Þjóðviljinn - 28.02.1981, Side 5
Helgin 28. febrúar til 1. mars 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Við kynnum bíl ársins frá LADA-
verksmiðjunum, LADA-SAFÍR 1981
nýr og gjörbreyttur LADA:
Nýtt glæsiiegt útlit, efnismeiri og
hærri, byggður. eins og áður fyrir
okkar norðlægu slóðir,
enda staðreynd að LADA-bílar hafa
unnið hugi og hjörtu okkar íslendinga.
Safírinn er stólpagripur, sterkur og vand-
aður, sem horfist ótrauður í augu við vegi
okkar og veðráttu.Hann er enginn pappírsbíll
á hjólböruhjólum.
OZON
Verkfræðingar LAOA-verksmiðjanna hafa á
mjög hugvitsamlegan hátt smíðað alveg nýjan
svokallaðan OZON-blöndung fyrir LADA-
SAFÍR.
OZON-blöndungurinn sem er verndaður með
einkaleyfi í mörgum löndum, er algjör bylting
í gerð blöndunga,
bví hann sparar bensínnotkun 15%, án
nokkurs orkutaps vélarinnar.
Þetta er aðeins eitt af mörgu, sem sýnir
hversu vel LADA-SAFÍR hentar okkar að-
stæðum.
Vélin er 4ra strokka 1300cc. með ofaná liggj-
andi knastás og fjögurra gíra samhæfðum
kassa. Bremsur; diskar að framan og skálar
að aftan. Fjöðrun; gormar að framan og aftan
með vökva dempurum.
Eigin þyngd er 995 kíló.
Munið að varahlutaþjónusta okkar er í
sérflokki. Það var staðfest í könnun Verðlags-
stofnunar.
Þú situr ekki í hnipri í LADA-SAFÍR. Safírinn
er byggður á skynsamlegan hátt - 5 manna
rúmgóður bíll með smekklega innréttingu án
óþarfa tildurs. Allir mælar og önnur öryggis-
tæki á réttum stað.
Athugið að fyrstu bílarnir eru á sárstöku kynningarverði. Pantið strax.
Verð með ryðvörn aðeins kr. 59.995.-. Allar frekari upplýsingar hjá okkur.
BIFREIÐAR OG LANDBÚNAÐARVÉLAR HF
Suðurlandsbraut 14 - Sími 38 600