Þjóðviljinn - 10.10.1980, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 10.10.1980, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJllVN Föstudagur 10. október 1980 DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs-, hreyfingar og þjóðfrelsis Ctgefandl: Utgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann RiUtiórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Kjartan ölafsson • Auglýsingastjórl: Þorgeir Olafsson. L'msjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friöriksson. Rekstrarstjórl: Clfar Þormóösson Afireiöalustióri: Valbór Hlööversson Hlaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdótt*r> Mágnús H. Gíslason, Sigurdór Sigurdórssor,. Þingfréttir: porsteinn Magnússon. tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. LJósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elfsson Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Eifas Mar. Safnvöröur:Eyjólfur Arnason. ’.Auglysingar: Sigrföur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Skrifstofa:Guörún Guövaröardóttir. Afgreiösla: Kristfn Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára Siguröardótt ir. Sfmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigrföur Kristjánsdóttir. Bflstióri: Sigrún Báröardóttir.......... Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. J.'Ctkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Gúömundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Sföumtila 6, Reykjavfk, slml 8 13 33. i Prentun: Blaöaþrent hf. Kjarajöfnun í húsnæöismálum • Á síðast liðnu vori var samþykkt á Alþingi ný og viðamikil löggjöf um húsnæðismál. Með þeirri löggjöf var sú stefna mörkuð, að langtum stærri hluti en verið hefur af íbúðarbyggingum á (slandi yrði á komandi árum byggður á félagslegum grundvelli, fyrst og f remst samkvæmt nýjum lagaákvæðum um verkamannabú- staði. Verkalýðshreyfingin hef ur lengi barist fyrir slíkri breytingu, og hin nýja húsnæðismálalöggjöf var sett fyrir forgöngu núverandi ríkisstjórnar, en við ákafa mótspyrnu stjórnarandstæðinga í Sjálfstæðisf lokknum. • f síðustu viku gaf Svavar Gestsson félagsmálaráð- herra út tvær reglugerðir er varða framkvæmd hinna nýju laga. Stefnt er að því að hef ja byggingu allt að 1500 íbúða i verkamannabústöðum á næstu þremur árum og að árlegar íbúðabyggingar í verkamannabústöðum verði innan skamms ekki minna en þriðjungur nýrra íbúða á ári hverju. Með lögunum sem sett voru í vor er Byggingarsjóði verkamanna tryggður verulegur tekju- stof n í þessu skyni og jafnframt heimilað að taka lán til starfsemi sinnar. 9 Heimilt er nú að lána allt að 90% af byggingar- kostnaði úr Byggingarsjóði verkamanna til þeirra sem kaupa íbúð i verkamannabústöðum. Lánin eru til 42ja ára. Byggingarsjóður verkamanna mun einnig lána sveitarfélögum til byggingar leiguíbúða allt að 80% af byggingarkostnaði þeirra. Hlutdeild sveitarfélaga í byggingarkostnaði verkamannabústaða lækkar hins vegar úr 25-30% i 10%, en ábyrgð þeirra á fram- kvæmdunum er aukin nokkuð. • Sveitarfélögum er skylt að kaupa þær íbúðir sem koma til endursölu í verkamannabústöðum f yrstu 30 árin frá því að þær voru byggðar, og síðan gildir forkaups- réttur. Ibúðirnar verða síðan endurseldar til um- sækjenda, sem uppfylla skilyrði til þess að kaupa verka- mannabústaði. Hingað til hafa tekjumörk vegna kaupa á íbúðum í verkamannabústöðum verið mjög ströng, en þau verða nú rýmkuð verulega og má ætla að menn haldi rétti til kaupa á íbúð í hinum nýju verkamannabústöðum þótt árstekjur verði t.d. nú í ár6—7 miljónir króna. • Annað atriði sem verulega aukin áhersla er lögð á í hinum nýju lögum um húsnæðismál er útrýming heilsu- spillandi húsnæðis. Sérstök viðbótarlán verða veitt með hagstæðum kjörum til slíkra íbúða úr Byggingarsjóði ríkisins. Á síðasta ári voru aðeins lánaðar 16 miljónir króna í þessu skyni, en í ár hafa verið lánaðar um 240 miljónir króna til útrýmingar heilsuspillandi i húsnæðr. • Þá hefur verið tekinn upp nýr lánaflokkur til byggingar dvalarheimila fyrir aldraða og til dagvistunarstof nana fyrir börn og er f jármagn til þeirra lána veitt nú í fyrsta skipti. 