Þjóðviljinn - 14.11.1980, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 14.11.1980, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 14. nóvember 1980. Akranes þarf að tengjast Vesturlandi betur en nú er Svo sem áður hefui fram komið hér í blað- inu, flytja þingmenn Vesturlands tillögu til þingsályktunar um, að gerð verði athugun á hagkvæmustu sam- gönguleiðum um Hval- fjörð. Skúli Alexanders- son flutti ræðu um málið um daginn og sagði þá m.a.: Einum mikilsveröum* þætti sam- gangna viröast áætlunarmeistar- ar vegageröar næstum gleyma, en þaö er tenging milli byggöa innbyröis i hverjum landshluta. Hjá okkur d Vesturlandi hefur þessi þáttur gleymst svo alger- lega i sambandi viö samgöngur á milli byggöarlaganna á noröan- veröu Snæfellsnesi, aö i vegamál- um hefur bókstaflega ekkert ver- iö gert til nýbyggingar frá Fossá viö Ólafsvik um Grundarfjörö aö vegamótum Stykkishólmsvegar viö Skjöld i áraraöir. Grundvallarsjdnarmiöiö viö at- hugun á samgöngum um Hval- fjörö þarf fyrst og fremst aö vera bættar samgöngur Vesturlands viö Akranes meö styttri leiö en mi er og samtenginu viö samgöngu- leiö Akurnesinga viö Reykjavik, sem þá tengdist lausn á bættum sagði Skúli Alexandersson í umræðum um samgöngur um Hvalfjörð þingsjá samgöngum milli Akraness og Reykjavikur. Þaö má fara mörg- um oröum um nauösyn þess fyrir byggöir Vesturlands aö tengjast Akranesi betur en nií er, ekki aö- eins nágrannabyggöir Akraness heldur allt kjördæmiö, Vestfiröir og Strandir einnig og Noröurland vestra. Haustiö 1971 flutti ég tillögu hér á alþingi, um endurskipulagningu sérleyfisferöa. I þvi sambandi ræddi ég um samgöngur viö Akranes: ,,N æststærsti kaupstaöur landsins utan Reykjanessvæöis- ins og Vestmannaeyja, Akrane's, er skilinn eftir eins og eyja i úthafi án nokkurrar samtenging- ar viö þaö svæöi, sem kaup- staðurinn ætti og þyrfti aö vera i samgöngutenglsum viö. A Akra- nesi er fullkomiö sjúkrahiís og mjög góö heilbrigöisþjónusta. Þar er margs konar iönaöur. Akranes býöur upp á fjölbreytta verslun, fjölbreyttari en á nokkr- um öörum staö á Vesturlandi. Meö bættum samgöngum og þar meö stækkuðu viöskiptasvæöi gæti verslunoröiö fjölbreyttari og söluumsetning aukist. Sama er aö segja um iönaö o.fl.. Slik þróun er mjög æskileg og hagstæö fyrir ibúa Akraness og alla Vestlend- inga.” Þetta sem ég sagöi þá fyrirum áratug er allt eins enn, en að auki þeirra atriöa sem ég taldi upp þá ernúkominn fjölbrautaskóli, sem þjóna á öllu Vesturlandi, en sam- göngur frá Vesturlandi til Akra- ness hafa heldur versnað á þessu timabili en þar hafi einhver fram- þróun oröiö. Ég tel aö fyrri nefnd i þessu máli hafi gefiö leiöinni yfir eöa undir Hvalfjörö frá Innra- Hólmi aö Saurbæ innan viö Hnausasker eöa um þá leið allt of litinr. gsum Ég tel aö um þá leiö eöa I nágrenni hennar þurfi fram- tiðarleiðin um Hvalfjörö aö vera, ef einhverjar breytingar eiga að eiga sér staö frá núverandi sam- göngukerfi. Þá um leiöyröi Vest- urlandsvegur lagöur yfir Leirvog hjá Súlunesi fyrir framan Akra- fjall, um Akranes aö ferju eða brúarstaö eöa gangnastaö i aö- eins 8 km fjarlægö frá Akranesi. Ferjustaöur eöa leiö yfir Hval- fjörö innar meö firöinum breytir litlu i þá átt að tengja byggöir Vesturlands saman, mundi jafn- vel gera Akranes enn einangraöra miöaö viö samgöng- ur við Vesturland en þaö nú er. Þessi skoöun min 'Dl-eyilsi i engu þó aö einhverjar hafnarframkvæmdir séu komnar nú aö Grundartanga. Ég tel aö staðsetning ferju á þvi svæöi sé til litilla bóta fyrir okkur Vestlend- inga og til enn þá minni bóta fyrir samgöngutengingu viö Akranes og Reykjavik. Leið yfir Hvalfjörð á öörum staö en ég hef hér lagt áherslu á kæmi