Þjóðviljinn - 10.10.1980, Síða 5

Þjóðviljinn - 10.10.1980, Síða 5
Föstudagur 10. oktöber 1980 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 5 Pinochet vinnur ..sigur” I þeim sérkennilegu kosningum, sem voru undirbúnar m.a. meö handtöku 2800 manna og auknum pyntingum I fangelsum. eins uppákoma blasir viö á skerminum. Það mætti til dæmis spyrja: hvaöa stjórn er svo heimsk að hún ekki lofi öllum þegnum öllu fögru? Hvaða fasisk- ur einræðisherra hefur ekki „ver- ið hylltur eins og þjóðhetja” heima hjá sér? Og i þriðja lagi: hvaða vandi er að kveöa niður veröbólgu (sem hefur reyndar verið mikil i allskonar stjórnar- fari i Rómönsku Ameriku) þegar stjórnendur geta velt byröunum af „lækningunni” yfir á þá fátæk- ustu án þess aö nokkur fái rönd viö reist: verkalýðsflokkar hafa verið bannaðir, verkalýðsfélög einnig, og hver sá sem möglar fer i tugthús, gott ef þaö verður ekki murkaö úr honum lifiö. //Sigur" undirbúinn Þaö var að visu viðurkennt, að ekki væri allt meö felldu i Chile. Blaöamaður hafði verið tekinn og laminn til dauöa — en þaö var engu likara en um slysni hefði verið aö ræða. Þaö hefði þó verið útlátalaust fyrir höfunda myndar sem þessarar að geta um það einu orði, að Pinochet undirbjó „þjóö- aratkvæðagreiðsluna” sina (sem myndin kallaöi „sigur”) meö þvi aö herða á ógnarstjórninni. Frá þvi I janúar og fram i ágðst voru um 2800 manns handteknir I Chile og aöeins 85 hafa sloppið út aftur. Höfundar Chilemyndarinnar voru ekki vitund hneykslaöir á fram- kvæmd atkvæðagreiðslu þessar- ar. En það var hinsvegar banda- fangelsum hafi fariö i vöxt. Það átti aö hræöa fólkið til að makka rétt. Auk þess, segir Washington Post, gat enginn óháður aöili fylgst meö, hvorki atkvæöa- greiöslu né talningu atkvæöa. Og þeir sem heima sátu töldust hafa greitt atkvæöi með hinni maka- lausu stjórnarskrá! Allende var verðbólga! Lágkúrulegust varð myndin þegar vikið var aö Salvador All- ende, sem Pinochet og menn hans myrtu I september 1973 og stjórnartið hans. Heimildar- myndin var full af velvilja og skilningi á hinu „efnahagslega frelsi” kapitalismans sem höf- undar telja bersýnilega hér um bil nógu gott i Chilemenn. En það kom ekki fram vottur af skilningi á þvi hvaö vinstristjórn Allendes var að gera. Þvert á moti: þaö var leikiö eitt stef, og það var, að „marxistar” hefðu stefnt öllu I öngþveiti. Stjórn Allendes var verðbólga. Annað veit saklaus áhorfandi ekki. Fátækrahverfin Myndin sýndi hreysi i fátækra- hverfum Santiago. Já, segir þulurinn, þau eru þarna. Þaö voru lika til fátækrahverfi áöur, einnig á dögum Allendes. Vitanlega er það rétt. Chile hefur búiö viö forræöi yfirstétta lengst af sögu sinnar: sá sem hefði búist við aö fátækrahverfi Þó að erlend blöð gagnrýni Pinochet þá er hann hylltur heima hjá sér sem þjóðhetja, sagði þulurinn í sjónvarps- myndinni um Chile sem sýnd var á miðvikudagskvöld. Enda, sagði þulurinn ennfremur, hefur hann komið á efnahagslegum framförum og miklum innflutningi og úrvali neysluvarnings. Að vísu kemur efnahagsþróunin fyrst til góða þeim sem best eru settir fyrir, en stjórnin lofar að öllum skuli líða vel í framtíðinni. Hún ætlar að vinna að framförum öllum þegnum til handa... Þetta var dæmalaust mynd og dæmalaus texti,einskonar undar- leg blanda af barnaskap og lltt duldum áróðri fyrir efnahags- visku Pinochets valdaræningja og lærisveina Miltons Friedmans, sem hafa fengiö að gera