9 Á undanförnum árum hef ur hið almenna lánakerf i ekki boðið uppá neina möguleika varðandi lán til endur- bóta á eldra húsnæði. Nú verður hér breyting á og nýr lánaflokkur til endurbóta eldra húsnæðis tekinn upp. Með siíkum lánum er ætlunin að stuðla að endur- byggingu eldri bæjarhverfa og m.a. að minnka með þeim hætti þörfina fyrir nýbyggingar. Einnig gera nýju húsnæðismálalögin ráð f yrir því að tekinn verði upp sér- stakur lánaflokkur til orkusparandi endurbóta á hús- næði í þeim byggðarlögum sérstaklega, þar sem kynda verður með olíu eða öðrum álíka dýrum orkugjöfum. Áfram verða svo að sjálfsögðu veitt lán til kaupa á eldri íbúðum. • Samkvæmt hinum nýju lögum kemur síðan til f ram- kvæmda um næstu áramót það ákvæði að almennu lánin úr Byggingarsjóði ríkisins skuli miðast við f jölskyldu- stærð. Þetta er nýtt ákvæði, sem fyrir löngu hefði átt að vera búið að leiða í lög. Með þessu er ætlunin að beina lánunum í vaxandi mæli til þeirra, sem byggja íbúðir af hóflegri stærð og þurfa nauðsynlega á lánunum að halda, en draga að sama skapi úr lánum til þeirra sem byggja vilja mun dýrari og stærri íbúðir en þörf er á miðað við f jölskyldustærð. • öll eru þessi nýju ákvæði við það miðuð að stuðla að auknum jöfnuði í húsnæðismálum og þar með í lífs- kjörum yf irleitt. Vonandi tekst f ramkvæmdin ekki lakar en til var stofnað. — k. Klippt | Ekki nógu ! miklu... IStjórnarandstæöingar mikla fyrir sér veldi Alþýöubanda- lagsins. Morgunblaðiö og Visir t’ klifa á þvi aö Alþýöubandalagið ráöi öllu, og Alþýðublaöiö er aö minnsta kosti á þeirri skoðun að , bandalagið vilji öllu ráöa. ISteininn tekur þó úr þegar Morgunblaöiö er fariö aö eigna Alþýöubandalagsmönnum þessa skoöun: Í„Aldrei hefur gengiö eins erf- iölega aö ná samkomulagi um kaup og kjör milli aöila vinnu- markaöarins og nú, þegar J Alþýöubandalagsmenn segjast j hafa tögl og hagldir á flestum ‘ sviöum þjóölifsins.” Hver segir það, aö komm- Iarnir ráöi öllu? Svo mikiö er vist aö ekki eru þaö Alþýöu- , bandalagsmenn. Þaö er einmitt j| meiniö aö þeir skuli ekki ráða Imeiru. Þá væri margt öðruvisi i henni verslu. Hefndarþorsti IEn hvernig skyldi standa á þvi aö erfiölega gengur aö ná samningum viö atvinnurekend- , ur? Ætli þaö gæti ekki veriö Ivegna þess aö forvigismenn at- vinnurekenda, Daviö Scheving og Kristján Ragnarsson,ætla aö , koma fram blóðhefndinni fyrir Itryggöarof Gunnars Thorodd- sen, sem Geir Hallgrimssyni er um megn aö hrinda I verk á hin- , um pólitlska vettvangi. Hefna ■ skal þess I samningunum sem J hallaöist á þingi. Ætli ekki þaö. I Misskilningur IGuöbergur Bergsson rithöf- undur er alltieinu oröinn mikiö eftirlæti stjórnarandstööublaö- , anna eftir munnviddargrein Isina i Sunnudagsblaöi Þjóövilj- ans á dögunum. Og var kominn timi til aö hann væri litinn réttu , auga i borgarapressunni. IÞaö sem einkum hefur þótt púöur I hjá Gubbergi er tvöfald- ur misskilningur hans á Gerva- , soni málinu, og stendur ekki á Iöðrum aö útbreiöa hann. Fleyg ummæli Guörúnar Helgadóttur um aö hún styddi ekki rik- ■ isstjórn sem sendi Gervasoni i I fransktfangelsi voruhreintekki viöhöfö þegar sýnt var aö hann fengi hér griðland um stundar- sakir. Svo heitt var þá i kolum aö Gervasoni haföi verið fluttur til Keflavlkurflugvallar og beið þar flutnings með fyrstu vél i franskt fangelsi. Þaö munaði ekki nema hársbreidd að em- bættismönnum tækist sú ætlan sln að leysa máliö meö þvi að senda Gervasoni úr landi án þess aö vörnum væri viö komið. A þeirri stundu veitti ekki af aö brúka þá munnvidd sem menn áttu til, jafnvel þótt sú áhætta fylgdi aö einhverju þyrfti að kyngja á móti. þá, sem hann hefur myndaö i - trássi viö þingflokkinn. Ofan