Þjóðviljinn - 14.10.1980, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 14.10.1980, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 14. október 198«. Ragnar Arnalds jjármálaráöherra: Ábyrgð á 10 mQjörðum án öruggra trygginga Eiga skatt- greiðendur að taka slíka áhœttu á sig? Vegna nokkurra æsingaskrifa I Morgunblaðinu nú um helgina um bréf fjármálaráðuneytisins til Flugleiða h.f. og vegna mikils misskilnings sem viröist rikja um samþykkt rikisstjórnarinnar, sem gerð var um Flugleiðamálið 16. september s.l.,vil ég taka fram eftirfarandi: t samþykkt rikisstjórnarinnar 16. september s.l. var ákveöið að veita Flugleiðum h.f. bakábyrgð rikisins allt aö einum og hálfum milljarði isl. króna,sem svaraði til þeirra tekna sem rikissjóöur hefur haft árlega af Atlantshafs- flugi Flugleiða. Með þessum hætti sleppa Flugleiðir við öll gjöld og skatta af þessum rekstri og er þaö fullkomlega eðlilegt, meðan félagið glimir viö stórfelldan tap- rekstur á þessari flugleið. Enginn vafi er á þvi, að viö þetta loforð verður staðiö. En rétt er að menn geri sér grein fyrir, að nú er allt annaö uppi á teningnum. Nú er ekki að- eins farið fram á, að rikissjóður felli niöur skatta og gjöld af At- lantshafsflugitheldur er hug- myndin sú, að öll upphæðin komi til greiðslu úr rikissjóði á næstu mánuðum. Það sem áður hét bak- ábyrgð er nú orðiö aö beinum styrkjagreiðslum úr rikissjóði. Ég get ekki fallist á þessa Nielsen ræðismaður látínn Harald Nielsen, vararæðis- maður íslands i Fredericia i Dan- mörku,andaðist hinn 30. septem- ber s.l.. Ragnar Arnalds: Ahætta islenska rikisins, ef trygg veð fást ekki, samsvarar öllum áætluðum eignaskatti á islensk félög og ein- staklinga á næsta ári. stefnubreytingu frá fyrri sam- þykkt rikisstjórnarinnar. Væntanleg bakábyrgð rikisins verður að taka mið af raunveru- legum rekstri félagsins á kom- andi vetri og getur ekki orðið blind styrkjastarfsemi. 1 öðru lagi er þess krafist til viðbótar, sem ekki lá fyrir þegar samþykkt rikisstjórnarinnar var gerð, að rikissjóöur taki á sig ábyrgð á lántöku Flugleiða h.f. aö upphæð 6 milljarðar isi.kr., en fyrr á þessu ári tók rikissjóður ábyrgð á þriggja milljarða lán- töku félagsins. Vonandi eru ekki margir sem ætlast til þess i fullri alvöru,að rikissjóður axli ábyrgð af lántök- um upp á 10 þúsund milljónir króna á fáum mánuðum, án þess að tryggilega sé gengið úr skugga um, að þessi skuldabaggi falli ekki á islenska skattgreiðendur i náinni framtið. Upphæöin nemur um 250 þúsund krónum á hverja fimm manna fjölskyldu i landinu, og sist ættu menn að gleypa slikar ábyrgðarbeiðnir hráar, þegar haft er I huga, að fyrirtækiö hefur tapað um 13 milljörðum isl.kr. á aðeins einu og hálfu ári. Ég hef áður lýst þvi yfir, að Flugleiðir h.f. eigi vel fyrir skuld- um miðað við endurmetið verð eigna. Hins vegar verð ég að benda á, aö það er mikil blekking að telja fólki trú um, að hægt sé að jafna saman veðhæfni eigna og endurmetnu verði eigna. Fyrir rúmum mánuði lýstu for- stjóri Flugleiða h.f. og sam- gönguráðherra, Steingrimur Her- mannsson, þvi yfir i sjónvarpi, að Atlantshafsflugið væri fjárhags- lega vonlaust fyrirtæki. Þvi mið- ur hef ég enga aðstöðu til að dæma um, hvort svo sé. En vegna islenskra skattgreiðenda verður einhvers staðar aö draga linuna, hvar stuöningur rikisins byrjar og hvar hann endar. Annar meiri hluti á Alþingi getur þá breytt þeim dómi. Ég tel sjálfsagt aö veita Flug- leiðum umrædda bakábyrgð i samræmi viö fyrri samþykkt rikisstjórnarinnar. Ég tel að for- ystumenn Islenskra flugmála hafi unnið merkilegt brautryðjenda- starf á undanförnum árum og ég óska Flugleiðum h.f. góðs gengis I erfiðri samkeppni á flugi yfir