Þjóðviljinn - 06.12.1980, Side 3
Itelgin 6.—7. desember 1980 ÞJÖÐVILJINN — StÐA 3
()í,ijur Haukur Amaowraw
merkió sem ávallt tryggir
vándaóri og betri bækur
Líney Jóhannesdóttir
Aumingja Jens
Saga um misheppnaöan iistamann? Saga þriggja
kynslóða? Vægöarlaus samtíðarlýsing? Kvenna-
saga? Ekkert af þessu og allt í senn - og miklu
meira. Þó er ytri efnisumgerð aðeins líf sex persóna
i sömu götunni einn vetrarpart. Þetta er göldrótt
og margþætt skáldsaga, rituð af beyglausri til-
finningu og mikilli ratvisi.
VERÐ KR. 13.710. FÉLAGSVERÐ KR. 11.650.
Ólafur Haukur Símonarson
Galeiðan
Tímabær og vel gerð nútíma skáldsaga um verk-
smiðjustúlkur á vinnustað og i einkalífi. Lesandi
slæst í hóp stúlkna sem vinna í dósaverksmiðju og
lifir með þeim súrt og sætt fáeina daga. í bókinni
birtist glöggt það galeiðumynstur sem lif þeirra er
hneppt í, en á þessum dögum gerast einníg atburð-
ir sem gætu breytt lífi þeirra, a.m.k. reynist sam-
staða þeirra vonum meiri þegar i odda skerst...
VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540.
Guðlaugur Arason
Pelastikk
Nýstárleg og skemmtileg skáldsaga sem gerist á
sjónum eitt síldarsumar á 6. áratugnum. Lifandi
lýsing á heimi sjómannsins, séðum með augum
átta ára drengs sem fær að fljóta með einn túr og
siðan annan og enn annan. Vel skrifuð bók sem
hefur fengið mjög lofsamlega dóma gagnrýnenda.
VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540.
Dee Brown/Magnús Rafnsson
Heygðu mitt hjarta við
Undað Hné
Þessi bók, „Bury My Heart at Wounded Knee“, kom
fyrst út i Bandaríkjunum árið 1970 og sló öll fyrri
sölumet. Þarna var gerbyIt viðteknum hugmyndum
um margrómað timabil í bandariskri sögu, og erfitt
var að véfengja þær sagnfræðirannsóknir sem að
baki lágu. Auk þess þótti bókin afburða listaverk.
Bókin er prýdd fjölda Ijósmynda af helstu indiána-
foringjum sem koma við sögu og henni fylgja ræki-
leg kort og nafnaskrá.
VERÐ KR. 19.760. FÉLAGSVERÐ KR. 16.795.
Ernest Hemingway/Stefán Bjarman
Hverjum klukkan glymur
Frægasta skáldsaga Hemingways, sem gerist á
Spáni á tímum borgarastyrjaldarinnar. Andstæður
lifs og dauða, ástar og haturs i samþjöppun þriggja
daga að baki víglinu fasistaherjanna. Höfundi
hefur þótt takast undra vel aö sýna i hnotskurn
spænskt þjóðlíf og hugsunarhátt á þessum örlaga-
riku tímum og opna baðan viðari útsýn.
VERÐ KR. 19.760. FELAGSVERÐ KR. 16.795.
Marek Hlasko/Þorgeir Þorgeirsson
Áttundi dagur vikunnar
„Það er gengið hreint til verks i þessari stuttu
skáldsögu. Hvergi slegið úr og í ... Hér er hvergi
athvarf að finna, hvorki fyrir hugsjónir né vonir né
heldur ævintýrið mikla, ástina, sem þau Agnéska
og Pietrek setja á allt sitt traust. Umhverfi og hugar-
ástand persónanna verða eitt i þessu magnaða riti
kornungs pólsks höfundar sem heldur undarlega
vel áhrifamætti sínum i blaséruðum heimi“. Á.B.
Þjv. 23/11.
VERÐ KR. 9.880. FÉLAGSVERÐ KR. 8.400.
William Heinesen/Þorgeir Þorgeirsson
Það á að dansa
Spánýtt safn eftir hinn aldna færeyska snilling,
með nýjum sögum frá Þórshöfn. Bókln kemur út
samtimis á dönsku og islensku, fjórða bókin í
sagnasafni Heinesens i þýðingu Þorgeirs Þorgeirs-
sonar. Hér segir frá ástarkvölum Fabians unga, frá
fordæðunní og prestaflennunni Teodóru, frá trúar-
fári og ofstopa i sögunni Aðventa og titilsagan
segir frá sögulegu brúðkaupi á hinni afskekktu
Stapaey, þar sem skuggalegir atburðir urðu, skip-
brot, strandrán, meira að segja brúðarrán! Óvið-
jafnanleg bók sem gefur fyrri verkum Heinesens
ekkert eftir.
VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540.
Einar Olgeirsson/Jón Guðnason
Island í skugga
heimsvaldastefiiunnar
Þessi bók rekur örlagarikustu atburði fslands-
sögunnar á þessari öld og gefur innsýn i það sem
gerðist á bak við tjöldin. Dregnar eru upp persónu-
legar svipmyndir af ýmsum stjórnmálaleiðtogum
sem komu við sögu og mun þar margt koma á
óvart. Frásagnamaður er einn mikilhæfasti og
harðskeyttasti stjórnmálamaður þessa tímabils og
einn fremsti sagnfræðingur okkar færði i letur.
VERÐ KR. 19.885. FÉLAGSVÉRÐ KR. 16.900.
Guðbergur Bergsson
Sagan af Ara Fróðasyni
og Hugborgu konu hans
Bráðskemmtileg skáldsaga í stil prakkarasagna um
athafnamanninn Ara Fróðason og ferð hans
gegnum þjóðfélagið, sem hefst á leikveili og lýkur í
eftirminnilegri laxveiðiferð. Með þessari bók sýnir
Guðbergur Bergsson enn á sér nýja hlið og spurn-
ing er hvort skáldgáfa hans nýtur sfn ekki einmitt
best í þeim ærsla- og fjarstæðustíl sem hér er að
finna.
VERÐ KR. 14.820. FÉLAGSVERÐ KR. 12.600.
Jakobína Sigurðardóttir
Snaran
önnur útgáfa þessarar klassísku framtíðar-hroll-
vekju. „Sú mynd sem höfundur dregur upp af
„venjulegum íslenskum alþýðumanni" kemur ekki
á óvænt, en um leið er hún það sterk að hún hlýtur i
senn að vekja eftirtekt og ugg. Og þungi þeirrar
viðvörunar sem Jakobína ber fram i framtfðarlýs-
ingu sinni vex af þvi að hún spáir atburðum sem eru
svo iskyggilega nátengdir þvi sem þegar hefur
gerst“. Þjv. 17/12 1968.
VERÐ KR. 9.880. FÉLAGSVERÐ KR. 8.400.