Þjóðviljinn - 06.12.1980, Page 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 6.-7. desember 1980
FRÁ OLYMPÍUSKÁKMÓTINU Á MÖLTU:
C0L0MBI4
F. R. of CHINA
ICELAND
Helgi Ólafsson og Jón L. Árnason tefla hér á 1. og 2. borði gegn Kinverjum. Ingi R. liðs
stjóri fylgist meö.
tslensku stúlkurnar tefla hér gegn Kólombiu. F.v.: Sigurlaug Friðþjósdóttir, Ólöf Þráins
dóttir og Aslaug Kristinsdóttir.
Svona tefla stórmeistaraefni
Sigur Helga gegn stórmeistaranum Jan Timman
kórónan á frábæran árangur íslensku sveitarinnar
Aðeins eitt orð er til yfir
frammistöðu islensku
skáksveitarinnar á ÓL-
mótinu á Möltu— stórkost-
leg. Árangurinn er enn
athyglisverðari fyrir þá
sök að stórmeistarar
okkar/ þeir Friðrik ólafs-
son og Guðmundur Sigur-
jónsson, hafa litið sem
ekkert komið þarna við
sögu. Friðrik hefur aðeins
teflt 3 skákir i 12
umferðum og Guðmundur
er ekki í sveitinni.
Það eru ungu strákarnir og Ingi
R. Jóhannsson sem borið hafa
uppi sveitina. Ungu mennirnir,
Helgi, Margeir, Jón L. og Jóhann,
eru allir um og innan viö tvitugt,
lang yngsta sveitin á þessu Ól-
móti, tefla eins og stórmeistarar
og sennilega er þess ekki langt að
biða aö þeir beri slikan titil ef svo
heldur fram sem horfir.
Sennilega er ekki á neinn hallað
þótt sagt sé að sigur Helga ólafs-
sonar yfir stórmeistaranum Jan
Timman frá Hollandi, einum
sterkasta skákmanni heims um
þessar mundir, sé kórónan á
þessari glæsilegu frammistöðu
islensku sveitarinnar. Þetta er i
annað sinn sem Helgi sigrar
Timman, i fyrra sinnið var það á
móti i Bandarikjunum. Þá gerðist
það óvænta atvik að Helgi mátaði
Timman, en eins og menn vita
gerist slikt næstum aldrei, þegar
svo sterkir skákmenn eigast við.
Skákir eru gefnar áður en til
mátsins kemur.
En hér fer á eftir þessi glæsi-
lega sigurskák Helga, sem hafði
svart.
Hvitt: Jan Timman Hollandi
Svart: Helgi Ólafsson fslandi
1. d4-Rf6
2. Rf2-g6
3. Bg5-Bg7
4. Rbd2-c5
5. e3-cxd4
6. exd4-0-0
7. Bd3-Rc6
8. c3-d6
9. 0-0-h6
10. Bh4-Rh5
11. Hel-f5
12. d5-Re5
13. Bc2-Rf4
14. Rxe5-dxe5
15. Bg3-g5
16. Bxf4-gxf4
17. f3-Bd7
Einar Olgeirsson og
Jón Guðnason
ísland í skugga
heimsvaldastefnunnar
,,Bókin skiiur eftir meira af fróðleik en margar
endurminningabækur annarra stjórnmálaleiðtoga
sem út hafa komið á undanförnum árum... Vinnu-
brögð Jóns Guðnasonar við gerð bókarinnar eru
mjög til fyrirmyndar... Það er þvi ábyggilega
gleði- og ánægjuefni fyrir áhugamenn um sagn-
fræði og stjórnmál að fá i hendur þessa bók, enda
hefur Einar víða komið við i þjóðfrelsis- og verka-
lýðsbaráttu undanfarna áratugi." — Dagblaðið,
Alti Rúnar Halldórsson.
Einar Olgeirsson er einn mikilhæfasti og
harðskeyttasti stjórnmálaforingi siðustu áratuga. I
þessari bók, sem unnin er i samstarfi við Jón
Guðnason dósent, litur hann um öxl og fjallar um
,,frelsisbaráttuna nýju" sem þjóðin háði i dögun
fullveldisins gegn ásælni voldugustu heimsvelda
þessarar aldar. Saman við hina pólitisku sögu er
fléttað bæði persónulegum endurminningum og
upplýsingum sem síðar hafa birst, meðal annars i
bandarísku og bresku leyniskjölunum sem nýlega
voru gerð opinber.
Þessi bók gef ur innsýn i það sem gerst hef ur bak
við tjöldin i tengslum við örlagarikustu atburði
þessarar aldar. Dregnar eru upp persónulegar
svipmyndir af ýmsum stjórnmálaleiðtogum, sem
þar koma við sögu,og mun ýmislegtaf þvi vafalaust
koma á óvart.
Mál og menning l|!|l
Eitthvað hefur Helgi ólafsson til málanna að leggja þegar biðstaðan er
skoöuð, ef dæma má eftir þessari Ijósmynd sem Einar Karlsson, Ijós-
myndari og fréttamaður Þjóðviljans, tók suður á Möltu á dögunum. Ás-
laug Kristinsdóttir (1. t.h.) brosir að tilburðum Helga, en þeir Ingi R.
og Margeir virðast taka mark á honum.
18. Bb3-b5
19. Khl-Db6
20. Hcl-Hac8
21. c4-a6
22. cxb5-axb5
23. Rbl-Hxcl
24. Dxcl-Hc8
25. Dd2-Kf8
26. Rc3-Bf6
27. Rdl-b4
28. Rf2-Bh4
29. Kgl-Kg7
30. De2-e4
31. fxe4-fxe4
32. Hfl-f3
33. gxf3-Bh3
34. d6-exd6
35. Hdl-Hf8
36. Khl-dxf2
37. Hgl-dxgl+!
(Leikur sem Timman hefur án
efa sést yfir.)
38. Kxgl-exf3
og hvitur gafst upp.
Islendingar gegn
Ungverjum í dag
Síðasta umferð Ölympíuskákmótsins á Möltu verður
tef Id í dag. Islendingar munu tef la við Ölympíumeistara
Ungverja, sem nú eru í efsta sæti á mótinu ásamt Sovét-
mönnum með 35 vinninga. Sovétmenn munu í dag tef la
við Dani.
Fyrir síðustu umferð eru íslendingar í 8. tilll. sæti
með 29,5 vinninga.