Þjóðviljinn - 31.10.1980, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 31.10.1980, Blaðsíða 7
Föstudagur 31. október 1980 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 7 Anna Einarsdóttir og Sólveig Halldórsdóttir i hlutverkum sinum I Kóngsdótturinni. Þær beita táknmáli, tali og látbragósleik, þannig aó allir geti skilió, hvort sem þeir heyra eöa heyra ekki.. Ljósm.: —eik. ifl FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR j|| DAGVISTUN BARNA, FORNHAGA 8 SIMI 27277 F orstöðumannastöður Staða íörstöðumanns við Dagvistunar- heimilið við Hálsasel og staða forstöðu- manns við skóladagheimili við Blöndu- bakka eru lausar til umsóknar. Fóstru- menntun áskilin. Laun samkvæmt kjara- samningi borgarstarfsmanna. Umsóknar- frestur um báðar stöðurnar er til 15. nóvember. Unisóknir sendist til skrifstofu Dagvistunar, Fornhaga 8, en þar eru veittar nánari upplýsingar. Allur akstur krefst varkárni Ytum ekki barnavagni á undan okkur við aðstæður sem þessar ||UMFERÐAR Síniinn er 81333 Frumsýning hjá Alþýðuleikhúsinu Kóngsdóttirin sem kunni ekki að tala Alþýöuleikhúsiö frumsýnir I Lindarbæ kl. 3 á sunnudaginn leikritiö um kóngsdótturina sem kunni ekki aö tala. Þaö er eftir finnsku skáldkonuna Christina Andersson og segir frá ungri kóngsdóttur sem er heyrnarlaus og er alltaf heldur döpur af þvi aö hún getur ekki talaö viö neinn. Tveir ungir menn fara á stúfana til aö leita aö málinu handa henni og á leiöinni lenda þeir I ýmsum ævintýrum. Þeir kumpánar sem heita Vilfreö og Alfreö vilja báöir eignast kóngsdótturina, en hún vill auövitaö bara eiga sig sjálf. 1 sýningunni er notaö táknmál, auk talaös máls og látbragös, og á þeim sem heyrnardaufir eru aö reynast auövelt aö skilja þaö sem fram fer. Þaö er llka merkileg reynsla fyrir þá sem kunna ekki táknmál aö sjá hvernig þaö er notaö og okkur sem heyrum er hollt aö kynnast þvi hvernig þaö er aö heyra ekki. Leikritiö er ævintýraleikur viö hæfi allra aldurshópa og þaö er ætlunin aö blanda saman á sýningunum þeim sem heyra og þeim sem ekki heyra, en einnig er á dagskrá Alþýöuleikhússins aö fara á dagheimili og f skóla og sýna þar auk sýninga á laugar- dögum og sunnudögum i Lindar- bæ. Hægt er aö hafa samband viö leikhúsiö og panta sýningu. Þaö var Þórunn Siguröardóttir sem þýddi leikritiö og hún er einnig leikstjóri. Leikendur eru Anna Einarsdóttir, Helga Thor- berg, Ragnheiöur Arnardóttir og Sólveig Halldórsdóttir. Leik- myndina gerir Guörún Auöuns- dóttir og þaö er sannkallaö ævin- týri aö horfa á brúöurnar og búningana aö ekki sé minnst á drekann ógurlega sem kem'ur viö sögu. Leikararnir uröu aö læra tákn- mál til aö geta komiö leiknum til skila og þaö voru þau Vilhjálmur G. Vilhjálmsson og Berglind Stef- ánsdóttir sem kenndu. — ká Nokkur heyrnardauf börn og foreidrar þeirra horföu á æfingu hjá Alþýöuleikhúsinu á leikritinu um kóngsdótturina sem kunni ekki aö tala. Ljósm.: —eik. Tilkynning til trillubáta- eigenda í Reykjavíkurhöfn Af öryggisástæðum og til hagræðingar fyrir hafnaryfirvöld vill hafnarstjórinn i Reykjavik beina þeim tilmælum til trillu- bátaeigenda er hafa báta sina i Reykja- vikurhöfn að fjarlægja þá úr höfninni eigi siðar en 15. nóvember 1980. Hafnarstjórinn / i Reykjavik Blaðberabíó Flagð undír fögru skinni I gamanmynd i litum og með isl. texta. Fyrir alla fjölskylduna. Sýnd i Hafnarbiói i nk. laugardag kl. 1. | Þjóðviljinn ! simi 81333. Auka- syningar á * r I öruggri borg Tvær aukasýningar veröa enn á litla sviöinu i Þjóöleikhúsinu á leikriti Jökuls Jakobssonar „1 öruggri borg” sem frumsýnt var sl. vor og hefur verið sýnt nú á haustmánuöum. I leikritinu fjallar Jökull um gamalkunnugt efni, gestinn sem kemur i heimsókn og hreiörar um sig á heimilinu. Hann er róttækur i oröum og vill ýmsu breyta, en þegar breytingarnar fara aö snerta hann sjálfan kemur annaö i hljóö I strokkinn. Leikritiö kemur j inn á þær umræöur sem einkennt hafa siöustu ár, stööu konunnar, ástand heimsmála, byltingu eöa óbreytt ástand. 1 lokin er tekin ótviræð afstaða sem ekki er rétt að greina frá. Þaö eru þau Helga Bachmann, Þorsteinn Gunnarsson, Bessi Bjarnason, Briet Héöinsdóttir og j Erlingur Gislason sem leika. Sýningarnar veröa á sunnudag • kl. 15 og á þriöjudag kl. 20.30. ! — ká i Spennandi og hrollvekjandi ný litmynd. — Það getur verið dýrt spaug að þiggja heimboð hjá Girly... Bönnuð innan 16 ára — íslenskur texti VANESSA HOWARD — MICHAEL BRYANT Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.