Þjóðviljinn - 31.10.1980, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 31.10.1980, Blaðsíða 16
DJOÐVIUINN Föstudagur 31. október 1980 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tlma er hægt aö ná i blaðamenn og aöra starfsmenn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 8iz85, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af- 81333 81348 greiöslu blaðsins I sima 81663. Blaðaprent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81663 Dagsbrtinarmenn á fundi f Austurbœjarbiói i gær. DAGSBRÚN SAMÞYKKTI A félagsfundi verkamanna- félagsins Dagsbrúnar i gær voru kjarasamningarnir samþykktir meö öllum þorra atkvæöa gegn 5. A fundinum voru samn- ingarnir skýröir og siöan var fyrirspurnum svaraö. Eövarö Sigurösson form. skýröi sér- samning Verkamannasam- bandsins og rammasamning ASÍ, en Guömundur J. Guömundsson varaform. fjall- aöi um félagsmálapakka rikis- stjórnarinnar. Aö sögn Eövarös Sigurös- sonar var þetta góöur fundur, sæmilega sóttur og margar fyrirspurnir komu fram. Fundurinn hófst kl. 5 og lauk um 7.15. — ká. Úr félagsmálapakkanum: 1100 miljónir tU dagvistunarmála t félagsmálapakka rikis- stjórnarinnar sem opnaöur var nú I vikunni var loforö um 1100 miljdnir króna til dagvisturnar- mála. Hvaö á aö gera viö þá pen- inga og duga þeir til aö bæta úr þvi ófremdarástandi sem ríkir i dagvistarmálum? Sú spurning var lögð fyrir Þröst ölafsson i fjármálaráðuneytinu. Þröstur sagöi aðhjá þeim lægju fyrir beiðnir um 1400-1500 mil- jónir til dagvistarstofnana um allt land. Þaö segði þó ekki alla söguna þvi margar þeirra eru enn aðeins hugmyndir, sveitafélögin eru að láta vita af sér, þó aö framkvæmdir séu ekki hafnar. Hluti fjármagnsins fer i skuldir, þvi skuldasúpan er mikil. Það verða þvi aðeins takmarkaðar upphæðir sem renna til nýrra stofnana og ógjörlegt að gera sér grein fyrir þvi hve margar þær verða. Þröstur sagðist vilja benda á, aö á undanförnum árum hefðu fjárveitingar til dagvistar- mála stóraukist af hálfu rikisins. Arið 1978 var veitt 180 miljónum til dagvistarmála, 1979 360 miljónum, á fjárlögum þessa árs 550 miljónum og 1981 1100 mil- jónum,svo sem áöur segir. Það er hins vegar ekki rikið eitt sem á heldur, sveitafélögin verða aö leggja fram sinn skerf og þaö veltur ekki sist á þeim hvort tekst aö bæta ástandið. Þröstur var spurður um þa 10 ára áætlun sem minnst er á i yfir- lýsingu rikisstjórnarinnar og sagði hann aö það ætti eftir að móta hana, sennilega kæmi það i hlut nefndarinnar sem undirbjó félagsmálapakkann. Það hefði verið rætt um þaö að reyna nýjar leiðir, ekki að miða eingöngu við gæslu heima eða á dagheimilum, en það væri allt á umræðustigi. Hjá Svandisu Skúladóttur i Menntamálaráðuneytinu fengust Framhald á bls. 13 42% dauðsfalla karla vegna kransæðasjúkdóma eða slags • og 38% dauösfalla kvenna • Færri dauösföll af völdum krans- æöasjúkdóma á síöustu árum vegna breytinga á matarœöi? Síldveiðarnar í reknet: Yfir 20 þús lestir Síldveiðum I reknet er nú sem kunnugt er lokið og varð heildarafli reknetabáta 20.290 lestir en það magn sem þeir höföu leyfi til að veiöa var 18.000 lestir, en nær ógerlegt er að stöðva veiöarnar á þeim punkti. Afli hringnótabáta til þessa er oröinn 8.700 lestir, en þeir hafa leyfi til að veiða 32þúsund lestir. Segja má að hringnótaveiðarnar séu aðéins rétt að byrja, til aö mynda er enginn af þeim 50 lóðnuveiðibátum, sem fengu leyfi til sildveiöa, byrjaöur veiöar. Leyfi til reknetaveiöa höfðu 64 bátar og munu þeir allir hafa nýtt leyfi sitt. Þá fengu 50 loðnubátar leyfi til sildveiða og má hvert skip veiða 150 iestir og loks fengu svo 92 hringnótabátar sem ekki tilheyra loðnu- skipahópnum leyfi til veiða og má hver bátur veiða frá 240 til 275 lestir. — S.dór 9% hækkun A fundi sinum i gærmorgun samþykkti rikis- stjórnin tillögur gjaldskrár- nefndar um 9% hækkun á gjaldskrám Pósts og sima og Hitaveitu Reykjavlkur. Einnig var samþykkt 9% hækkun á strætisvagnafar- gjöldum i Reykjavik. A timabilinu 1976-79 voru 42% allra duðsfalla h já körlum og 38% hjá konum af völdum kransæða- sjúkdóma og sjúkdóma i heila- æðum (slags). Þetta