Þjóðviljinn - 06.12.1980, Side 23
Helgin (i.—7. desember 1980 ÞJÓÐVILJINN— SfÐA 23
Dómur fallinn í Fjalarkattarmálinu:
Þorkeli dæmdar
8 miljónir
í gær var i borgardómi Heykja-
vikur kveðinn upp dómur i máli
Valdimars Þórðarsonar og Þor-
kels Valdimarssonar gegn
borgarstjóranum i Reykjavik
fyrir hönd borgarsjóðs. Dóms-
kröfur voru upp á 2,5 miljarða
króna sem er framreiknað tap að
mati stefnenda vegna þess að
þeir hafi ekki byggt Morgun-
blaðshöll á lóð Fjalakattarins fyr-
ir 10 árum. Var ekki fallist á þá
kröfu, en borgarsjóður hins vegar
dæmdur til að greiða Þorkeli
Valdimarssyni 8 miljónir króna
með vöxtuin frá 20. maí s.l. Dóm-
inn kvað upp Bjarni Kr. Bjarna-
son, borgardómari, en mcðdóm-
endur voru dr. Hagnar Ingi-
marsson og Magnús Guðjónsson
byggingameistari.
1 íorsendum dómsins segir að
það sé ljóst að þegar þeir Silli og
Valdifestu kaup á Fjalakettinum
á sinum tima hafi það veriö ætlun
þeirra að byggja stórhýsi á lóð-
inni. Vegna ýmissa ástæðna varð
ekki Ur þvi, m.a. vegna þess aö
þeir voru ekki sáttir viö þaö
skipulag sem íyrirhugað var á
svæðinu og vegna þess að þar
þurfti að rifa 3—4 hús, auk þess
sem þeir voru ,,i óða önn” að
kaupa fasteignir og byggja.
Valdimar Þórðarson lagði
aldrei inn umsókn hjá byggingar-
yfirvöldum borgarinnar um að fá
að reisa ákveðna byggingu á lóð-
um félagsins (Silla og Valda) við
Aðalstræti 6.
Þegar fasteignin Fjalaköttur-
inn var afhent Þorkeli Valdi-
marssyni sem fyrirframgreiðsla
upp i arf fylgdu engar kvaðir að
öðru leyti en þvi, aö hún skyldi
vera séreign hans ef hann giftist.
,,Eigi verður séð að stefnandinn
Valdimar áskilji sér nokkurn rétt
til skaðabóta Ur höndum
stefnda”, segir i forsendunum.
Valdimar greiddi og fasteigna-
gjöld meðan hann átti eignina án
nokkurs fyrirvara þar um.
Á þessum forsendum er borgin
sýknuð af öllum kröfum Valdi-
mars.
Varðandi kröfur Þorkels segir i
forsendum að ósannað þyki aö
hann hafi öðlast eignarrétt á
bótakröfum eða endurgjaldskröf-
um á hendur borginni vegna fyrri
ára. Viðákvörðunbóta til Þorkels
ber að lita til þess að hann hefur
ekki, þrátt fyrir ábendingar af
hálfu borgarinnar kært til yfir-
fasteignamatsnefndar, að lóðin
nr. 8 við Aðalstræti væri of hátt
metin i fasteignamati með tilliti
til óvissu um framtiðarnýtingu
hennar. Þá hafa ekki veriö
færð fram næg rök fyrir þvi að
ekki hefði mátt nýta hUsið betur
en gert hefur verið.
I dómsorði segir: „Stefndi,
borgarstjórinn i Reykjavik, f.h.
borgarsjóðs skal vera sýkn af
kröfu steínanda Valdimars
Þórðarsonar i máli þessu, en
málskostnaður felldur niður að
þvi er stefnanda varöar. Stefndi
greiði stefnanda Þorkeli Valdi-
marssyni kr. 8.000.000 meö 43%
ársvöxtum frá 20. mai 1980 til 1.
jUni sama ár, 46% ársvöxtum frá
þeim degi til uppsögu dóms þessa
og siðan hæstu innlánsvexti frá
þeim degi til greiðsludags eins og
þeir verða ákveðnir á hverjum
„Bækurnar eru komnar I Hag-
kaup i gegnum Bókaverslun Snæ-
bjarnar”, sagði Oliver Steinn Jó-
hannesson formaður Félags isl.
bókaútgefenda i gær. Hann sagði
að tryggt væri að ekki færu fleiri
bækur frá Snæbirni i llagkaup og
fyrst um sinn hefði verið sett af-
greiðslubann á Bókaverslun Snæ-
bjarnar.
