Þjóðviljinn - 14.11.1980, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 14.11.1980, Blaðsíða 15
 M Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum, frá © lesendum : Hvað er nú orðið okkar starf? Fyrir þann sem lifaö hefur og man stjórnmálalega þróun þjóOarinnar frá siöustu aida- mótum: heimastjórn 1904, sjálf- stæöi 1918 og full slit viö Dan- mörku 1944, veröur margt at- hugavert og umhugsunarvert á þessari 80 ára göngu þjóöar- innar, og ber þar raunar lang- hæst árin frá lýöveidisstofnun. Þangað til var látlaus og svo- til hnökralaus sókn á hendur Dönum um sjálfstæöi þjóöar- innar. Og viö lýöveldisstofn- unina 1944 var ekki annað séö en allir stæöu einhuga og heilir aö þvi máli. En eftir striöslok fer aö draga á loft teikn sem ekki virtust boöa hnökralausa leiö framundan. Bandarikin, sem höföu hér her á ófriðarárunum, neituöu aö flytja herinn burt, þótt skýrt væri tekiö fram i samningi aö hann færi. 1 stað þess aö fara kröföust þeir her- stööva í 99 ár. 1 fyrstu fengu þeir afsvar, en svo fóru rikisstjórn- irnar aö makka við Bandarikin og létu svo heita aö þeir væru alltaf að vinna sem best fyrir þjóöina. En þjóöinni reyndist, að þvi lengur sem þeir þvældu, festist þjóðin æ meir i herneti Bandarikjanna. Og þegar leyniskjöl utanrikis- þjónustu Bandarikjanna birtust, blasir við augum hin sanna mynd af þeim ráða- mönnum sem þjóöin haföi viö stjórnvölinn uppúr lýöveldistök- unni. Sjálfur forsetinn, Sveinn Björnsson.er dreginn fram sem undirlægja Bandarikjanna. Forsætisráöherrarnir Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson koma fram sem hréinir leppar: Þeir ráögast viö bandariska sendiherrann um framkvæmdir i innanrikismálum, og ekki sist um hvernig þeir eigi að blekkja þjóöina svo hún sætti sig viö bandarisk yfirráð. Og ekki má gleyma kratabroddunum og fyrrverandi foringja þeirra Benedikt Gröndal. Þaö hnitur hart við hjarta manns sem lifði meö og man þá kynslóö sem háöi siöustu orrustuna um frelsi þjóöar- innar, aö lifa nú aö afkomendur þeirra- kynslóðar gerast auömjúkir þjónar margfalt öflugra og hættulegra yfir- gangsrikis. Og öll þeirra fram- koma og starfsemi fyrir þetta riki getur ekki kallast annað en landráö. Þessir menn eru orönir svo hallir undir erlent stórveldi aö þeir telja það hreint sálu- hjálparatriöi að i landinu sitji erlendur her, og eru búnir að villa svo fyrir þjóöinni að þeir gátu ginnt mikinn hluta hennar til að biöja um ævarandi setu erlends hers á landinu og þar með ævarandi yfirráö erlends stórveldis. . Janvel ungmennafélögin, sem risu upp úr aldamótunum og rituðu á skjöld sinn „Islandi allt” og börðust ötullega i siöustu lotunni viö Dani, eru nú þögnuö. Eöa var þetta baráttu- markmið: aö skilja viö Dani til aö skriöa i skjóliö hjá USA? Öhamingja og skömm þeirra forystumanna ungmenna- félaganna er mikil, sem leitt hafa félögin frá þvi aö vera vak- andi og virk vörn á þjóöfreslis sviöi i misjafnlega virk íþrótta- félög, sem aö visu eru nytsam- leg, en hitt er þó mikilsveröara aö æskan veröi vakandi og virkur verndari þjóöarverö- mæta og játist aldrei baráttu- laust undir erlend yfirráö. Þótt viöurkenna veröi, aö allt frá 30. mars 1949 hefur barátta hernámsandstæöinga verið alltof lin og árangurslitil, þá má ekki gefast upp i baráttunni fyrir frelsi þjóöarinnar úr her- fjötrum. Þaö vekur vonir, aö nú viröist unga fólkiö vera að átta sig á hvilik svivirða þaö er þjóö- inni og auömýking að þola her hér á landi. Viö skulum þvi vona, aö þótt ástandiö sé svart þá sé ljósara framundan, þvi ,,ef æskan vill rétta þér örvandi hönd, þá ertu á framtiðarvegi”. Mikiö væri þaö gleöilegt, ef UMFl bættist i hópinn sem vill brjóta sviviröu herfjötranna. Glúmur Hólmgeirsson Barnahornið Umsjón: Jónas og Birgir. Jónas og Birgir kveðja Með þessum vígalega kastala kveðja Jónas og Birgir, sem verið hafa umsjónarmenn Barna- hornsins að undanförnu. Þeir eru samt alveg til í að koma einhverntima aftur með meira efni. Og hvernig er með ykkur hin? Enn hefur enginn gef ið sig fram til að taka við af Jónasi og Birgi. Nú er farið að dimma snemma og krakkar verða að vera inni miklu lengur en í sumar — er þetta ekki einmitt rétti