Þjóðviljinn - 21.01.1981, Side 3
Miðvikudagur 21. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 3
Atkvæða-
greiðsla
um verk-
fallsheim-
ild hjá SR
Sem kunnugt er, felldi far-
mannadeild Sjómannafélags
Reykjavikur kjarasamninga þá,
sem stjórn félagsins skrifaði
undir með fyrirvara skömmu
fyrir áramót, með 48 atkvæöum
gegn 30. Nú er hafin allsherjarat-
kvæöagreiösla innan félagsins
um heimild stjórnar til verkfalls-
boðunar og taka fiskimenn einnig
þátt i henni.
Fleiri sjómannafélög eru aö fá
sér verkfallsheimild eða eru ný-
búin aö fá hana. —S.dór.
GIsli Alfreðsson
Ekkert fimmtudags-
leikrit:
„Lagerinn
búinn”
Ekkert fimmtudagsleikrit
verður I útvarpinu I þessari viku.
Klemens Jónsson leiklistarstjóri
utvarpsins sagði i viötali við
Þjóðviljann að ástæðan fyrir þvi
væri leikara verkfa llið.
— Lagerinn er einfaldlega
búinn, enda hefur ekkert verið
tekið upp af leikritum siðan i
september, sagði Klemens. — Við
reiknum hinsvegar fastlega með
þvi aðleikaradeilan sé að leysast,
og að hægtverði að útvarpa leik-
rití i næstu viku.
Að sögn Gisla Alfreðssonarfor-
manns Leikarafélagsins eru all-
góð ar horfur á a ð þa ð takist. í dag
verður samningafundur og sagði
Gisli að i megindráttum heföi
náðst samkomulag. Búið vasri að
fara i gegnum sjónvarpssamn-
ingana, i dag yrði farið yfir út-
varpssamningana og siðan þyrfti
að likindum einn fund til viðbótar
til að fara yfir tölur og ganga frá
samningunum formlega. Gisli
vildi ekki skýra frá þvi að svo
stöddu I hverju samningarnir við I
sjónvarpið væru fólgnir. ih/AI |
I
I
I
I
Skákæffngar
fyrir
konur að
hefjast
Skákáhugi kvenna hér
á landi hefur aukist mjög
í seinni tíð og er starfandi
sérstök kvennadeild
innan Taflfélags Reykja-
vikur.
■ Nú hefur deildin ákveðið að
Iefna til æfinga fyrir konur, bæði
byrjendur og lengra komnar.
Verða þessar æfingar á fimmtu-
■ dagskvöldum i húsakynnum TR
Iað Grensásvegi 46. Leiðbeinandi
verður hinn kunni skákmaður
Bragi Kristjánsson og eru þessi
■ námskeið ókeypis.
—S.dór.
.KVARTETTINN á æfingu nú I vikunni. Frá vinstri: Einar Gunnarsson, Gunnar Guttormsson, Hreiðar
Pálmason og Baldur óskarsson. Ljósm. —eik.
Kommakvartettinn
syngur í Opnu húsi
Alþýðubandaiagið I Reykja-
vik hefur opið hús á Grettisgötu
3 annað kvöld, fimmtudaginn
22. janúar kl. 20.30. Dagskrá og
veitingar eru I umsjá féiags-
deildanna i Arbæ og Breiðholti.
Það ber til tiðinda annað
kvöld að kvartettinn kemur
fram í fyrsta sinn og syngur
nokkur lög. Kvartettinn skipa
þeir Baldur Óskarsson, Einar
Gunnarsson, Gunnar Guttorms-
son og Hreiöar Pálmason. 1
opnu húsi verða og sýndar ljós-
myndir úr sumarferö Alþýðu-
bandalagsins i Reykjavik 1980
og sömuleiðis kvikmynd úr
þeirri för um Þjórsárdal og
Heklusvæðiö.
Opnu húsin, sem haldin hafa
verið einu sinni i mánuði á
vegum félagsdeilda ABR, hafa
mælst vel fyrir og er þess vænst
að félagar fjölmenni annað
kvöld.
—ekh j
Búrfellsstöðin
með full afköst
i gær var rafstöðin við
Búrfell farin að framleiða
rafmagn með fullum af-
köstum eftir ísvandamálið
mikla i fyrradag, þegar
framleiðslan datt niður í 4
megawött úr 180.
Steingrimur Dagbjartsson
stöðvarstjóri i Búrfellsstöðinni
sagöi i samtali við Þjóðviljann i
gær, að i fyrradag hefði farið
saman is og krapi i Þjórsá, sem
myndaðist vegna snjókomu og
mikils skafrennings, og hefði
ástandið ekki fyrr verið jafn
slæmt og þá.