At- lantshaf. Hins vegar er best að hafa það á hreinu, að ég er ekki reiðubúinn að samþykkja, að rikissjóður taki á sig margra milljarða rekstrar- tap Flugleiða h.f. vegna flug- reksturs, sem hvorki forstjóri félagsins né samgönguráðherra hafa trú á. Skuldabaggi rikis- sjóðs, sem fyrir er, er sannarlega nógu stór og þarf að minnka á næstu árum fremur en að stækka. Abyrgð rikissjóðs á nýjum lán- tökum Flugleiöa h.f. hlýtur aö byggjast á þvi, aö islenskir skatt- greiðendur hafi allt sitt á þurru með þvi að örugg veð séu sett fyr- ir væntanlegum ábyrgðum rikis- ins. Þvi miður er fjárhagsstaða félagsins á þann veg i dag, aö þetta er meö öllu útilokaö nema félagið breyti eignum sinum að einhverju leyti i laust fé, og breytir þar engu, þótt Morgun- blaðið æpi meö stóryröum að mér eða öðrum. Þetta er forystu- mönnum Flugleiða sjálfum full- ljóst eins og sjá má af bréfi þeirra til samgönguráðherra 1. október s.l.,þar sem þeir benda á hvaða eignir og hlutabréf þeir telja hag- kvæmast að selja. Að sjálfsögðu veröur félagið sjálft að ákveða, hvað verði selt og hverju það hættir til. Vill það halda Atlantshafsfluginu áfram i samræmi við tilboö rikisstjórnar- innar frá 16. september og taka þá áhættu sem þvi fylgir? Abyrgðinni og áhættunni má ekki velta yfir á skattgreiðendur. A það hefur veriö bent i þessu sambandi að rikisstjórn Luxem- burgar muni leggja fram einn og hálfan milljarð vegna Atlants- hafsflugs Flugleiða. En gera menn sér grein fyrir þvi, aö áhætta islenska rikisins,ef trygg veð fást ekki, yrði sjö sinnum meiri.eða tiu og hálfur milljarö- ur. Þaö samsvarar öllum áætluð- um eignaskatti á einstaklinga og islensk félög á næsta ári. t Flugleiðamálinu hefur þjóðin horft upp á ýmsar kollsteypur og óvænt skoðanaskipti, sem að sjálfsögðu tengjast óskum og vonum þess mikla fjölda manna, sem bundiö hefur vonir sinar við áframhaldandi rekstur Atlants- hafsflugsins. Kjarni þessa máls er sá, að treysti forysta Flugleiða h.f. sér ekki til þess að taka ábyrgð á At- lantshafsfluginu án þess að veita byrðinni yfir á rikissjóö umfram það sem felst i samþykkt rikis- stjórnarinnar frá 16. september s.l., þá er tómt mál að tala um framhald á þessu flugi, sem vissulega bæti stefnt flugsam- göngum tslendinga við önnur lönd i mikla hættu, ef illa tækist til. Ragnar Arnalds Prestkosning verður i Ásprestakalli sunnudaginn 19. október 1980. Kjöríundur heí'st kl. 10 árdegis i Lang- holtsskóla og lýkur kl. 23. Enní'remur verður starfrækt kjördeild i Hrafnistu og hefst kjörfundur þar kl. 10 og lýkur kl. 16. Sóknarnefnd. Línumenn Félagsfundur verður haldinn laugardag- inn 18. okt. kl. 14.00 i Félagsmiðstöð raf- iðnaðarmanna Háaleitisbraut 68. Fundarefni: Kjaramálin Kosning fulltrúa á 34. þing ASÍ. Mætið vel og stundvislega. Stjórn Félags islenskra linumanna. Kvennaráðstefnur SÞ Kvenstúdentafélag tslands byrjar vetrarstarf sitt með hádegisverðarfundi næstkomandi laugardag, 18. október 1980, i veitingahúsinu Torfunni við Lækjargötu, og hefst hann kl. 12:30. Þar mun Vilborg Harðardóttir fréttastjóri segja frá kvenna- ráðstefnum Sameinuðu þjóðanna, sem haldnar voru í Mexikó árið 1975 og nú i sumar i Kaupmannahöfn, en Vilborg var i sendi- nefnd islands á báðum ráðstefnunum. Annar hádegisverðarfundur er ráðgerður i nóvember,og verða þar væntanlega rædd skattamál kvenna. Að venju verður svo haldinn jólafundur i byrjun desember þar sem 25 ára stúdinur frá M.A. ánnast dagskrá. A hádegisfundinum næstkomandi laugardag munu liggja frammi tillögur um merki fyrir félagið. Samskipti skordýra og plantna Jón Gunnar Ottósson mun I kvöld flytja erindi á vegum Lif- fræðifélags tslands, sem hann nefnir „Arásar- og varnarbrögð í