Þjóðviljinn - 14.10.1980, Side 5
Þriðjudagur 14. október 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Nóbelsverdlaunaveitingar:
Argentínskur baráttumaður fvrir mann-
réttindum fékk friðarverðlaunin í ár
Veiting f riðarverðlauna
Nóbels í ár er með þeim
hætti lík veitingu bók-
menntaverðlaunanna í
fyrri viku, að verðlaunin
fallaekki í skaut þeim sem
mest hafa verið við þau
orðaðir í fjölmiðlum.
Friðarverðlaunanef nd
norska stórþingsins ákvað
i gær, að verðlaunin, 880
þús. norskar krónur,
skyldu ganga til argen-
tínsks baráttumanns fyrir
mannréttindum, Adolfo
Perez Esquivel.
Margir voru til verðlaunanna
nefndir, þeirra á meðal Carter
Bandarikjaforseti fyrir að hafa
komið á svonefndu Camp David
samkomulagi milli Israels og
Egyptalands og Robert Mugabe,
forsætisráðherra Zimabwe og
Carrington lávarður, utanrikis-
ráðherra Breta, fyrir hlut þeirra i
þvi, að afriskur meirihluti ibúa
Zimbabwe skyldi koma til valda
með tiltölulega friðsömum hætti.
Meðal annarra sem til voru
nefndir eru þau Alva Myrdal.
lengi aðalfulltrúi Svia við af-
vopnunarviðræður I Genf og svo
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna.
Sat sjálfur i fangelsi
Verðlaunaveitingin i ár er að
sumu leyti hliðstæð veitingu
friðarverðlauna Nóbels til
sovéska kjarnorkueðlisfræöings-
ins Andreis Sakharofs fyrir
nokkrum árum. 1 báðum tilvikum
er á því byggt að friður sé meira
en að vopn þegi, snar þáttur af þvi
að slikur friður sé annað og
meira en biðstaða milli vigbúinna
fylkinga sé efling mannréttinda.
Hinn argentiski verölaunahafi,
sem er arkitekt og myndhöggvari
að menntun og list, hefur undan-
farin sex ár helgað sig mann-
réttindastarfi i landi sinu. Hann
veitir forstöðu samtökum i
Buenos Aires sem vinna að
mannréttindamálum og leitast
við að tryggja réttlæti og lausn
mála án ofbeldis. Þessi samtök
nefna sig Þjónustu friðar og rétt-
lætis I rómönsku Ameriku og eru
kristileg hreyfing.
Talsmaður friðarverðlauna-
nefndar Norska þingsins hefur
haft þau orð um Esquivel, að
hann hafi ,,sýnt ljós i myrkri” of-
beldis- og grimmdarverka sem
land hans hrjá. Hann berjist fyrir
endurreisn virðingar fyrir mann-
réttindum og fyrir bættum orðstir
sins föðurlands út úm heiminn.
Sjálfur var Adolf Perez Esquivel
handtekinn af herforingjastjórn-
inni i Argentinu árið 1977 fyrir
baráttu slna, en ári siðar var
honum sleppt úr haldi eftir að
Amnesty Internatinonal hafði
tekiö mál hans að sér.
Hörmulegt ástand
Það er að sjálfsögðu engin til-
viljun að einmitt argentiskur
vinur mannréttinda er heiðraður
með þeirri viðurkenningu sem
friöarverðlaun Nóbels eru.
Argentina hefur búið um
nokkurra ára skeið við eitt hið ill-
ræmdasta stjórnarfar i Suður-
Ameriku. Þar hafa stjórnvöld
stundað einkennilegan feluleik
með ofbeldisverk, sem einkum
beinast gegn vinstrisinnuðum
andstæðingum þeirrar her-
foringjakliku sem þar fer með
völd. 1 orði kveðnu standa stjórn-
völd ekki i þvi að handtaka póli-
tiska andstæðinga. Hinsvegar
hafa i Argentinu „horfið”
þúsundir manna, og er svo látið
heita að það gerist vegna átaka
„öfgaafla til hægri og vinstri”
sem stjórnvöld fái ekki við ráöið.
I raun og veru er sú aðferð viö-
höfð, að óeinkennisklæddir lög-
reglumenn annast þessi mann-
rán. Þeir flytja fórnarlömb sin i
leynileg fangelsi sem stjórnvöld
kannast ekki viö. Af þeim fang-
elsum fara margar hryllilegar
sögur sem m.a. Amnesty Inter-
national hefur safnað, um pynt-
ingar og aðra herfilega meðferð á
föngum. Einatt lýkur þeim harm-
kvælum á þvi, að flogið er með
fangana á haf út og þeim hent i
hafið. —áb
Þrír skiptu með sér lœknisfirœðiverðlaunum:
Þeir útskýra hvernig
mannslíkaminn ver sig
Þrír ónæmisfræðingar
skipta með sér Nóbels-
verðlaununum í læknis-
fræði í ár. Þeir hafa hver í
sínu lagi lagt fram veiga-
mikinn skerf til skilnings á
þeim eigindum líkams-
stakk búnir til að ráða niður-
lögum bakteria og veira.