1 gær var komið ágætt veður
þar efra, meira að segja farið að
rigna og þá lagaöist ástandiö
fljótt.
Vegna gamalla deilna, allt frá
þvi að Búrfellsstöðin var byggö,
hefur ekki mátt nefna isvanda-
mál á nafn hjá Landsvirkjunar-
mönnum, þar til i fyrradag að
auglýst var að isvandamál væri i
stöðinni og fólk þvi beðið að fara
sparlega með rafmagn. 1 siðasta
helgarblaði Þjóöviljans var itar-
lega rakin saga deilunnar um is-
vandamálið i Þjórsá og afleiðing-
ar þess að ekki var farið að ráði
þeirra er best til þekktu I þvi
máli.
— S.dór
Skákáhugi kvenna hér á landi hefur vaxið mikið sl. ár og I vetur verður efnt tii námskeiða f skák
fyrir konur á vegum TR.
Lítíllar
flugvélar
með
tveimur
mönnum
leitað
1 alian gærdag var leitað iitiliar
kanadiskrar flugvélar, sem I voru
2 menn, en siðast heyrðist til vél-
arinnar um kl. 18 I fyrradag. Þá
var hún stödd yfir radióvitanum i
Prins Christians-firði á Græn-
landi á ieið til tslands. Aætiaði
flugmaðurinn að lenda hér á landi
kl.22 en eldsneytisbirgðir vélar-
innar áttu að vera nægar til fiugs
til kl. rúmlega eitt um nóttina.
Veður á hafinu milli tslands og
Grænlands, því svæði sem vélin
var á leiö inná, var aftaka vont I
fyrrakvöld, mikið hvassviðri og
ising, og óttast menn þvi að vélin
hafi farist. Leitin i gær bar engan
árangur en leitað var úr lofti
meðan birta leyfði. í dag er fyrir-
hugað að halda leitinni áfram.
—S.dór.
Þjóðleikhúsið:
Dags hríðar
spor á
stóra sviðið
A iaugardaginn kemur, 24.
október verður sýnt á stóra
sviðinu I Þjóðleikhúsinu, leikrit
Valgarðs Egilssonar, Dags hriðar
spor, en leikritið hefur verið sýnt
á iitla sviðinu frá þvi það var
frumsýnt I nóvember s.l..
Húsfyllir hefur verið á þeim 16
sýningum sem þegar eru búnar
og hefur leikritiö, sem er frum-
raun höfundar, hlotiö óvenju
góðar viðtökur gagnrýnenda.
Sagði Sverrir Hólmarsson, leik-
listargagnrýnandi Þjóðviljans
m.a. að ,,hér væri hiklaust á ferð-
inni óvenjulega gott leikhús og
gat um aö sýningin væri „spenn-
andi” og „nýstárleg”.
Fhitningur Dags hrlðar spora
upp á stóra sviðið er vegna mik-
illa þrengsla á litla sviðinu og
góðrar aðsóknar aöleikritinu,en I
næstu viku veröur frumsýnt nýtt
leikrit I kjallaranum. Sviösetn-
ingin breytist nokkuð og einnig
tekur Bjarni Steingrimsson við
hlutverki biskupsins sem Bene-
dikt Arnason hefur leikið.
Atburðarás Dags hriðar spora
gerist á einum hátiðisdegi — 1.
desember — ýmist á heimili
Isalds ráðuneytisstjóra og konu
hans, prófessors Þjóðlaugar, eða
þá i hátiöarsal Háskóla íslands.
tslenska fullveldisins er minnst
með þvi aö gerðir eru samningar
við erlent risafyrirtæki um fram-
tið tíl handa þjóðinni og koma þar
ýmsir við sögu. Þarna eru bæði
háttsettír embættismenn, fulltrú-
ar andlegs og veraldlegs valds,
fulltrúar visinda og mennta sem
og fulltrúar almenningsins i land-
inu.
Með hlutverk i leiknum fara
Herdis Þorvaldsdóttir, Rúrik
Haraldsson, Þórir Steingrimsson,
Flosi Olafsson, Arni Blandon,
Helgi Skiilason, Guðbjii-g Þor-
bjarnardóttir, Helga Bachmann,
Leifur Hauksson, ErUngur Gisla-
son, Bjarni Steingrimsson,
Guðjón Ingi Sigurðsson, Sigurður
Sigurjónsson og Július Brjánsson.
Leikstjórn er I höndum Brynju
Benediktsdóttur, leikmynd og
búningar eru eftir Sigurjón
Jóhannsson, en Ingvar Björnsson
sér um lýsinguna.
—AI