Oliver Steinn sagði að þeir hjá
Snæbirni hefðu lofað að ná þeim
bókum aftur, sem farnar væru i
tima og kr. 950.000 i málskostnað,
allt innan 15 daga frá birtingu
dóms þessa að viðlagri aðför að
lögum."
Að sögn Bjarna Kr.
Bjarnasonar var ekki íallist á
kröfur stefnenda, hvorki aðal-, né
varakröfur, en hins vegar mun
sök talin hjá borginni fyrir aö
hafa ekki unnið deiliskipulag fyr-
ir Aðalstræti, sem Fjalakötturinn
stendur við.
Jón G. Tómasson borgarlög-
maður sagði i gær aö hann gæti
ekkert sagt til um hvort borgin
áfrýjaði til hæstaréttar fyrr en
hann hefði fengið dóminn i hendur
og kynnt sér forsendurnar.
— AI/—kd.
Hagkaup, hvernig svo sem það
tækist.
Stjórn Félags bókaútgefenda
hélt fund i gær, þar sem upp
komst um strákinn Tuma. „Við
stöðvum bóksöluna i Hagkaupi
með þessu móti”, sagði Oliver
Steinn, „hUn fjarar væntanlega
Ut, þótt Bókaverslun Snæbjarnar
takist ekki að afturkalla þær
bækur sem Hagkaup hefur
fengið”.
— eös
,Svarti sauöurinn9
i Hagkaupsmálinu fundinn:
Bækurnar eru
frá Snæbirni
Hörð gagnrýni á Þjóðleikhúsið rædd í útvarpsráði:
„Leikhús verða að
búa við gagnrýni”
Geikrit sem frumsýnd hafa
vcrið i Þjóðleikhúsinu að undan-
föénu hafa fengið misjafna dóma
og sum mjög harða, einkum
Könnusteypirinn pólitíski eftir
Ilolberg og Nótt og dagur eftir
Táin Stoppard. Gagnrýnendur
blaðanna hafa sumir hverjir
verið óvenju óvægnir i dómum
sinum um þcssar uppfærslur. Jón
Viðar Jónsson hefur einnig gagn-
rýnt Þjóðleikhúsið og fyrrnefndar
sýningar harkalega i útvarps-
þættinum ,,A vettvangi”.
A miðvikudagskvöldið fjallaði
Jón Viðar um leikritaval Þjóð-
leikhússins og leiklistarstefnu og
sagði meiningu sina umbUða-
laust. Lagði hann til að Þjóðleik-
hUsið yröi lagt niður ef stefna
þess yrði ekki endurskoðuð og
peningunum þá varið til frjálsrar
leikstarfsemi.
Varð uppi fótur og fit meðal
ráðamanna ÞjóðleikhUssins,
enda telst listagagnrýni til nýj-
unga i Utvarpinu. Sveinn Einars-
son ÞjóðleikhUsstjóri svaraði
Jóni Viðari fullum hálsi i
segir Ólafur R.
Einarsson
fulltrúi í
útvarpsráði
Morgunpóstinum á fimmtudag og
þá um kvöldið kom Haraldur
Olafsson, formaður ÞjóðleikhUs-
ráðs, i Vettvangsþátt leikhUsinu
til varnar.
1 fyrradag hélt starfsfólk Þjóö-
leikhUssins fund um málefni leik-
hUssins og að sögn eins starfs-
manna kom þar fram sjálfsgagn-
rýni, auk þess sem rætt var um
gagnrýnina sem ÞjóðleikhUsið
hefur sætt að undanförnu.