á þennan klofning er | liklegt, aö I forsetakosningunum | hafi þjappast saman fimmti m hópurinn, sem sé aö einhverju . leyti ööruvisi en hinir fjórir. | Slikt þyrfti aö reyna aö mæla I | slöari skoöanakönnunum um af- m stööu sjálfstæöismanna. ■ Af öllu þessu má sjá, aö Sjálf- | stæöisflokkurinn riöar á brauö- m fótum. Hann er ekkilengur neitt ^ þjóöfélagsafl og veröur ekki, | fyrr en hann hefur greitt úr I þeim innri flækjum, sem hér m Risi á brauðfótum Við venjulegar aðstæður hefði mátt búast við, að stjórnarandstaða for- manns Sjálfstæðisflokksins og alls þorra þingflokksins mundi leiða til stjórnarandstöðu almennra sjálfstæðis- manna og einangrunar ráðherra flokksins. Klofningur flokksins í afstöðu til ríkisstjórnarinnar hefur nú staðið tæpa átta mánuði. Skoðanakönnun, Ekki leyst Það er einnig misskilningur Guöbergs og sýnu varasamari en sá fyrri, að Gervasonimálið sé farsællega leyst. Hin form- lega brottvisun hans stendur óhögguð og takist ekki að fá henni breytt meö þrýstingi og röksemdafærslu fyrir landvist veröur hann sendur utan i desember. Þetta veröa allir aö hafa i huga og er sist ástæöa til þess aö sofna á verðinum, eba láta lita svo út stilsins vegna að málið sé afgreitt. Klofiö og margklofið Klofningurinn hefur ekki klof- iö neinn frá flokknum enda þótt hann sé i rauninni fimmfaldur. Þetta er niðurstaða Jónasar Kristjánssonar er hann túlkar niðurstöbur skoöanakann’ana Dagblaösins: „Kjósendur Sjálfstæöis- flokksins skiptast raunar I f jóra hópa. t einum eru þeir, sem ekki hafa tekiö afstööu til vandamála flokksins. t öörum eru þeir sem styöja formanninn og eru fylgj- andi stjórnarandstööu hans. t þriöja hópnum eru þeir, sem styöja varaformanninn, en eru andvigir rikisstjórn hans. t fjóröa og langstærsta hópnum eru svo þeir, sem bæöi styöja varaformanninn og rfkisstjórn hefur veriö lýst og sannaöar ■ eru.” Ekki Indriði I gær var tilkynnt um Nóbels- verðlaun i bókmenntum áriö 1980. Þaö vakti undrun og reiði klippara að enn einu sinni var gengið fram hjá Indriða G. Þor- steinssyni viö úthlutun þessarar bókmenntaviöurkenningar. Viö nánari skoðun er þó ekki viö ööru að búast. Sænska aka- demian er sænsk eins og allir vita og hefur aösetur i Stokkhólmi. Og norræni herinn á Islandi hefur i gegnum Norræna húsið og tlðar utan- stefnur ýmsa leyniþræöi sem hann hefur kippt I nú sem endranær. — ekh Indríöi fékk ekki Nóbel hjá sænskum. og sKorrið Rit um leikrit Jökuls Jakobssonar (lt er komin hjá Menningar- sjóöi bók eftir Frlöu A. Sigurðar- dóttur sem nefnist „Leikrit Jökuls Jakobssonar”. Þetta er 38. ritið i bókaflokkn- um Studia Islandica og tilgangur þess bókmenntaleg athugun á leikhúsverkun Jökuls Jakobs- sonar (1933—78). Nær athugun þessi yfir tlmabiliö 1961—78, eöa frá þvi aö höfundur sendi frá sér fyrsta leiksviðsverk sitt Pókókog þar til hann lést. Gerö er tilraun til túlkunar á veruleika leikhús- verkanna og lifssýn þeirra frá túlkunarfræöilegu sjónarmiöi en i þvi samhengi einnig fjallað um útvarps- og sjónvarpsleikrit höf- undar ásamt einþáttungum. Hliö- sjón er og höfö af skáldsögum hans og öörum verkum, aö svo miklu leyti sem telja veröur, aö þau tengist leikhúsverkunum. Aö efni skiptist bók þessi i fimm hluta. Er i inngangi fjallaö um bókmenntalegar skilgrein- ingar leikrita og mikilvægi leik- ritatextans, annar hlutinn fjallar um höfundinn og vinnubrögö hans, þriðji hlutinn er athugun á leikhúsverkum höfundar I tima- röö, fjóröi hlutinn rekur önnur leikrit höfundar en leikhúsverkin, og I fimmta hlutanum er svo gerö grein fyrir listrænum höfundar- einkennum Jökuls, þróun verka hans og þeim lifsveruleika sem þau birta. Loks eru skrár yfir rit Jökuls Jakobssonar, heimildir og tilvitnanir. Bókin er 301 bls. aö stærö, prentuö I Leiftri. Efniságrip fylgir á ensku, þýtt af Hauki Böövarssýni. Ritstjóri Studia Islandica er Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.