kom fram i erindi dr. Bjarna Þjóöleifssonar læknis á aðlfundi Hjartaverndar i gær. Hann fjallaði um dánartiðni af völdum kransæðasjúkdóma og sjúkdóma i heilaæðum 1951-1979. Kransæðasjúkdómar byrjuðu að aukast upp úr 1950 og urðu að faraldri hjá körlum.sem náði há- marki 1968-75. Aukningin var mest hjá körlum yngri en 70 ára eða um 140%, en um 40% hjá eldri en 70 ára. Efitr 1975 hefur dregið úr kransæðasjúkdómum. Ef timabilið 1977-’79 er borið saman við 1968-’75, hefur dregið úr sjúk- dómnum um 20% hjá körlum yngri en 70 ára, en um 10% hjá Frá umræðum á fundi Hjartaverndar I gær. I ræðustól á litlu myndinni er Gunnar Sigurðsson. — Ljósm. — gel — eldri en 70 ára. Tiltölulega litil breyting hefur orðið hjá konum, um 20-30% aukning á öllu tima- bilinu 1951-79. A árinu 1979 dóu 290 karlar úr kransæðasjúkdómum hér á landi, þar af 84 undir 65 ára aldri. 184 konur dóu 1979 úr kransæðasjúk- dómum, þar af 23 undir 65 ára aldri. Hagstæðari breytingar hafa orðið á dánartiðni af völdum slags. Stöðugt hefur fækkað dauðsföllum af slagi, tiltölulega, hjá báðum kynjum ailt timabilið og mest sl. 10 ár. ■ Ýmsir þættir i fari einstaklings eða likamseinkenni auka likurnar á þvi að hann fái kransæðasjúk- dóm. Helstu áhættuþættirnir eru: Hátt kolesteról (blóðfita), hár blóöþrýstingur, vindlingareyk- ingar og tegund atvinnu, þ.e. kyrrsetumönnum virðist hættara við kransæðasjúkdómum en erfiðismönnum. —eös. Óli Óskars RE afla- hæstur á lodnunni All góö loðnuveiði hefur verið að undanförnu á Halamiöum og tilkynntu 33 skip um samtals 23 þúsund lestir sl. miðvikudag og i gær tilkynntu 9 skip um 7 þúsund tonna afla. öli öskars RE er aflahæsta skipið á vertiðinni nú, kominn meö 9.600 lestir en Grindvlkingur GK mun vera næstur meö 8.300. Heildaraflinn er kominn I 210 þúsund lestir, en sem kunnugt er hefur heildarmagniö sem leyft veröur að veiða af loðnu nú minnkaö úr 650 þúsund lestum niöur i 460 þúsund lestir vegna hinnar uggvænlegu niðurstööu rannsókna norskra og islenskra fiskifræðinga á stærð loðnu- hrygningarstofnsins I haust. Vegna þess aö nú er kvóti á hvert loðnuskip, hafa þau byrj- að veiðar á misjöfnum tima og eru sum loðnuskipin rétt aö hefja veiðar um þessar mundir, að sögn Andrésar Finnbogason- ar hjá Loðnunefnd. — S.dór. VR samþykkti samningana A fundi I Verslunarmannafélagi Reykjavikur, sem haldinn var i fyrrakvöld voru hinir nýgerðu kjarasamningar samþykktir mótatkvæðalaust. Magnús L. Sveinsson formaður félagsins skýrði samningana itar- lega og urðu mjög litlar umræður um þá að ræðu hans lokinni. Fundurinn var f jölmennur.-S.dór. 38. þing INSÍ í dag: Hvernig verður starfs- þjálfun iðnnema tryggð? Starfsþjálfun iðnnema i þvi nýja skipulagi iðnfræðsl- unnar sem nú er tekið við og réttur til framhalds að grunnnámi loknu er meðal brennandi mála sem rædd verða á 38. þingi Iðnnema- sambands tslands sem hefst i dag. Einnig er búist við 'heitum umræöum um kjara- mál i ljósi nýgerðra kjara- samninga og rædd verða félagsmál iðnnenta og al- menn þjóðmál. Þingið sækja um 90 full- trúar iðnnemafélaga viðs- vegar að af landinu með alls um 3000 félaga. Það verður sett i Iðnskólanum i Reykja- vik kl. 17 af formanni INSl, Birni Kristjánssyni, en siðan flytja gestir ávörp. Þá verða ræddar skýrslur fyrir liðið starfsár og ályktanadrög lögð fram. Á laugardag verða mála- flokkar þingsins ræddir i umræðuhópum, en af- greiddirá sunnudag og lýkur þinginu þá siðdegis með kjöri i trúnaðarstöður fyrir næsta starfsár. Þingið er opið öllum iðn- nemum, sem vilja fylgjast með þvi, meðan húsrúm leyfir. —vh að salta í 176.000 tuirnur Sildarsöitun er haldið áfram af fullum krafti á Austfjörðum, þótt rekneta- veiðum sé nú lokið. Nóta- veiðarnar halda hins vegar áfram. Samkvæmt upplýsingum Einars Benediktssonar hjá Sildarútvegsnefnd var á miðvikudagskvöld búið að salta i 176.000 tunnur. Eins og kom fram i Þjóðviljanum i gær er búið að tryggja sölu á 230.000 tunnum af sild, svo að enn er eftir að salta i yfir 50.000 tunnur til að framleiða upp i þá samninga sem þegar hafa verið gerðir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.