Þjóðviljinn - 06.12.1980, Side 9

Þjóðviljinn - 06.12.1980, Side 9
Helgin 6.-7. desember 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 bókmennti heldur þótt „milliliðurinn” Lárus verkstjóri sé langþreyttur orðinn á sinni niðurlægingu (sem hann hafði svo skilað áfram með fram- komu sinni heima fyrir) og geri sérstæða privatuppreisn undir lokin. Árni Bergmann skrifar um Ólafur Haukur Simonarson: Galeiðan. Mál og menning 1980. Það er algengt að leikrit eru skrifuð upp úr skáldsögum. Galeiðan er öðrpvisi til komin, fyrst var leikritið Blómarósir, siðan skáldsaga. Aðminnsta kosti gátu lesendur hafa séð leikritið fyrst — sem skal að öðru leyti látið liggja milli hluta i þessu spjalli hér. I þessari sögu eru engar aðal- persónur, þetta er kollektifskáld- saga um tvo hópa persóna. Annarsvegar eru þeir sem rikastir eru og voldugastir i þjóð- félaginu, iðjuhöldar og þeirra fólk. Hinsvegar það fólk sem vinnur þau störf sem verst eru launuð og verst þokkuð, Iðju- konur. Persónusafn Verkakonum kynnast lesendur i svipmyndum frá vinnustað, i hamingjuleit helgarinnar, i' ugg- vænlegum tiðindum heima og i verksmiðju, og við heyrum for- sögu þeirra, stuttar greinargerðir um þær aðstæður sem hafa skapað þeim kjör. Af þessum dæmum verður til furðu yfirgripsmikið yfirlit yfir þau mál sem jafnréttishreyfing siðustu ára hefur upp tekið. Jón- ina er fráskilda konan i endalausu kapphlaupi við timann sem er alltaf hlaupinn frá henni, ofsótt af þreytunni sem aldrei hverfur en er frestað með nokkrum sjússum á föstudagskvöldi, aldrei i- friði fyrir áhyggjum af fátækt, pössun og leigukjörum. Forsaga Jóninu kemur með áminningum um of- beldi i' hjónabandi inn i söguna. Fjölskylda hennar er ábending um það að það er ekki kynslóð Jóninu sem hefur fundið upp kynjastyrjöldina svonefndu: hún heimsækir foreldra sina i Kefla- vik og þeir hafa komið sér upp þvi helviti i sambúð sem er sýnu nöturlegra en dýrkeypt sjálfstæði Jóninu. Við gætum gengið á röðina: Hanna er sú sem biður eftir giftum barnsföður sinum, sem kannski kemur til að fá sér lyftingu enhleypur af hólmi um leið og hann veit af óvelkomnum þunga og visar á auðmýkjandi umsókn um fóstureyðingu. Brynja er dóttir vel stæðrar fjöl- skyldu, sem hefur „frikað út” meðrosalegum og grátbroslegum tilburðum vegna þess að hún hvorki gat né vildi laga sig að þeirri kröfugerð sem slegið var utan um hana. Marta er sú sem er lengst komin i jafnréttis- og stéttarvitund og hefur til þess tvöfalda heimanfylgju,sósial- istann móður sina (sem fær að vera „jákvæðasta” persóna sög- unnar) og læknastúdentinn sem hún átti að vinna fyrir meðan hann væri að ljúka námi — en varð á brott svo fljótt sem hann gat frá organdi barni þeirra og ' öðru veseni. Og Rósa er sú sem enn lifir i draumi um ástina miklu og frestar þvi sem lengst að tala eða hugsa um það sem er óþægi- legt: hennar hjónaband verður allt öðruvisi en þeirra. Samnefnari Höfundi gengur, sem fyrr segir, vel að koma ótal algengum dæmum um kúgun og auðmýk- ingu fyrir i þessu persónusafni. Aðferð hans býður að sönnu ekki upp á það, að hver einstaklingur fái rækilega krufningu. En hver manneskja er dregin skýrum dráttum, málalengingar eru á brott reknar og málfar hvers ein- staklings er oftast eðlilegt og sér- kennandi. Lesandinn á auðvelt meðaðtrúa þvi að samsvörun við veruleikann sé i lagi. Samnefnari og staðfesting á ömurlegu hlut- skipti þessara kvenna i einkalifi jafnt sem samfélagi verður svo verksmiðjan með ærandi hávaða, niðurdrepandi einhæfni færi- bandsins, misrétti (karlarnir vinnufélagar þeirra eru yfir- borgaðir) — og yfir öllu vofir slysið sem getur orðið hvenær sem er. Hinir Á hinum pólnum eru þeir sem drottna yfir þessum kvennaheimi Þær eru loksins komnar Nú geta allir eignast veggsamstæður fyrir jól Verðið er hreint ótrú/egt. Aðeins gkr. 838.000.- nýkr. 8.380.- Góðir greiðsluskilmálar. Staðgreiðsluafsláttur. Trésmiðjan Laugavegi 166. 