Þjóðviljinn - 16.12.1980, Side 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 16. desember 1980
Óskar sló
öllum viö
Eitt islandsmet var sett á Reykjavíkurmótinu i kraftlyftingum,
sem haldiö var i Laugardalshöilinni um helgina. Það setti frjáis-
iþróttakappinn kunni óskar Jakobsson I bekkpressu. Hann lyfti
197.5. kg, 2.5 kg meira en gamla metið.
Reykjavikurmeistarar i kraftlyftingum urðu: 125 kg
flokkur — Jón Páll Sigmarsson, 100 kg. flokkur — Guðmundur
Eyjólfsson, 90 kg flokkur — Viðar Sigurðsson, 75 kg
flokkur — Daniel Olsen, 67.5 kg flokkur — Halldór Eyþórsson.
Allir eru þessir „lyftarar” i KR.
t
Óskar Jakobsson, frjálsiþrótta-
maður, setti tslandsmet i kraft-
lyftingum um helgina.
Jafnteili í
stórleiknum
Leikurinn sem allra augu
beindust að i ensku knatt-
spyrnunni á laugardaginn
var viðureign Ipswich og
Liverpool á Portman Road.
Jafntefli varð, 1-1. Brazil
skoraði fyrir Ipswich, en Lee
fvrir Liverpool.
Úrslit i 1. og 2. deild urðu
þessi:
1. deild:
A. Villa-Birmingham ....3:0
Coventry-WBA...........3:0
C. Palace-Norwich......4:1
Everton-Brighton.......4:3
Ipswich-Liverpool......1:1
Leeds-Nottm. Forest....1:0
Leicester-Middlesbro .... 1:0
Man. Utd.-Stoke........2:2
Sunderland-Arsenal.....2:0
Tottenham-Man. City .... 2:1
Wolves-Southampton ....1:1
2. deild:
Blackburn-West Ham.... 0:0
Bristol City-Bolton....3-1
Derby-Watford..........1:1
Grimsby-Chelsea........2:0
Luton-Preston.........4:2(
Notts. Co.-Oldham......0:2
Orient-Shrewsbury......1:0
Sheff. Wed.-Bristol R.4:1
Wrexham-Cambridge.... 0:0
Geddis (2) og Shaw skor-
uðu fyrir Villa. Macari og
Jordan skoruðu fyrir United,
en Randall og Chapmann
fyrir Stoke.
Staðan er nú þessi.
1. deild:
A. Villa . .22 39. 20 31
Liverpool . .22 45- 27 30
Ipswich ..10 31 14 28
Man. Utd ..22 31 18 26
Everton . .22 38 28 26
Arsenal ..22 32 24 26
WBA . .22 27 24 26
Nottm. For. .. . .22 31 23 24
Tottenham ... . .21 37 34 22
Southampton . . .22 36 33 22
Stoke . .22 26 31 22
Birmingham . ..21 27 27 21
Middlesbro ... . .21 30 31 20
Wolves . .22 22 28 20
Coventry ..22 26 33 20
Leeds ..22 20 33 20
Sunderland... . .22 29 29 19
Man. City .... . .22 29 36 18
Norwich . .22 27 43 17
Brighton . .22 26 41 14
Leicester . .22 21 36 14
C. Palace . .22 27 44 12
2. deild:
West Ham .... . .22 36 16 32
Chelsea . .22 38 21 29
Notts. Có . .22 25 21 28
Swansea ..21 31 18 26
Sheff,Wed. ... . .22 31 26 26
Derby Co . .22 31 28 25
Orient . .21 30 24 24
Blackburn.... . .21 25 19 24
Grimsby . .22 19 19 22
Luton . .22 27 28 22
Cambridge ... ..21 27 30 22
Bolton ..22 38 32 20
Wrexham .... ..22 19 23 20
Newcastle.... . .21 17 31 20
Shrewsbury .. ..22 22 23 19
Cardiff ..21 23 29 19
QPR ..21 25 •28 18
Oldham ..22 15 20 18
Preston . .22 20 34 18
Bristol City ... . .22 18 33 15
Bristol Rov. .. . .22 17 37 11
og það var nóg
til að sigra
Fylki 26:19
Þróttarar virðast nú næsta
öryggir að halda öðru sæti 1.
deildar handboltans. A sunnudag-
inn sigruðu þeir Fylki, 26-19, i leik
sem ekki var ýkja ójafn þráttt
fyrir nokkurn markamun i lokin.
Um miðbik seinni hálfleiks
skoraði Þróttur 7 mörk i röð á
stuttum kafla og geröi út um leik-
inn.