nýfrjáls- hyggjutilraunir á Chilebúum með þeim skilmálum sem vesalings Margaret Tatcher vantar: þeir þurfa ekki aö glima við verka- lýðsfélög. Þeir geta skammtað fólki svosem tuttugu þúsund krónur á mánuöi i laun ef þeim sýnist. Hvar skal byrja? Maður veit varla hvar skal byrja og hvar enda þegar önnur landsins hyrfu á aðeins þriggja ára valdaferli Allendes er fifl. Þulurinn sagði: já, við vitum ekki hvort þessu fólki vegnar nú betur eöa verr en á dögum All- endes. Hann átti við ibúa fá- tækrahverfanna. Þetta er lýgi. Þetta getur hver maður vitaö sem kærir sig um. A dögum Allendes fór atvinnuleysi niður I 3% og varö eitt það lægsta I álfunni. Nú herma opinberar skýrslur að það sé 12% — og menn þykjast vita að þaö sé I raun miklu meira. Og tugþús- undir manna hafa flúiö land. íbúar fátækrahverfanna skrimta á fátækraframfæri og góðgerða- starfsemi kirkjunnar. A dögum Allendes var verulega tekið til hendinni i fátækrahverfum, ung- börn fengu mjólk — slikt hafði ekki þekkst áöur. Þegar herinn tók völd tóku ekki aðeins við bar- smiðar, handtökur og pyntingar, sem ööru fremur komu fram ibúum f á t æ k r a h v e r f - anna — barnadauðinn I landinu óx um 18% á aðeins einu ári. Stjórnarskrárbýsn Svo mætti lengi áfram halda. Það heföi lika mátt upplýsa sjón- varpsáhorfendur um það, aö Frei, formaöur Kristilegra demó- krata, sem fékk að halda fund fyrir , ,þjóöaratkvæöagreiðsluna ’ ’ til að erlendir sjónvarpsmenn hefðu einhverja stjórnarandstöðu á filmum (en ekki aögang að rikisfjölmiðlum) — hann veröur aldrei forseti, jafnvel þótt þjóöin vildi. Pinochet situr til 1989. Þá veröur kosið um forseta — en aö- eins um einn mann— menn fá þá aðeins rétt til að segja já eða nei við forsetaefni sem herforingja- stjórnin sjálf hefur valið! Þess- vegna getur Pinochet setið allt til 1997, og þá verður Frei löngu dauöur. 1989 verða kosningar til þings, en enginn má nálægt þeim koma sem „útbreiöir kenningu sem byggir á stéttabaráttu”. 1 landi þar sem vaxandi djúp er á milli rikra og fátækra er umgetning um stéttaátök bönnuð skv. átt- undu grein stjórnarskrár Pinoc- hets. Þar meö eru ekki aðeins sósialistar og kommúnistar dæmdir úr leik I stjórnmálum heldur hver sem yfirvaldiö kýs sjálft að kalla vinstri sinna — eins þótt hann kalli sig kristilegan demókrata og krossi sig i bak og fyrir. ömurlegur skrlpaleikur, sem ekki mun takast, hvað sem llður snilli „strákanna frá Chicago”, sem stjórna efnahagsllfinu I Chile. ríska stórblaðið Washington Post, sem minnti á það I leiðara, að fyrir kosningar hafi Amnesty International borist fregnir um verulega fjölgun á handtökum af handahófi og aö pyntingarnar I Árni Bergmann: Fátækrahverfi I Santiago; æ, vift vitum ósköp lftift um þetta fólk, sagfti þulurinn... Um það segir meira aö segja Washington Post I leiöara eftir hina alræmdu „þjóöaratkvæöa- greiöslu”: „Aöferö Pinochets er dæmd til ósigurs. Hún er ofbeldi sem vekur upp ofbeldisandóf, sem mun njóta umburðarlyndis ef ekki virks stuönings þjóöarinnar”. Aliende; menn fengu ekki annaft að vita en aft marxisminn væri verftbóiga. r ÓDÝRAR " BÓKAHILLUR fáanlegar úr eik og teak og furu Stærð: Hæð 190 cm Breidd 90 cm Dýpt 26 cm Verð aðeins kr. 79.900,- Opið föstudag frá 9-7 laugardag 9-12 Húsgagnadeild JH Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Simi 10600 Sjónvarpsmynd um Chile: — veruleiki og yfirborð

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.