Þjóðviljinn - 21.01.1981, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 21. janúar 1981
blaðaukri
Orkusparnaður
Hvernig er hægt að spara raforku?
Lýsing og
litlu tækin
1. Slökkvum Ijósin þegar viö
förum.
2. Notum rétta lýsingu.
3. Flúrpipur.
4. Spegilperur.
5. Höldum ijósunum hreinum.
6. Kaffivélar
7. Notum hitakönnur.
8. Sjóöum i litlu vatni.
9. Hraösuöupottar.
10. Notkun hraösuöukatia.
1. Venjum okkur á aö slökkva
ljósin þegar viö yfirgefum
vistarverur. Þetta á bæöi við
um glóperur og flúrljós.
2. Lýsingin þarf aö vera rétt. Hún
má hvorki vera of litil né valda
ofbirtu. Best er að hún beinist
sem mest að þvi sem horft er á,
en ekki framan i áhorfandann.
Auk þess þarf að vera hæfileg
birta i herberginu. Ljðsir fletir
endurkasta birtunni miklu bet-
ur en dökkir. Veljum þvi frem-
ur ljósa liti en dökka, þá þarf
minni lýsingu. 1 lampa sem
eingöngu eru til skrauts, er best
að nota perur sem taka litinn
straum, t.d. 15 W.
3. Flúrpipur gefa um 6 sinnum
meira ljós en glóperur miðað
við sömu raforkunotkun.
4. Spegilperur safna ljósinu sam-
an og beina þvi i ákveðna átt.
Birta frá 40 W spegilperu er
svipuð og frá 75 W venjulegri
glóperu, en nær til minna svæð-
is. Notum spegilperur þar sem
við á, t.d. geta þær hentað I les-
lampa og önnur vinnuljós.
5. Ryk, fita og önnur óhreinindi á
perum og skermum getur
minnkað ljósið um allt að 30%.
Hreinsum þvi lampa og perur
reglulega.
6. Það þarf um 30% minni orku
við að laga kaffi i kaffivél en
þegar „hellt er upp á könn-
una”. Auk þess er ekki hitað
meira vatn en notað er.
7. Notum hitakönnu til að halda
kaffinu heitu, en ekki hitaplöt-
una á kaffivélinni.
8. Sjóðum kartöflur, grænmeti og
egg I eins litlu vatni og mögu-
legt er. A hitaveitusvæðum er
hagkvæmt að nota heitt krana-
vatn við suðu matvæla.
9. Þegar matreitt er i hraðsuðu-
potti styttist timinn sem mat-
reiðslan tekur, allt niður i
þriðjung. Með þessu móti
minnkar raforkunotkunin um
allt að 40%. Raforkusparnaður
næst þó fyrst þegar suðutíminn
er yfir 30 minútur i venjulegum
potti.
10. Við suðu á vatni er notuð um
helmingi minni orka ef notaður
er hraðsuðuketill i stað potts.
Auk þess er suðutiminn mun
styttri.
húsbyggjendur
ylurinn er
Afgreiðum einangrunarplast á
Stór-Reykjavíkursvæðið frá
mánudegi — föstudags.
Afhendum vöruna á byggingarstað,
viðskiptamönnum að kostnaðar
lausu. Hagkvæmt verð og
greiðsluskilmálar
við flestra hæfi.
Borgarplast hf
Borgamcd úmi93 7370
kvötd os Helgarömi 93 7355
i
i
i
Fasteignaþjónustan auglýsir
Laust starf
VILJUM RAÐA SÖLUFULLTROA.
Sérlega lifandi og skemmtilegt starf.
,, RAÐHERRALAUN” fyrir þann sem er
úrræöagóður, lipur, ólatur og fylginn
sér. — Vinna og aftur vinna.
Viðtalsbeiðnum veitt móttaka i sima 26213
þriðjud. og miðvikud.
FASTEIGNANÓNUSTAN
AUSTURSTRÆTI 17 — REYKJAVlK
Ofnasmiðja
Sudurlands
býður þér
hagstæða lausn
á orkuvandanum
með nýtingu
innlendra orkugjafa
Nú er hægt að spara allt að 70% af kyndingarkostnaði,
i samanburði við olíukyndingu, með FUNA-rafhitunarkatli
frá Ofnasmiðju Suðurlands.
Funa katlarnir eru viðurkennd framleiðsla, samþykkt af
Raffangaprófun ríkisins og Öryggiseftirlitinu, enda stenst
framleiðslan ýtrustu kröfur, sem gerðar eru til hitunar-
katla.
Funa rafhitunarkatlarnir eru framleiddir með innbyggðum
neysluvatnsspíral.
Ofnasmiðja Suðurlands framleiðir einnig hina viðurkenndu
Funa ofna, hannaða af íslenskum fagmönnum fyrir íslensk-
ar aðstæður. Funa ofnarnir eru með þvinguðu S-rennsli,
sem nýtir vatnið framúrskarandi vel.
Kynnið ykkur kosti Funa ofna og Funa rafhitunarkatla.
Hagstæð greiðsiukjör. Stuttur afgreiðslufrestur.
FUNA
OFNAR
HVERAGERÐI
AUSTURMÖRK 9 — SlMI 4454