kaupunum en höföu þó áöur samþykkt aö gengiö skyldi til samninga viö eigendur landsins. Lagöi Guömundur til aö atkvæöagreiösla yröi látin fara fram meöal Kópavogsbúa um þetta mál en sú tillaga var felld með 7 atkvæöum gegn þremur. Asmundur Ásmundsson einn þriggja bæjarfulltrúa Alþýöu- bandalagsins sat hjá viö þá atkvæöagreiösiu. Hann furöaöi sig á þvi af hverju slik tillaga heföi ekki komiö fram fyrr frá Alþýöuflokknum og sagöi aö til- löguflutningur á þessu stigi máls- ins værisýndarmennska einkum i ljósi þess aö bæjarfulltrúar Al- þýöuflokksins höföu áöur samþykkt aö kaupa landiö fyrir a.m.k. 600 miljónir. A hinn bóg Framhald á bls. 27 Gott ástand á hörpudiskmiðum í Breiðafirði Kvótinn hækkaður? Rannsóknaskipiö Dröfn er ný- komin úr leiöangri um Breiöa- fjörö þar sem hörpudiskmiöin voru könnuð. Benda fyrstu niður- stööur til þess aö ástand stofnsins sé mjög gott og jafnvel þaö gott að unnt verði að hækka veiöikvót- ann úr 6000 lestum. Leiöangursstjórinn, Hrafnkell Eiriksson, sagöi aö sem betur fer virtist svo sem leyfilegur hámarksafli undanfarin ár hafi fremur verið i lægri kantinum en i þeim hærri og gott ástand mið- anna sé fyrst og fremst aö þakka góöri dreifingu á sókninni. Nú stunda 8 bátar hörpudisksveiöar, allir frá Stykkishólmi en þar eru tvær verksmiðjur sem vinna fisk- inn til sölu á Bandarikjamarkaö. Leidréttíng Slæm villa varö i blaöinu i gær i ályktun herstöövaandstæöinga um Helguvikurmáliö, þar sem oröiö „skaöa” kom i staö „skapa” i 4. töluliö. Rétt er setn- ingin þannig: 4. Það sjónarmiö hefur komið fram aö fyrirhugaðar stórfram- kvæmdir i Helguvik muni veröa Suöurnesjabúum mikil blessun vegna þeirrar atvinnu sem þær skapa. SHA telja hins vegar brýnt að atvinnuuppbyggingu veröi hraöaö á Suöurnesjum og at- vinnulif þar veröi hiö fyrsta gert óháö herstöðinni. Kolmunni i Nigeríu: Góður markaður „Þaö er mjög góöur markaöur fyrir koimunnaskreiö i Nígeríu og mun hærra verö en fyrir ioönu- skreiö, en Norömenn hafa fram- leitt mikiö magn fyrir þennan markaö undanfarin ár'* sagöi Sigurjón Arason hjá Hafrann- sóknarstofnun i samtali viö Þjóö- viljann. Fyrirhugaöar tilraunir stofn- unarinnar á kolmunnaþurrkun hafa dregist i allt sumar, vegna lélegrar kolmunnavertiðar og eins hefur dregist aö rannsóknar- skipiö Hafþór væri tilbúiö til kol- munnaleitarinnar. A laugardag hélt skipiö i sinn fyrsta rann- sóknarleiðangur og mun leita kol- munna fyrir vestan land, en halda austur á bóginn ef ekkert finnst fyrir vestan. „Allur kolmunni sem fæst i þessum rannsóknarleiöangri veröur settur i tilraunavinnslu, en viö munum fletja kolmunnann i okkar húsakynnum en siöan Framhald á bls. 27 Hrafn Gunnlaugsson__ STOKKHÓLMUR Vænst þykir mér um Gamla stan, borgarhluta sem hefur lítiö breytzt síöustu aldirnar; þveng- mjóar götur lagðar höggnum steinum og húsin líkust leik- tjöldum: Kon- ungshöll, kirkjur, skemmtistaöir. Um þessar götur er gott aö reka lappirnar, líta inn á Stampinn, sem er elskuleg lítil djassbúlla, eöa kíkja niöur í gamla klausturkjallarann gegnt Stórkirkjunni sem nefnist Kur- bits og er einn bezti vísna- klúbbur borgarinnar. Og vilji menn harösnúnari sveiflu er Eng- elen frábær skemmtistaöur, þar sem allt er í botni strax eftir sex á kvöldin. Á neöri hæöinni er svo næturklúbburinn Kollingen sem opnar á miönætti. Gamla stan morar í krókum og kim- um þar sem gaman er aö fá sér bjórkollu, eöa bara aö labba um göturnar og skoöa umhverfið líkast ævintýri og mannlífiö sem er hvergi skrautlegra. Eigi ég erindi í íslenzka sendiráöiö á Östermalm, læt ég ekki hjá líöa aö fá mér bita á matstaðnum Muntergök f ná- lægri götu (Grevturegatan), sem Englendingar reka og er trúlega ein vinsælasta krá á Östermalm og mikiö sótt af útlendingum. Full ástæöa ertil að minna á Moderna Museet (Nútímalistasafniö) og Dramaten (Þjóö- leikhúsiö), en per- sónulega hef ég mest gaman af aö sjá sýningar Pistolteatern í Gamla stan. Rétt hjá Dramaten er veitinga- staöurinn KB (Kúnstnerabar) þar sem hægt er aö fá frábæran mat og barinn inn af salnum er einn sá skemmtilegasti í borginni. í næstu götu er lítil bjórkrá sem nefnist Prinsen og er hún mjög vinsæl. Varöandi dansiböll á íslenzka vísu er Bolaget rétt hjá Stortorget, pottþétt. Séu krakkar meö í feröinni eru dýragaröurinn (Skansen) og Tfvolí (Gröna lund) óvenju fallegir staðir. Stokkhólmur er falleg og frjálsleg borg sem minnir á þægilegt baö, aldrei of heit og heldur ekki of köld. FLUGLEIDIR $ %!bbmQ Ef þúhygguráferötil STOKKHÓLMS geturöu klippt þessa auglýsingu útog haft hana með.þaö gæti komiö sér vel.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.