Á fundi Utvarpsráðs i gær var
fjallaö um bréf frá ÞjóðleikhUs-
ráði végna þessa máls. Ekkert
var samþykkt á fundinum um
málið, en formanni ráðsins var
falið að semja uppkast að svar-
bréfi til ÞjóðleikhUsráðs, sem
lagt verður fram á næsta fundi Ut-
varpsráðs.
I bréfi Þjóðleikhúsráðs er borin
fram gagnrýni á málflutning Jóns
Viðars i nafni Starfsmannafélags
ÞjóðleikhUssins. Jafnframt segir
i bréfinu, að ef með þurfi verði
látið á það reyna fyrir dómstól-
um, hver beri ábyrgð á slikum
málflutningi.
„Á fundi Utvarpsráðs var lesinn
Utdráttur Ur umsögn Jóns Við-
ars”, sagði Ólafur R. Einarsson
Utvarpsráðsmaöur i samtali við
Þjóðviljann i gær. „Útvarpsráðs-
menn gagnryndu ýmsa þætti i
málflutningi hans, en jafnframt
voru allir sammála um að nauð-
synlegt væri að RikisUtvarpið
væri með leiklistar- og bók-
menntagagnrýni. LeikhUsin
verða að búa við gagnrýni, hvort
sem er frá rikisfjölmiðlum eða
öðrum”.
— eös
HAPPDRÆTTl ÞJÖÐVLJANS
Skrifstofan op-
in á laugardag
Skil í happdrættinu berast nú óðum utan af
landi og eru amk. sex staðir með á milli 90—100%
skil fyrir útsenda miða, Djúpivogur, Stöðvar-
fjörður, Fáskrúðsfjörður, Þórshöfn, ölafsvík og
Hveragerði.
Dregið var í happdrættinu 1. des., en vinnings-
númerin þá innsigluð og verða ekki birt fyrr en að
loknu uppgjöri. Eru umboðsmenn út á landi hvattir
til að gera skil sem allra f yrst svo og þeir Reykvík-
ingar sem fengið hafa heimsenda miða. — Skrif-
stofan á Grettisgötu 3 verður opin í dag, laugardag,
kl. 10—17. Símac 17504 og 17500.
Söhimaður
Viljum ráða nú þegar sölumann við ullar-
iðnað okkar á Akureyri.
Starfið er aðallega fólgið i markaðs-
setningu i Evrópu og Bandarikjunum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun
og/eða reynslu i markaðsmálum og ullar-
iðnaði.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra
Iðnaðardeildar Sambandsins, Glerárgötu
28, Akureyri fyrir 20. des. n.k..
Iðnaðardeild Satnbandsins
Akureyri
IONAÐARDEILD SAMBANDSINS
AKUREYRI
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
AÐSTOÐARLÆKNAR óskast á hand-
lækningadeild til 1 árs frá 1. janúar n.k..
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
sendist Skrifstofu rikisspitalanna fyrir 19.
desember n.k. Upplýsingar veita yfir-
læknar deildarinnar i sima 29000.
ADSTOÐARMATRÁÐSKONA óskast i
eldhús Landspitalans. Húsmæðra-
kennaraprúf eða hliöstæð menntun áskil-
in. Einnig óskast STARFSMENN vanir
matreiðslu. Upplýsingar veitir yfirmat-
ráðskona Landspitalans i sima 29000.
RANNSÓKNASTOFA HÁSKÓLANS
Tvær stöður SÉRFRÆÐINGA i liffæra-
meinafræði eru lausar til umsóknar. Um-
sóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist Skrifstofu rikisspitalanna
fyrir 1. febrúar n.k. Upplýsingar veitir
yfirlæknir liffærameinafræðideildar i
sima 29000.
Reykjavík, 7. desember 1980.
Skrifstofa rikisspitalanna
Eiriksgötu 5, simi 29000.
Blaðberabíó
| Dr. Goldfood og bikinivélin.
Sprenghlægileg gamanmynd
) með Vincent Price i aðalhlut-
verki.
— Á laugardag i Hafnarbiói kl. l
— eh.
Þjóðviljinn. S. 81333.