22222 — 22229. Húsgagnaversiun GUÐMUNDAR Smidjuvegi 2 — Sími ^5100 úr nokkrum f jarska — þvi það er að mestu hlaupið yfir milliliðina i þjóðfélagsstiganum; helst að ein persóna, Lárus verkstjóri, fari með þeirra hlutverk. í þeim yfir- fulla heimi ræða konurnar fjálg- lega um hibýlaprýði meðan karl- arnir flytja ræður um upp- byggingu atvinnuveganna, sem geta orðið vel spaugilegar um leið og þær likjast mikið „ekta” ræðum um þessi efni; hér slær höfundur á háðstóna, en i kvenna- lýsingunni barði beiskjan taktinn. Það er ýmislegt vel til fundið i lýsingunum á formanni iðnaöar- Þar sem ins og varaformanni, Má Blöndal sem á verksmiðjuna þar sem hálf sagan gerist, einkum þeim þætti hennar sem veit að sjálfumgleði þeirra. Um leið verðum við öðru hverju vörviðþað sem oft gerist i pólitiskum skáldsögum, að and- stæðingarnir liggja eins og'of vel við höggi, ekki sist Már forstjóri, sem vel gæti átt heima i annars- konar verki, farsaættar. Hið al- menna, tipiska, þokar i lýsingu á „rika” heiminum til hliðar þvi hversdagsraunsæi sem ræður lýs- ingunni á Iðjukonunum. Árekstrar Sagan er safn svipmynda i bland við upprifjanir. Atburðir gerast ekki margir innan hennar; við sjáum fyrst og fremst afleið- ingar af þvi sem þegar hefur gerst. Enda er sögutiminn stuttur: frá föstudagsmorgni yfir „tómstundir” helgarinnar og inn i næstu viku. Heimarnir, hóparnir tveir, mætast helst tvisvar. Már vill taka afkastamikla verkakonu út úr hópnum og yfirborga hana — hún neitar; þaö er viss sam- staða til, þrátt fyrir allt. Eftir helgina er tilkynnt um væntan- legar uppsagnir (á konum einungis) vegna versnandi sam- keppnisaðstöðu og ein kvennanna slasast i vél sem allir vissu fyrir iöngu að var hættuleg. Þaðer lögð Vel er liklegt að lesanda finnist hann svikinn um framvindu i þessari sögu. Það er eMilegt: hún sýnist endaslepp. Kannski hefur vanda verkafólks i tviráðri bið- stöðu i samfélaginu slegið inn i söguna. Hér er átt við það, að höf- undur gæti vel sagt sem svo að hann héldi sig við likindi veru- leikans og basta. Atvik eins og vinnuslysið geta hleypt baráttu- hug i fólkið, en það getur enginn vitað hvað af honum verður. Eins vist að hann týnist i pappirsstriði milli verksmiðju, verkalýðs- félagsog Oryggiseftirlits rikisins. „Ég hef alltaf hneigst að þvi að hlutirnir ættu að verka skýrir”, segir Mai'ta, „en maður rekur sig á að allt er loðið, allir hland- volgir”. Andstæðurnar Ólafur Haukur Simonarson er i þessari sögu utan við þá tvo strauma sem einna sterkastir eru um þessar mundir hjá sagna- smiðum: þann sem einkennist af frjálsum leik imyndunaraflsins og þann sem hefur sjálfsmynd höfundarins að þungamiöju. Hann glimir við þjóðfélagsraun- sæið. Hann lýsir tveim hópum sem einna lengst veröur á milli i þjóðfélaginu. Ef einhver væri á þeim buxum að vilja i hverri raunsæissögu fá einskonar „rétt hlutföll” i veruleikamyndina, þá gæti hann vel spurt: Hvar er allur sá mikli grúi fólks, sem hefur miðstéttarkjör og miðstéttar- hugarfar um flest og setur hina stóru istru á þjóðarskrokkinn — þvi þessi hópur er lang fjöl- mennastur? Jamm. Það er lik- legt, að Olalur Haukur láti af ásettu ráði litið fyrir þvi fólki fara. Með þvi að fá einkum þeim stað i skáldsögu sinni sem snauð- astir eru og þeim sem gull- tryggðastir heita ber hann fram andmæli við þeim litilþæga póli- tiska skilningi, sem telur að allar andstæður i samfélaginu séu að hverfa með áfangasókn allra inn að miðju (Einhver sagði reyndar að hinir dugmiklu væru að ryðja öðrum braut uns allir stæðu á tindinum!). Það sem sterkast verður i hinni pólitisku skirskotun sögunnar, sem birtist i fyrr- greindum andstæðum, er þaö, hve rækilega hún minnir á það, að i efnuðu þjóðfélagi er að mörgu leytÞerfiðara aö vera fátækur en þá og þar sem öreigar eru sannarlega meirihiuti i þjóð- félagi. Um leið og höíuðviöíangs- efni hans er að sýna að öreigar samtimans eru fyrst og fremst konur; hlutskipti þeirra er kúgun á tveim hæðum. Þar með er lika komið að þeirri sérstæðu hindrun á vegi jafnréttisbaráttu, að konur hitta fyrir á vinnustað ekki stéttarbræður, heldur eru karlar þar með nokkrum hætti millistétt á uppleið, meðan þær sjálfar brjótast um i hörðum vitahring. AB 6 niður vinna — stéttarvitundin vex mundi það heita á pólitisku máli. Allar standa konurnar saman, a.m.k. á þessu augnabliki. En má vera að samstaðan gufi upp innan fárra daga; einni vél verður hent, allar konurnar endurráðnar i bili — um þaðverður engu spáð. Ekki

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.