eilífðarstriði — rannsóknir á samskiptum skordýra og plantna”. Erindið er byggt á rannsóknum Jóns Gunnars við háskólann í Exeter, Englandi, en þar hefur hann verið við doktorsnám að undanförnu. Menn hafa löngum velt fyrir sér hvað valdi þvi, að jurtaætur gangi ekki svo á gróður jarðar, að hann hætti að risa undir þvi lifi, sem á honum byggir. Jurtaætur búa yfir griðarlegum eyðingarmætti eins og mörg dæmi sanna, en þrátt fyrir það eru grænar plöntur rikjandi lifverur á jörðinni. Vafalaust eiga rán- dýr, sniklar ýmisskonar og veðurfar sinn þátt I að verja plöntur með þvi að koma i veg fyrir að jurtaætum fjölgi um of. Hins vegar er ástæöa til þess að ætla að plöntur eigi afkomu sina að miklu leyti undir eigin varnaraðferðum, sem með þeim hafa þróast. Jón Gunnar mun einkum fjalla um burkna og skordýrafánu þeirra i fyrirlestri sinum, sem verður fluttur i stofu 158 i húsi verkfræði- og raunvisindadeildar, Hjarðarhaga 2—4 og hefst kl. 20.30. öllum er heimil aðgangur. Menningar- og vísindasamvinna L Síðast liðinn föstudag var með erindaskiptum gengið frá sam- komulagi við Israel um samvinnu á sviöi vísinda. Ólafur Jóhannesson utanrikisráðherra undirritaði fyrir Islands hönd og Hava Hareli sendiherra fyrir hönd ísraels. Á ðalfundur SÁÁ í kvöld Aðalfundur Samtaka áhugafólks um áfengisvandamáliö verður haldinn i kvöld i Kristalssal Hótel Loftleiða og hefst kl. 20.30. Auk venjulegra aðalfundastarfa og almennra umræðna um starfsemi S.Á.Á. mun Jóhannes Bergsveinsson yfirlæknir fjalla um stöðuna i áfengisvarnarmálum á Islandi i dag. S.A.Á. starfrækir nú sjúkrastöð að Silungapolli, eftir- meðferðarheimili að Sogni, ölfusi, fræðslu-og leiðbeiningastöð i Lágmúla, 9, Reykjavik i samvinnu við Afengisvarnadeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavikurborgar, kvöldsimaþjónustu (simi 81515) alla daga ársins frá kl. 17:00 til 23:00 daglega. Enn- fremur gefur S.A.A. reglubundið út Timarit S.A.A. og kynn- ingarpésa um áfengisvandamálið. Fulltrúar S.Á.A. mæta á fundum, i félögum og skólum til umræðna um áfengisvanda- málið og til kynningar á þeim leiðum sem S.A.A. beitir i starfi sinu, auk þesssem almennstarfsemiS.A.A. errædd. Námskeið Ananda Marga Tvönámskeið munu verða haldin á næstunni á vegum Ananda Marga. Annað hefst næstkomandi fimmtudag 16. okt. kl. 20.30 I húsnæði NLFÍ að Laugavegi 20 b 3. hæð,og er það fyrir kvenfólk á öllum aldri og er haldiö á vegum kvennasamtaka Ananda Marga. A námskeiði þessu veröa teknar fyrir likamsæfingar, afslöppunaræfingar, jurtafæði, hugleiðsla og sitthvað úr heim- speki jóga ofl. Hitt námskeiðið er almennt námskeið (fyrir bæði kyn) þar sem aðaláhersla verður lögð á praktiskar jógaæfingar og hug- leiðslu og hefst þriðjudag 21. okt. kl. 20.30. á sama stað. Bæði námskeiðin verða eitt kvöld vikulega i sex vikur og eru ókeypis. Þátttaka tilkynnist i simum 17421 eðá 23588. Fundur snyrtifræðinga Félag Islenskra snyrtifræðinga heldur fræðslu- og skemmti- fund fimmtudaginn 16. október I Súlnasal Hótels Sögu. Fund- urinn hefst kl. 20.30, en húsið verður opnað kl. 19.30. Meðal atriða er skartgripasýning, tiskusýning og „fanta- siu”-förðun. Kynntir verða nýjustu haust-og vetrarlitir og einnig verður vörusýning. Kynnir verður Heiðar Jónsson snyrtir. Natóstyrkir til frœðirannsókna I frétt frá utanrikisráðuneytinu er skýrt frá, aö Nató muni að venju veita nokkra styrki til fræðirannsókna i aðildarrikjum bandalagsins á háskólaárinu 1981—1982. Markmið styrkveiting- anna er að stuðla að rannsóknum og aukinni þekkingu á mál- efnum er snerta aðildarriki Atlantshafsbandalagsins og er stefnt aö útgáfu á niðurstöðum rannsóknanna. .J

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.