Erfiðir líffæraf lutningar
Starf antigena er varnarkerfi
likamans, það felst i þvi, að
frumur likamans þekkja hver
aðra, kannast við hvaö er likt með
þeim og hvað ólikt og geta ýtt á
brott eða drepið aðskotafrumur
eða frumur sem hafa afmyndast
með einum eða öðrum hætti.
Margbreytileiki þeirra er mikill:
Þau koma fyrir i meira en
hundrað miljónum samsetninga.
En það er einmitt þessi mikla
margbreytni sem gefur til kynna
gifurlega erfiðleika við að láta lif-
færaflutninga takast — nema að
svo vel vilji til að hægt sé að flytja
vefi milli eineggja tvibura, þeir
hafa samskonar ónæmiskerfi.
Ónæmisfræðin er tiltölulega ný
grein innan læknavísinda, en
þetta er i þriðja sinn sem oddvitar
hennar eru heiðraðir með Nóbels-
verðlaunum i læknisfræði. Aður
hefur það gerst 1960 og 1972
V erslunarmannaf élag
Suðurnesja
Stjórn- og trúnaðarmannaráð félagsins
hefur ákveðið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu um kjör 5 aðalfulltrúa
félagsins og 5 til vara á 34. þing A.S.í. sem
haldið verður i Reykjavik dagana 24.-28.
nóv. n.k. Framboðslistum sé skilað til
formanns kjörstjórnar. Matta ó. Ásbjörns-
sonar Hringbraut 95 Keflavik, eigi siðar
en fimmtudaginn 16. okt. n.k. kl. 24.00.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Verslunarmannafélags
Suðurnesja.
Herstöðvaandstæðingar
Landráðstefna herstöðvaandstæðinga
verður haldin á Akureyri 18. og 19. októ-
ber. Ráðstefnan mun hefjast ki. 13.00
laugard. 18. og áætlað er að henni ljúki kl.
16.00 sunnud. 19. okt.
Mikilvægt er að þeir sem áhuga hafa á að
mæta tilkynni þátttöku sina sem fyrst. 1
Reykjavik til skrifstofu SHA i sima 17966
eða i sima 71060 e. kl. 7.00 Á Akureyri i
sima 96-25745. Guðmundur Sæmundsson.
Athugið, hópferð verður frá Reykjavik.
Samtök herstöðvaandstæðinga.
Baruj Benacerraf
George Snell.
frumanna sem stjórna
hæfni líkamans til að
þekkja og ,,viðurkenna"
eigin frumur, en hafna
utanaðkomandi efnum og
f rumum.
Hinn elsti þessara manna,
George Snell, er bandarískur.
Hann er á áttræðisaldri,en samt
er hann enn i fullu fjöri sem
visindamaður. Þegar á 4. ára-
tug aldarinnar lagði Snell grund-
völl að þekkingu okkar á hæfi-
leika likamans til að skilja á milli
þess sem tilheyrði honum og þess
sem var honum framandi. Snell
komst að þvi, að möguleikinn á að
yfirfæra liffæri frá einum likama
til annars er takmarkaður vegna
svonefndra antigena, sem , eins
og siðar kom i ljós, er að finna á
ytra borði frumanna.
Uppgvötanir þremenninganna
hafa haft mikil áhrif á fram-
kvæmd liffæraflutninga, t.d.
nýrna- og hjartaflutninga. Þær
hafa einnig skipt miklu fyrir
örugga greiningu á vissum
sjúkdómum, t.d. psoriasis, sykur-
sýki.einnig greiða þær leið þeirra
sem vinna að samsetningu bólu-
efnis gegn veirum.
Hinir yngri Nóbelsverðlauna-
hafar eru Jean Dausset, Ifanskur,
og Baruj Benacerraf.sem fæddur
er i Venesúela en starfar i Banda-
rikjunum. Báðir hafa gert ýmsar
uppgvötanir sem lúta að arfgengi
ónæmiseiginleika, t.d. hefur
Benacerraf einkum gefiö
skýringar á þvi, hvers vegna ein-
staklingar eru misjafnlega i
FLUGLEIDIR
NÝTT SÍMANÚMER
FRÁ 12. OKTÓBER:
SKIPTIBORÐ - INNANLANDSFLUG
26011
FARPANTANIR - INNANLANDS
OG UPPLÝSINGAR
26622
FLUGLEIÐIR
• Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
Onnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI53468
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Ole Chr. Andreassen
vélstjóri
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 15.
október kl. 13:30.
Sofie Andreassen Markan
Hugo Andreassen
Erling Andreassen
barnabörn og barnabarnabörn.
Rolf Markan
Guðrún Karlsdóttir
Kristin Egilsdóttir