Þjóðviljinn - 06.12.1980, Page 24

Þjóðviljinn - 06.12.1980, Page 24
Auglýslngastofan SGS ÚRVALSBÆKUR VIO ALLRA HiEFI Kólumbus eftir Felipe Fernández-Armesto er ný bók í bóka- flokknum Frömuöir landafunda. Er bókin í þýöingu Kristínar Thorlacius, en umsjónarmaöur með bóka- flokki þessum er Örnólfur Thorlacius. Þetta er merk bók prýdd fjölda mynda, og mikill fengur fyrir þá sem hafa áhuga á sögulegum fróöleik. Fjallar bókin um hinn mikla landkönnuö, Kólumbus, siglingar hans yfir Atlantshafiö og fund Ameríku. Hvað segja bændur nú? Hvað gerðist á íslandi 1979 Pílu pínu platan Gefin hefur veriö út hljómplata meö hinum skemmti- legu söngvum um litlu músina Pílu pínu. Umsjón meö plötunni hefur hin þekkta dægurlagasöngkona Ragn- hildur Gísladóttir og syngur hún sjálf lögin, ásamt þeim Margréti Helgu Jóhannsdóttur og Heiödísi Noröfjörö, sem jafnframt rekur söguna á plötunni. Nokkrir þekktustu hljóöfæraleikarar yngri kynslóöar- innar annast undirleik. Litlu matreiðslubækurnar Valdatafl í Valhöll eftir Anders Hansen og Hrein Loftsson. Sannarlega bók í brennidepli, sem fjallar um þau átök sem átt hafa sér staö í Sjálfstæöisflokknum og leiddu loks til stjórnarmyndunar dr. Gunnars Thoroddsens. í bók- inni er þetta valdatafl rakiö frá upphafi og mun þar ýmislegt koma verulega á óvart. í bókinni eru fleiri tugir Ijósmynda, sem margar hverjar hafa ekki birst áöur. eftir Jón S. Bjarnason frá Garösvík, höfund bókarinn- ar Bændablóð sem út kom í fyrra. Bók sem ber svip af leiftrandi frásagnargleöi höfundarins og snjöllu oröfæri hans. Hér segir m.a. frá eyðibyggöinni í Fjöröum og fólkinu sem þar bjó síðast, bændum og burgeisum, göngum og eftirleitum, skammvinnri skólagöngu, kviðristu og kvennamálum, spéfuglum og spaklegum andans mönnum. Þessi bók er þjóöleg, fróðleg og skemmtileg. Einn á móti milljón Ný skáldsaga eftir Jón Birgi Pétursson. Jón Birgir fékk mikiö lof fyrir sögu sína Vitniö sem hvarf, er út kom í fyrra. í þessari bók fær lögreglumaðurinn „Rauöa ljóniö“ erfitt verkefni til úrlausnar og berst leikurinn víða m.a. til Rotterdam í Hollandi. Þetta er mögnuö sakamálasaga, sem enginn leggur frá sér fyrr en aö lestri loknum. Stór og glæsileg bók eftir Steinar J. Lúövíksson sem fjallar um innlenda atburöi ársins 1979. Bók þessi er ómetanleg heimild og bregöur upp á skýran og skemmtilegan hátt í máli og myndum, því sem geröist á íslandi á því herrans ári 1979. Hér er í senn heimildarrit sem öölast æ meira gildi meö árunum og skemmtileg lesning öllum þeim sem vilja fylgjast með og hafa aögang aö heimildum um samtíma atburði, sem þeir sjálfir tóku þátt í eöa voru áhorfendur aö meö einum eöa öðrum hætti. Myndritstjóri bókarinn- ar er Gunnar V. Andrésson. Sérstæö barnabók eftir hinn kunna og vinsæla rithöfund Kristján Einarsson frá Djúpalæk. Bókin fjallar um músabyggöina í Lyngbrekku og er aöalpersónan hin litla og lífsglaöa Píla pína. Bókin er meö söngvum eftir Heiðdísi Noröfjörö, og mynd- skreytt af Pétri Halldórssyni. Tvímælalaust ein skemmtilegasta og fallegasta barnabókin sem er á markaönum aö þessu sínni. Út eru komnar tvær nýjar bækur í hinum geysivin- sæla bókaflokki: Litlu matreiöslubækurnar. Eru þetta bækurnar Grænmetisréttir og Svínakjöt. Áður hafa komið út sex slíkar bækur. Hver bók fjallar um afmarkaö sviö matargeröar og eru þægilegar og auöveldar í notkun. Þessar bækur eru allar litprent- aðar og fylgir hverri uppskrift heilsíöumynd af viökomandi rétti. Sunnefumálin Eftir breska rithöfundinn Dominic Cooper í þýöingu Franzicu Gunnarsdóttur. Skáldsaga sem hefur aö uppistööu eitt þekktasta sakamál á íslandi, hin svokölluðu Sunnefumál, sem geröust á ofanveröri 18. öld. Höfundurinn dvaldi hérlendis meöan hann vann aö bókinni og tekst á einkar trúverðugan hátt aö bregöa upp mynd af því ömurlega ástandi sem ríkti á Islandi á þessum árum eldgosa og drepsótta. Þetta er saga sem hlutverkum er skipt milli hörku og grimmdar, mannlegra tilfinninga og mannlegs breyskleika. Þýöing Franzicu Gunnarsdóttur hefur hlotiö mikið lof gagnrýnenda. Dægurlaga- söngkonan dregur sig í hlé Ný skáldsaga eftir Snjólaugu Bragadóttur frá Skálda- læk. Þessi saga er eins og fvrri söaur Snjólaugar viöburöarík, fjörleg og skemmtileg og þeim kostum gædd aö vera viö hæfi allra aldursflokka. Aöalsögu- hetjan er í þeirri stööu sem margar stúlkur dreymir um, en samt er hún vansæl. Þáttaskil veröa í lífi hennar, er hún veröur aö taka viö heimili systur sinnar sem býr úti á landi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.