tíminn til að skrifa og teikna i Barnahornið? Brandarar Kobbi litliátti að skrifa Birgir Gilbertsson og Jónas Ingi Ragnarsson, 3.L I Laugarnesskóla, sem láta nú af störfum umsjónarmanna Barnahornsins. Reykjavík. Og símanúmerið er 8- 13-33. Hringið, skrifið eða komið til okkar með ef ni í Barnahornið! Hugsið um það, krakkar! Og munið að utanáskrift- in okkar er: Þjóðviljinn (barna- hornið), Síðumúla 6, ritgerð um bíla og átti ritgerðin að vera 300 orð. Ritgerðin hans varð svona: „Frændi minn keypti sér bíl. Einn daginn ók hann útaf, og bíllinn fór í klessu. Þetta eru 16 orð. Orðin sem vantar í rit- gerðina eru þau sem frændi sagði, þegar hann var að labba heim.”. Hvaða orðeruþetta? Gátuö þiö fundiö oröin sem hann Steinar Logi ruglaöi stöf- unum i? Hérkoma réttu svörin: Steinar, Pabbi, Rok, Ofnæmi, Blindskák, Mysingur, Heimili, Rósa, Forseti, Afi, Kjúklingur, Mús. Föstudagur 14. nóvembér 1980. ' ÞJÓDVILJINN — SIÐA 15 Silvia Pinai og Fernando Rey f hlutverkum sinum I Viridiana. Átök góðs og ills Viridiana, hiö heimsþekkta listaverk spænska kvik- SÍÓnVarP myndastjórans Luis Bunuel, , f _ _ JT er á dagskrá sjónvarpsins i '( jV Kl. 22.40 kvöld. . Luis Bunuel geröi Viridiana á Spáni áriö 1961, i samvinnu viö mexikanska aöila. Myndin olli gifurlegu fjaörafoki á Spáni, var bönnuö og þar aö auki notuö sem tylliástæöa til aö hindra aöra leikstjóra (Saura ofl.) i aö gera kvik- myndir um langa hriö. Þetta fjaðrafok er auðskiliö: Franco og kaþólska kirkjan réöu öllu á Spáni á þessum árum og Bunuel var hatrammur and- stæöingur þeirra og fór ekkert i felur meö þaö. Aöalhlutverkin i myndinni leika Silvia Pinal og Fernando Rey, en auk þeirra koma viö sögu FranciscoRabal, Marga- rita Lozano ofl. Tónlistin er eftir Hándel: Hallelújakórinn úr Messiasi. Viridiana er dæmisaga um átök góös og ills, þar sem hiö illa fer meö sigur af hólmi, aldrei þessu vant. Myndin ber þess ýmis merki aö höfundur hennar er upprunninn úr súr- realismanum, hún er uppfull af táknum og raunsæi hennar er grimmara en þetta hvers- dagslega raunsæi sem viö erum vönust. En Bunuel er ekki lengur hreinræktaöur súrrealisti þegar hann gerir myndina, og þess ná einnig sjá merki — Viridiana er ofin úr ýmsum þráöum. —ih Flokkspólitík, Fær eyjar og fleira Flokkapólitik i verkalýös- baráttunni er eitt helsta máliö af innlendum vettvangi i Fréttasnecli siónvarpsins I kvöld. Rætt veröur viö Aöalheiöi Bjarnfreösdóttur, formann Sóknar, um reynslu hennar af ihlutun stjórnmálaflokkanna l kosningar á siðasta ASÍ-þingi. Einsog menn muna var Aöal- heiöur þá i framboði til vara- forseta. Forsetaframbjóð- endurnir Asmundur Stefáns- son og Karvel Pálmason munu siöan skiptast á skoöunum i sjónvarpssal um áhrif stjórn- málaflokkanna innan verka- lýöshreyfingarinnar. Þá veröa tekin til athugunar lána- og greiöslukjör þeirra sem eru aö festa sér húsnæöi i fyrsta sinn. Rætt veröur viö ungt fólk sem er aö koma sér upp þaki yfir höfuöiö, og enn- fremur viö Hallgrim Snorra- son hagfræöing hjá Þjóöhags- stofnun. Erlend málefni veröa einnig i speglinum aö venju. Rætt veröur um stjórnmála- ástandiö I Færeyjum aö af- stöönum kosningum til Lög- þingsins. tJrslit kosninganna kynnu aö leiöa til stjórnar- skipta I Færeyjum. Einnig veröur fjallaö um hungur- verkfall fanga I Belfast á Aöalheiöur; Ræöir um flokka- pólitik i ASl. jQ. Sjónvarp O kl. 20.50 Noröur-trlandi, og stuttlega um stjórnmál og óöld á Jamaica, þar sem kosningar voru fyrir skömmu og CIA tókst aö koma á „hægri- sveiflu”. Stjórnendur Fréttaspegils eru Bogi Agústsson og Guöjón Einarsson. —ih Vinir okkar allra Alltaf finnur maöur sér eitt- hvaö til aö nöldra yfir. Nú er búiö aö færa vini okkar allra, Prúöu leikarana, aftur fyrir nýja þáttinn A döfinni, sem er einskonar útibú frá fréttatima og auglýsingatima. Þaö má kannski segja aö tiu minútur séu ekki langur timi, en þær geta veriö þaö þegar maöur er mjög ungur og mjög syfjaöur eins og flestir bestu vinir #Sjónvarp kl. 20.50 Prúöu leikaranna eru svona seint á föstudagskvöldum. En Prúöu leikararnir eru semsé á dagskrá i kvöld, fyrir þá sem geta vakaö og beöiö. —ih

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.