til meö aö koma okkur á Vesturlandi til góöa aö einhverju leyti og sjálfsagt er hægtaöreikna þar á ýmsum stöö- um þetta og þetta mikla arösemi umfram það sem hægt væri aö reikna þá leiö, sem færi yfir Hval- fjörö þaö utarlega sem tæknileg- ar og veröurfarslegar aöstæöur frekast leyföu. Þvi utar viö fjörö- inn þvi hagstæðari yröi þó leiöin jafnan fyrir meginhluta Vestur- lands og alla umferð noröur og vestur. Þaö er reyndar ekki um mikinn mun aö ræöa en nokkurn þó. Ég tel aö þótt horfiö veröi aö þvi ráöi aö byggja upp sam- gönguleið yfir Hvalfjörö meö ferjum veröi eftir sem áöur aö byggja góöan veg inn fyrir fjörö- inn. Mætti sá vegur vera lengra á veg kominn en nú er, en þaö er annar kapltuli. Ég taldi rétt aö þessi skoöun min kæmi hér fram á alþingi. Sjálfsagt eru skoöanir skiptar Skúli Alexandersson milliokkar sem flytjum þessa til- lögu hvaöa leiöir skuli velja og jafnvel getur sú skoöun verið uppi, aö óbreyttri stefnu skuli halda. Viö erum þó sammála um þaö að óska þess aö enn veröi gerö athugun á þessu máli. Ég vil aöeins taka f ram þar sem sagt er i tillögunni aö gerö veröi at- hugun á hagkvæmustu sam- gjönguleiðum um Hvalfjörö, aö ég lít svo á, aö oröiö hag- kvæmustu sé þarna breiðrar merkingar og taki til félagslegrar hagkvæmni eigi slöur og jafnvel frekar en fjármálalegrar hag- kvæmni eða arösemi I þvl tilliti. Spá- nýir vara- þing- menn I gær tóku sæti á alþingi tveir varaþingmenn sem ekki hafa setið á þingi áður, Vestfirðingur inn Gunnar R. Pétursson rafvirki fyrir Sighvat Björgvinsson og Sigurgeir Sigurbsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, fyrir Ólaf G. Einarsson. Einnig tók Ragnhildur Helgadóttir sæti á þingi að nýju, i þetta sinn fyrir Birgi Isleif Gunnarsson sem fer á allsherjar- þing Sameinuðu þjóðanna i New York. Frá söngksemmtun Fóstbrseöra. Síðasta söngskemmtun F óstbræðra Haustskemmtunum Karlakórs- ins Fóstbræöra fyrir styrktar- félaga kórsins er nú að ljúka. Siöasta skemmtunin veröur næst- komandi laugardagskvöld i Fóst- bræöraheimilinu og hefst hún kl. 20.00. Þaö er Þorgeir Ástvaldsson sem stjórnar skemmtuninni, en á dagskrá eru ýmiss konar atriði og dansinn dunar til kl. 3. Miðar verða afhentir og tekið á móti pöntunum á föstudag og laugar- dag milli kl. 17.00 og 19.00 I Fóst- bræöraheimilinu, Langhoitsvegi 109. Vatnsfötusöfnunin: 234 þús. pund Vatnsfötusöfnunin, sem m.a. fór fram hér á landi á sl. ári, hefur skilað af sér um 234 þús. sterlingspundum, þar af 12 þús frá tslandi. Búið er að verja 111 þús. pundum af þessari upphæð til ýmissa verkefna, m.a. til vatnsveituframkvæmda i löndum eins og Indlandi, Sri Lanka, Kenya, ýmsum hlutum Vestur-Afriku og Pérú. Þá hafa og verulegar fjárhæbir runniö beint frá ýmsum samvinnusam- böndum til einstakra verk- efna en um þaö liggur enn ekki fyrir heildaryfirlit. —mhg Siminn er 81333 MOWIUINN Eskifjarðarbær auglýsir til sölu einbýlishús. Húsið er forskalað timburhús, hæð með risi og kjallara. Nánari upplýsingar veitir Bæjarstjórinn Eskifirði, i sima 97-6175, 97—6170. Utboð — jarðvinna Stjórn Verkamannabústaða i Reykjavik óskar eftir tilboðum i jarðvegsskipti i hús- grunna i hluta af 3. byggingaráfanga á Eiðsgranda. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu VB Suðurlandsbraut 30 gegn 50.000 kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 25. nóvember kl. 15.00. Stjórn Verkamannabústaða i Reykjavik. Blaðberabió Hin heimsþekkta ævintýramynd Robinson Crusoe um landshornaflakkarann sem lenti á eyðiey... Þjóðviljinn. S. 81333. Allur akstur krefst varkárni Ytum ekki barnavagni á undan okkur við aðstæður sem þessar il%F /IFERÐAR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.