Fylkismenn höfðu undirtökin
allan fyrri hálfleikinn og virtust
þeir liklegir til þess að veita
Þrótturunum harða keppni i
seinni hálfleiknum. Fylkir komst
i 4-1, 6-6 og 9-7. 1 leikhléi var
staðan 11-10 fyrir Fylki.
Þrjú fyrstu mörk seinni hálf-
leiks voru Þróttara , 13-11.
Fylkismenn voru þó ekkert á þvi
að gefast upp, þeir minnkuðu
muninn snarlega, 13-12 og 15-14.
Þá kom alveg steindauður leik-
kafli hjá Arbæjarliðinu, Þróttur
gekk á lagið og skoraöi hvert
Jón Sigurðsson hefur leikið 80
landsieiki i körfubolta.
Leikið
gegn
Frökkum
Milli jóla og nýárs, 27. og 28.
des., verða 2 landsleikir i körfu-
knattleik gegn Frökkum hér á
landi. i gær valdi landsliðs-
nefndin 14 manna hóp til þess að
leika fyrir tslands liönd. 1 honum
eru eftirtaldir:
Nöfn: Landsleikir:
JónSigurðsson, KR 80
Agúst Líndal, KR 1
Garðar Jóhanness. KR 4
Gunnar Þorvarðars. UMFN 56
Jónas Jóhanness. UMFN 29
Guðsteinn Ingimarss. UMFN 16
Kristinn Jörundss. ÍR 52
Jón Jörundss. ÍR 29
Simon Ólafss. Fram 37
Þorvaldur Geirss. Fram 13
TorfiMagnúss. Valur 47
Kristján Ágústss. Valur 23
RikharðurHrafnkelss. Valur 32
Pétur Guðmundss. 20
Landsliðsþjálfari: Einar Bolla-
son
Staðan er nú þannig I úrvals-
deild körfuboltans:
Njarövík 11 10 1 1118-908 20
Valur 12 8 4 1061-996 16
KR 9 6 3 809-766 12
ÍR 11 4 7 916-971 8
IS 11 3 8 902-967 6
Armann 11 1 10 848-1077 2
Stórskyttan Sigurður Sveinsson
skoraði sitt 100. mark i 1. deild-
inni nú i leiknum gegn Fylki.
Atli Eðvalds
fótbrotnaði
Atli Eðvaldsson, knattspyrnu-
maðurinn kunni, sem leikur með
Borussia Dortmund, varð fyrir
þvi óláni að fótbrotna i leik með
liði sinu um siðustu helgi gegn
Borussia Mönchengladback.
Hann verður frá keppni næstu
vikurnar.
Atli Eðvaldsson
markið á fætur öðru. A aðeins 8
min. breyttist staðan úr 15-14 i 22-
14 fyrir Þrótti. Það sem eftir lifði
leiktimans var jafnræði með
liðunum, 24-16 og loks 26-19.
Fylkismenn spiluðu þennan leik
lengst af skynsamlega, en um leið
og verulega fór að blása á móti
fór óðagotið að ná tökum á leik
þeirra. Endurkoma þeirra
Sigurðar Simonarsonar og Guðna
Haukssonar virðist styrkja
Fyikisliðið til muna. Ekki mun af
veita liðsstyrknum i þeirri
baráttu sem framundan er hjá
þeim Fylkismönnum.
Þróttur leikur þessa dagana
mun verr en i byrjun móts.
Einugis varamennirnir, Jón
Viðar, Sveinlaugur og Jens,
sýndu góð tilþrif gegn Fylki. Jú,
og að sjálfsögðu Sigurður Sveins-
son, sem skoraði 13 mörk þrátt
fyrir það að hann tæki lifinu með
ró.
Markahæstir voru: Fylkir:
Gunnar 7/5 og Guðni 5. Þróttur:
Sigurður 13/2, Páll 4 og Jens 3.
Jafnt hjá
KR og FH
KR-ingar þokuðu sér ögn fjær
botni 1. deildar handboltans sl.
laugardag þegar þeir gerðu jafn-
tefli gegn FH, 22-22. Reyndar
voru Vesturbæingarnir óheppnir
að næla ekki I bæði stigin, þvi
þeim mistókst að skora út 2 vita-
köstum siöustu 10 sek. leiksins.
Hvað um það, þá var jafntefliö
sanngjörn úrslit.
FH-ingarnir tóku undirtökin
þegar i byrjun, en munurinn varð
þó aldrei mikill, 2-0, 4-4, 6-5, 8-8 og
11-10 fyrir FH i hálfleik.
