Þjóðviljinn - 20.12.1980, Blaðsíða 22
22 SÍÐA — ÞJöÐVItJINN Helgin 20.-21. desember 1980
Tilkynning til
eigenda þjóðsagna
Ólafs Davíðssonar
Fjórða og síðasta bindið er komið út.
Yfirgripsmikil nafnaskrá og
atriðisorðaskrá fyrir allt safnið fylgir
þessu bindi, alls 160 bls.
Iðja, félag verksmiðjufólks
Félag jámiðnaðarmanna
Félag bifreiðasmiða
Félag bifvélavirkja
=Æ?
J ólatrésskemmtun
fyrir börn félagsmanna verður haldin i
Átthagasal Hótel Sögu, sunnudaginn 28.
desember 1980, kl. 15.00—18.00.
Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstof-
um félaganna að Skólavörðustig 16 og
Suðurlandsbraut 30.
Iðja, félag verksmiðjufólks
Félag járniðnaðarmanna
Félag bifreiðasmiða
Félag bifvélavirkja.
F ramkvæmdastofnun
ríkisins
óskar að ráða vélritara, vanan almennum
skrifstofustörfum, nú þegar. Skriflegar
umsóknir sendist lánadeild Fram-
kvæmdastofnunarinnar, Rauðarárstig 31.
lólafundir SÍNE
verðahaldnir22.des. og3. jankl. 15.
Auk fastra liða eins og venjulega verður
lanafrumvarpið og helstu baráttumál
hreyfingarinnar rædd.
Félagar fjölmennum i F.S.
Stjórn SÍNE
Kasparov brást ekki
á Ólympíuskákmótinu
Það kom fáum á óvart að yngsti
meðlimur sovésku ólympiu-
sveitarinnar, Harry Kasparov,
skyldi hijóta besta árangurinn
innan sveitarinnar. Kasparov
tefldi nokkrar gullfallegar skákir
og frammistaða hans sannar
ótvirætt að það var ekki van-
hugsað að gefa honum tækifæri á
að spreyta sig á ólympiumótinu.
Kasparov hefur ákaflega sér-
stæðan skákstil; hann virðist, svo
til frá fyrsta leik, tefla upp á
kóngssókn og þvi velur hann
ávallt skörpustu afbrigðin hverju
sinni.
Frábær byrjanaþekking, sam-
fara hinu taktiska innsæi hans og
undraverðum hæfileikum til að
reikna út á augabragði hin flókn-
ustu afbrigði, virðist á góðri leið
meö að gera hann einn af öflug-
ustu skákmönnum veraldar. Eitt
dæmið mátti finna úr viðureign
Sovétmanna og Hollendinga:
4. borð.
Hvftt: H. Kasparov.
Svart: G. Lingtcrink.
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6 4. g3 Bb7
2. c4 e6 5. Bg2 Be7
3. Rf3 b6 6. Rc3 Re4
(Reynslan hefur kennt mönnum
að eftir 6. — 0-0, 7. Dc2 á svartur
viö ýmis vandamál að strlða.)
7. Bd2 Bf6 10. d5exd5
8.0-0 0-0 11. cxd5 Rxd2
9. Hcl c5 12. Rxd2 d6
(Allt hefur þetta sést áður en nú
birtist ný hugmynd.)
13. Rde4!
(Hugmyndin er að sækja að d6-
peðinu.)
13. .. He8 14. Dd2 a6?
(Upphafið að erfiðleikum svarts.
Leikurinn veikir b6-reitinn og það
á eftir að reynast afdrifarikt.)
15. b4!
(Samkvæmt kjörorðinu: á’ann!)
15. .. Be7
(Ekki er 15. — cxb4 gæfulegt, t.d.
16. Rxe4+ Dxf6, 17. Re4 og 18.
Dxb4.)
16. bxc5 bxc5 17. Df4!
(Þá er riddaranum á b8 óheimil
útganga. Svartur hefur rataö I
óyfirstiganleg vandræði.)
17. ..Dc7 18. Ra4
(Og nú hótar hvitur að drepa á
c5.)
Harry Kasparov
18. .. Da5
19. Hbl! Bxd5
20. Rb6 Bxe4
21. Bxe4 Ha7
y
8
7
6
5
4
3
2
1
m ■*mm
±m m.■
m
mtm m
m
abcdefgh
(Kórónan á glæsilegri tafl-
mennsku. Ef 22. — Hxc8 þá 23.
Df5! sem hótar bæði hróknum og
máti I 2. leik.)
22. .. Rc6
23. Rxa7 Rxa7 24.Bd5
— og svartur lagði niður vopnin.
í 4. umferð mættust Sovétmenn
og Júgóslavar og þá sá þessi
viðureign dagsins ljós:
Hvltt: H. Kasparov
Svart: S. Marjanovic
Drottningarindversk vörn.
1. d4 Rf6
2. c4 e6 5- B82 Be7
3. Rf3 b6 6.0-0 0-0
4. g3 Bb7 7- d5
(Þannig vann Polugajevski
Kortsnoj i einvlginu i sumar.
Tiskuafbrigðin eru fljót að mótast
I höndunum á Kasparov.)
7. ..exd5 8. Rh4!
(Hin raunverulega endurbót
Polugajevskls. Hann hafði áður
reynt 8. Rd4 en með misjöfnum
árangri.)
8. .. c6
(Annar möguleiki er 8. — Re4, 9.
cxd5 Rd6 og — c5 við tækifæri.)
9. cxd5 Rxd5
10. Rf5 Rc7 11. Rc3
(11. e4 d5, 12. Dg4 er tæpastnógu
gott vegna 12. — Bf6 og ef 13. Bh6
þá 13. — Bc8! og hvitur er illa
beygður.)
11. ,.d5 12. e4 Bf6
(Nú mætti svara 12. — dxe4 með
13. Dg4 Bf6, 14. Rxe4 með hættu-
legri sókn.
13. exd5 cxd5
14. Bf4 RbaG 15 Hel Dd7?
(Fyrstu og slðustu mistök
svarts.)
16. Bh3!
(Með ótuktarlegri hótun, 17.
Rh6+ o.s. frv....)
16. .. Kh8
17. Re4! Bxb2 18- R85!
(Ofriðarskýin hrannastupp. 18. —
Bxal strandar á 19. Dh5 h6, 20.
Rxh6 o.s.frv.)
18. .. Dc6 l9- Re7 Df6
20. Rxh7! Dd4 22. Dh4 Bxal
21. Dh5 g6 23. Rf6+
— Svartur gafst upp.
—hól
Nýjar bœkur
Séra Magnús Bl. Jónsson
ENDURMINNINGAR
I. bindi: Bernska og námsár.
II. bindi: Prestur og bóndi.
Sannorð í'rásögn af bernskuárum
höíundar á Vesturlandi og preststörfum
og búskap á Fljótsdalshéraði.
Um 700 bls. auk mynda.
Verð kr. 39.520 (söluskattur innifalinn).
Þorsteinn Antonsson
FÍNA HVERFIÐ
Frásögn — 224 bls.
Nýstárleg bók bædi að efni og
frásagnaraðferð.
Verð kr. 14.200 (söluskattur innifalinn).
Enn eru láanlegar bækur
Málfriðar Einarsdóttur:
Samastaður i tilverunni
Úr sálarkirnunni
Auðnuleysingi og Tötrughypja
Kosta nú
i heild
aðeins
kr. 29.020.
LJÓÐHÚS HF. BókaútgáfaLaufásveg'4-
Reykjavik. Simi 17095