Barningurinn hélt áfram i
seinni hálfleiknum, 12-12 og 14-14.
Þá komust KR-ingar i fyrsta sinn
yfir, 15-14 og mótleikur FH var að
taka Konrða úr umferð, en hann
var atkvæðamikill i liði KR eftir
leikhlé. Sú leikaðferð tókst ekki
sem skyldi og leikurinn var i
járnum alveg til loka. Jafnt var á
öllum tölum frá 15-15 i 21-21.
Gunnar kom FH yfir, 22-21. KR-
ingar misstu knöttinn og FH fékk
viti, Pétur varði vitakast Geirs.
Haukur Geirmundsson jafnaði
fyrir KR, 22-22. FH mistókst
næsta sókn. KR-ingar brutust upp
og þegar 7 sek. voru til leiksloka
fékk KR vitakast. Þorvarður
skaut i stöng, en Björn krækti i
knöttinn og það var brotið á hon-
um gróflega. Vitakast og leiktim-
inn útrunninn. Nú varði Gunn-
laugur vitakast Konráðs. Spenn-
andi lokaminútur, 22-22.
Alla festu virðist vanta i FH-
liðið til þess aö það nái topp-
árangri. Þetta er einfaldlega
spurning um herslumun.
Kr-ingarnir léku gegn FH mun
skár en þeir höfðu gert i undan-
förnum leikjum, greinileg bata-
merki á leik liðsins. Það er þó
furðulegt hve litið er gefið á lin-
una á Jóhannes, leikmann sem
undantekningarlitið skorar úr
sinum færum.
Markahæstir voru: FH: Sæ-
mundur 5, Kristján 4 og Öttar 4;
KR: Björn 8/3 og Konráð 6/1.
—IngH
Léttur sigur KR
KR-ingar unnu fyrirhafnarlit-
inn sigur gegn slöku og Kana-
lausu liði Armanns sl. sunnudags-
kvöld. Lokatölur uröu 91-60 eftir
að Vesturbæjarliðið hafði leitt 44-
29 i hálfleik. Þrátt fyrir sigurinn
léku KR-ingarnir illa; væntanlega
hefur sigurinn gegn Njarðvik á
föstudagskvöldið enn setið i KR-
ingunum, eða öllu heldur eftir-
köstin.
KR náði þegar i upphafi yfir-
ÍS marði sigur
Einn leikur var i 1. deild karla-
blaksins um siðustu helgi.
Stúdentar sigruöu Vikinga i
iþróttahúsi Hagaskólans eftir
hörkuleik, 3-2.
1S sigraði i fyrstu hrinunni
næsta auðveldlega, 15:10. Viking-
arnir komu mjög á óvart með þvi
að sigra i næstu 2 hrinunum, 15:12
og 15:10. Þar tneö var komin
„pressa” á Stúdentana er þeir
sýndu yfirvegun og jöfnuðu leik-
inn, 15:9. í lokahrinunni varð
aldrei um verulega keppni að
ræða, yfirburðir 1S voru það
miklir og þeir sigruðu örugglega,
15-6 og 3-2 i leiknum.
Staðan i 1. deildinni er nú þessi:
Þróttur 8 8 0 24-5 16
IS 752 17-11 10
Vlkingur 8 3 5 16-18 6
Fram 8 3 5 13-19 6
UMFL 7 0 7 4-21 0
Nú verður gert hlé á 1. deildar-
keppninni fram til 18. janúar, en
þá leika Þróttur og UMFL og
Fram og 1S.
— Ing.H.
burðastöðu og i rauninni var
aldrei um verulega keppni að
ræða. Armenningarnir léku án
James tröllvaxna Breeler og ein-
ungis með 3 skiptimenn. Það
segir etv. meira en mörg orð.
Stigahæstir i liði KR voru: Yow
20, Garðar 18, Jón 11 og Geir 10.
Fyrir Armann skoruðu mest:
Valdimar 15, Kristján 14 og Davið
10. J/IngH
Fram slgraði
Skallagrím
1. deildarlið Framara er i miklu
stuði þessa dagana. Fyrir
skömmu lagði iiðiö helstu keppi-
nauta sina, IBK, að velli og um
siðustu helgi sigruðu Framar-
arnir Skallagrim i bikarkeppn-
inni, 86-80.
✓»v
staðan
iþr6ttir@ íþröttir m iþróttir í^l
f J ■ Umsjón: Ingólfur Hannesson. H
Þróttur tók smákipp